Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 389. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 519  —  389. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um hjálpartæki fatlaðra.

Frá Arnbjörgu Sveinsdóttur.



     1.      Hvaða reglur gilda um úthlutun hjálpartækja til fatlaðra?
     2.      Er sveigjanleiki í þeim reglum til að bregðast við sérstökum einstaklingsþörfum?
     3.      Hversu strangt mat þurfa fatlaðir að ganga í gegnum við endurnýjun hjálpartækja?
     4.      Hvernig er ákvörðunartöku háttað um ný hjálpartæki sem auka færni til sjálfsbjargar?
     5.      Hversu löng bið er eftir afgreiðslu og endurnýjun hjálpartækja?
     6.      Sjá einkaaðilar um einhverja þætti þjónustu í tengslum við hjálpartæki fatlaðra?
     7.      Eru áform um að bæta gagnagrunn Tryggingastofnunar ríkisins þannig að fatlaðir þurfi ekki í sífellu að endurnýja upplýsingar sem þegar liggja fyrir í stofnuninni?
     8.      Mun ráðherra beita sér fyrir bættri og skeleggari þjónustu við þá fatlaða sem nýta sér hjálpartæki til að auka færni sína til sjálfsbjargar?


Skriflegt svar óskast.