Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 391. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 521  —  391. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um eftirlit með fjármálafyrirtækjum.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hvernig er háttað eftirliti Fjármálaeftirlitsins með hagsmunaárekstrum vegna setu stjórnarmanna lífeyrissjóða og annarra fjármálafyrirtækja í stjórnum annarra aðila?
     2.      Í hvaða mæli hefur Fjármálaeftirlitið gert athugasemdir við slík hagsmunatengsl og getur það gefið upplýsingar um hversu algeng þau eru?
     3.      Er ástæða til að breyta gildandi lögum og reglum til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra hjá lífeyrissjóðum og öðrum fjármálafyrirtækjum?


Skriflegt svar óskast.























Prentað upp.