Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 412. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 562  —  412. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um bann við geimvopnum.

Flm.: Hlynur Hallsson, Kolbrún Halldórsdóttir, Ögmundur Jónasson.



    Alþingi ályktar að Íslendingum beri að leggja sitt af mörkum í baráttu gegn vígvæðingu himingeimsins. Í því samhengi samþykkir Alþingi að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir og styðja á alþjóðavettvangi bann við geimvopnum þar sem miðað verði við:
     1.      Að allar rannsóknir og tilraunir, er tengjast hernaði í himingeimnum, verði tafarlaust stöðvaðar.
     2.      Að hvers konar hernaðarumsvif og vopnakerfi til nota í himingeimnum verði bönnuð.
     3.      Að óheimil sé smíði vopna sem grandað geta gervihnöttum og öðrum tækjum sem tengjast friðsamlegri nýtingu himinhvolfsins.
     4.      Að vinna verði hafin við gerð nýs alþjóðasamnings sem tryggi friðhelgi himingeimsins.

Greinargerð.


    Hinn 13. júní 2002 sagði ríkisstjórn Bandaríkjanna formlega upp ABM-samningnum um takmörkun eldflaugavarna. Ástæðan var sú að Bandaríkjastjórn sætti sig ekki við takmarkanir samningsins þar sem hún hafði í hyggju að hefja tilraunir á geimgagneldflaugakerfi sem unnið hefur verið að um áratugaskeið. Af þessum sökum er nauðsynlegt að Alþingi álykti um þessi mál.
    Málið hefur í reynd áður komið til kasta Alþingis en á nú þangað erindi á nýjan leik í ljósi aðstæðna. Hjörleifur Guttormsson flutti á 108. löggjafarþingi tillögu til þingsályktunar sem segja má að hér sé endurflutt með breyttu sniði og nýrri greinargerð.
    Á þeim tíma, sem málið var fyrst flutt, fór mikil umræða fram á alþjóðavettvangi um „stjörnustríðsáætlun“ Ronalds Reagans, þáverandi Bandaríkjaforseta. Hinn 23. mars 1983 flutti Reagan fræga ræðu, sem kölluð hefur verið „stjörnustríðsræðan“. Markmiðin sem sett voru fram í þeirri ræðu, um fullkominn varnarbúnað gegn kjarnorkuflaugum, þóttu óraunsæ og voru ekki samrýmanleg samkomulagi þáverandi stórvelda, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, um takmörkun gagneldflaugakerfa sem skjalfest var í ABM-sáttmálanum frá árinu 1972. Var sá samningur liður í að koma böndum á þá vitfirrtu stefnu sem stórveldin viðhöfðu í vopnakapphlaupi sínu eins og flestir þekkja.
    Frá lokum kalda stríðsins hafa ríkisstjórnir Bandaríkjanna unnið að endurnýjun verkefnisins og eytt miklum fjármunum í það. Á síðustu árum hefur verkefnið gengið í endurnýjun lífdaga undir forustu ríkisstjórnar George W. Bush, núverandi forseta Bandaríkjanna. Árlegur kostnaður verkefnisins hefur verið, frá valdatöku hans, um 8 milljarðar bandaríkjadal (600 milljarðar íslenskra króna) og fer upp í 9 milljarða dala (675 milljarða króna) á næsta ári. Heildarkostnaður verkefnisins frá því að Reagan ýtti því úr vör er áætlaður um 60 milljarðar dala (4.500 milljarðar króna).
    Hér verður látið ógert að ræða ítarlega hinar tæknilegu hliðar þessa máls en þess má geta að margir af fremstu vísindamönnum heims hafa lýst efasemdum um að búnaðurinn muni nokkurn tíma virka (sjá fylgiskjal). Má benda á í þessu samhengi að bandarísk stjórnvöld hafa dregið mjög í land með fullyrðingar sínar um virkni búnaðarins frá því að Reagan kynnti hann á sínum tíma. Auk þess hafa nýlegar tilraunir með slíkan búnað leitt í ljós stórkostlega galla og verið mislukkaðar að flestu leyti.
    Andstaða við geimvopnaáætlunina er mikil og kemur úr mörgum áttum. Nokkrar helstu ástæður hennar verða nefndar hér að neðan.
     1.      Kostnaður við áætlunina er gífurlegur, en önnur brýn verkefni, eins og að eyða kjarnaoddum frá Sovéttímanum, eru í ólestri vegna fjárskorts. Af þeim sökum er fjöldinn allur af kjarnaoddum undir takmörkuðu eftirliti í Rússlandi. Þær fjárhæðir sem vantar til að eyða þessum kjarnaoddum eru ekki nema brot af kostnaði við geimvopnaáætlunina.
     2.      ABM-samningurinn var tímamótasamningur sem byggðist á hagsmunum mannkynsins alls og tvímælalaust rétt skref í þá átt að draga úr kjarnorkuvígbúnaði. Flestir eru sammála um að ofuráhersla ráðamanna vestanhafs og austan á fælingarmátt vopnanna og þar með takmarkalausa framleiðslu þeirra var óráðsía. Geimvopnaáætlunin er hins vegar andstæð ABM-samningnum og þess vegna ákváðu bandarísk stjórnvöld að rifta honum. Það er áhyggjuefni, að meintir sérhagsmunir Bandaríkjastjórnar skuli njóta forgangs fram yfir augljósa hagsmuni heimsbyggðarinnar.
     3.      Geimvopnaáætlunin veitir falskt öryggi en ekki raunverulegt þar sem valdið er sett í hendur tækninni en ekki leyst með mannlegum ráðum. Samningurinn um fækkun kjarnorkuvopna er dæmi um samning þar sem mannlegt vald er notað til að taka á hættum sem það sjálft hefur getið af sér. Auk þess er mikil hætta fólgin í því að treysta á tækni til að koma í veg fyrir kjarnorkustríð.
     4.      Bent hefur verið á að geimvopnaáætlun Bandaríkjamanna ýtir undir nýtt vígbúnaðarkapphlaup. Stjórnvöld Kína, Pakistan, Indlands og Rússlands hafa til að mynda lýst áhyggjum af þróun mála. Á alþjóðavettvangi hefur verið vilji til að koma böndum á þróun og útbreiðslu kjarnorkuvopna í heiminum, sbr. NPT-samninginn (Non-Proliferation Treaty) sem gerður var einmitt í því skyni. Geimvopnaáætlun Bandaríkjastjórnar gengur hins vegar þvert á þennan vilja.
    Einhver mesta vá sem mannkynið hefur staðið frammi fyrir er eigin útrýming með kjarnorkuvopnum og því sem kalla mætti „sjálfsmorð siðmenningar“. Það er mikil óheillaþróun að Bandaríkjastjórn skuli nú vekja upp gamla drauga með því að blása til sóknar um geimvopnaáætlun sína . Mikilvægt er að alþjóðasamfélagið styrki þá samninga sem gerðir hafa verið til að takmarka framleiðslu kjarnorkuvopna og byggi framtíðarstefnu sína í friðar- og öryggismálum á slíkum samningum og nýjum alþjóðasamningi til að tryggja friðhelgi himingeimsins.


Fylgiskjal.

Samband bandarískra
vísindamanna:


12. nóvember 2001
    Háttv. Tom Daschle    Háttv. J. Dennis Hastert
    talsm. meiri hluta öldd.    forseti fulltrúadeildar
    
    Háttv. Trent Lott    Háttv. Richard Gephardt
    talsm. minni hluta öldd.     talsm. minni hluta ftrd.

    Í þágu þjóðaröryggis hvetjum við yður til þess að synja um fjárveitingar til hvers kyns áætlana, verkefna eða starfsemi sem ekki samrýmist samningnum um varnir gegn kjarnaeldflaugum (ABM-samningnum). Hinir hörmulegu atburðir sem urðu 11. september tóku af allan vafa um að öryggisþarfir Bandaríkjamanna eru mun meiri en svo að þær verði leystar með tæknilega óvænlegum vörnum gegn herfræðilega ólíklegri eldflaugaárás frá þriðja heiminum.
    Að því er varðar þá ógn sem sennilegust er, hafa árásirnar 11. september sýnt okkur í raun það sem blasað hefur við í mörg ár: Frumstæð langdræg skotflaug, sem vafasamt er að muni hæfa skotmark sitt, sem er óáreiðanleg og sem ber skýra utanáskrift þess sem sendir hana, er ekki freistandi kostur fyrir hryðjuverkamann og afar ósennilegur flutningsmáti hryðjuverkavopns. Að leggja gríðarlega vinnu og kostnað í að bregðast við ólíklegustu og óskilvirkustu ógninni væri glapræði.
    Að því er varðar tæknina er það að segja að þótt hugsanlegt sé að „hæfa byssukúlu með byssukúlu“ við þær aðstæður sem ríkja á tilraunastofu, er mun erfiðara að hanna kerfi sem getur lifað af og veitt skilvirka vörn gegn skyndiárás þar sem beitt er gagnráðstöfunum, sem sumar kunna að koma vörninni í opna skjöldu. Það forskot sem árásaraðili ætíð hefur er meira en það forskot sem hægt er að ná með yfirburðatækni Bandaríkjamanna, einkum ef árásaraðilinn er útlagaríki sem þarf ekki að hæfa nema með einu af mörgum vopnum til þess að ná tilgangi sínum. Fyrri tilraunir til þess að koma upp eldflaugavörnum hafa farið út um þúfur þegar komið hefur í ljós að árangur var mun minni og kostnaður mun meiri en auglýst var. Við sjáum engar vísbendingar um að betur muni takast til með þeim kerfum sem nú eru uppi tillögur um.
    Við getum sem þjóð komið okkur upp miklu betri vörnum gegn gereyðingarvopnum sem borin eru með langdrægum eldflaugum með því að koma í veg fyrir að slík vopn breiðist út og komist í óvinahendur. Uppsögn ABM-samningsins, sem kæmi til viðbótar við nýleg neikvæð ummæli um samninga um takmörkun vopna, myndi einnig grafa undan mótspyrnu við útbreiðslu vopna. Það myndi einnig grafa undan samstarfi við Rússa og Kínverja um að draga úr ógninni af kjarnorkuvá. Við hvetjum þess vegna til þess að ABM-samningurinn verði áfram í gildi.

Hans Bethe Steven Weinberg
Cornell University University of Texas at Austin
1967 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1979 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði
Sidney Altman Philip Anderson Kenneth Arrow
Yale University Princeton University Stanford University
1989 Nóbelsverðlaun í efnafræði 1977 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1972 Nóbelsverðlaun í hagfræði
Julius Axelrod David Baltimore Baruj Benacerraf
National Institutes of Health The Baltimore Family Fund Harvard Medical School
1970 Nóbelsverðlaun í læknisfræði 1975 Nóbelsverðlaun í læknisfræði 1980 Nóbelsverðlaun í læknisfræði
J. Michael Bishop Nicolaas Bloembergen Paul Boyer
Univ. of California Medical Center Harvard University University of California
1989 Nóbelsverðlaun í læknisfræði 1981 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1997 Nóbelsverðlaun í efnafræði
Owen Chamberlain E. J. Corey James Cronin
Lawrence Berkeley Lab Harvard University Enrico Fermi Institute
1959 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1990 Nóbelsverðlaun í efnafræði 1980 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði
Johann Deisenhofer Val Fitch Jerome Friedman
Southwestern Medical Center Princeton University MIT
1988 Nóbelsverðlaun í efnafræði 1980 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1990 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði
Walter Gilbert Donald Glaser Sheldon Glashow
Biological Laboratories University of California Harvard University
1980 Nóbelsverðlaun í efnafræði 1960 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1979 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði
Paul Greengard Roger Guillemin Dudley Herschbach
The Rockefeller University The Salk Institute Harvard University
2000 Nóbelsverðlaun í læknisfræði 1977 Nóbelsverðlaun í læknisfræði 1986 Nóbelsverðlaun í efnafræði
Roald Hoffmann Jerome Karle Walter Kohn
Cornell University Department of the Navy University of California
1959 Nóbelsverðlaun í læknisfræði 1992 Nóbelsverðlaun í læknisfræði 2000 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði
Leon Lederman Edward Lewis Rudolph Marcus
Fermi Nat. Accelerator Lab Cal Tech Cal Tech
1988 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1995Nóbelsverðlaun í læknisfræði 1992 Nóbelsverðlaun í efnafræði
Franco Modigliani Mario Molina Joseph Murray
MIT MIT Brigham and Women's Hospital
1985 Nóbelsverðlaun í hagfræði 1995 Nóbelsverðlaun í efnafræði 1990 Nóbelsverðlaun í læknisfræði
Marshall Nirenberg Douglass Osheroff Arno Penzias
National Institutes of Health Stanford University Bell Laboratories
1968 Nóbelsverðlaun í læknisfræði 1996 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1978 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði
Martin Perl William Phillips Norman Ramsey
Stanford University NIST Harvard University
1995 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1997 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1989 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði
Richard Roberts Robert Solow Jack Steinberger
New England Bio Labs MIT CERN
1993 Nóbelsverðlaun í læknisfræði 1987 Nóbelsverðlaun í hagfræði 1988 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði
Joseph Taylor James Tobin Charles Townes
Princeton University Yale University University of California
1993 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1981 Nóbelsverðlaun í hagfræði 1964 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði
Daniel Tsui Eric Wieschaus Robert Wilson
Princeton University Princeton University Harvard University
1998 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1995 Nóbelsverðlaun í læknisfræði 1978 Nóbelsverðlaun í eðlisfræði