Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 243. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 576 — 243. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Ástu Möller um búsetu geðfatlaðra.
1. Hve margir geðfatlaðir einstaklingar eru á biðlista eftir félagslegum búsetuúrræðum, sbr. 10. gr. laga um málefni fatlaðra? Svarið óskast sundurliðað eftir búsetuformi sem óskað er eftir og umdæmum svæðisskrifstofa fatlaðra.
2. Hvernig er búsetu þeirra nú háttað, þ.e. eru þeir á sjúkrastofnunum, á eigin heimilum, heimilislausir eða annars staðar?
Í nóvember sl. óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum um hve margir geðfatlaðir eru á biðlista eftir þjónustu skv. 10. gr. laga um málefni fatlaðra, nr. 59/1992, frá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra og frá þeim rekstraraðilum er hafa tekið að sér þjónustu við fatlaða.
Taflan sýnir fjölda geðfatlaðra á biðlista eftir þjónustu skv. 10. gr. laga um málefni fatlaðra og núverandi búsetu þeirra, skipt eftir landsvæðum.
Á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra er enginn geðfatlaður á biðlista eftir félagslegu búsetuúrræði.
Varðandi fjölda á biðlista á Norðurlandi eystra er ljóst af svari búsetudeildar Akureyrarbæjar, frá 7. nóvember 2003, til ráðuneytisins að hluti þess hóps sem nú bíður eftir íbúð skv. 10. gr. laga um málefni fatlaðra nýtur nú þegar þjónustu samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og lögum um málefni fatlaðra, nr. 59/1992.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 576 — 243. mál.
Svar
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Ástu Möller um búsetu geðfatlaðra.
1. Hve margir geðfatlaðir einstaklingar eru á biðlista eftir félagslegum búsetuúrræðum, sbr. 10. gr. laga um málefni fatlaðra? Svarið óskast sundurliðað eftir búsetuformi sem óskað er eftir og umdæmum svæðisskrifstofa fatlaðra.
2. Hvernig er búsetu þeirra nú háttað, þ.e. eru þeir á sjúkrastofnunum, á eigin heimilum, heimilislausir eða annars staðar?
Í nóvember sl. óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum um hve margir geðfatlaðir eru á biðlista eftir þjónustu skv. 10. gr. laga um málefni fatlaðra, nr. 59/1992, frá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra og frá þeim rekstraraðilum er hafa tekið að sér þjónustu við fatlaða.
Taflan sýnir fjölda geðfatlaðra á biðlista eftir þjónustu skv. 10. gr. laga um málefni fatlaðra og núverandi búsetu þeirra, skipt eftir landsvæðum.
Geðfatlaðir á biðlista eftir þjónustu.
|
|
Alls |
Reykjavík | Reykjanes | Vesturland | Norðurland eystra | Austurland | Suðurland |
| Ósk um búsetu | |||||||
| Íbúðir | 33 | 4 | 2 | 23 | 4 | ||
| Íbúðir með sameiginlegri aðstöðu | 34 | 12 | 14 | 6 | 2 | ||
| Sambýli | 21 | 5 | 15 | 1 | |||
| Samtals | 88 | 21 | 29 | 2 | 29 | 1 | 6 |
| Núverandi búseta | |||||||
| Heimahús | 53 | 6 | 17 | 1 | 25 | 4 | |
| Sjúkrastofnun | 26 | 12 | 10 | 1 | 1 | 2 | |
| Óstaðsettur í hús | 6 | 3 | 1 | 2 | |||
| Skammtímavistun | 3 | 1 | 1 | 1 | |||