Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 389. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 623  —  389. mál.




Svar



heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Arnbjargar Sveinsdóttur um hjálpartæki fatlaðra.

     1.      Hvaða reglur gilda um úthlutun hjálpartækja til fatlaðra?
    Um styrki Tryggingastofnunar ríkisins vegna hjálpartækja gilda ákvæði a-liðar 1. mgr., sbr. 3. mgr., 33. gr. laga nr. 117/1993, um almannatryggingar, með síðari breytingum. Á grundvelli þeirra hefur verið sett reglugerð nr. 460/2003, um styrki Tryggingastofnunar ríkisins vegna hjálpartækja.

     2.      Er sveigjanleiki í þeim reglum til að bregðast við sérstökum einstaklingsþörfum?
    Já. Sem dæmi má nefna að víða í reglugerðarinni er gert ráð fyrir mati Tryggingastofnunar ríkisins og er það gert með tilliti til þess að hægt sé að bregðast við sérstökum þörfum. Einnig er sveigjanleiki í samningum sem Tryggingastofnun ríkisins gerir um hjálpartæki til að koma til móts við sérþarfir sem samningar ná ekki til.

     3.      Hversu strangt mat þurfa fatlaðir að ganga í gegnum við endurnýjun hjálpartækja?
    Rökstuðningur þarf að berast með umsókn um endurnýjun tækis. Gert er ráð fyrir að sá heilbrigðisstarfsmaður sem aðstoðar umsækjanda við umsókn eða umsækjandi sjálfur leggi fram upplýsingarnar. Tryggingastofnun ríkisins áskilur sér rétt til að skoða hjálpartækið ef um sérstök vafaatriði er að ræða.

     4.      Hvernig er ákvörðunartöku háttað um ný hjálpartæki sem auka færni til sjálfsbjargar?
    Sækja þarf um hjálpartæki áður en fest eru kaup á þeim. Það á einnig við um almennar breytingar á hjálpartækjum og þær sem eru gerðar sérstaklega fyrir þann sem í hut á. Sótt er um á þar til gerðum eyðublöðum Tryggingastofnunar ríkisins. Læknir og/eða annar hlutaðeigandi heilbrigðisstarfsmaður, t.d. iðjuþjálfi eða sjúkraþjálfari, metur þörf fyrir hjálpartækið og fyllir út eyðublaðið. Lýsing á færni og rökstuðningur fyrir hjálpartæki þarf ávallt að fylgja umsókn. Við fyrstu umsókn þarf umsögn læknis að fylgja eyðublaðinu (læknisvottorð). Ef breyting verður á sjúkdómsástandi eða fötlun getur þurft nýtt læknisvottorð. Ætíð er krafist nýs læknisvottorðs með umsókn ef ekki er samræmi milli þeirra hjálpartækja sem um er sótt og þeirra læknisfræðilegu upplýsinga sem áður hafa borist með umsókn um hjálpartæki. Ef um nýtt hjálpartæki er að ræða sem reglugerð um hjálpartæki tekur ekki til þarf að koma skrifleg beiðni um slíkt til hjálpartækjanefndar Tryggingastofnunar ríkisins og hún gerir tillögur til ráðuneytisins um hvort breyta eigi reglugerðinni

     5.      Hversu löng bið er eftir afgreiðslu og endurnýjun hjálpartækja?
    Umsóknir eru afgreiddar tafarlaust en oft þarf að kalla eftir viðbótargögnum. Leitast er við að afgreiða forgangsmál (vegna þeirra sem eru að útskrifast af sjúkrahúsum) innan þriggja virkra daga frá því að fullnægjandi umsókn berst. Í öðrum málum er hámarksafgreiðslutími fimm vikur frá viðtöku fullnægjandi umsóknar. Afgreiðslutími getur verið lengri ef umsókn er ófullnægjandi og afla þarf viðbótargagna.
    Samkvæmt samningum Tryggingastofnunar ríkisins við söluaðila er afgreiðslufrestur þeirra að hámarki þrjár vikur til að afgreiða tæknileg hjálpartæki en fimm vikur til að afgreiða stoðtæki (spelkur, gervilimi og bæklunarskó). Þegar um er að ræða sérsmíðaða skó fyrir einstakling í fyrsta skipti má afhendingartími þó vera átta vikur að hámarki. Í sérstökum tilvikum getur hjálpartækjamiðstöð Tryggingastofnunar ríkisins samþykkt lengri afhendingartíma að fenginni rökstuddri greinargerð frá söluaðila. Leitast er við að afgreiða hjálpartæki af lager hjálpartækjamiðstöðvar Tryggingastofnunar innan þriggja vikna eftir að afgreiðsla umsóknar er frágengin. Afgreiðslutími getur verið lengri ef afla þarf varahluta.
    Ríkisendurskoðun gerði könnun á afgreiðslutíma umsókna um hjálpartæki á árinu 2000 (250 umsóknir, kerfisbundið slembiúrtak úr 19.728 umsóknum). Könnunin leiddi í ljós að 96,5% umsókna voru afgreidd innan fimm vikna, 37,6% allra umsókna um hjálpartæki voru afgreidd á viku eða skemur. Þá voru tæp 73% umsókna afgreidd á 14 dögum eða skemur.

     6.      Sjá einkaaðilar um einhverja þætti þjónustu í tengslum við hjálpartæki fatlaðra?

    Tryggingastofnun ríkisins hefur gert fjölda samninga við fyrirtæki um tiltekin hjálpartæki, svo og um sérsmíði á hjálpartækjum og stoðtækjum. Samningsbundið fyrirtæki (seljandi) ber ábyrgð á afhendingu umsaminna hjálpartækja til hinna tryggðu. Í afhendingu eru aðlögun og leiðbeiningar um notkun hjálpartækjanna innifaldar eftir því sem við á hverju sinni, m.a. skulu leiðbeiningar á íslensku fylgja hjálpartæki. Með aðlögun er átt við að tækið sé tilbúið til notkunar, samsett og stillt fyrir notanda. Samningsbundnu fyrirtæki ber enn fremur að sinna öllum sanngjörnum óskum hins tryggða um frekari leiðbeiningar um notkun hjálpartækisins, án frekara endurgjalds. Breytingar og/eða aðlögun á stoðtækjum (spelkum, gervilimum og bæklunarskóm) innan þiggja mánaða frá afhendingu stoðtækisins er innifalin í verði þess. Í sérstökum tilvikum hefur Tryggingastofnun ríkisins gert samninga við fyrirtæki um akstur hjálpartækja heim til umsækjanda.

     7.      Eru áform um að bæta gagnagrunn Tryggingastofnunar ríkisins þannig að fatlaðir þurfi ekki í sífellu að endurnýja upplýsingar sem þegar liggja fyrir í stofnuninni?

    Tryggingastofnun ríkisins er að endurnýja tölvukerfi sín og árið 2001 var m.a. komið upp nýju hjálpartækjatölvukerfi. Nýju kerfin gefa kost á breyttum og nýjum vinnubrögðum sem skila sér væntanlega í betri þjónustu við umsækjendur.

     8.      Mun ráðherra beita sér fyrir bættri og skeleggari þjónustu við þá fatlaða sem nýta sér hjálpartæki til að auka færni sína til sjálfsbjargar?

    Sífellt er fylgst með nýjungum og nýrri tækni í því skyni að bæta þjónustuna. Reglur um hjálpartæki sem Tryggingastofnun ríkisins styrkir voru nýlega endurskoðaðar í heild með reglum tryggingaráðs sem tóku gildi 1. apríl 2002. Reglugerð 460/2003 byggist að mestu á þeim reglum. Nefna má að sérstök áhersla var lögð á að bæta upplýsingar um hjálpartæki og þjónustu Tryggingastofnunar ríkisins á heimasíðu stofnunarinnar á sl. ári.
    Bent er á að upplýsingar um framangreint er að finna á heimasíðu Tryggingastofnun ríkisins, www.tr.is, undir hjálpartækjamiðstöð. Einnig má benda á stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á hjálpartækjamiðstöð Tryggingastofnunar ríkisins í október 2001.