Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 254. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 629  —  254. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 37 27. maí 1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, með síðari breytingum.

Frá sjávarútvegsnefnd.



     1.      Við 1. gr. bætist tveir nýir málsliðir er orðist svo: Ráðherra skal skipa stjórn Verkefnasjóðsins sem skilar tillögum til ráðherra um ráðstöfun fjárins. Ráðherra setur reglur um stjórn sjóðsins og úthlutun úr honum.
     2.      Í stað efnismálsliðar 4. gr. komi: Ef gjald, sem lagt hefur verið á útgerð skips sem veitt hefur hinn gjaldskylda afla, hefur ekki verið greitt þegar sá tími er kominn að krefjast má fullnustu þess með fjárnámi skal Fiskistofa svipta hlutaðeigandi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni þar til skuldin greiðist eða samið hefur verið um greiðslu hennar. Gildir þetta einnig þótt eigendaskipti hafi orðið á skipi, enda hafi eigendaskiptin ekki orðið við nauðungaruppboð eða gjaldþrotaskipti. Standi útgerð ekki við samning um greiðslu skuldar er Fiskistofu heimilt að svipta skip fyrirvaralaust leyfi til veiða í atvinnuskyni.