Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 452. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 645 — 452. mál.
um stofnun vetnisráðs.
Guðjón Hjörleifsson, Guðjón Ólafur Jónsson, Magnús Stefánsson.
Alþingi ályktar að fela iðnaðarráðherra að skipa vetnisráð til fjögurra ára í senn. Ráðið verði ríkisstjórn til ráðgjafar og upplýsinga um stöðu, framvindu og tækifæri á sviði vetnismála og standi árlega fyrir opnu vetnisþingi. Ráðið verði skipað níu fulltrúum, tveimur frá Íslenskri nýorku, einum frá Samtökum iðnaðarins, einum frá Háskóla Íslands, einum frá Samorku, einum frá Orkustofnun, einum frá Iðntæknistofnun, einum frá Tækniskóla Íslands og formanni sem ráðherra skipar án tilnefningar.
Íslendingar hafa verið framarlega í hópi þjóða varðandi áætlanir um nýtingu vetnis og efnarafala. Hin pólitísku markmið um að Ísland verði fyrsta ríki veraldar til að byggja á vetnistækni í efnahag sínum hefur vakið verðskuldaða athygli. Umfjöllun um áform og athafnir á Íslandi í þessu sambandi hefur birst í nokkrum hundraða erlendra fjölmiðla. Fyrsta almenna vetnisstöðin í heiminum var opnuð á Íslandi, þrír vetnisstrætisvagnar aka á götum Reykjavíkur í tilraunaskyni, fyrsta vetnisknúna skipið er í undirbúningi, áætlanir um framleiðslu, notkun og útflutning vetnis eru í vinnslu, Íslandi var boðið að vera stofnaðili að alþjóðlegu átaki í vetnisvæðingu (International Partnership for the Hydrogen Economy) með 14 öðrum ríkjum, hingað leita fjölmargir erlendir aðilar eftir samstarfi um hina nýju aðferð í orkumálum þjóða. Ísland er með öðrum orðum talið til framsæknustu ríkja á sviði vetnisvæðingar.
Frá því áformum um vetnisvæðingu var hleypt af stokkunum (1999) má segja að þróun hafi orðið hraðari en nokkurn óraði fyrir. Fylgja vitanlega ýmsir vaxtarverkir slíkri þróun og er því mikilvægt að stjórnvöld hafi formlegan vettvang til að fylgjast með þróuninni og framvindu mála. Tillagan gerir ráð fyrir því að með stofnun vetnisráðs skapist sá vettvangur er veitt geti ríkisstjórninni ráðgjöf um málefnið. Auk þess er ráðinu ætlað að standa árlega fyrir vetnisþingi þar sem á opnum fundi er gerð grein fyrir þróun mála og stefnumörkun rædd.
Gert er ráð fyrir því að vetnisráð verði skipað níu fulltrúum. Samkvæmt tillögunni eiga þeir að endurspegla þá aðila er málið tengist en vetnisráð getur enn fremur leitað til annarra aðila eftir þörfum um upplýsingar.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 645 — 452. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um stofnun vetnisráðs.
Flm.: Hjálmar Árnason, Dagný Jónsdóttir, Drífa Hjartardóttir,
Guðjón Hjörleifsson, Guðjón Ólafur Jónsson, Magnús Stefánsson.
Alþingi ályktar að fela iðnaðarráðherra að skipa vetnisráð til fjögurra ára í senn. Ráðið verði ríkisstjórn til ráðgjafar og upplýsinga um stöðu, framvindu og tækifæri á sviði vetnismála og standi árlega fyrir opnu vetnisþingi. Ráðið verði skipað níu fulltrúum, tveimur frá Íslenskri nýorku, einum frá Samtökum iðnaðarins, einum frá Háskóla Íslands, einum frá Samorku, einum frá Orkustofnun, einum frá Iðntæknistofnun, einum frá Tækniskóla Íslands og formanni sem ráðherra skipar án tilnefningar.
Greinargerð.