Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 226. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 649  —  226. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um skattlagningu bótasjóða tryggingafélaganna.

     1.      Hvernig er háttað skattlagningu fjár sem lagt er í bótasjóði tryggingafélaganna?
    Tryggingafélögin meta út frá tryggingafræðilegum forsendum tjónagreiðslur sem líklegt er að falli á þau. Hækkun skuldbindingarinnar á árinu er heimilt að færa til frádráttar skattskyldum tekjum og eignum félaganna. Lækkun skuldbindingarinnar kemur hins vegar til tekna.

     2.      Hvernig er háttað eftirliti með því að tryggingafélögin leggi ekki meira fé í bótasjóðina en sem nemur fjármagni til tryggingar áföllnum skyldum til að komast þannig hjá skattlagningu og auka hagnað sinn?
    Eftirlit Fjármálaeftirlitsins með vátryggingaskuld vátryggingafélaga er einkum í samræmi við 2. mgr. 54. gr. laga nr. 60/1994, um vátryggingastarfsemi. Þar er kveðið á um að Fjármálaeftirlitið skuli árlega leggja mat á vátryggingaskuld vátryggingafélaga, þar á meðal hvort tekið sé á fullnægjandi hátt tillit til óvissu í mati með nauðsynlegu álagi og að skilyrðum um það sem lagt er fram til jöfnunar vátryggingaskuldinni sé fullnægt. Einnig skal Fjármálaeftirlitið skv. 2. mgr. 55. gr. áðurnefndra laga fylgjast með því að iðgjöld sem í boði eru hér á landi séu sanngjörn í garð vátryggingartaka og í samræmi við þá áhættu sem í vátryggingum felst og eðlilegan rekstrarkostnað. Hluti af því eftirliti er að fylgjast með því að upphæð vátryggingaskuldar sé ekki hærri en nemur þeirri áhættu sem felst í að tjón séu óuppgerð eða ótilkynnt.

     3.      Hafa skattyfirvöld á einhvern hátt eftirlit með því að frádráttur samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt vegna framlaga í bótasjóði takmarkist við það fé sem félögunum ber að leggja til hliðar til að mæta kostnaði af áföllnum en óuppgerðum skyldum? Ef svo er ekki, telur fjármálaráðherra rétt að koma á slíku eftirliti eða að taka upp samvinnu við Fjármálaeftirlitið um það?
    Eftirlit með vátryggingaskuld er í höndum Fjármálaeftirlitsins samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi. Skattyfirvöld hafa ekki haft sérstakt eftirlit, umfram það sem leiðir af venjulegu og hefðbundnu eftirliti með skattskilum rekstraraðila, með réttmæti gjald- og skuldfærðrar hækkunar á tjónaskuld tryggingafélaganna enda byggjast útreikningar á stöðluðum tryggingafræðilegum aðferðum sem erfitt er fyrir skattyfirvöld að draga í efa. Ekki eru uppi áform um breytingar hér á.


Prentað upp.
     4.      Telur ráðherra rétt með tilliti til þess hve bótasjóðir tryggingafélaganna hafa vaxið mikið á undanförnum árum að láta kanna sérstaklega hvort fé í sjóðunum sé umfram það sem nauðsynlegt er vegna óuppgerðra skuldbindinga?
    Fjármálaeftirlitið hefur reglulega athugað stöðu vátryggingaskuldar hjá einstökum vátryggingafélögum. Samandregnar niðurstöður athugana á þessu sem gerðar voru í tengslum við iðgjaldahækkanir árin 1999 og 2000 voru birtar opinberlega. Síðustu mánuði hefur staðið yfir umfangsmikil athugun á stöðu tjónaskuldar þriggja stærstu vátryggingafélaganna og munu niðurstöður þeirrar athugunar liggja fyrir á næstu vikum.

     5.      Hvað verður ríkissjóður af miklu fé fyrir hvern milljarð sem lagður er í bótasjóðina umfram það sem er nauðsynlegt og heimilað skv. 7. tölul. 31. gr. skattalaga?
    Í árslok færa innlend vátryggingafélög fé í bótasjóð sem nemur áætlun til að inna af hendi áfallnar skyldur sínar við vátryggingartaka. Komi síðan í ljós við uppgjör við vátryggingartaka að greiðsla í bótasjóðinn hafi verið ofáætluð er það sem ofáætlað hefur verið fært til tekna og skattlagt í samræmi við það skatthlutfall sem viðkomandi tryggingafélag er skattlagt í á þeim tíma. Ekki er því um það að ræða að ríkissjóður verði af fé, en skattgreiðslur geta frestast.

     6.      Telur fjármálaráðherra rétt að takmarka stærð bótasjóða við óuppgerð tjón tiltekins árafjölda svo að óuppgerð tjón geti ekki legið í sjóðunum árum saman og þar með réttlætt undanþágu mikils fjár frá skattlagningu?
    Það er skoðun fjármálaráðuneytisins og Fjármálaeftirlitsins að ekki sé rétt að leggja bann við því að lagt sé til hliðar í tjónaskuld vegna tjóna sem eru eldri en tiltekinn árafjöldi. Þó verður að gera þá kröfu til vátryggingafélaganna að þau hafi gild rök fyrir því að halda eldri tjónum áfram opnum. Samkvæmt áðurnefndri 2. mgr. 54. gr. laga um vátryggingastarfsemi getur Fjármálaeftirlitið sett almennar reglur um mat á vátryggingaskuldinni og hvaða gögn skuli fylgja í því sambandi. Á næstu vikum hyggst Fjármálaeftirlitið birta drög að slíkum reglum þar sem fyrirhugað er að gera auknar kröfur til vátryggingafélaganna um upplýsingagjöf til Fjármálaeftirlitsins, meðal annars um tjónaskuld vegna eldri ára.