Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 456. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 651 — 456. mál.
til sjávarútvegsráðherra um nýsköpunarkvóta.
1. Telur ráðherra að ýta mætti undir veiðar á nýjum tegundum með sérstökum nýsköpunarkvóta sem ráðstafað yrði til þeirra sem tækju fjárhagslega áhættu af því að veiða og markaðssetja nýjar eða vannýttar tegundir?
2. Telur ráðherra ekki líklegt að það yrði veruleg hvatning til slíkra tilraunaveiða ef t.d. hálfu prósenti þorskkvótans yrði ráðstafað í þessu skyni og jafnframt skilyrt að jafnmikið kæmi frá öðrum en frumkvöðlinum sjálfum, t.d. birgjum af ýmsu tagi?
3. Væri ráðherra reiðubúinn til að gera tilraun af þessu tagi næst þegar aukið verður við þorskkvóta þannig að ljóst væri að af engum núverandi kvótahafa væri beinlínis tekið það sem þyrfti til tilraunarinnar og því ekki líkur á öðru en kvótahafar tækju tilrauninni vel?
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 651 — 456. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um nýsköpunarkvóta.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.