Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 186. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 714  —  186. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, nr. 88/1995, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 13. des.)



1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „Reykjavíkur og Reykjaness“ í 1. mgr. kemur: Reykjavíkurkjördæma suður og norður og Suðvesturkjördæmis.
     b.      Í stað orðanna „Reykjavíkur eða nágrennis“ hvarvetna í greininni kemur: Reykjavíkurkjördæma suður og norður og Suðvesturkjördæmis.
     c.      Í stað orðanna „annað heimili í Reykjavík“ í 3. mgr. kemur: annað heimili í Reykjavíkurkjördæmi suður eða norður eða Suðvesturkjördæmi.


2. gr.

    12. gr. laganna orðast svo:
    Alþingismaður á rétt á fæðingar- og foreldraorlofi og fer um lengd þess og greiðslur meðan það varir samkvæmt lögum nr. 95/2000. Þeir alþingismenn sem halda tvö heimili og fá álag á húsnæðis- og dvalarkostnað, sbr. 3. mgr. 6. gr., halda þó greiðslum skv. 1. mgr. 6. gr.
    Alþingismaður nýtur slysa- og ferðatrygginga.
    Forsætisnefnd getur sett nánari reglur um framkvæmd og greiðslur samkvæmt þessari grein.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.


    Réttur þeirra sem eru í fæðingarorlofi við gildistöku laganna fer eftir eldri ákvæðum, svo og réttur þeirra sem hafa öðlast rétt til fæðingarorlofs en ekki hafið töku þess.