Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 295. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 725  —  295. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Brynju Magnúsdóttur um æskulýðs- og tómstundamál.

     1.      Er hafinn undirbúningur að stofnun sérstakrar skrifstofu íþrótta-, félags- og tómstundamála? Ef svo er, hvernig miðar undirbúningnum og hverjir munu vinna hjá stofnuninni?
    Í gildi er auglýsing um menntamálaráðuneytið, dags. 2. maí 2003, sem birt er í Stjórnartíðindum. Skrifstofur ráðuneytisins eru fjórar, skrifstofa ráðherra og ráðuneytisstjóra, skrifstofa menningarmála, skrifstofa menntamála og skrifstofa vísinda. Svið ráðuneytisins eru fjögur, þ.e. almennt svið, fjármálasvið, lögfræði- og stjórnsýslusvið og þróunarsvið. Skrifstofa menningarmála hefur umsjón með stjórnsýslu og stefnumótun í menningarmálum. Þar er m.a. fjallað um málefni lista og menningararfs, fjölmiðlamál og mál er varða íþrótta- og æskulýðsstarfsemi. Ráðuneytið telur að íþrótta-, félags- og tómstundamálum sé vel fyrir komið innan ráðuneytisins samkvæmt núverandi skipulagi.

     2.      Hefur verið sett reglugerð um úthlutun styrkja til samtaka á sviði félags- og tómstundamála? Ef ekki, hvenær áætlar ráðherra að slík reglugerð verði sett?
    Til að unnt sé að setja reglugerð um úthlutun styrkja til samtaka á sviði félags- og tómstundamála þyrfti sérstaka lagaheimild sem ekki er fyrir hendi. Á fjárlögum er sérstakur fjárlagaliður sem ber heitið Ýmis æskulýðsmál 02-988- 1.90. Á árinu 2003 hefur ráðuneytið til ráðstöfunar til alls málaflokksins 2.500 þús.kr., en árið 2002 nam sú fjárveiting 2.900 þús. kr. og 2.300 þús. kr. árið 2001. Ráðuneytið hefur úthlutað af þessum lið til annarra æskulýðssamtaka en þeirra sem fá fjárveitingar beint af fjárlögum. Hækkun hefur orðið á fjárveitingum til málaflokksins á fjárlögum undanfarin ár. Frá 1994 til 2003 hækkuðu fjárveitingar til þessa málaflokks um 265% að raungildi.

     3.      Hverjir skipa fulltrúa í Æskulýðsráð ríkisins og hvaða samtök eiga þar sæti?

    Kveðið er á um skipan Æskulýðsráðs ríkisins í lögum um æskulýðsmál, nr. 24/1970. Menntamálaráðherra skipar formann og varaformann án tilnefningar, Samband íslenskra sveitarfélaga skipar einn fulltrúa og einn til vara. Þá eru þrír fulltrúar og þrír til vara kjörnir á sérstökum kjörfundi er ráðuneytið boðar til. Á þann fund eru boðaðir bréflega fulltrúar æskulýðssamtaka. Í núverandi Æskulýðsráði eiga sæti einstaklingar sem eru í eftirtöldum samtökum: AFS – Alþjóðleg ungmennaskipti og fræðsla, Bandalagi íslenskra skáta, Iðnnemasambandi Íslands, Landssambandi KFUM og KFUK, Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, Ungmennafélagi Íslands, æskulýðssviði Biskupsstofu og tveir fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga, annar fulltrúinn er framkvæmdastjóri menningar-, íþrótta- og tómstundasviðs Reykjanesbæjar og hinn æskulýðsfulltrúi Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Á fundi Æskulýðsráðs ríkisins eru varamenn ávallt boðaðir.

     4.      Mun ráðherra beita sér fyrir að efla regnhlífasamtök á borð við Æskulýðssamband Íslands eða stuðla að stofnun nýrra samtaka?
    Í skýrslu nefndarinnar kemur skýrt fram að samstaða hafi verið meðal fulltrúa félags- og tómstundasamtaka um að þörf sé á að koma á laggirnar nýju samstarfi æskulýðssamtaka á landsvísu. Slík samtök eru landssamband æskulýðssamtaka. Þannig samstarf er mikilvægur vettvangur þessara aðila með tilliti til samskipta við sambærileg landssambönd æskulýðssamtaka á Norðurlöndunum og æskulýðsvettvang Evrópu (Youth Forum). Ráðuneytið telur að slíkt frumkvæði eigi að koma frá æskulýðssamtökunum sjálfum. Ráðuneytið mundi styðja stofnun slíkra samtaka.

     5.      Hefur verið stofnaður sérstakur tómstundasjóður barna og ungmenna (æskulýðssjóður)? Ef svo er, hver sér um þann sjóð? Hverjir hafa fengið fé úr honum og hve mikið sl. fimm ár?
    Slíkur sjóður hefur ekki verið til en í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2004 er í fyrsta sinn gert ráð fyrir að fjármunir verði settir í sérstakan æskulýðssjóð. Í frumvarpinu er gerð tillaga um að 6 millj. kr. renni í slíkan sjóð.