Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 381. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 727 — 381. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Drífu Hjartardóttur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hve margir styrkir hafa verið veittir árlega úr húsafriðunarsjóði frá árinu 1999 og hver er fjárhæð þeirra, sundurgreint?
2. Hvernig er landfræðileg dreifing styrkjanna eftir árum?
3. Hvernig er styrkjunum úthlutað?
4. Hvernig eru umsóknir metnar og gerðar um þær tillögur?
5. Hvaða eftirlit er haft með því að verkefnum sé hrint í framkvæmd?
Leitað var upplýsinga hjá húsafriðunarnefnd í tilefni af fyrirspurninni. Þaðan hafa borist ítarlegar upplýsingar sem ráðuneytið telur að svari fyrirspurninni með fullnægjandi hætti og byggist eftirfarandi á þeim.
Til fróðleiks skal þess getið að húsafriðunarnefnd er með heimasíðu, www.hfrn.is. Þar má finna upplýsingar um starfsemi húsafriðunarnefndar og húsafriðunarsjóðs.
Rétt er að taka fram að við úthlutanir úr húsafriðunarsjóði starfar húsafriðunarnefnd samkvæmt lögum um húsafriðun, nr. 104/2001, einkum 16., 17. og 18. gr., ásamt reglugerð um húsafriðunarsjóð, B 479/1993, sbr. fylgiskjal.
Fyrstu tillögur um úthlutanir eru gerðar af forstöðumanni húsafriðunarnefndar sem leggur þær fyrir formann nefndarinnar. Formaður og forstöðumaður leggja síðan sameiginlegar tillögur fyrir nefndina sem ákvarðar úthlutanir endanlega. Viðbótarfjárveiting sem veitt er í sjóðinn að tilstuðlan fjárlaganefndar er öll eyrnamerkt ákveðnum verkefnum, oftast þeim sem húsafriðunarnefnd hefur haft forgöngu um að styrkja.
Um allt land hefur verið byggt upp öflugt net eftirlitsaðila, einkum húsasmiða, sem eru í nánum tengslum við forstöðumann húsafriðunarnefndar. Að auki fara forstöðumaður og starfsmenn nefndarinnar fjölmargar vinnuferðir um land allt til ráðgjafar og eftirlits. Þá eru ráðgjafar húsafriðunarnefndar, arkitektar, verkfræðingar húsasmíðameistarar og múrarameistarar sendir á vettvang ef ástæða þykir til. Eftirliti sinna einnig hönnuðir margra verka sem hlotið hafa styrk þótt yfirumsjón liggi hjá húsafriðunarnefnd (stofnuninni). Gengið er mjög ákveðið eftir því að verk sé vel unnið og í anda viðkomandi húss eftir föngum.
Rétt er að taka fram sögusagnir um að ekki sé leyfilegt að nota tvöfalt gler í friðuð eða varðveisluverð hús eru ekki á rökum reistar.
Eftirfarandi er yfirlit um styrki árin 1999–2003.
Styrkumsóknir og styrkveitingar 1999–2003.
Fylgiskjal.
Húsafriðunarnefnd ríkisins veitir fjárstyrk úr húsafriðunarsjóði til viðhalds og endurbóta á styrkhæfum húsum samkvæmt reglugerð um húsafriðunarsjóð. Að jafnaði setur húsafriðunarnefnd það skilyrði að gerð hafi verið greinargóð áætlun áður en framkvæmdir hefjast.
Viðkomandi húsi skal lýst í máli, teikningum og myndum. Gera skal grein fyrir sögu þess og þeim breytingum sem það hefur tekið í tímans rás og jafnframt rökstudd nauðsyn á þeim framkvæmdum sem að er stefnt. Með teikningum og verklýsingum skal gerð skýr grein fyrir því verki sem sótt er um styrk til og kostnaðaráætlun hvers verkhluta.
Oft þarf að leggja mikla vinnu í gerð áætlunar af þessu tagi og nauðsynlegt að hún sé samin af fagmönnum. Þegar framkvæmdir við endurbætur eru hafnar samkvæmt staðfestingu eftirlitshönnuðar eða starfsmanna húsafriðunarnefndar eru framkvæmdastyrkir greiddir ýmist í einu lagi eða í fleiri greiðslum.
Ef sótt er um styrk til verks sem þegar er hafið og áður hefur verið veittur styrkur til úr húsafriðunarsjóði, skal jafnframt gerð grein fyrir stöðu verksins og kostnaði við það.
Sérstök athygli er vakin á því að styrkurinn fellur niður við næstu áramót ef hann er ekki nýttur, nema sótt sé sérstaklega um frestun hans og á það sé fallist.
Reglugerð um húsafriðunarsjóð. B 479/1993 1
1. gr. Húsafriðunarsjóður skal stuðla að varðveislu og viðhaldi húsa og annarra mannvirkja sem húsafriðunarnefnd telur hafa menningarsögulegt og listrænt gildi. Framlög ríkissjóðs og sveitarfélaga sbr. 46. gr. þjóðminjalaga skulu renna í sjóðinn fyrir maímánuð ár hvert. Varsla og reikningshald húsafriðunarsjóðs skal vera í höndum Landsbanka Íslands samkvæmt samkomulagi sem menntamálaráðuneytið gerir við bankann þar að lútandi.
2. gr. Húsafriðunarnefnd úthlutar styrkjum úr húsafriðunarsjóði til áætlunargerðar vegna viðgerða húsa og til viðgerða húsa, sem hún metur styrkhæf. Þá getur nefndin ákveðið að verja fé til verkefna er stuðla að varðveislu íslensks byggingararfs, til rannsókna á honum og útgáfu rita þar að lútandi. Úthlutun styrkja skal að öðru jöfnu ákveðin í mars ár hvert á grundvelli umsókna sbr. 3. gr.
3. gr. Auglýsa skal í nóvembermánuði ár hvert eftir umsóknum til húsafriðunarsjóðs í dagblöðum, Lögbirtingarblaði og Sveitarstjórnarmálum. Umsóknir skulu greinilega bera með sér til hvers og hvernig umsækjandi hyggst verja styrknum og skulu vera á sérstökum umsóknareyðublöðum sem húsafriðunarnefnd lætur í té og berast eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. 2
Með umsóknum til áætlunargerðar skulu fylgja eftirtalin gögn og upplýsingar:
a. Uppdrættir, ef til eru.
b. Sögulegar upplýsingar og lýsing á núverandi ástandi.
c. Ljósmyndir sem sýna útlit húss fyrr, ef til eru.
d. Ljósmyndir sem sýna útlit húss nú.
e. Fyrirhugaðar breytingar, ef einhverjar eru.
Með umsóknum til viðgerða húsa skulu enn fremur fylgja eftirtalin gögn og upplýsingar:
f. Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
g. Uppmælingar og teikningar af breytingum ef ráðgerðar eru.
h. Teikningar sem sýna smíðafrágang glugga, klæðningar o.fl.
i. Kostnaðaráætlun um fyrirhugaðar framkvæmdir.
4. gr. Húsafriðunarnefnd hefur eftirlit með að þær framkvæmdir sem hún styrkir séu viðunandi af hendi leystar. Varðar styrkmissi ef á slíkt brestur. Húsafriðunarnefnd skal hafa aðgang að kostnaðarreikningum í sambandi við framkvæmdir sem hún fjallar um. Einnig skal nefndin eða starfsmaður hennar eiga greiðan aðgang að vinnustað á meðan viðgerð fer fram.
5. gr. Húsafriðunarnefnd skal láta menntamálaráðuneytinu, þjóðminjaráði og Sambandi íslenskra sveitarfélaga í té yfirlit yfir greiðslur úr sjóðnum fyrir lok hvers árs. Starfsskýrsla húsafriðunarnefndar og húsverndardeildar með yfirliti yfir úthlutanir úr húsafriðunarsjóði skal birt í ársskýrslu þjóðminjaráðs.
6. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 48. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989 og öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur reglugerð nr. 316/1990 úr gildi.
Mat húsafriðunarnefndar á styrkhæfi umsókna.
Við mat á styrkhæfi húss er litið til varðveislugildis húss og notar húsafriðunarnefnd svonefnda SAVE-aðferðafræði en í henni er m.a. lagt mat á byggingarlist, menningarsögu, umhverfi, upprunaleika og tæknilegt ástand.
Enn fremur er litið til fyrri styrkja til hússins og áætlanagerðar og hönnunar í þessari umsókn. Hjálögð gögn geta einnig haft áhrif á mat nefndarinnar.
Gagnaskil.
Athygli skal vakin á því að húsafriðunarnefnd hefur ákveðið að herða reglur um frágang á nýjum umsóknum til framkvæmda þannig að umsókn sem ekki er fyllt út skilmerkilega eða ef ljósmynd af núverandi útliti vantar og/eða kostnaðaráætlun, verður hún ekki tekin til greina.
Stafræn skil.
Frá og með árinu 2003 má skila umsóknum til húsafriðunarsjóðs stafrænt. Þeim sem hafa áhuga á því er bent á að fara á heimasíðu húsafriðunarnefndar: www.husafridun.is og velja „umsóknir“ í vallista vinstra megin á skjánum.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 727 — 381. mál.
Svar

| 1999 | Þús kr. |
| Friðuð hús: styrkumsóknir 19, styrkveitingar 17 | 7.700 |
| Friðaðar kirkjur: styrkumsóknir 44, styrkveitingar 40 | 16.650 |
| Hús á safnasvæðum: styrkumsóknir 8, styrkveitingar 5 | 850 |
| Rannsóknarverkefni: styrkumsóknir 5, styrkveitingar 2 | 300 |
| Húsakannanir: styrkumsóknir 5, styrkveitingar 4 | 1.500 |
| Önnur verkefni: Reykjavík; styrkumsóknir 44, styrkveitingar 23 | 6.400 |
| Önnur verkefni: Reykjanes; styrkumsóknir 9, styrkveitingar 7 | 1.800 |
| Önnur verkefni: Vesturland; styrkumsóknir 16, styrkveitingar 9 | 2.450 |
| Önnur verkefni: Vestfirðir; styrkumsóknir 13, styrkveitingar 12 | 5.000 |
| Önnur verkefni: Norðurland; styrkumsóknir 31, styrkveitingar 27 | 8.000 |
| Önnur verkefni: Austurland; styrkumsóknir 19, styrkveitingar 16 | 4.150 |
| Önnur verkefni: Suðurland; styrkumsóknir 17, styrkveitingar 16 | 4.250 |
| Samtals | 59.050 |
| Styrkumsóknir samtals: 231 | |
| Styrkveitingar samtals: 178 | |
| 2000 | Þús kr. |
| Friðuð hús: styrkumsóknir 24, styrkveitingar 19 | 9.600 |
| Friðaðar kirkjur: styrkumsóknir 28, styrkveitingar 23 | 8.700 |
| Hús á safnasvæðum: styrkumsóknir 9, styrkveitingar 6 | 2.100 |
| Rannsóknarverkefni: styrkumsóknir 6, styrkveitingar 3 | 350 |
| Húsakannanir: styrkumsóknir 5, styrkveitingar 3 | 1.300 |
| Önnur verkefni: Reykjavík; styrkumsóknir 54, styrkveitingar 26 | 5.850 |
| Önnur verkefni: Reykjanes; styrkumsóknir 8, styrkveitingar 4 | 850 |
| Önnur verkefni: Vesturland; styrkumsóknir 19, styrkveitingar 10 | 2.200 |
| Önnur verkefni: Vestfirðir; styrkumsóknir 14, styrkveitingar 5 | 1.300 |
| Önnur verkefni: Norðurland; styrkumsóknir 40, styrkveitingar 21 | 9.300 |
| Önnur verkefni: Austurland; styrkumsóknir 24, styrkveitingar 18 | 7.350 |
| Önnur verkefni: Suðurland; styrkumsóknir 24, styrkveitingar 16 | 6.150 |
| Samtals | 55.050 |
| Styrkumsóknir samtals: 255 | |
| Styrkveitingar samtals: 154 | |
| 2001 | Þús kr. |
| Friðuð hús: styrkumsóknir 27, styrkveitingar 24 | 17.075 |
| Friðaðar kirkjur: styrkumsóknir 34, styrkveitingar 27 | 17.300 |
| Hús á safnasvæðum: styrkumsóknir 7, styrkveitingar 5 | 1.900 |
| Rannsóknarverkefni: styrkumsóknir 6, styrkveitingar 5 | 660 |
| Húsakannanir: styrkumsóknir 6, styrkveitingar 5 | 2.700 |
| Önnur verkefni: Reykjavík; styrkumsóknir 50, styrkveitingar 27 | 7.050 |
| Önnur verkefni: Reykjanes; styrkumsóknir 14, styrkveitingar 7 | 1.950 |
| Önnur verkefni: Vesturland; styrkumsóknir 14, styrkveitingar 5 | 1.300 |
| Önnur verkefni: Vestfirðir; styrkumsóknir 18, styrkveitingar 14 | 3.300 |
| Önnur verkefni: Norðurland; styrkumsóknir 29, styrkveitingar 24 | 14.500 |
| Önnur verkefni: Austurland; styrkumsóknir 17, styrkveitingar 13 | 5.300 |
| Önnur verkefni: Suðurland; styrkumsóknir 24, styrkveitingar 10 | 1.750 |
| Samtals | 74.785 |
| Styrkumsóknir samtals: 246 | |
| Styrkveitingar samtals: 166 | |
| 2002 | Þús kr. |
| Friðuð hús: styrkumsóknir 23, styrkveitingar 22 | 18.940 |
| Friðaðar kirkjur: styrkumsóknir 41, styrkveitingar 33 | 23.550 |
| Hús á safnasvæðum: styrkumsóknir 10, styrkveitingar 6 | 1.850 |
| Rannsóknarverkefni: styrkumsóknir 5, styrkveitingar 2 | 700 |
| Húsakannanir: styrkumsóknir 2, styrkveitingar 2 | 1.500 |
| Önnur verkefni: Reykjavík; styrkumsóknir 47, styrkveitingar 16 | 5.000 |
| Önnur verkefni: Reykjanes; styrkumsóknir 11, styrkveitingar 9 | 2.250 |
| Önnur verkefni: Vesturland; styrkumsóknir 14, styrkveitingar 7 | 3.250 |
| Önnur verkefni: Vestfirðir; styrkumsóknir 18, styrkveitingar 13 | 2.200 |
| Önnur verkefni: Norðurland; styrkumsóknir 28, styrkveitingar 24 | 14.750 |
| Önnur verkefni: Austurland; styrkumsóknir 26, styrkveitingar 15 | 5.700 |
| Önnur verkefni: Suðurland; styrkumsóknir 20, styrkveitingar 8 | 1.700 |
| Samtals | 81.390 |
| Styrkumsóknir samtals: 245 | |
| Styrkveitingar samtals: 157 | |
| 2003 | Þús kr. |
| Friðuð hús: styrkumsóknir 18, styrkveitingar 12 | 7.640.000 |
| Friðaðar kirkjur: styrkumsóknir 40, styrkveitingar 28 | 24.300.000 |
| Hús á safnasvæðum: styrkumsóknir 9, styrkveitingar 6 | 15.900.000 |
| Rannsóknarverkefni: styrkumsóknir 7, styrkveitingar 3 | 3.550.000 |
| Húsakannanir: styrkumsóknir 6, styrkveitingar 4 | 880.000 |
| Önnur verkefni: Reykjavík; styrkumsóknir 40, styrkveitingar 11 | 3.750.000 |
| Önnur verkefni: Reykjanes; styrkumsóknir 16, styrkveitingar 8 | 1.200.000 |
| Önnur verkefni: Vesturland; styrkumsóknir 9, styrkveitingar 6 | 4.700.000 |
| Önnur verkefni: Vestfirðir; styrkumsóknir 18, styrkveitingar 10 | 8.550.000 |
| Önnur verkefni: Norðurland; styrkumsóknir 31, styrkveitingar 13 | 12.200.000 |
| Önnur verkefni: Austurland; styrkumsóknir 27, styrkveitingar 13 | 8.100.000 |
| Önnur verkefni: Suðurland; styrkumsóknir 16, styrkveitingar 4 | 9.250.000 |
| Samtals | 100.020.000 |
| Styrkumsóknir samtals: 237 | |
| Styrkveitingar samtals: 118 | |
| Endurúthlutaðir styrkir samtals: | 14.390.000 |
Lög, reglugerðir og starfsreglur húsafriðunarnefndar ríkisins.
(Leiðbeiningar um umsóknir úr húsafriðunarsjóði.)
Húsafriðunarnefnd ríkisins veitir fjárstyrk úr húsafriðunarsjóði til viðhalds og endurbóta á styrkhæfum húsum samkvæmt reglugerð um húsafriðunarsjóð. Að jafnaði setur húsafriðunarnefnd það skilyrði að gerð hafi verið greinargóð áætlun áður en framkvæmdir hefjast.
Viðkomandi húsi skal lýst í máli, teikningum og myndum. Gera skal grein fyrir sögu þess og þeim breytingum sem það hefur tekið í tímans rás og jafnframt rökstudd nauðsyn á þeim framkvæmdum sem að er stefnt. Með teikningum og verklýsingum skal gerð skýr grein fyrir því verki sem sótt er um styrk til og kostnaðaráætlun hvers verkhluta.
Oft þarf að leggja mikla vinnu í gerð áætlunar af þessu tagi og nauðsynlegt að hún sé samin af fagmönnum. Þegar framkvæmdir við endurbætur eru hafnar samkvæmt staðfestingu eftirlitshönnuðar eða starfsmanna húsafriðunarnefndar eru framkvæmdastyrkir greiddir ýmist í einu lagi eða í fleiri greiðslum.
Ef sótt er um styrk til verks sem þegar er hafið og áður hefur verið veittur styrkur til úr húsafriðunarsjóði, skal jafnframt gerð grein fyrir stöðu verksins og kostnaði við það.
Sérstök athygli er vakin á því að styrkurinn fellur niður við næstu áramót ef hann er ekki nýttur, nema sótt sé sérstaklega um frestun hans og á það sé fallist.
Reglugerð um húsafriðunarsjóð. B 479/1993 1
1. gr. Húsafriðunarsjóður skal stuðla að varðveislu og viðhaldi húsa og annarra mannvirkja sem húsafriðunarnefnd telur hafa menningarsögulegt og listrænt gildi. Framlög ríkissjóðs og sveitarfélaga sbr. 46. gr. þjóðminjalaga skulu renna í sjóðinn fyrir maímánuð ár hvert. Varsla og reikningshald húsafriðunarsjóðs skal vera í höndum Landsbanka Íslands samkvæmt samkomulagi sem menntamálaráðuneytið gerir við bankann þar að lútandi.
2. gr. Húsafriðunarnefnd úthlutar styrkjum úr húsafriðunarsjóði til áætlunargerðar vegna viðgerða húsa og til viðgerða húsa, sem hún metur styrkhæf. Þá getur nefndin ákveðið að verja fé til verkefna er stuðla að varðveislu íslensks byggingararfs, til rannsókna á honum og útgáfu rita þar að lútandi. Úthlutun styrkja skal að öðru jöfnu ákveðin í mars ár hvert á grundvelli umsókna sbr. 3. gr.
3. gr. Auglýsa skal í nóvembermánuði ár hvert eftir umsóknum til húsafriðunarsjóðs í dagblöðum, Lögbirtingarblaði og Sveitarstjórnarmálum. Umsóknir skulu greinilega bera með sér til hvers og hvernig umsækjandi hyggst verja styrknum og skulu vera á sérstökum umsóknareyðublöðum sem húsafriðunarnefnd lætur í té og berast eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. 2
Með umsóknum til áætlunargerðar skulu fylgja eftirtalin gögn og upplýsingar:
a. Uppdrættir, ef til eru.
b. Sögulegar upplýsingar og lýsing á núverandi ástandi.
c. Ljósmyndir sem sýna útlit húss fyrr, ef til eru.
d. Ljósmyndir sem sýna útlit húss nú.
e. Fyrirhugaðar breytingar, ef einhverjar eru.
Með umsóknum til viðgerða húsa skulu enn fremur fylgja eftirtalin gögn og upplýsingar:
f. Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
g. Uppmælingar og teikningar af breytingum ef ráðgerðar eru.
h. Teikningar sem sýna smíðafrágang glugga, klæðningar o.fl.
i. Kostnaðaráætlun um fyrirhugaðar framkvæmdir.
4. gr. Húsafriðunarnefnd hefur eftirlit með að þær framkvæmdir sem hún styrkir séu viðunandi af hendi leystar. Varðar styrkmissi ef á slíkt brestur. Húsafriðunarnefnd skal hafa aðgang að kostnaðarreikningum í sambandi við framkvæmdir sem hún fjallar um. Einnig skal nefndin eða starfsmaður hennar eiga greiðan aðgang að vinnustað á meðan viðgerð fer fram.
5. gr. Húsafriðunarnefnd skal láta menntamálaráðuneytinu, þjóðminjaráði og Sambandi íslenskra sveitarfélaga í té yfirlit yfir greiðslur úr sjóðnum fyrir lok hvers árs. Starfsskýrsla húsafriðunarnefndar og húsverndardeildar með yfirliti yfir úthlutanir úr húsafriðunarsjóði skal birt í ársskýrslu þjóðminjaráðs.
6. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 48. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989 og öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur reglugerð nr. 316/1990 úr gildi.
Mat húsafriðunarnefndar á styrkhæfi umsókna.
Við mat á styrkhæfi húss er litið til varðveislugildis húss og notar húsafriðunarnefnd svonefnda SAVE-aðferðafræði en í henni er m.a. lagt mat á byggingarlist, menningarsögu, umhverfi, upprunaleika og tæknilegt ástand.
Enn fremur er litið til fyrri styrkja til hússins og áætlanagerðar og hönnunar í þessari umsókn. Hjálögð gögn geta einnig haft áhrif á mat nefndarinnar.
Gagnaskil.
Athygli skal vakin á því að húsafriðunarnefnd hefur ákveðið að herða reglur um frágang á nýjum umsóknum til framkvæmda þannig að umsókn sem ekki er fyllt út skilmerkilega eða ef ljósmynd af núverandi útliti vantar og/eða kostnaðaráætlun, verður hún ekki tekin til greina.
Stafræn skil.
Frá og með árinu 2003 má skila umsóknum til húsafriðunarsjóðs stafrænt. Þeim sem hafa áhuga á því er bent á að fara á heimasíðu húsafriðunarnefndar: www.husafridun.is og velja „umsóknir“ í vallista vinstra megin á skjánum.
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Með gildistöku laga nr. 104/2001 var húsafriðun gefin sérstaða innan þjóðminjavörslunnar og húsafriðunarnefnd gerð að sérstakri ríkisstofnun með stjórnsýsluvald og forstöðumanni í stað þess að vera undirnefnd þjóðminjaráðs. Ákvæði laga nr. 104/2001 eru um flest sambærileg ákvæðum V. kafla þjóðminjalaga.
- Neðanmálsgrein: 2
- 2 Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. reglugerðar hefur húsafriðunarnefnd ákvarðað að umsóknir skuli berast fyrir 1. desember ár hvert, og auglýsa skuli eftir umsóknum í september ár hvert. Styrkir úr húsafriðunarsjóði eru að öðru leyti veittir í samræmi við III. kafla laga um húsafriðun, nr. 104/2001.