Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 384. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 731 — 384. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Sigurrósar Þorgrímsdóttur um fjarnám.
1. Hvaða framhaldsskólar og háskólar bjóða upp á fjarnám?
Fimm háskólar er heyra undir menntamálaráðuneytið voru með nemendur í fjarkennslu á haustönn 2003: Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykjavík, Kennaraháskóli Íslands og Viðskiptaháskólinn á Bifröst.
Sex framhaldsskólar voru með nemendur í fjarkennslu á haustönn 2003: Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, Iðnskólinn í Reykjavík og Verkmenntaskólinn á Akureyri.
2. Í hvaða greinum er hægt að stunda fjarnám í
a. framhaldsskólum,
b. háskólum?
Prentað upp.
3. Hvað eru margir nemendur skráðir í fjarnám í
a. framhaldsskólum,
b. háskólum?
Á haustönn 2003 voru skráðir nemar í fjarnámi á háskólastigi samtals 2.258 og á framhaldsskólastigi samtals 2.036.
4. Hvað hafa margir nemendur lokið burtfararprófi í fjarnámi frá upphafi og frá hvaða skólum og deildum?
Samtals luku 211 nemendur á háskólastigi burtfararprófi árið 2002 alfarið í fjarnámi. Mun fleiri ljúka einstökum áföngum í fjarkennslu til burtfararprófs á háskólastigi.
Framhaldsskólanemendur nýta sér fjarnám fyrst og fremst til að taka einstaka áfanga til burtfararprófs. Ekki er algengt að þeir stundi allt námið í fjarnámi. Alls voru um 690 nemendur skráðir í fjarnámi árið 2002 er nýttu sér að hluta fjarnámsáfanga til að ljúka burtfararprófi. Af þeim 690 nemum sem voru í fjarnámi árið 2002 luku 26 öllum áföngum til burtfararprófs í fjarnámi, tveir frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, tveir frá Fjölbrautaskóla Garðabæjar og 22 frá Verkmenntaskólanum á Akureyri.
5. Hvernig skiptast fjarnemar eftir landshlutum?
Á haustönn 2003 skiptist fjöldi nemenda svo eftir landshlutum:
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 731 — 384. mál.
Svar

| Háskólastig – haustönn 2003. | ||
| 1 | Auðlindadeild | HA |
| 2 | BS-próf í viðskiptafræði | Bifröst |
| 3 | Dipl.Ed.-nám í uppeldis- og menntunarfræði | KHÍ |
| 4 | Doktorsnám (90 ein.) | KHÍ |
| 5 | Enska | HÍ |
| 6 | Erlendir skiptinemar | KHÍ |
| 7 | Fjármálabraut | HA |
| 8 | Grunnskólakennarafræði til B.Ed.-prófs | KHÍ |
| 9 | Grunnskólakennarafræði til B.Ed.-prófs (15 ein.) | KHÍ |
| 10 | Grunnskólakennarafræði til B.Ed.-prófs (90 ein.) | KHÍ |
| 11 | Grunnskólakennarar | HA |
| 12 | Hjúkrun – framhaldsnám | HA |
| 13 | Hjúkrunarfræði | HA, HÍ |
| 14 | Íslenska | HÍ |
| 15 | Íþróttabraut | KHÍ |
| 16 | Íþróttafræði til BS-prófs | KHÍ |
| 17 | Kennsluréttindabraut | KHÍ |
| 18 | Leikskólafræði til diplómu (45 ein.) | KHÍ |
| 19 | Leikskólakennarabraut | KHÍ |
| 20 | Leikskólakennarafræði til B.Ed.-prófs (15 ein. viðbótarnám) | KHÍ |
| 20 | Leikskólakennarafræði til B.Ed.-prófs (90 ein.) | KHÍ |
| 22 | Leikskólakennarar | HA |
| 23 | Ljósmóðurfræði | HÍ |
| 24 | Meistaranám | Bifröst |
Prentað upp.
| 25 | Meistaranám (60 ein.) | KHÍ |
| 26 | Meistaranám í félagsráðgjöf | HÍ |
| 27 | Nám fyrir innlenda gestanemendur | KHÍ |
| 28 | Nám til kennsluréttinda fyrir faggreinakennara (15 ein.) | KHÍ |
| 29 | Nám til kennsluréttinda fyrir faggreinakennara (30 ein.) | KHÍ |
| 30 | Náms- og starfsráðgjöf | HÍ |
| 31 | Nútímafræði | HA |
| 32 | Opinber stjórnsýsla MPA | HÍ |
| 33 | Rannsóknartengt framhaldsnám, 60 ein. doktorsnám | KHÍ |
| 34 | Rannsóknartengt framhaldsnám, 60 ein. meistaranám | KHÍ |
| 35 | Rekstrarbraut – ferðaþjónustusvið | HA |
| 36 | Rekstrarbraut – markaðssvið | HA |
| 37 | Rekstrarbraut – stjórnunarsvið | HA |
| 38 | Rekstrarbraut – rekstrarsvið | HA |
| 39 | Rekstrar- og viðskiptafræði | HA |
| 40 | Sagnfræði | HÍ |
| 41 | Sjávarútvegsbraut | HA |
| 42 | Sænska | HÍ |
| 43 | Tómstunda- og félagsmálafræði til BA-prófs (90 ein.) | KHÍ |
| 44 | Tómstunda- og félagsmálafræði til diplómu (45 ein.) | KHÍ |
| 45 | Tómstundabraut | KHÍ |
| 46 | Tölvunarfræðideild | HR |
| 47 | Viðbótarnám í grunndeild (k-nám) | KHÍ |
| 48 | Þroskaþjálfabraut | KHÍ |
| 49 | Þroskaþjálfanám til BA-prófs (15 ein. viðbótarnám) | KHÍ |
| 50 | Þroskaþjálfanám til BA-prófs (90 ein.) | KHÍ |
| Framhaldsskólar: Boðið er upp á fjarnám í nær öllum bóklegum greinum. | ||
3. Hvað eru margir nemendur skráðir í fjarnám í
a. framhaldsskólum,
b. háskólum?
Á haustönn 2003 voru skráðir nemar í fjarnámi á háskólastigi samtals 2.258 og á framhaldsskólastigi samtals 2.036.
4. Hvað hafa margir nemendur lokið burtfararprófi í fjarnámi frá upphafi og frá hvaða skólum og deildum?
Samtals luku 211 nemendur á háskólastigi burtfararprófi árið 2002 alfarið í fjarnámi. Mun fleiri ljúka einstökum áföngum í fjarkennslu til burtfararprófs á háskólastigi.
Framhaldsskólanemendur nýta sér fjarnám fyrst og fremst til að taka einstaka áfanga til burtfararprófs. Ekki er algengt að þeir stundi allt námið í fjarnámi. Alls voru um 690 nemendur skráðir í fjarnámi árið 2002 er nýttu sér að hluta fjarnámsáfanga til að ljúka burtfararprófi. Af þeim 690 nemum sem voru í fjarnámi árið 2002 luku 26 öllum áföngum til burtfararprófs í fjarnámi, tveir frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, tveir frá Fjölbrautaskóla Garðabæjar og 22 frá Verkmenntaskólanum á Akureyri.
5. Hvernig skiptast fjarnemar eftir landshlutum?
Á haustönn 2003 skiptist fjöldi nemenda svo eftir landshlutum:
| Höfuð- borgar- svæði |
Suður- nes |
Vestur- land |
Vest- firðir |
Norður- land vestra |
Norður- land eystra |
Austur- land |
Suður- land |
Erlendis | |
| Háskólastig | 926 | 219 | 122 | 111 | 228 | 151 | 99 | 368 | 34 |
| 41,0% | 9,7% | 5,4% | 4,9% | 10,1% | 6,7% | 4,4% | 16,3% | 1,5% | |
| Framhaldsskólastig | 885 | 103 | 159 | 104 | 83 | 314 | 177 | 156 | 885 |
| 43,7% | 5,1% | 7,8% | 5,1% | 4,1% | 15,4% | 8,7% | 7,7% | 2,5% |