130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 734 — 382. mál.
Svar
menntamálaráðherra við fyrirspurn Drífu Hjartardóttur um úthlutun úr safnasjóði.
Menntamálaráðuneytið leitaði upplýsinga hjá safnaráði í tilefni af fyrirspurninni og svörin eru þaðan. Til fróðleiks skal þess getið að ráðið hefur eigið vefsetur á slóðinni safnarad.is. Þar má finna margs konar upplýsingar, m.a. um styrkveitingar, íslensk minja- og byggðasöfn og starf safnaráðs.
1. Hve margir styrkir hafa verið veittir árlega úr safnasjóði frá árinu 2001 og hver er fjárhæð þeirra, sundurgreint?
Frá því að safnalög, nr. 106/2001, voru sett, hefur safnaráð úthlutað tvisvar úr safnasjóði. Árið 2002 fengu 56 styrk og 53 árið 2003. Rekstrarstyrkir eru veittir söfnum/sérsöfnum með safnastarfsemi skv. 10 gr. safnalaga, þ.e. varðveislu, skráningu og miðlun. Verkefnastyrkir eru veittir samkvæmt umsókn og ákvæðum safnalaga almennt. Sundurliðun er í eftirfarandi tveimur töflum.
Úthlutanir úr safnasjóði 2002.
(Samþykktar á fundi safnaráðs 14. mars 2002.)
| Rekstur | Verkefni | Samtals | |
| Árbæjarsafn | 1.000.000 | 900.000 | 1.900.000 |
| Byggðasafn Akraness og nærsveita | 1.000.000 | 900.000 | 1.900.000 |
| Byggðasafn Borgarfjarðar | 1.000.000 | 0 | 1.000.000 |
| Listasafn Borgarness | 0 | 200.000 | 200.000 |
| Náttúrugripasafn Borgarfjarðar | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla | 1.000.000 | 900.000 | 1.900.000 |
| Bátasafn í Stykkishólmi | 0 | 0 | 0 |
| Minjasafn Egils Ólafssonar, Hnjóti | 1.000.000 | 900.000 | 1.900.000 |
| Byggðasafn Vestfjarða | 1.000.000 | 900.000 | 1.900.000 |
| Byggðasafn Dalamanna | 0 | 500.000 | 500.000 |
| Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna | 1.000.000 | 900.000 | 1.900.000 |
| Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi | 1.000.000 | 0 | 1.000.000 |
| Byggðasafn Skagfirðinga, Glaumbæ | 1.000.000 | 1.200.000 | 2.200.000 |
| Síldarminjasafnið á Siglufirði | 1.000.000 | 1.200.000 | 2.200.000 |
| Minjasafnið á Akureyri | 1.000.000 | 1.200.000 | 2.200.000 |
| Byggðasafn Suður-Þingeyinga | 1.000.000 | 500.000 | 1.500.000 |
| Safnahúsið á Húsavík – myndlistarsafn | 0 | 200.000 | 200.000 |
| Safnahúsið á Húsavík – náttúrugripasafn | 0 | 200.000 | 200.000 |
| Bóka- og byggðasafn Norður-Þingeyinga | 0 | 500.000 | 500.000 |
| Minjasafn Austurlands | 1.000.000 | 600.000 | 1.600.000 |
| Sjóminjasafn Austurlands | 1.000.000 | 300.000 | 1.300.000 |
| Byggðasafn Austur-Skaftfellinga | 1.000.000 | 900.000 | 1.900.000 |
| Byggðasafn Rangæinga og V-Skaftf., Skógum | 1.000.000 | 900.000 | 1.900.000 |
| Byggðasafn Vestmannaeyja | 1.000.000 | 0 | 1.000.000 |
| Byggðasafn Árnesinga | 1.000.000 | 900.000 | 1.900.000 |
| Sjóminjasafnið Eyrarbakka | 0 | 400.000 | 400.000 |
| Rjómabúið á Baugsstöðum | 0 | 200.000 | 200.000 |
| Byggðasafn Suðurnesja | 1.000.000 | 900.000 | 1.900.000 |
| Byggðasafn Hafnarfjarðar | 1.000.000 | 900.000 | 1.900.000 |
| Byggðasafn Garði | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Samgöngusafnið í Ystafelli | 0 | 500.000 | 500.000 |
| Búvélasafnið á Hvanneyri | 0 | 500.000 | 500.000 |
| Flugsafnið á Akureyri | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Fransmenn á Íslandi | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Gerðarsafn | 0 | 800.000 | 800.000 |
| Íslensk tónverkamiðstöð | 0 | 0 | 0 |
| Listasafn Reykjavíkur | 0 | 1.200.000 | 1.200.000 |
| Náttúrustofa Kópavogs | 1.000.000 | 900.000 | 1.900.000 |
| Iðnaðarsafnið á Akureyri | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Mývatnssafn | 0 | 0 | 0 |
| Náttúrugripasafnið á Akureyri | 0 | 0 | 0 |
| Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja | 1.000.000 | 900.000 | 1.900.000 |
| Listasafn ASÍ | 0 | 500.000 | 500.000 |
| Samtök um leikminjasafn | 0 | 500.000 | 500.000 |
| Ljósmyndasafn Reykjavíkur | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Sjávarsafn á Norðurtanga Ólafsvík | 0 | 0 | 0 |
| Listasafn Reykjanesbæjar | 0 | 0 | 0 |
| Náttúrugripasafn Austur-Skaftafellssýslu | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Listasafn Austur-Skaftafellssýslu | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Steinaríki Íslands á Akranesi | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Hvalamiðstöðin á Húsavík | 1.000.000 | 500.000 | 1.500.000 |
| Byggðasafnið á Dalvík | 1.000.000 | 0 | 1.000.000 |
| Náttúrugripasafn, Bolungarvík | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Ósvör | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Skáksambandið – skákminjasafn | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Ljósmyndasafn Steingríms á netinu | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Breiðdalsvík | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Safnasafnið á Svalbarðseyri | 0 | 800.000 | 800.000 |
| Listasetrið Kirkjuhvoll | 0 | 0 | 0 |
| Bóka- og minjasafn Nönnu Guðmundsdóttur | 0 | 150.000 | 150.000 |
| ICOM | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Tækniminjasafnið Seyðisfirði | 0 | 500.000 | 500.000 |
| Farskólinn | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Samtals | 24.000.000 | 28.900.000 | 52.900.000 |
| Umsýslukostnaður | 5.100.000 | ||
| 58.000.000 |
Úthlutanir úr safnasjóði 2003.
(Samþykktar á fundi safnaráðs 25. apríl 2003.)
| Rekstur | Verkefni | Samtals | |
| Starfsmaður og rekstur safnaráðs | 6.400.000 | 0 | |
| Bóka- og byggðasafn Norður-Þingeyinga | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Bóka- og minjasafn Nönnu Guðmundsdóttur | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Byggðasafn Dalamanna | 0 | 0 | 0 |
| Byggðasafn Gerðahrepps | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Byggðasafn Hafnarfjarðar | 1.500.000 | 100.000 | 1.600.000 |
| Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna | 1.500.000 | 100.000 | 1.600.000 |
| Byggðasafn Rangæinga og V-Skaftf., Skógum | 1.500.000 | 100.000 | 1.600.000 |
| Byggðasafn Reykjanesbæjar | 1.500.000 | 100.000 | 1.600.000 |
| Byggðasafn Reykjanesbæjar – forvarsla | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Byggðasafn Skagfirðinga | 1.500.000 | 300.000 | 1.800.000 |
| Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla | 1.500.000 | 100.000 | 1.600.000 |
| Byggðasafn Vestfjarða | 1.500.000 | 100.000 | 1.600.000 |
| Byggðasafnið Hvoll, Dalvík | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Byggðasafnið í Breiðdalsvík | 0 | 0 | 0 |
| Farskólinn – Félag íslenskra safna | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Félag norrænna forvarða – Íslandsdeild | 0 | 0 | 0 |
| Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Flugsafnið á Akureyri | 0 | 0 | 0 |
| Fransmenn á Íslandi | 0 | 0 | 0 |
| Fræðasetrið í Sandgerði | 0 | 0 | 0 |
| Grasagarður Reykjavíkur | 0 | 250.000 | 250.000 |
| Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Hlunnindasýning á Reykhólum | 0 | 0 | 0 |
| Húni II | 0 | 0 | 0 |
| Húsið á Eyrarbakka – Byggðasafn Árnesinga | 1.500.000 | 100.000 | 1.600.000 |
| Húsið á Eyrarbakka – Byggðas. Árn. (náttúrusafn) | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Húsið á Eyrarbakka – Rjómabúið á Baugsstöðum | 0 | 0 | 0 |
| Húsið á Eyrarbakka – Sjóminjasafnið Eyrarbakka | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Hvalamiðstöðin á Húsavík | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| ICOM – Íslandsdeild | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Iðnaðarsafnið á Akureyri | 0 | 0 | 0 |
| Langabúð, byggðasafn | 0 | 0 | 0 |
| Langabúð, Safn Ríkarðs Jónssonar | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Leikminjasafn | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Listasafn ASÍ | 0 | 0 | 0 |
| Listasafn Árnesinga | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Listasafn Reykjanesbæjar | 0 | 0 | 0 |
| Listasafn Reykjavíkur | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | 0 | 0 | 0 |
| Listasafnið á Akureyri | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Ljósmyndasafn Reykjavíkur | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Ljósmyndasafn Steingríms á netinu | 0 | 0 | 0 |
| Menningarmiðst. Hornafj. – Byggðasafn A-Skaft | 1.500.000 | 100.000 | 1.600.000 |
| Menningarmiðst. Hornafj. – Listasafn A-Skaft. | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Menningarmiðst. Hornafj. – Náttúrugripas. A-Skaft. | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Minjasafn Austurlands | 1.500.000 | 100.000 | 1.600.000 |
| Minjasafn Egils Ólafssonar, Hnjóti | 1.500.000 | 100.000 | 1.600.000 |
| Minjasafn Reykjavíkur – Árbæjarsafn | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Minjasafnið á Akureyri | 1.500.000 | 100.000 | 1.600.000 |
| Náttúrufræðistofa Kópavogs | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Náttúrustofa Vestfj., Bolungarvík – náttúrugripasafn | 0 | 0 | 0 |
| Nýlistasafnið | 0 | 0 | 0 |
| Pakkhúsið í Ólafsvík | 0 | 0 | 0 |
| Safnahús Borgarfjarðar – Byggðasafn Borgfirðinga | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Safnahús Borgarfjarðar – Listasafn Borgarness | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Safnahús Borgarfjarðar – Náttúrugripasafn Borgarfj. | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Safnahús Vestmannaeyja – Byggðasafn Vestm. | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Safnahús Vestmannaeyja – Listasafn Vestmannaeyja | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Safnahús Vestmannaeyja – Ljósmyndasafn Vestm. | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Safnahúsið á Húsavík – Byggðasafn S-Þingeyinga | 1.500.000 | 100.000 | 1.600.000 |
| Safnahúsið á Húsavík – myndlistarsafn | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Safnahúsið á Húsavík – náttúrugripasafn | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Safnahúsið Eyrartúni, Ísafirði – Listasafn Ísafjarðar | 0 | 150.000 | 150.000 |
| Safnasafnið á Svalbarðseyri | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Safnastofnun Fjarðabyggðar – Sjóminjasafn Austurl. | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Safnasvæðið á Akranesi – Byggðasafn | 1.500.000 | 100.000 | 1.600.000 |
| Safnasvæðið á Akranesi – Steinaríki Íslands | 0 | 0 | 0 |
| Saltfisksetur Grindavík | 0 | 0 | 0 |
| Samgöngusafnið í Ystafelli | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Samstaf sjóminjasafna – Sjóminjar Íslands | 0 | 300.000 | 300.000 |
| Sauðfjársetur á Ströndum | 0 | 0 | 0 |
| Síldarminjasafnið á Siglufirði | 1.500.000 | 400.000 | 1.900.000 |
| Sjóminjasafnið Ósvör | 0 | 0 | 0 |
| Skákminjasafn | 0 | 0 | 0 |
| Snorrastofa | 0 | 0 | 0 |
| Tækniminjasafn Austurlands | 1.500.000 | 0 | 1.500.000 |
| Vesturfarasetrið á Hofsósi | 0 | 0 | 0 |
| Samtals | 51.400.000 | 6.600.000 | 51.600.000 |
| Rekstur safnaráðs | 6.400.000 | ||
| 58.000.000 |
2. Hvernig er landfræðileg dreifing styrkjanna eftir árum?
Landfræðileg dreifing styrkja úr safnasjóði 2002.
(R = rekstrarstyrkur, V = verkefnastyrkur.)
| Minjasvæði 1 – Reykjavík | ||
| Leikminjasafn Íslands | V | Reykjavík |
| ICOM Íslandsdeild | V | Reykjavík |
| Listasafn ASÍ | V | Reykjavík |
| Listasafn Reykjavíkur | V | Reykjavík |
| Ljósmyndasafn Reykjavíkur | V | Reykjavík |
| Minjasafn Reykjavíkur – Árbæjarsafn | R+V | Reykjavík |
| Skákminjasafn Íslands | V | Reykjavík |
| Minjasvæði 2 – Reykjanes | ||
| Byggðasafn Gerðahrepps | V | Garður |
| Byggðasafn Hafnarfjarðar | R+V | Hafnarfjörður |
| Listasafn Kópavogs – Gerðarsafn | V | Kópavogur |
| Náttúrufræðistofa Kópavogs | R+V | Kópavogur |
| Byggðasafn Reykjanesbæjar (áður Suðurnesja) | R+V | Reykjanesbær |
| Minjasvæði 3 – Vesturland | ||
| Búvélasafnið á Hvanneyri | V | Hvanneyri |
| Safnasvæðið á Akranesi – Byggðasafn Akraness og nærsveita | R+V | Akranes |
| Safnasvæðið á Akranesi – Steinaríki Íslands | V | Akranes |
| Safnahús Borgarfjarðar – Byggðasafn Borgfirðinga | R | Borgarnes |
| Safnahús Borgarfjarðar – Listasafn Borgarness | V | Borgarnes |
| Safnahús Borgarfjarðar – Náttúrugripasafn Borgarfjarðar | V | Borgarnes |
| Byggðasafn Dalamanna | V | Dalabyggð |
| Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla (Norska húsinu) | R+V | Stykkishólmur |
| Minjasvæði 4 – Vestfirðir | ||
| Náttúrustofa Vestfjarða, Bolungarvík – Náttúrugripasafn | V | Bolungarvík |
| Sjóminjasafnið Ósvör, Bolungarvík | V | Bolungarvík |
| Byggðasafn Vestfjarða | R+V | Ísafjörður |
| Minjasafn Egils Ólafssonar | R+V | Patreksfjörður |
| Minjasvæði 5a – Norðurland | ||
| Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi | R | Blönduós |
| Byggðasafnið Hvoll, Dalvíkurbyggð | R | Dalvík |
| Hvalamiðstöðin á Húsavík | R+V | Húsavík |
| Safnahúsið á Húsavík – Byggðasafn Suður-Þingeyinga | R+V | Húsavík |
| Safnahúsið á Húsavík – myndlistarsafn | V | Húsavík |
| Safnahúsið á Húsavík – náttúrugripasafn | V | Húsavík |
| Samgönguminjasafnið í Ystafelli | V | Húsavík |
| Bóka- og byggðasafn Norður-Þingeyinga | V | Kópasker |
| Ljósmyndasafn Steingríms á netinu | V | Siglufjörður |
| Síldarminjasafnið á Siglufirði | R+V | Siglufjörður |
| Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna | R+V | Staður |
| Safnasafnið á Svalbarðseyri | V | Svalbarðsströnd |
| Byggðasafn Skagfirðinga, Glaumbæ | R+V | Varmahlíð |
| Minjasvæði 5b – Akureyri | ||
| Flugsafnið á Akureyri | V | Akureyri |
| Iðnaðarsafnið á Akureyri | V | Akureyri |
| Minjasafnið á Akureyri | R+V | Akureyri |
| Minjasvæði 6 – Austurland | ||
| Byggðasafnið Breiðdalsvík | V | Breiðdalsvík |
| Bóka- og minjasafn Nönnu Guðmundsdóttur | V | Djúpivogur |
| Fransmenn á Íslandi | V | Fáskrúðsfjörður |
| Safnahúsið á Egilsstöðum – Minjasafn Austurlands | R+V | Egilsstaðir |
| Safnastofnun Fjarðabyggðar – Sjóminjasafn Austurlands | R+V | Eskifjörður |
| Menningarmiðstöð Hornafjarðar – Byggðasafn A-Skaft. | R+V | Höfn |
| Menningarmiðstöð Hornafjarðar – Listasafn A-Skaft. | V | Höfn |
| Menningarmiðstöð Hornafjarðar – Náttúrugripasafn A-Skaft. | V | Höfn |
| Tækniminjasafn Austurlands, Seyðisfirði | V | Seyðisfjörður |
| Minjasvæði 7 – Suðurland | ||
| Húsið á Eyrarbakka – Byggðasafn Árnesinga | R+V | Eyrarbakki |
| Húsið á Eyrarbakka – Sjóminjasafnið á Eyrarbakka | V | Eyrarbakki |
| Byggðasafn Rangæinga og V-Skaftf., Skógum | R+V | Hvolsvöllur |
| Húsið á Eyrarbakka – Rjómabúið á Baugsstöðum | V | Stokkseyri |
| Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja | R+V | Vestmannaeyjar |
| Safnahús Vestmannaeyja – Byggðasafn Vestmannaeyja | R | Vestmannaeyjar |
| Óstaðsett | ||
| Farskóli íslenskra safna og safnmanna | V |
Landfræðileg dreifing styrkja úr safnasjóði 2003.
(R = rekstrarstyrkur, V = verkefnastyrkur.)
| Minjasvæði 1 – Reykjavík | ||
| Grasagarður Reykjavíkur | V | Reykjavík |
| ICOM Íslandsdeild | V | Reykjavík |
| Leikminjasafn Íslands | V | Reykjavík |
| Listasafn Reykjavíkur | V | Reykjavík |
| Ljósmyndasafn Reykjavíkur | R | Reykjavík |
| Minjasafn Reykjavíkur – Árbæjarsafn | R | Reykjavík |
| Minjasvæði 2 – Reykjanes | ||
| Byggðasafn Gerðahrepps | V | Garður |
| Byggðasafn Hafnarfjarðar | R+V | Hafnarfjörður |
| Listasafn Kópavogs – Gerðarsafn | V | Kópavogur |
| Náttúrufræðistofa Kópavogs | R | Kópavogur |
| Byggðasafn Reykjanesbæjar – forvarsla | V | Reykjanesbær |
| Byggðasafn Reykjanesbæjar (áður Suðurnesja) | R+V | Reykjanesbær |
| Minjasvæði 3 – Vesturland | ||
| Safnasvæðið á Akranesi – Byggðasafn Akraness og nærsveita | R+V | Akranes |
| Safnahús Borgarfjarðar – Byggðasafn Borgfirðinga | R | Borgarnes |
| Safnahús Borgarfjarðar – Listasafn Borgarness | V | Borgarnes |
| Safnahús Borgarfjarðar – Náttúrugripasafn Borgarfjarðar | V | Borgarnes |
| Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla (Norska húsinu) | R+V | Stykkishólmur |
| Minjasvæði 4 – Vestfirðir | ||
| Byggðasafn Vestfjarða | R+V | Ísafjörður |
| Safnahúsið Eyrartúni, Ísafirði – Listasafn Ísafjarðar | V | Ísafjörður |
| Minjasafn Egils Ólafssonar | R+V | Patreksfjörður |
| Minjasvæði 5a – Norðurland | ||
| Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi | R | Blönduós |
| Byggðasafnið Hvoll, Dalvíkurbyggð | R | Dalvík |
| Hvalamiðstöðin á Húsavík | R | Húsavík |
| Safnahúsið á Húsavík – Byggðasafn Suður-Þingeyinga | R+V | Húsavík |
| Safnahúsið á Húsavík – myndlistarsafn | V | Húsavík |
| Safnahúsið á Húsavík – náttúrugripasafn | V | Húsavík |
| Samgönguminjasafnið í Ystafelli | R | Húsavík |
| Bóka- og byggðasafn Norður-Þingeyinga | V | Kópasker |
| Síldarminjasafnið á Siglufirði | R+V | Siglufjörður |
| Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna | R+V | Staður |
| Safnasafnið á Svalbarðseyri | R | Svalbarðsströnd |
| Byggðasafn Skagfirðinga, Glaumbæ | R+V | Varmahlíð |
| Minjasvæði 5b – Akureyri | ||
| Listasafnið á Akureyri | R | Akureyri |
| Minjasafnið á Akureyri | R+V | Akureyri |
| Minjasvæði 6 – Austurland | ||
| Bóka- og minjasafn Nönnu Guðmundsdóttur | V | Djúpivogur |
| Langabúð – Safn Ríkarðs Jónssonar | V | Djúpivogur |
| Safnahúsið á Egilsstöðum – Minjasafn Austurlands | R+V | Egilsstaðir |
| Safnastofnun Fjarðabyggðar – Sjóminjasafn Austurlands | R | Eskifjörður |
| Menningarmiðstöð Hornafjarðar – Byggðasafn A-Skaft. | R+V | Höfn |
| Menningarmiðstöð Hornafjarðar – Listasafn A-Skaft. | V | Höfn |
| Menningarmiðstöð Hornafjarðar – Náttúrugripasafn A-Skaft. | V | Höfn |
| Tækniminjasafn Austurlands, Seyðisfirði | R | Seyðisfjörður |
| Minjasvæði 7 – Suðurland | ||
| Húsið á Eyrarbakka – Byggðasafn Árnesinga | R+V | Eyrarbakki |
| Húsið á Eyrarbakka – Byggðasafn Árnesinga, náttúrusafn | V | Eyrarbakki |
| Húsið á Eyrarbakka – Sjóminjasafnið á Eyrarbakka | V | Eyrarbakki |
| Listasafn Árnesinga | R | Hveragerði |
| Byggðasafn Rangæinga og V-Skaftf., Skógum | R+V | Hvolsvöllur |
| Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja | R | Vestmannaeyjar |
| Safnahús Vestmannaeyja – Byggðasafn Vestmannaeyja | R | Vestmannaeyjar |
| Safnahús Vestmannaeyja – Listasafn Vestmannaeyja | V | Vestmannaeyjar |
| Safnahús Vestmannaeyja – Ljósmyndasafn Vestmannaeyja | V | Vestmannaeyjar |
| Óstaðsett | ||
| Farskóli íslenskra safna og safnmanna | V | |
| Samstarf sjóminjasafna – Sjóminjar Íslands | V |
3. Hvernig er styrkjunum úthlutað?
Úthlutað er tvenns konar styrkjum, verkefnastyrkjum og rekstrarstyrkjum, í samræmi við 4. og 10. gr. safnalaga og úthlutunarreglur safnasjóðs, sbr. fylgiskjal. Í 4. gr. laganna er að finna ákvæði um hvaða skilyrði stofnun þarf að uppfylla til að kallast safn lögunum samkvæmt. Í greininni segir orðrétt:
„Safn er samkvæmt lögum þessum stofnun, opin almenningi, sem hefur það hlutverk að safna heimildum um manninn, sögu hans, umhverfi og náttúru landsins, standa vörð um þær, rannsaka, miðla upplýsingum og hafa þær til sýnis svo að þær megi nýtast til rannsókna, fræðslu og skemmtunar.“
Skilgreining þessi er nokkuð sveigjanleg og hefur safnaráð reynt að miða túlkun sína á greininni við íslenskan veruleika. Til að mynda er hugtakið „rannsaka“ ekki nánar skilgreint í lögunum, en ljóst er að afar fá íslensk söfn hafa bolmagn til að stunda fræðilegar rannsóknir af elju. Allar stofnanir sem sótt hafa um styrki úr safnasjóði og safnaráð telur uppfylla skilyrði 4. gr. safnalaga, eiga kost á verkefnastyrkjum úr sjóðnum. Þó eru undanskilin þau söfn sem rekin eru af ríkinu eins og fram kemur í 10. gr. laganna.
Í úthlutunarreglum safnasjóðs kemur fram hvers konar verkefni geta fengið styrk, en orðrétt segir þar:
„Öll söfn sem safnalög ná til geta sótt um verkefnastyrki til safnasjóðs. Söfn geta sótt sameiginlega um styrk til samstarfsverkefna. Safnaráð úthlutar styrkjum til eftirtalinna verkefna:
1. Stefnumótunar á sviði safnastarfs.
2. Skráningarverkefna.
3. Rannsókna á vegum safna.
4. Öryggismála safna.
5. Til varðveislumála.
6. Fræðsluverkefna.
7. Sýninga.
8. Markaðssetningar.
9. Forvörslu.
10. Merkingu safna.
11. Endurmenntunar og menntunar safnamanna.
12. Annað: Önnur verkefni en þau, sem þegar hafa verið talin og safnaráð metur styrkhæf hverju sinni.“
Í 10. grein safnalaga er fjallað um þau skilyrði sem safn þarf að uppfylla til að eiga kost á rekstrarstyrki úr safnasjóði. Í greininni segir orðrétt:
„Hlutverk safnasjóðs er að styrkja starfsemi safna sem heyra undir lög þessi. Safnaráð úthlutar úr sjóðnum styrkjum til safna samkvæmt sérstökum úthlutunarreglum sem ráðið setur og menntamálaráðherra staðfestir.
Tekjur sjóðsins eru:
a. framlag ríkissjóðs eftir því sem ákveðið er í fjárlögum,
b. önnur framlög.
Öll söfn sem undir lög þessi falla geta sótt um verkefnastyrki til safnasjóðs. Til þess að geta sótt um rekstrarstyrki þarf safn að uppfylla eftirtalin skilyrði:
1. Safnið skal hafa sjálfstæðan fjárhag og vera stjórnað af forstöðumanni í a.m.k. hálfu starfi.
2. Safnið skal starfa eftir stofnskrá sem hlotið hefur staðfestingu safnaráðs og skal starfa eftir stefnu sem endurskoðuð er á fjögurra ára fresti.
3. Safnið skal rekið óaðfinnanlega að mati safnaráðs og fjárhagsgrundvöllur þess skal vera tryggður.
4. Safnið skal vera opið almenningi daglega á auglýstum tíma a.m.k. þrjá mánuði á ári.
5. Safnið skal bjóða upp á safnfræðslu eftir því sem við verður komið.
6. Safnið skal skrá safngripi eftir viðurkenndu skráningarkerfi.
7. Safnið skal fylgja viðurkenndum alþjóðlegum siðareglum safna.
Höfuðsöfn og önnur söfn, sem rekin eru af ríkinu, geta ekki notið styrkja úr safnasjóði.“
Þó að safnaráð hafi safnalög og úthlutunarreglur safnasjóðs að leiðarljósi við úthlutanir hefur ráðið einnig miðað starf sitt við veruleika íslensks safnastarfs. Til að mynda hafa komið upp tilfelli þar sem safnaráð hefur talið nauðsynlegt að veita styrk til starfsemi sem ekki fellur undir lögin. Má í því samhengi nefna Íslandsdeild ICOM (alþjóðaráðs safna). Fram að setningu safnalaga hafði Íslandsdeild ICOM hlotið styrki frá menntamálaráðuneyti, allt frá stofnun deildarinnar. Eftir setningu safnalaga og stofnun safnaráðs hefur ráðuneytið vísað umsóknum deildarinnar til safnaráðs. Um er að ræða starfsemi sem ekki fellur undir safnalög, en safnaráð hefur engu að síður talið nauðsynlegt að styðja starfsemina með styrkjum síðustu tvö ár, með hag íslensks safnastarfs og mikilvæga tengingu þess við alþjóðlega safnaheiminn í huga. Hið sama er að segja um Farskóla Félags íslenskra safna og safnmanna, sem er mikilvægur samstarfs- og samráðsvettvangur íslenskra safnmanna.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
* Miðað er við að rekstrarstyrkir séu jafnháir og árið 2003 (1500 þús. kr.).
** Miðað er við áætlaða fjárveitingu fyrir árið 2004 (66 millj. kr.) og að rekstrarfé ráðsins 2004 verði hið sama og 2003 (6,4 millj. kr.)
Þar sem fjárhagur safnasjóðs hefur verið takmarkaður miðað við fjölda umsækjanda og heildarupphæð umsókna þau ár sem sjóðurinn hefur starfað hefur safnaráð tekið þá stefnu undanfarin tvö ár að leggja megináherslu á rekstrarstyrki til safna, en gefa verkefnastyrkjum minna vægi. Þessari stefnu var fylgt ríkar við úthlutun á árinu 2003 en 2002. Af þessu leiðir að til að eiga kost á hærri styrkjum úr safnasjóði verða söfnin að uppfylla fleiri skilyrði safnalaga um faglegt safnastarf en áður, þ.e. öll ákvæði 10. gr. Þessi aðferð hefur bæði kosti og galla. Með því að gefa skilyrðum fyrir faglegu safnastarfi mikið vægi er ýtt undir faglegt safnastarf á íslenskum söfnum. En um leið verður fjárþörf safnanna meiri, þar sem smærri söfn geta þurft að auka umfang starfseminnar til að uppfylla skilyrðin, svo sem kröfuna um a.m.k. 50% starfshlutfall forstöðumanns og krafan um notkun viðurkennds skráningarkerfis. Einnig hefur stefnan undanfarin tvö ár verið sú að undanskilja í flestum tilfellum ekki einungis ríkisrekin söfn (eins og um getur í lögunum) heldur einnig söfn sem hlutu beina rekstrarstyrki á fjárlögum.
Þar sem safnaráð er ung stofnun og er enn að finna starfsemi sinni farsælan farveg með tilliti til veruleika íslensks safnastarfs, hefur verið hafður sá háttur á að veita sömu upphæð í rekstrarstyrki til allra gildra umsækjanda, óháð umfangi starfseminnar. Litið hefur verið á þessa aðferð sem bráðabirgðaúrræði meðan ráðið mótar vænlegar og réttlátar úthlutunarleiðir. Safnmenn hafa gagnrýnt aðferðina og leitar ráðið nú leiða til að miða úthlutanir rekstrarstyrkja að einhverju leyti við umfang og aðstæður á söfnum við úthlutun 2004.
5. Hvernig eru umsóknir metnar og gerðar um þær tillögur?
Safnaráð hefur sl. tvö ár metið umsóknir með tilliti til þess hvort og hvernig stofnanirnar uppfylla skilyrði safnalaga og úthlutunarreglna safnasjóðs, þó með tilliti til veruleika íslensks safnastarfs. Eins og fyrr greindi hefur úthlutun rekstrarstyrkja verið látin ganga fyrir og söfn sem hlotið hafa rekstrarstyrki beint af fjárlögum verið undanskilin í flestum tilfellum. Ráðsmenn hafa gert tillögur um úthlutanir hingað til en fjallað hefur verið sameiginlega um tillögurnar á fundum.
6. Hvaða eftirlit er haft með því að verkefnum sé hrint í framkvæmd?
Hingað til hafa ráðsmenn haft óformlegt eftirlit með því að verkefnum sé hrint í framkvæmd, sér í lagi forstöðumenn höfuðsafna, hver á sínu sviði (sviði myndlistar, menningarminja og náttúruminja). Enn fremur hafa mörg söfn sent safnaráði ársskýrslur sínar og ársreikninga til vitnisburðar um fjármögnun og framkvæmd þeirra verkefna sem styrkt voru. Áform eru uppi um að efla eftirlitsstarf safnaráðs samkvæmt nýsettum úthlutunarreglum, sem menntamálaráðherra staðfesti 6. maí 2003, en þar segir: „Safnaráð hefur eftirlit með því, að styrkir séu notaðir til þess, sem getið var í umsóknum. Styrkþegum er skylt að kynna fulltrúa safnaráðs stöðu verksins, sé þess óskað. Safnaráð getur óskað eftir áfangaskýrslum, ef þurfa þykir, safnaráði að kostnaðarlausu. Hægt er að svipta umsækjanda styrk, telji safnaráð að verkið sé ekki unnið í samræmi við umsókn og innsend gögn. Að verkefni loknu kynnir styrkþegi árangur og niðurstöður fyrir safnaráði með skriflegri skýrslu.“
Fylgiskjal.
Úthlutunarreglur Safnasjóðs
1. gr.
Hlutverk safnasjóðs.
2. gr.
Úthlutanir úr safnasjóði.
Safnaráð úthlutar úr sjóðnum rekstrarstyrkjum og verkefnastyrkjum til safna. Höfuðsöfn og önnur söfn, sem rekin eru af ríkinu, geta ekki notið styrkja úr safnasjóði.
1. Rekstrarstyrkir:
Til þess að geta sótt um rekstrarstyrki þarf safn að uppfylla eftirtalin skilyrði:
1. Safnið skal hafa sjálfstæðan fjárhag og vera stjórnað af forstöðumanni í a.m.k. hálfu starfi.
2. Safnið skal starfa eftir stofnskrá sem hlotið hefur staðfestingu safnaráðs og skal starfa eftir stefnu sem endurskoðuð er á fjögurra ára fresti.
3. Safnið skal rekið faglega að mati safnaráðs og fjárhagsgrundvöllur þess skal vera tryggður. Safnið sendi með umsókn sinni ársskýrslu og ársreikning ásamt rekstrar- og verkefnaáætlun í upphafi hvers árs. Í ársskýrslu skal koma fram hvernig opnunartíma safnsins var háttað, fjöldi safngesta, fjöldi sýninga og atburða, staða skráningar, t.d. hve stór hluti safnsins er skráður, aðföng, önnur veitt þjónusta og rannsóknir. Safnið sendi með umsókn sinni söfnunar- og sýningarstefnu.
4. Safnið skal vera opið almenningi daglega á auglýstum tíma a.m.k. þrjá mánuði á ári.
5. Safnið skal bjóða upp á safnfræðslu eftir því sem við verður komið.
6. Safnið skal skrá safngripi eftir viðurkenndu skráningarkerfi. Beitt skal viðurkenndum aðferðum við forvörslu muna.
7. Safnið skal fylgja viðurkenndum alþjóðlegum siðareglum safna, birtar af ICOM, alþjóðaráði safna.
2. Verkefnastyrkir.
Öll söfn sem safnalög ná til geta sótt um verkefnastyrki til safnasjóðs. Söfn geta sótt sameiginlega um styrk til samstarfsverkefna. Safnaráð úthlutar styrkjum til eftirtalinna verkefna:
1. Stefnumótunar á sviði safnastarfs.
2. Skráningarverkefna.
3. Rannsókna á vegum safna.
4. Öryggismála safna.
5. Til varðveislumála.
6. Fræðsluverkefna.
7. Sýninga.
8. Markaðssetningar.
9. Forvörslu.
10. Merkingu safna.
11. Endurmenntunar og menntunar safnamanna.
12. Annað: Önnur verkefni en þau, sem þegar hafa verið talin og safnaráð metur styrkhæf hverju sinni.
Áður en til styrkveitingar kemur, metur safnaráð, hvort það telur umsókn styrkhæfa og ákveður upphæð styrks. Safnaráð metur styrkhæfi með tilliti til verkefnis og gildi þess fyrir safnastarf almennt.
Styrkjum er úthlutað til eins árs í senn. Nýti styrkþegi ekki styrk sama ár og honum er úthlutað, fellur styrkurinn niður, nema sérstaklega sé sótt um frestun hans. Umsókn um frest skal vera skrifleg og rökstudd.
3. gr.
Auglýsing um styrki úr safnasjóði.
4. gr.
Almennt um umsóknir.
1. Upplýsingar um umsækjanda/umsækjendur.
2. Nafn þess, er annast samskipti við stjórn sjóðsins.
3. Nákvæm lýsing verkefnisins.
4. Tíma- og kostnaðaráætlun.
5. gr.
Eftirlit safnaráðs.
6. gr.
Gildistaka.