Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 291. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 742  —  291. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Brynju Magnúsdóttur um framlög til ferðaþjónustu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hve mikið fé hefur ríkissjóður veitt til ferðaþjónustu og tengdra mála, svo sem safna, árið 2002 og það sem af er 2003? Spurt er um fjárveitingar af öllum fjárlagaliðum, þ.m.t. safnliðum. Óskað er eftir að svarið verði sundurliðað eftir ráðuneytum, árum, verkefnum og eftirfarandi landshlutum:
     a.      Reykjavík,
     b.      Suðurnesjum,
     c.      Suðurlandi,
     d.      Vestmannaeyjum,
     e.      Austurlandi,
     f.      Norðausturlandi,
     g.      Norðvesturlandi,
     h.      Vestfjörðum,
     i.      Vesturlandi,
     j.      Suðvesturkjördæmi.


    Fjármálaráðuneytið hefur aflað upplýsinga frá öðrum ráðuneytum vegna svarsins og lét hverju og einu eftir að meta hvaða fjárveitingar skyldi telja með og hvernig skyldi flokka. Hluta fjárveitinga var ekki hægt að setja niður á landshluta og munar mestu um fjárframlög til landkynningar erlendis. Í töflu 1 er gerð grein fyrir samtals 726,6 millj. kr. framlögum árið 2002 sem talin eru tengjast ferðaþjónustu með tiltölulega beinum hætti og í töflu 2 er gerð grein fyrir 710,1 millj. kr. fram í nóvember 2003. Til viðbótar koma fjárveitingar til nokkurra safna sem ríkið rekur og tengjast ferðaþjónustu óbeint, u.þ.b. 900 millj. kr. Ekki eru talin með framlög til ýmiss konar menningarstarfsemi svo sem leikhúsa, hljómsveita og íþróttaviðburða þótt verkefnin geti dregið að sér ferðafólk. Sama er að segja um rekstur þjóðgarða sem falla undir umhverfisráðuneytið. Þá er sleppt útgjöldum ríkisins til grunnkerfa sem ferðamennska byggist á og munar mestu um útgjöld til vegamála og flugmála.

Forsætisráðuneyti.
    Ráðuneytið veitti árið 2002 samtals 250,9 millj. kr. til ferðaþjónustu og tengdra mála og áætlar að veita 224 millj. kr. árið 2003 til slíkra verkefna. Fjárhæðirnar eru sundurliðaðar í töflum. Ekki eru tíundaðir styrkir sem kunna að hafa verið veittir af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar, ráðstöfunarfé ráðherra og úr Kristnihátíðarsjóði.

Menntamálaráðuneyti.
    Ráðuneytið veitti árið 2002 samtals 112 millj. kr. til ferðaþjónustu og tengdra mála og 171,1 millj. kr. fram í nóvember 2003. Fjárhæðirnar eru sundurliðaðar í töflum. Að auki var Háskólanum á Akureyri veitt 5 millj. kr. framlag í fjárlögum 2003 vegna ferðamálaseturs um menningartengda ferðaþjónustu. Þá var samningur við Menningarborgarsjóð hækkaður um 10 millj. kr. til að styrkja listviðburði sem efla menningartengda ferðaþjónustu og nemur ríkisframlag til samningsins 15 millj. kr. í fjárlögum yfirstandandi árs.
    Fjölmörg söfn sem bjóða þjónustu er höfðar til ferðafólks, beint eða óbeint, fá regluleg framlög af fjárlagaliðum ráðuneytisins. Samkvæmt fjárlögum 2002 voru framlögin um 891,6 millj. kr. og skiptast sem hér segir: Þjóðskjalasafn Íslands, Landsbókasafn – Háskólabókasafn, Listasafn Einars Jónssonar, Listasafn Íslands, Blindrabókasafn Íslands, Listasafn ASÍ, Nýlistasafn og Listasafn Sigurjóns Ólafssonar með samtals 630,3 millj. kr. framlag. Á Austurlandi var Skriðuklaustur með 10,6 millj. kr. framlag. Á Vesturlandi var Snorrastofa með 5,9 millj. kr. framlag og í suðvesturkjördæmi Þjóðminjasafn Íslands og Kvikmyndasafn með samtals 244,8 millj. kr. Ekki hefur verið tekið saman hvað þessir aðilar fengu greitt fyrstu ellefu mánuði ársins 2003.

Utanríkisráðuneyti.
    Ráðuneytið hefur ekki veitt sérstök framlög til ferðaþjónustu en kynning á Íslandi er grundvallarþáttur í starfi sendiráða og tengist almennt samskiptum þess við erlenda aðila í hverju landi. Margt í starfi sendiráða er að auki til þess fallið að hjálpa ferðaþjónustunni á Íslandi, t.d. vefsetur sendiráða, upplýsingabæklingar um Ísland, starfsemi viðskiptaþjónustunnar og viðskiptafulltrúa sendiráða, ýmiss konar menningarkynningar, opinberar heimsóknir ráðamanna og tengsl starfsmanna sendiráða og ræðismanna við fólk erlendis. Þjónusta sendiráða stendur fulltrúum Ferðamálaráðs til boða. Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og skrifstofa Ferðamálaráðs þar í borg verða í sama húsnæði.

Landbúnaðarráðuneyti.
    Ráðuneytið veitti árið 2002 samtals 54,4 millj. kr. til ferðaþjónustu og tengdra mála og 0,5 millj. kr. fram í nóvember 2003. Fjárhæðirnar eru sundurliðaðar í töflum.

Sjávarútvegsráðuneyti.
    Ráðuneytið veitti árið 2002 samtals 2,6 millj. kr. til ferðaþjónustu og tengdra mála og 0,3 millj. kr. fram í nóvember 2003. Fjárhæðirnar eru sundurliðaðar í töflum.

Dóms- og kirkjumálaráðuneyti.
    Ráðuneytið hefur ekki veitt framlög til ferðaþjónustu.

Félagsmálaráðuneyti.
    Ráðuneytið veitti árið 2002 samtals 6,1 millj. kr. til ferðaþjónustu og tengdra mála og 6,5 millj. kr. fram í nóvember 2003. Fjárhæðirnar eru sundurliðaðar í töflum.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti.
    Ráðuneytið hefur ekki veitt framlög til ferðaþjónustu.

Samgönguráðuneyti.
    Ráðuneytið veitti árið 2002 samtals 282,4 millj. kr. til ferðaþjónustu og tengdra mála og 276,6 millj. kr. fram í nóvember 2003. Fjárhæðirnar eru sundurliðaðar í töflum.

Fjármálaráðuneyti.
    Ráðuneytið hefur ekki veitt slík framlög.

Viðskiptaráðuneyti.
    Ráðuneytið hefur ekki veitt slík framlög.

Iðnaðarráðuneyti.
    Ráðuneytið veitti árið 2002 samtals 16,7 millj. kr. til ferðaþjónustu og tengdra mála og um 28,8 millj. kr. fram í nóvember 2003. Fjárhæðirnar eru sundurliðaðar í töflum. Auk þessa var 20 millj. kr. tekjum af sölu Kísiliðjunnar árið 2002 ráðstafað til kaupa á hlutum í Baðfélagi Mývatnssveitar. Þá keypti Byggðastofnun hlutafé árið 2002 fyrir 42,5 millj. kr. sem skiptist þannig: 20 millj. kr. í Sæferðum hf., Stykkishólmi; 2,5 millj. kr. í Sumarbyggðum ehf., Súðavík; 10 millj. kr. í Hótel Mývatni ehf. og 10 millj. kr. í Reynihlíð ehf. Árið 2003 voru keyptir hlutir fyrir 4 millj. kr. í Vesturferðum ehf. og 5 millj. kr. í Laugarhóli ehf.

Hagstofa Íslands.
    Ráðuneytið hefur ekki veitt slík framlög.

Umhverfisráðuneyti.
    Ráðuneytið veitti árið 2002 samtals 0,6 millj. kr. til ferðaþjónustu og tengdra mála og 2,4 millj. kr. fram í nóvember 2003. Fjárhæðirnar eru sundurliðaðar í töflum.

Tafla 1. Framlög ríkissjóðs til ferðaþjónustu og tengdra mála árið 2002 (í þús. kr.).          
Liður Verkefni Óstað-
sett
Reykja-
vík
Suðurnes Suðurland Vestm. eyjar Austurland Norð- austur- land Norð- vestur- land Vestfirðir Vestur- land Suðv. kjördæmi Samtals
01-190-1.12 Handverk, hönnunarmiðstöð heimilis- og listiðnaðar 6.800 6.800
01-190-1.23 Hrafnseyri, Hrafnseyrarnefnd 4.000 4.000
01-190-1.25 Vesturfarasetrið á Hofsósi 17.000 17.000
01-190-1.27 Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal 2.000 2.000
01-190-5.25 Stafkirkjan í Vestmannaeyjum, viðhald 2.500 2.500
01-251-1.01 Þjóðmenningarhúsið 56.390 56.390
01-255 Minningarsafn um Halldór Laxness að Gljúfrasteini 71.308 71.308
01-902 Þjóðgarðurinn á Þingvöllum 90.865 90.865
Forsætisráðuneyti alls 0 63.190 0 92.865 2.500 0 0 17.000 4.000 0 71.308 250.863
    
02-919 Sögusetrið á Hvolsvelli 7.000 7.000
02-919 Hvalamiðstöðin á Húsavík 7.000 7.000
02-919 Geysisstofa í Haukadal 7.000 7.000
02-919 Endurb. vélb. Blátinds 4.000 4.000
02-919 Sögusafnið í Reykjavík 7.000 7.000
02-919 Endurbygging Brydebúðar 3.000 3.000
02-919 Sjóminjasafn Íslands 1.000 1.000
02-919 Endurb. Tryggvaskála 4.000 4.000
02-919 Síldarminjasafnið 7.000 7.000
02-919 Safnahús í Neðstakaupstað 6.000 6.000
02-919 Viðg. á eikarbátnum Sædísi 3.500 3.500
02-919 Viðg. á vélbátnum Gesti 3.500 3.500
02-919 Safnahús í Búðardal 7.000 7.000
02-919 Kjarvalsstofa Borgarfirði eystri 4.000 4.000
02-919 Saltfisksetur í Grindavík 3.000 3.000
02-919 Galdrasýning á Ströndum 7.000 7.000
02-919 Steinaríki Íslands, Akranesi 2.000 2.000
02-919 Kirkjubæjarstofa 4.000 4.000
02-919 Sjávarsafn Ólafsvík 2.500 2.500
02-919 Húni II. 1.000 1.000
02-919 Búvélasafn Hvanneyri 1.000 1.000
02-919 Herhúsið á Siglufirði 500 500
02-919 Kvennasögusafnið 500 500
02-919 Hlunnindasafn Reykhólum 500 500
02-919 Sjávardýrasafn Höfnum 3.000 3.000
02-919 Þjóðlagasetur Siglufirði 2.000 2.000
02-969 Kaupvangur í Vopnafirði 7.000 7.000
02-969 Duushúsin í Reykjanesbæ 7.000 7.000
Menntamálaráðuneyti alls 0 7.500 14.000 25.000 4.000 11.000 16.500 0 20.500 12.500 1.000 112.000
    
04-101 Uppbygging ferðamannastaða 300 300
04-190 Uppbygging safna 200 200 400
04-190 Ferðatengd þjónusta 100 600 500 1.200
04-821 Gisti og greiðasala 19.375 5.150 5.570 5.200 7.450 3.950 1.500 48.195
04-821 Önnur ferðatengd þjónusta, söfn o.fl. 2.000 1.500 800 4.300
Landbúnaðarráðuneyti alls 0 0 100 22.475 0 5.150 5.570 7.200 8.450 3.950 1.500 54.395
    
05-190 Bátasafn Gríms Karlssonar, Reykjanesbæ 750 750
05-191 Hátíð hafsins 300 300
05-192 Þátttaka Íslands í matreiðslukeppni í Lyon 1.500 1.500
Sjávarútvegsráðuneyti alls 1.500 300 750 0 0 0 0 0 0 0 0 2.550
    
07-984-1.41 Kortlagning örnefna á Hólsfjöllum 153 153
07-984-1.41 Listvefnaðarsetur 150 150
07-984-1.41 Gistiheimili á Borgarfirði eystri 300 300
07-984-1.41 Kvennahópur 200 200
07-984-1.41 Útgáfa vættakorts af Fjarðab. og Mjóaf. 525 525
07-984-1.41 Sýningar í Sænautaseli í uppgerðum torfbæ 350 350
07-984-1.41 Kaffihús á Dalvík 150 150
07-984-1.41 Kvennahópur 240 240
07-984-1.41 Enduruppb. handverkshúss á Ingjaldssandi 150 150
07-984-1.41 Kvennahópur 150 150
07-984-1.41 Kvennahópur 600 600
07-984-1.41 Ferðaþjónusta í Dýrafirði, forvarnastarf með unglingum 80 80
07-984-1.41 Minjasafn um húsmæðraskólann á Ísafirði 375 375
07-984-1.41 Kvennahópur 235 235
07-984-1.41 Markaðssetning listviðburða í Vivaldi Borgarnesi 150 150
07-984-1.41 Aðstaða til handverkssölu og fyrir grafíska hönnun 150 150
07-984-1.41 Hestaleiga í Húsafelli 150 150
07-999-1.90 Þjóðahátíð Austfirðinga 200 200
07-999-1.90 Safnasafnið á Akureyri 200 200
07-999-1.90 Vestnorden handverkssýning 200 200
07-999-1.90 Gallerí Sigló, handverk kvenna 200 200
07-999-1.90 Minnisvarði í Óslandshlíð 100 100
07-999-1.90 Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi 500 500
07-999-1.90 Grettistak, menningar- og fræðslustofnun 500 500
07-999-1.90 Þjóðahátíð Vestfirðinga 100 100
Félagsmálaráðuneyti alls 0 153 0 150 0 1.575 750 1.100 1.695 685 0 6.108
    
10-101-1.01 Aðgengi fatlaðra 500 500
10-101-1.01 Fjarnám í ferðamálafr. 875 875
10-101-1.01 Írskir dagar 450 450
10-101-1.01 Leifshátíð, markaðssetning á menningartengdri ferðaþjónustu í Dalasýslu 600 600
10-101-1.01 Merkingar á söguslóðum Hrafnkels sögu Freysgoða 200 200
10-101-1.01 Styrkur v. alþjóðasamstarfs ferðamálafulltrúa 150 150
10-101-1.01 Styrkur v. fagkeppni nema í Ferðamálask. í Kópavogi á Ítalíu 50 50
10-101-1.01 Sjóminjasafn Íslands vegna endurbóta á flutningabátnum Friðþjófi, Reykhólum 400 400
10-101-1.01 Útgáfa göngukorta 300 300 1.000 1.600
10-101-1.01 Styrkur v. norræns sjóréttarmálþings 200 200
10-101-1.01 Vettvangsferð til Japans á Kúluskítshátíð 200 200
10-101-1.01 Styrkur vegna kynningar á minjum um siglingar og fiskveiðar 150 150
10-101-1.01 Félagsstarf f. þroskahefta og fatlaða 7 7
10-101-1.01 Menningartengd ferðaþjónusta leikfélagsins Baldurs 50 50
10-101-1.01 Leiksýning um ævi Muggs listmálara 50 50
10-190-1.41 Samstarf Vestur- Norðurlanda 1.000 1.000
10-190-1.42 Fjarnám í ferðamálafræðum 3.000 3.000
10-190-1.42 Gestastofurekstur 2.000 2.000 4.000
10-190-1.42 Landsmót hestamanna 2.000 2.000
10-190-1.42 Samgönguminjasafn 3.000 3.000
10-190-1.42 Íslandskynning í Japan 300 300
10-190-1.42 Fornleifarannsóknir á Grænlandi 1.000 1.000
10-190-1.44 Markaðssókn í ísl. ferðaþjónustu 189.110 189.110
10-190-1.45 Framlag til Norðursiglingar á Húsavík til að styrkja rekstur 5.000 5.000
10-190-1.47 Kynning á Íslandi í Bandaríkjunum (Iceland Naturally) 55.999 55.999
10-190-1.48 Kynning á íslenska hestinum 7.500 7.500
10-190-1.49 Húsahótel á Seyðisfirði 5.000 5.000
Samgönguráðuneyti alls 254.334 7 0 2.000 0 5.500 5.200 10.800 500 4.050 0 282.391
    
11-201 Hagkvæmniathugun fyrir kláf í Esjunni 200 200
11-201 Uppbygging ferðaþjónustu á Fossatúni 300 300
11-201 Gerð viðskiptaáætlunar f. stjörnuskoðunarstöð 200 200
11-299-1.48 Hvalamiðstöðin Húsavík, fræðsla og kynning 400 400
11-299-1.48 Gæðastýring í grænni ferðaþjónustu 500 500
11-299-1.48 Aldamótabærinn Seyðisfjörður 700 700
11-299-1.48 Markaðssetning Dalabyggðar og Eiríksstaða 700 700
11-299-1.48 Uppbygging Kolkuóss í Skagafirði 1.500 1.500
11-299-1.48 Upplýsingatækni, fyrirtæki á Hofsósi um Vesturfara 2.500 2.500
11-299-1.48 Uppbygging ferðaþjónustu í Fossatúni 400 400
11-299-1.48 Fjölmenningarsetur á Vestfjörðum, auka möguleika á fjölbreytni atvinnulífs 100 100
11-299-1.50 Iðnaðarsafnið á Akureyri 400 400
11-299-1.50 Vestfjarðakynning í Perlunni 300 300
11-299-1.50 Markaðsstofa Austurlands v. aðstöðu f. ferðamenn á hálendinu við Vatnajökul 500 500
11-299-1.50 Uppbygging safns um ísl. bræðsluiðn 500 500
11-299-1.50 Rekstur gistiheimilis í Hólmavík 500 500
11-299-1.50 Hvalaferðir ehf., v. markaðsátaks 900 900
11-299-1.50 Undirbúningur v. markaðsskrifstofu Norðurlands 1.500 1.500
11-411 Sýning á íþróttasögu Íslands 500 500
11-411 Náttúrusafn Bolungarv. 500 500
11-411 Endurbætur á Grettislaug 500 500
11-411 Sýning um hákarlaveiðar 500 500
11-411 Starfsemi ferðamálafulltrúa 500 500
11-411 Breytingar á báti 300 300
11-411 Uppbygging á ferðaþj. 500 500
11-411 Stofnun Kjarvalsstofu 400 400
11-411 Sýningin „Fransmenn á Íslandi“ 500 500
11-411 Rætur, áhugahópur um menningarfjölbreytni – Þjóðahátíð 300 300
11-411 Dægurlagakeppni árið 2002 200 200
11-411 Óperustúdíó Austurlands, „Bjartar nætur í júní 2002“ 400 400
11-411 Þjóðahátið Austfirðinga 300 300
52-101 Byggðasafn 150 150
Iðnaðarráðuneyti alls 0 200 0 0 0 3.600 4.200 4.900 2.850 1.900 0 17.650
14-101 Uppl. um aðgengilega ferðamannastaði á Íslandi 200 200
14-101 Þáttagerð um gönguleiðir hálendisins 100 100
14-101 Sýningin „Fuglalíf í Látrabjargi“ 300 300
Umhverfisráðuneyti alls 0 300 0 0 0 0 0 0 300 0 0 600
Ráðuneytin samtals 255.834 71.650 14.850 142.490 6.500 26.825 32.220 41.000 38.295 23.085 73.808 726.557


Tafla 2. Framlög ríkissjóðs til ferðaþjónustu og tengdra mála
frá 1. janúar til 12. nóvember 2003 (í þús. kr.).                                        

Liður

Verkefni

Óstaðsett
Reykjavík Suðurnes Suðurland Vestm. eyjar Austur- land Norð- austur- land Norð- vestur- land Vestfirðir Vesturland Suðv. kjördæmi
Samtals

01-190-1.12

Handverk, hönnunarmiðstöð heimilis- og listiðnaðar 6.900 6.900
01-190-1.23 Hrafnseyri, Hrafnseyrarnefnd 6.400 6.400
01-190-1.25 Vesturfarasetrið á Hofsósi 22.000 22.000
01-190-1.27 Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal 2.000 2.000
01-190-5.25 Stafkirkjan í Vestmannaeyjum, viðhald 2.500 2.500
01-251-1.01 Þjóðmenningarhúsið 83.300 83.300
01-255 Minningarsafn um Halldór Laxness að Gljúfrasteini 18.500 18.500
01-902 Þjóðgarðurinn á Þingvöllum 82.430 82.430
Forsætisráðuneyti alls 0 90.200 0 84.430 2.500 0 0 22.000 6.400 0 18.500 224.030

02-319 Garðabær, gagnvirkt kynningarefni um fornminjar á Hofstöðum 1.500 1.500
02-919 Sögusetrið á Hvolsvelli 7.000 7.000
02-919 Hvalamiðst. á Húsavík 7.000 7.000
02-919 Geysisstofa í Haukadal 7.000 7.000
02-919 Sögusafnið í Reykjavík 7.000 7.000
02-919 Endurbygging Brydebúðar 3.000 3.000
02-919 Endurb. Tryggvaskála 4.000 4.000
02-919 Síldarminjasafnið 7.000 7.000
02-919 Safnahús í Neðstakaupstað 6.000 6.000
02-919 Viðg. á eikarb. Sædísi 3.500 3.500
02-919 Viðg. á vélbátnum Gesti 3.500 3.500
02-919 Safnahús í Búðardal 7.000 7.000
02-919 Kjarvalsstofa á Borgarfirði eystri 4.000 4.000
02-919 Saltfisksetur í Grindavík 7.000 7.000
02-919 Galdrasýning á Ströndum 7.000 7.000
02-919 Kvennasögusafnið 500 500
02-919 Sjávarsafn á Ólafsvík 2.500 2.500
02-919 Húni II. 1.500 1.500
02-919 Iðnaðarsafn á Akureyri 1.000 1.000
02-919 Sturlusafn í Dölum 200 200
02-919 Héraðsskjalasafn Skagfirðinga 200 200
02-919 Sjóminja-/
smiðjumunasafn
2.000 2.000
02-919 Íslenska stríðsárasafnið 1.000 1.000
02-919 Sædýrasafnið Höfnum 3.500 3.500
02-919 Herhúsið Siglufirði 1.000 1.000
02-919 Þjóðlagasetur Siglufirði 2.000 2.000
02-919 Kirkjubæjarstofa 5.000 5.000
02-919 Náttúrugripasafn Vestmannaeyjum 3.000 3.000
02-919 Sjóminjasafn Íslands 200
02-919 Söguslóðir í Reykjanesbæ 7.000 7.000
02-919 Búnaðarsafn Eyjafjarðar 3.000 3.000
02-919 Sjóminjasafnið Ósvör 7.000 7.000
02-919 Tónminjasetur á Stokkseyri 7.000 7.000
02-919 Safn Tryggva Ólafssonar 7.000 7.000
02-919 Jöklasetur á Hornafirði 7.000 7.000
02-919 Tækniminjasafn Austurlands 7.000 7.000
02-919 Samgöngusafnið Skógum 7.000 7.000
02-969 Kaupvangur í Vopnafirði 7.000 7.000
02-969 Duushúsin í Reykjanesbæ 7.000 7.000
Menntamálaráðuneyti alls 0 7.500 26.000 47.000 3.000 28.000 21.000 200 27.000 9.700 1.700 171.100
04-821 Ýmis verkefni, áætlað framlag í ár 500 500
Landbúnaðarráðuneyti alls 500 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 500
05-190 Rækjuhátið á Ísafirði 150 150
05-191 Hátíð hafsins 150 150
Sjávarútvegsráðuneyti alls 0 150 0 0 0 0 0 0 150 0 0 300
07-984-1.41 Hönnunar- og sölumiðstöð á íslenskri/
austfirskri nytjalist
1.000 1.000
07-984-1.41 Gistiheimili og netkaffi á Eskifirði 250 250
07-984-1.41 Sumarhús í Fljótum 300 300
07-984-1.41 Vörulína með ísl. mynstrum fyrir erl. ferðamenn 500 500
07-984-1.41 Uppbygging handverkshúss í Grímsey 500 500
07-984-1.41 Uppbygging handverkshúss í Hrísey 500 500
07-984-1.41 Uppbygging handverkshúss á Fosshóli 500 500
07-984-1.41 Uppbygging handverkshúss í Ásbyrgi 500 500
07-984-1.41 Uppbygging handverkshúss á Húsavík 500 500
07-984-1.41 Föndurbækur fyrir erlenda ferðamenn 400 400
07-984-1.41 Afþreying á Ströndum, sjóstangaveiði og náttúruskoðunarferðir 500 500
07-984-1.41 Húsdýragarður á Arnarstapa 500 500
07-999-1.90 Brydebúð í Vík 500 500
Félagsmálaráðuneyti alls 0 0 0 500 0 1.250 3.300 400 500 500 0 6.450
10-101-1.01 Aðgengi fatlaðra 400 400
10-101-1.01 Átak í ferðamálum 250 250
10-101-1.01 Eyrbyggjusafn 2.000 2.000
10-101-1.01 Félag ísl. ferðamálafulltr. v. ráðstefnuundirbúnings EUTO 2004 150 150
10-101-1.01 Frumkvöðlasetur ungs fólks í Húnaþingi vestra 200 200
10-101-1.01 Gestastofa á Hellnum 100 100
10-101-1.01 Íslandskynning 250 250
10-101-1.01 Látrabjarg, áhugamannafélag, styrkur til undirbúningsrannsókna 1.600 1.600
10-101-1.01 Látrabjarg, áhugamannafélag, styrkur v. rannsóknaráætlunar 400 400
10-101-1.01 Matarhátíð á Blönduósi 200 200
10-101-1.01 Menningar- og ferðaþjónustuverkefni í Húnaþingi 1.000 1.000
10-101-1.01 Merkingar á söguslóðum Hr. s. Freysgoða 100 100
10-101-1.01 Ráðstefna á vegum Stofnunar Sigurðar Nordal 200 200
10-101-1.01 Ráðstefna um varðveislu og nýtingu vita í menningartengdri ferðaþjónustu 100 100
10-101-1.01 Ritun sögu ferðaþjónustunnar 1.000 1.000
10-101-1.01 Skemmti- og fræðslugarður Huliðsheimar – vættabyggð 200 200
10-101-1.01 St. v. fagkeppni nema í Ferðamálask. í Kópavogi í tengslum við aðalfund AEHT 75 75
10-101-1.01 Styrkur til handverkshússins Gallerí Sól í Grímsey 100 100
10-101-1.01 St. til uppbyggingar á grænni menningartengdri ferðaþjónustu 250 250
10-101-1.01 Styrkur v. Ferðatorgs Ferðamálasamtaka Íslands 700 700
10-101-1.01 Styrkur v. menningarviðburða í Faktorshúsi á Ísafirði 300 300
10-101-1.01 Styrkur v. vinnufundar hvalaskoðunarfyrirtækja 300 300
10-101-1.01 Til styrktar útgáfu á félagsblaði Félags leiðsögumanna 50 50
10-101-1.01 Umboðsmaður íslenska hestsins 3.000 3.000
10-101-1.01 Uppfærsla á íslensku leikriti í London 200 200
10-101-1.01 Félagsstarf f. þroskahefta og fatlaða 7 7
10-190-1.41 Samstarf Vestur- Norðurlanda 1.000 1.000
10-190-1.42 Bygging aðstöðuhúss
við Þingeyraklausturskirkju
300 300
10-190-1.42 Fjarnám í ferðamálafr. 3.875 3.875
10-190-1.42 Gestastofurekstur 2.000 2.000
10-190-1.42 Þórbergssetur 5.000 5.000
10-190-1.44 Markaðssókn í ísl. ferðaþjónustu 164.277 164.277
10-190-1.44 Gestastofurekstur 3.500 3.500
10-190-1.47 Kynning á Íslandi í Bandaríkjunum (Iceland Naturally) 65.219 65.219
10-190-1.48 Kynning á íslenska hestinum 5.000 5.000
10-190-1.52 Samningur um flug til Grænlands 12.500 12.500
10-190-1.90 Breytingar á bát til Papeyjarferða með ferðamenn 800 800
Samgönguráðuneyti alls 252.296 1.457 0 5.000 0 900 350 6.700 2.300 7.600 0 276.603
11-201 Ráðgjafastyrkur til nýsköpunar hjá ferðaþjónustufyrirtæki 500 500
11-201 Ráðgjafastyrkur til nýsköpunar hjá ferðaþjónustufyrirtæki 250 250
11-201 Ráðgjafastyrkur til nýsköpunar hjá ferðaþjónustufyrirtæki 500 500
11-201 Ráðgjafastyrkur til nýsköpunar hjá ferðaþjónustufyrirtæki 250 250
11-201 Styrkur til markaðsráðgjafar hjá ferðaþjónustufyrirtæki 200 200
11-201 Styrkur til ráðgjafar í fjármálastjórnun hjá ferðaþjónustufyrirtæki 200 200
11-201 Efling nýsköpunar í atvinnulífi á Tröllaskaga 200 200
11-299-1.48 Menningar- og ferðaþjónustuhús í Bessastaðahreppi 300 300
11-299-1.48 Aukning atvinnutækifæra fyrir konur á Grundarfirði 350 350
11-299-1.50 Hornstrandir ehf. til kynningar á ferðum og til að bæta aðstöðu ferðamanna 400 400
11-299-1.50 Síldarminjasafnið á Siglufirði v. þátttöku í keppni til evrópsku safnaverðlaunanna 700 700
11-401 Uppbygging og þróun ferðaþjónustu á landsbyggðinni m. SAM 11.500 8.500 20.000
11-411 Minjagripaframleiðsla 500 500
11-411 Hótel Framtíð ehf. – viðhald eldri hluta hótelsins 500 500
11-411 Uppsetningar á útsýnisaðstöðu 100 100
11-411 Grettisbæli 50 50
11-411 Enduruppbyggingar hlöðugryfju 250 250
11-411 Hreinlætisaðstaða í friðlandi 100 100
11-411 Starfsemi ferðamálaftr. 400 400
11-411 Gestastofa og upplýsingamiðstöð 300 300
11-411 Listskreytingar í ferju 300 300
11-411 Saurbær – menning og saga 150 150
11-411 Bygging sýningarsals 300 300
11-411 Starfsemi ferðamálafulltrúa 800 800
11-411 Námskeið fyrir ferðaþjónustuaðila 500 500
11-411 Djasshátíð á Egilsst. 400 400
11-411 Útimarkaður 250 250
Iðnaðarráðuneyti alls 0 500 0 850 0 1.650 2.000 1.450 12.500 9.500 300 28.750
14-101 Kortlagning og úttekt á aðgengilegum ferðamannastöðum 200 200
14-101 Uppbygging á umhverfisvænni ferðaþjón. á landsbyggðinni 800 800
14-101 Aðstaða fyrir almenning til fuglaskoðunar á Höfn 500 500
14-101 Merkingar kennileita á Seltjarnarnesi 150 150
14-101 Samnorræn sýning á vistvænum byggingum 50 50
14-101 Umhverfisstefna Síldarminjasafnsins á Sigluf. 100 100
14-101 Kaup á náhvalstönn frá Grænlandi 100 100
14-101 Uppbygging Grettislaugar í Drangey 200 200
14-101 Kerfisbundið vottunarkerfi á umhverfisvænni ferðaþjónustu 250 250
Umhverfisráðuneyti alls 0 1.200 0 0 0 500 100 450 100 0 0 2.350
Ráðuneytin samtals 252.796 101.007 26.000 137.780 5.500 32.300 26.750 31.200 48.950 27.300 20.500 710.083