Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 250. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 743  —  250. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Helga Hjörvars um rannsóknahús við Háskólann á Akureyri.

     1.      Hver er áætlaður heildarkostnaður opinberra stofnana af rannsóknahúsi við Háskólann á Akureyri?
    Núvirtur heildarkostnaður opinberra stofnana vegna leigu og þjónustu í nýju rannsóknahúsi við Háskólann á Akureyri er á ársgrundvelli um 127 millj. kr. Heildarkostnaðurinn byggist á hagstæðasta tilboði í útboði sem haldið var á vegum Ríkiskaupa fyrr á árinu þar sem nokkur öflugustu fyrirtækin á þessum markaði skiluðu inn tilboðum. Þarfir ríkisstofnana voru skilgreindar í útboðsgögnum og taka mið af þeirri starfsemi sem þarna mun fara fram. Um er að ræða sérhæft húsnæði fyrir opinberar rannsóknastofnanir þar sem nábýlið við Háskólann á Akureyri mun skila sér í auknu samstarfi þessara stofnana við skólann á sviði kennslu og rannsókna.

     2.      Hver er heildarkostnaður allt samningstímabilið á hvern leigðan fermetra og hver er sú fjárhæð núvirt samkvæmt meðalraunvaxtakostnaði ríkissjóðs á yfirstandandi ári?
    Heildarfermetrafjöldi sem opinberar stofnanir leigja er 5.231,3 m 2. Sé litið á kostnað á hvern fermetra er hann 2.305 kr. með virðisaukaskatti fyrstu 10 ár samningsins en 2.022 kr. án virðisaukaskatts næstu 15 ár samningstímans. Inni í þessum tölum er þjónustuþáttur sem nemur um 30% heildarverðs. Ekki liggja fyrir tölur um meðalraunvaxtakostnað ríkissjóðs á yfirstandandi ári en sé við það miðað að prósentutalan sé 6,5% næmi samanlagður núvirtur kostnaður á fermetra allt samningstímabilið um 320.000 kr.

     3.      Hvert er markaðsverð og hver er markaðsleiga fermetra atvinnuhúsnæðis á Akureyri?
    Markaðsverð og markaðsleiga á atvinnuhúsnæði á Akureyri líkt og annars staðar á landinu mótast af því um hvers konar húsnæði er að ræða og hversu mikið framboð og eftirspurn er á hverjum tíma. Erfitt er að tilgreina eitthvert eitt markaðsverð í svona tilvikum þar sem ekki er skilgreint um hvers konar húsnæði er að ræða. Þess ber þó að geta að miðað við þær þarfir og skilgreiningar sem settar voru fram í útboði vegna þess verkefnis sem hér um ræðir var markaðsverð fundið með samkeppni milli þeirra sem stunda viðkomandi starfsemi. Húsnæðið sem um ræðir er að mörgu leyti sérhæft og sérhannað fyrir þá starfsemi sem þar mun fara fram og hefur það áhrif á endanlegt verð fyrir bæði húsnæði og þjónustu.

     4.      Hversu mikið eykst húsnæðiskostnaður hverrar stofnunar mánaðarlega við flutning í rannsóknahúsið?
    Ekki eru tiltæk gögn yfir leigukostnað allra stofnana. Ljóst er þó að leigukostnaður mun í einstökum tilvikum hækka verulega. Stafar það ýmist af auknu húsnæðisrými og því að leiguverð sumra stofnana er ekki í takt við raunkostnað. Enn fremur er um stóraukna þjónustu við leigjendur að ræða. Loks eru gæði hins nýja húsnæðis í flestum tilvikum talsvert meiri en nú er.
    Í þessu sambandi er rétt að hafa í huga að leiguverð flestra ríkisstofnana byggist ekki nauðsynlega á raunkostnaði við rekstur eignanna. Af þeim sökum hefur verið að því stefnt að auka þau tengsl og þar með færa sem næst markaðsverði. Greiðsla markaðsleigu hefur hins vegar í för með sér að útgjöld stofnana aukast þar sem í fæstum tilvikum er gert ráð fyrir fullum húsnæðiskostnaði í fjárveitingum vegna reksturs stofnana. Á móti aukningu útgjalda vegna leigu kemur hins vegar að kostnaður ríkisins vegna fjárbindingar og viðhalds hverfur. Kostnaður verður sýnilegri og kostnaðarvitund stofnana hvað varðar húsnæði mun aukast og hvati myndast til betri nýtingar á rýmum.

     5.      Hvers vegna eignast ríkissjóður ekki hinn leigða hluta rannsóknahússins að leigutíma loknum?
    Þegar verkefni eru boðin eru út sem einkaframkvæmd er sjaldnast um það að ræða að ríkissjóður eignist viðkomandi húsnæði að leigutíma loknum enda ekki sérstakt keppikefli fyrir ríkissjóð að standa að rekstri fasteigna. Slíkum rekstri geta aðilar á einkamarkaði sinnt eins vel og jafnvel betur en ríkissjóður. Einkaframkvæmd felur það jafnan í sér að verkkaupi tekur að sér að hanna, byggja og annast stoðþjónustu í viðkomandi húsnæði, halda því við og jafnvel annast þá kjarnastarfsemi sem húsið er byggt fyrir, þótt kjarnastarfsemin sé ekki hluti af þeim samningi sem hér um ræðir. Sú stefna er og hefur verið ríkjandi að draga beri ríkissjóð út úr rekstri húsnæðis eftir því sem kostur er og talið er hagkvæmt. Sérhæfð rekstrarfélög skrifstofu- og atvinnuhúsnæðis hafa rutt sér til rúms á fasteignamarkaði undanfarin ár og hefur reynslan sýnt að leigukjör eru almennt hagkvæm fyrir ríkið. Má einnig geta þess að viðhald þeirra fasteigna sem ríkisstofnanir hafa aðsetur í er að jafnaði gott og útkoman þar með betri fyrir ríkissjóð þegar allir þættir hafa verið lagðir og vegnir saman.
    Undanfarin ár hefur verið lögð á það áhersla að umsýsla fasteigna verði aðskilin frá hefðbundinni starfsemi. Fyrir þessu eru ýmis rök er m.a. lúta að sérhæfingu í rekstri, bættri kostnaðarvitund og sveigjanleika. Ábyrgð á viðhaldi, rekstri og meiri háttar endurbótum flyst til fagaðila og hægt er að tryggja sveigjanleika í nýtingu húsnæðis. Á síðustu árum hefur í flestum tilfellum verið leitað tilboða í leigu sem fyrsta valkost við útvegun á almennu skrifstofuhúsnæði fyrir ríkisstofnanir en bygging nýs skrifstofuhúsnæðis á vegum ríkisins verður sífellt fátíðari og hefur þetta þýtt minni fjárbindingu ríkissjóðs í fasteignum.

     6.      Hvers vegna setur fjármálaráðuneytið ekki ákvæði um fyrir fram ákveðið kaupverð að leigutíma loknum í útboðsskilmála?
    Ekki kom til álita að setja ákvæði um fyrir fram ákveðið kaupverð að leigutíma loknum í útboðsskilmála með sömu röksemdum og koma fram í svari við 5. lið Má ætla að slíkar kröfur hefðu endurspeglast í hærra tilboðsverði og þar með mun hærri leigu á samningstímanum en raun ber vitni.

     7.      Er í samningum um rannsóknahúsið kveðið á um leigukjör ríkisstofnana að samningstíma loknum?
    Ekki er kveðið á um leigukjör að loknum samningstíma sem er til 25 ára enda afar fátítt að leigusamningar séu almennt gerðir til lengri tíma. Að liðnum leigutíma á ríkið forleigu- og forkaupsrétt að húsnæðinu.