Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 404. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 745  —  404. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar um skattfrelsi félagsgjalda .

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Í ljósi þess að félagsgjöld sem fyrirtæki greiða til samtaka atvinnurekenda eru frádráttarbær frá skattstofni telur ráðherra þá ekki sanngjarnt og í anda jafnræðisreglu íslenskra laga að launþegar fái að draga félagsgjöld til stéttarfélaga frá tekjuskattsstofni sínum?

    Við skattlagningu er í íslenskum skattarétti byggt á þeirri meginreglu að félög, ólíkt launþegum, megi draga rekstrarkostnað frá tekjum sínum, þ.e. þau gjöld sem eiga á árinu að ganga til að afla teknanna, tryggja þær og halda þeim við. Þessi greinarmunur byggist á hugmyndum um eðli og tilgang félaga, en tilgangur félaga er sá að afla tekna með atvinnurekstri. Frádráttarheimildir launþega takmarkast við tiltekna lögákveðna liði sem markvisst hefur verið fækkað á undanförnum áratugum.
    Í tengslum við upptöku staðgreiðslukerfis með lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og lögum nr. 49/1987, um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, voru gerðar miklar breytingar á frádráttarreglum launþega. Á þessum tíma voru tekjutengdir skattar til ríkis, sveitarfélaga og til ýmissa sérverkefna margir og byggðust þeir á mismunandi grunni án þess að fyrir því væru augljós rök. Forsenda þess að einfalda mætti álagningarkerfið og m.a. skapa skilyrði fyrir einfaldari innheimtu í staðgreiðslu með einum skattstofni, einu skatthlutfalli og einum almennum skattafslætti var að afnema yrði nær allar gildandi frádráttarheimildir frá tekjum, þ.m.t. heimildina til að draga frá félagsgjöld til stéttarfélaga. Á móti kom m.a. að persónuafsláttur var rúmlega tvöfaldaður, auk þess sem jaðarskatthlutfallið var lækkað nokkuð.
    Á grundvelli þess eðlismunar sem liggur í frádráttarbærni atvinnurekstrartekna og launatekna, tilgangi rekstrarkostnaðar félaga og upptöku staðgreiðslukerfisins hafa frádráttarheimildir launþega verið takmarkaðar. Yrði launþegum gert heimilt að draga félagsgjöld til stéttarfélaga frá tekjuskattsstofni sínum yrði um verulega stefnubreytingu að ræða. Þá ber einnig að árétta að afnámi frádráttarheimilda launþega, hverju nafni sem þær nefnast, hefur í gegnum tíðina í reynd verið mætt með hækkun persónuafsláttar. Núverandi skipan er því hvorki ósanngjörn né gegn anda jafnræðisreglu íslenskra laga.