Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 406. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 751 — 406. mál.
landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar, Björgvins G. Sigurðssonar og Önundar S. Björnssonar um stofnverndarsjóð íslenska hestakynsins.
1. Hvenær var sérstakur stofnverndarsjóður íslenska hestakynsins settur á stofn og hver voru skilgreind markmið hans?
Stofnverndarsjóður íslenska hestakynsins varð til með breytingu á lögum um búfjárækt, nr. 31/1973. Reglugerð var síðan sett, nr. 248, 14. maí 1975. Í 37. gr. laga nr. 31/1973 segir:
„Mynda skal hjá Búnaðarfélagi Íslands sérstakan sjóð, „Stofnverndarsjóð“, í þeim tilgangi að styrkja og lána hrossaræktarsamböndum fé til kaupa á kynbótahrossum, sem annars kynnu að verða seld úr landi.
Til sjóðsins skulu útflytjendur hrossa greiða gjald, er nemi 20% af útflutningsverði ógeltra hesta og 10% af útflutningsverði hryssna.
Búnaðarfélag Íslands setur reglur um starfssemi sjóðsins og fer með stjórn hans.“
Skilgreind markmið sjóðsins koma fram í tilgreindri lagagrein og í 4. gr. reglugerðar nr. 248/1975, en þar segir:
„A. Að styrkja hrossaræktarsambönd, stofnræktarfélög og stofnræktarbú til kaupa á kynbótahrossum.
1. Styrkja kaup á kynbótahestum, sem hlotið hafa I. og II. verðlaun, og öðrum álitlegum stóðhestum, sem yrðu að öðrum kosti fluttur úr landi. Styrkfjárhæð má nema 30–50% af kaupverði.
2. Styrkja kaup á efnilegum ungum stóðhestum. Styrkfjárhæð má nema 20 til 40% af kaupverði.
3. Styrkja kaup á kynbótahryssum, er hlotið hafa I. og II. verðlaun, sem annars yrðu fluttar úr landi. Styrkfjárhæð má nema 10 til 20% af kaupverði.
B. Að lána hrossaræktarsamböndum, stofnræktarfélögum og stofnræktarbúum til kaupa
á kynbótahrossum. Veita lán til kaupa á ættbókarfærðum stóðhestum, sem annars yrðu fluttir úr landi. Miðað skal við, að styrkur og lánsfjárhæð geti numið allt að 80% af kaupverði.Veita lán til kaupa á ungum stóðhestum. Miðað skal við, að lánsfjárhæð og styrkur geti numið allt að 60% af kaupverði. Veita lán til kaupa á ættbókarfærðum hryssum. Lánsfjárhæð skal miðuð við, að styrkur og lán geti numið allt að 50% af kaupverði.“
Breytingar á lögum um Stofnverndarsjóð íslenska hestakynsins: Lög um búfjárrækt, nr. 84/1989, 15. gr., og reglugerð nr. 137, 14. apríl 1992, með síðari breytingum. Búnaðarlög, nr. 70/1998, 15. gr., og reglugerð nr. 470, 29. júní 1999.
2. Hvernig hefur sjóðurinn verið fjármagnaður og hve miklir fjármunir hafa runnið til hans
a. á ári frá upphafi,
b. samtals?
Fjármögnun sjóðsins hefur ætíð verið með þeim hætti sem lög um hann og reglugerðir hafa sagt fyrir um, þ.e. með gjaldi til hans af útflutningi hrossa.
Árin 1973–1989 samkvæmt lögum nr. 31/1973: 20% af söluverði ógeltra hesta til útflutnings og 10% af verði útfluttra hryssna.
Frá 30. maí 1989 samkvæmt lögum nr. 84/1989 og reglugerð nr. 137, 14. apríl 1992: 10% af söluverði óvanaðra hesta til útflutnings og 5% af söluverði útfluttra hryssna, hrossasæðis og fósturvísa. Reglugerðinni var breytt 6. apríl 1993: allt að 20% af kaupverði tímgunarhæfra hrossa, fósturvísa og sæðis, sem flutt er úr landi.
Frá 15. apríl 1995 samkvæmt lögum nr. 161/1994, um útflutning hrossa, 5. gr.: „Útflutningsgjald, skal leggja á hvert útflutt hross og skal það innheimt við útgáfu upprunavottorðs. Það skal vera 8.000 kr. að hámarki og breytast árlega … 5% af gjaldinu skal greiða í stofnverndarsjóð íslenska hestakynsins, sem starfar skv. 15. gr. laga nr. 84/1989, um búfjárrækt…“
Frá 16. mars 1999 lækkaði útflutningsgjaldið samkvæmt lögum nr. 15/1999 í 6.800 kr. á hvert útflutt hross en gjald til stofnverndarsjóðs var áfram 5% gjaldsins.
Frá 1. júlí 2002 samkvæmt 5. gr. laga nr. 55/2002: „Af hverju útfluttu hrossi skal greiða 500 kr. gjald í stofnverndarsjóð skv. 15. gr. búnaðarlaga, nr. 70/1998. Bændasamtök Íslands annast innheimtu gjaldsins.“
Í töflunni er yfirlit um árlegar tekjur sjóðsins frá upphafi, svo og gjöld, lánahreyfingar og innstæðu sjóðsins um hver áramót. Upphæðir eru í kr. á verðlagi hvers árs.
3. Gilda sérstakar reglur um starfsemi sjóðsins? Ef svo er, hverjar eru þær?
Reglur um starfsemi sjóðsins er fyllstar að finna í fyrstu reglugerð um sjóðinn, nr. 248/ 1975, einkum í 4. gr. reglugerðarinnar en einnig í 5–7. gr. Enn fremur í lögum og reglugerðum um sjóðinn síðan.
Núgildandi reglugerð, nr. 470/1999, er samkvæmt heimild í 19. gr. búnaðarlaga, nr. 70/1998, með síðari breytingum. Reglur um starfsemi sjóðsins er að finna í 2.–3. gr. reglugerðarinnar:
„2. gr. Verkefni sjóðsins eru að veita lán og styrki til kaupa á sérstökum úrvalskynbótagripum, ef sannað þykir að þeir verði fluttir úr landi að öðrum kosti. Hér væri um að ræða gripi sem gætu haft úrslitaáhrif á erfðabreytileika í stofninu, svo sem litafjölbreytni, eða byggju yfir einstæðu kynbótagildi í þeim eiginleikum sem prýða íslenskan hest.
Heimilt er að veita úr sjóðnum fé til þróunarverkefna í hrossarækt. Fagráð auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar.“
„3. gr. Óheimilt er að skerða höfuðstól stofnverndarsjóðs að raungildi frá því sem var 1. janúar 1998. Lán úr sjóðnum skulu vera til fimm ára gegn veðum sem fagráð metur gild. Vextir af lánum sem sjóðurinn veitir skulu vera þeir sömu og inneignir sjóðsins bera á hverjum tíma.“
4. Hver skipar stjórn sjóðsins? Hverjir hafa setið í stjórninni og hvenær?
Stjórn sjóðsins er skipuð með reglugerðum.
Í fyrstu reglugerð sjóðsins, nr. 248/1975, segir í 2. gr.: „Stjórn sjóðsins skipa ráðunautur Búnaðarfélags Íslands í hrossarækt og 4 menn sem stjórn Búnaðarfélags Íslands kýs, einn úr hverjum landsfjórðungi, og skulu þeir kosnir, er nýkjörið Búnaðarþing kemur saman.“
Í reglugerð nr. 137/1992 segir í 1. gr.: „Hrossaræktarnefnd Búnaðarfélags Íslands, skv. 5. gr. laga nr. 84/1989, annast stjórn sjóðsins.“
Í reglugerð nr. 470/1999 segir í 1. gr.: „Stofnverndarsjóður íslenska hestakynsins er deild í stofnverndasjóði, sem starfar skv. 15. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð í hrossarækt annast stjórn sjóðsins.
Sjóðurinn er í vörslu Bændasamtaka Íslands sem annast reikningshald sjóðsins og ávöxtun í samráði við fagráðið. Reikningar stofnverndarsjóðs skulu endurskoðaðir af ríkisendurskoðun.“
5. Hvaða reglur gilda um laun stjórnarmanna? Hve mikið hefur verið greitt fyrir stjórnarsetuna samtals frá stofnun sjóðsins?
Laun hafa aldrei verið greidd fyrir stjórnarsetu í Stofnverndarsjóði. Aldrei hefur verið greidd þóknun fyrir umsjón eða umsýslu með sjóðnum.
6. Hve oft hefur sjóðurinn lánað til kaupa á sérstökum úrvalskynbótahrossum eða styrkt slík kaup? Hve miklar upphæðir var um að ræða
a. hverju sinni,
b. samtals?
Í eftirfarandi töflu koma fram allar lán- og styrkveitingar úr Stofnverndarsjóði, allt frá byrjun. Á árunum 1976–1997 var eingöngu lánað og veittir styrkir til kaupa á úrvalskynbótahrossum. Efir það hafa eingöngu verið veitt framlög til þróunarverkefna. Er það í samræmi við heimild og breyttar áherslur sem fram koma í reglugerð nr. 470/1999.
7. Hvernig metur ráðherra að hafi til tekist með sjóðinn? Er ef til vill ástæða til að endurskoða tilgang hans og starfsemi, og þá í hvaða veru?
Ráðherra telur að starfsemi sjóðsins hafi náð þeim tilgangi sem að var stefnt með stofnun hans. Reglugerð sjóðsins hefur verið endurskoðuð alloft frá stofnun hans árið 1975 í samræmi við breyttar aðstæður, síðast árið 1999.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 751 — 406. mál.
Svar

Stofnverndarsjóður íslenska hestakynsins.
| Tekjur | Gjöld | Eignir | ||||
| Af útflutningi hrossa | Af vöxtum |
Framlög til hrossaræktarsambanda/ rannsókna | Kostnaður |
Skuldabréf hrossaræktarsambanda. Árleg breyting | Innstæða á banka |
|
| 1973 | 47 | 1 | 48 | |||
| 1974 | 560 | 45 | 653 | |||
| 1975 | 12.525 | 784 | 13.962 | |||
| 1976 | 14.429 | 3.550 | 2.550 | 3.400 | 25.991 | |
| 1977 | 19.634 | 4.088 | 2.000 | 1.000 | 46.713 | |
| 1978 | 19.611 | 8.857 | 4.000 | 5.000 | 66.181 | |
| 1979 | 41.436 | 11.720 | 15.900 | 15.055 | 88.382 | |
| 1980 | 42.844 | 14.735 | 37.500 | 65.900 | 42.561 | |
| 1981 | 42.221 | 49.816 | 46.500 | 48.395 | 39.703 | |
| 1982 | 222.583 | 63.613 | 12.000 | 13.370 | -325 | 300.854 |
| 1983 | 482.621 | 222.905 | 80.000 | 6.582 | 243.000 | 676.798 |
| 1984 | 100.700 | 145.225 | 24.000 | 2.897 | 895.826 | |
| 1985 | 396.720 | 96.641 | 250.150 | 11.900 | 205.036 | 922.101 |
| 1986 | 641.109 | 283.633 | 346.000 | 228.005 | 1.272.838 | |
| 1987 | 2.049.616 | 454.089 | 816.000 | 1.329.011 | 1.631.532 | |
| 1988 | 1.111.173 | 407.712 | 3.150.417 | |||
| 1989 | 3.442.828 | 1.155.528 | 1.670.000 | 331.738 | 5.747.035 | |
| 1990 | 5.138.361 | 883.305 | 1.390.000 | 262.514 | 10.116.187 | |
| 1991 | 5.215.819 | 1.713.581 | 2.300.000 | 3.470.000 | 11.275.587 | |
| 1992 | 6.371.215 | 1.054.075 | 1.383.900 | 414.426 | 16.902.551 | |
| 1993 | 4.537.650 | 1.662.752 | 1.100.000 | -2.364.702 | 24.367.655 | |
| 1994 | 10.134.462 | 1.050.401 | 1.242.000 | -1.142.950 | 35.453.468 | |
| 1995 | 4.628.757 | 1.584.126 | 1.380.100 | 600.000 | -587.050 | 41.935.091 |
| 1996 | 959.575 | 3.916.929 | 2.300.001 | 31.635 | 888.714 | 43.591.245 |
| 1997 | 1.023.125 | 3.823.341 | 3.890.000 | 36.454 | 152.984 | 44.358.273 |
| 1998 | 797.600 | 3.749.914 | 42.878 | -1.222.016 | 50.084.925 | |
| 1999 | 628.928 | 5.874.247 | 4.500.000 | 141.185 | -1.015.016 | 52.961.931 |
| 2000 | 588.107 | 5.574.684 | 176.787 | -1.015.016 | 59.962.951 | |
| 2001 | 601.340 | 8.210.845 | 4.800.000 | 156.915 | -320.000 | 64.138.221 |
| 2002 | 636.220 | 4.972.570 | 4.400.000 | 212.082 | 65.134.929 | |
| 49.901.816 | 46.993.712 | 31.992.601 | 1.429.788 | 0 | 535.204.609 | |
| Allar fjárhæðir á verðlagi hvers árs. | ||||||
3. Gilda sérstakar reglur um starfsemi sjóðsins? Ef svo er, hverjar eru þær?
Reglur um starfsemi sjóðsins er fyllstar að finna í fyrstu reglugerð um sjóðinn, nr. 248/ 1975, einkum í 4. gr. reglugerðarinnar en einnig í 5–7. gr. Enn fremur í lögum og reglugerðum um sjóðinn síðan.
Núgildandi reglugerð, nr. 470/1999, er samkvæmt heimild í 19. gr. búnaðarlaga, nr. 70/1998, með síðari breytingum. Reglur um starfsemi sjóðsins er að finna í 2.–3. gr. reglugerðarinnar:
„2. gr. Verkefni sjóðsins eru að veita lán og styrki til kaupa á sérstökum úrvalskynbótagripum, ef sannað þykir að þeir verði fluttir úr landi að öðrum kosti. Hér væri um að ræða gripi sem gætu haft úrslitaáhrif á erfðabreytileika í stofninu, svo sem litafjölbreytni, eða byggju yfir einstæðu kynbótagildi í þeim eiginleikum sem prýða íslenskan hest.
Heimilt er að veita úr sjóðnum fé til þróunarverkefna í hrossarækt. Fagráð auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar.“
„3. gr. Óheimilt er að skerða höfuðstól stofnverndarsjóðs að raungildi frá því sem var 1. janúar 1998. Lán úr sjóðnum skulu vera til fimm ára gegn veðum sem fagráð metur gild. Vextir af lánum sem sjóðurinn veitir skulu vera þeir sömu og inneignir sjóðsins bera á hverjum tíma.“
4. Hver skipar stjórn sjóðsins? Hverjir hafa setið í stjórninni og hvenær?
Stjórn sjóðsins er skipuð með reglugerðum.
Í fyrstu reglugerð sjóðsins, nr. 248/1975, segir í 2. gr.: „Stjórn sjóðsins skipa ráðunautur Búnaðarfélags Íslands í hrossarækt og 4 menn sem stjórn Búnaðarfélags Íslands kýs, einn úr hverjum landsfjórðungi, og skulu þeir kosnir, er nýkjörið Búnaðarþing kemur saman.“
Í reglugerð nr. 137/1992 segir í 1. gr.: „Hrossaræktarnefnd Búnaðarfélags Íslands, skv. 5. gr. laga nr. 84/1989, annast stjórn sjóðsins.“
Í reglugerð nr. 470/1999 segir í 1. gr.: „Stofnverndarsjóður íslenska hestakynsins er deild í stofnverndasjóði, sem starfar skv. 15. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð í hrossarækt annast stjórn sjóðsins.
Sjóðurinn er í vörslu Bændasamtaka Íslands sem annast reikningshald sjóðsins og ávöxtun í samráði við fagráðið. Reikningar stofnverndarsjóðs skulu endurskoðaðir af ríkisendurskoðun.“
5. Hvaða reglur gilda um laun stjórnarmanna? Hve mikið hefur verið greitt fyrir stjórnarsetuna samtals frá stofnun sjóðsins?
Laun hafa aldrei verið greidd fyrir stjórnarsetu í Stofnverndarsjóði. Aldrei hefur verið greidd þóknun fyrir umsjón eða umsýslu með sjóðnum.
6. Hve oft hefur sjóðurinn lánað til kaupa á sérstökum úrvalskynbótahrossum eða styrkt slík kaup? Hve miklar upphæðir var um að ræða
a. hverju sinni,
b. samtals?
Í eftirfarandi töflu koma fram allar lán- og styrkveitingar úr Stofnverndarsjóði, allt frá byrjun. Á árunum 1976–1997 var eingöngu lánað og veittir styrkir til kaupa á úrvalskynbótahrossum. Efir það hafa eingöngu verið veitt framlög til þróunarverkefna. Er það í samræmi við heimild og breyttar áherslur sem fram koma í reglugerð nr. 470/1999.
Stofnverndarsjóður íslenska hestakynsins.
Lán og framlög, kr.
| Ár | Lán-/styrkþegi | Styrkir/framlög |
Lán | Samtals | |
| 1976 | |||||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 750 | 900 | 1.650 | ||
| Hrossarækarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga | 1.500 | 2.100 | 3.600 | ||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 300 | 400 | 700 | ||
| 1977 | |||||
| Hrossaræktarsamband Dalamanna | 2.000 | 1.000 | 3.000 | ||
| 1978 | |||||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 4.000 | 5.000 | 9.000 | ||
| 1979 | |||||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 7.500 | 7.500 | 15.000 | ||
| Samtök hrossabænda í A-Húnavatnssýslu | 2.250 | 2.250 | 4.500 | ||
| Hrossaræktarsamband Dalamanna | 2.400 | 2.400 | 4.800 | ||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 1.500 | 1.500 | 3.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 2.250 | 2.250 | 4.500 | ||
| 1980 | |||||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 13.000 | 2.600 | 15.600 | ||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 5.000 | 15.000 | 20.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 19.500 | 26.000 | 45.500 | ||
| Fjalla-Blesi, stofnræktarfélag | 2.000 | 2.000 | 4.000 | ||
| Hrossaræktarsamtök V-Húnavatnssýslu | 14.000 | 16.000 | 30.000 | ||
| Samtök hrossabænda í A-Húnavatnssýslu | 1.500 | 5.000 | 6.500 | ||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 9.000 | 13.500 | 22.500 | ||
| 1982 | |||||
| Hrossaræktarsamtök Austurlands vegna Freyfaxa | 12.000 | 15.000 | 27.000 | ||
| 1983 | |||||
| Hrossaræktarsamband Dalamanna | 3.000 | 6.000 | 9.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 9.000 | 18.000 | 27.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 12.000 | 12.000 | 24.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 43.000 | 90.000 | 133.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 13.000 | 65.000 | 78.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 20.000 | 20.000 | |||
| 1984 | |||||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 24.000 | 36.000 | 60.000 | ||
| 1985 | |||||
| Hrossaræktarsamband vegna Hlyns 910 | 168.750 | 98.438 | 267.188 | ||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 40.700 | 61.000 | 101.700 | ||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 40.700 | 61.000 | 101.700 | ||
| 1986 | |||||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 70.000 | 70.000 | 140.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 56.000 | 56.000 | 112.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 70.000 | 70.000 | 140.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Dalamanna | 35.000 | 35.000 | 70.000 | ||
| Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga | 35.000 | 35.000 | 70.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 80.000 | 80.000 | 160.000 | ||
| 1987 | |||||
| Samtök hrossabænda í A-Húnavatnssýslu | 100.000 | 200.000 | 300.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 200.000 | 400.000 | 600.000 | ||
| Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga | 200.000 | 400.000 | 600.000 | ||
| Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga | 26.000 | 52.000 | 78.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 200.000 | 400.000 | 600.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 90.000 | 180.000 | 270.000 | ||
| 1988 | |||||
| 1989 | |||||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 112.500 | 56.250 | 168.750 | ||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 650.000 | 325.000 | 975.000 | ||
| Hrossaræktarsamtök V-Húnavatnssýslu | 112.500 | 56.250 | 168.750 | ||
| Hossaræktarsamband A-Skaftfellinga | 40.000 | 40.000 | |||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 330.000 | 300.000 | 630.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 150.000 | 300.000 | 450.000 | ||
| Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga | 125.000 | 250.000 | 375.000 | ||
| Hrossaræktarsamtök V-Húnavatnssýslu | 75.000 | 150.000 | 225.000 | ||
| Samtök hrossabænda í A-Húnavatnssýslu | 75.000 | 150.000 | 225.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 360.000 | 360.000 | |||
| 1990 | |||||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 500.000 | 500.000 | 1.000.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 240.000 | 240.000 | 480.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 400.000 | 400.000 | 800.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 250.000 | 250.000 | 500.000 | ||
| 1991 | |||||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 650.000 | 650.000 | 1.300.000 | ||
| Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga | 500.000 | 500.000 | 1.000.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 400.000 | 400.000 | 800.000 | ||
| Samtök hrossabænda í A-Húnavatnssýslu | 250.000 | 250.000 | 500.000 | ||
| Hrossaræktarsamband Dalamanna | 500.000 | 500.000 | 1.000.000 | ||
| 1992 | |||||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 464.500 | 464.400 | |||
| Hrossaræktarsamtök V-Húnavatnssýslu | 232.200 | 232.200 | |||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 455.000 | 455.000 | |||
| Samtök hrossabænda í A-Húnavatnssýslu | 232.200 | 232.200 | |||
| 1993 | |||||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 900.000 | 900.000 | |||
| Hrossaræktarsamband A-Skaftfellinga | 200.000 | 100.000 | |||
| 1994 | |||||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 100.000 | ||||
| Hrossaræktarsamtök Austurlands | 214.000 | 214.000 | |||
| Hrossaræktaramtök Eyfirðinga og Þingeyinga | 214.000 | 214.000 | |||
| Samtök hrossabænda í A-Húnavatnssýslu | 200.000 | 200.000 | |||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 614.000 | ||||
| 1995 | |||||
| Samtök hrossabænda í A-Húnavatnssýslu | 200.000 | 200.000 | |||
| Hrossaræktarsamtök V-Húnavatnssýslu | 200.000 | ||||
| Samtök hrossabænda í A-Húnavatnssýslu | 133.400 | 133.400 | |||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 180.000 | 180.000 | |||
| Hrossaræktarsamband Suðurlands | 400.000 | 400.000 | |||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 266.700 | ||||
| 1996 | |||||
| Hrossaræktarsamtök Suðurlands | 800.000 | 800.000 | |||
| Hrossaræktarsamtök Suðurlands | 200.000 | 200.000 | |||
| Hrossaræktarsamtök Suðurlands | 350.000 | 350.000 | |||
| Hrossaræktarsamtök Austurlands | 116.667 | 116.664 | |||
| Samtök hrossabænda í A-Húnavatnssýslu | 200.000 | 200.000 | |||
| Hrossaræktarsamband Dalamanna | 116.667 | ||||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 116.667 | ||||
| Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga | 400.000 | ||||
| 1997 | |||||
| Hrossaræktarsamtök V-Húnavatnssýslu | 280.000 | 280.000 | |||
| Hrossaræktarsamtök Suðurlands | 1.000.000 | 1.000.000 | |||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 580.000 | ||||
| Hrossaræktarsamband Dalamanna | 280.000 | ||||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 350.000 | ||||
| Hrossaræktarsamband Vesturlands | 500.000 | ||||
| Hrossaræktarsamband Skagfirðinga | 400.000 | ||||
| Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga | 500.000 | ||||
| 1998 | |||||
| 1999 | |||||
| Hrossaræktarsamtök Suðurlands vegna sæðingastöðvar | 4.500.000 | ||||
| 2000 | |||||
| 2001 | |||||
| Tilraunastöð HÍ, rannsóknir litabreytileika | 4.000.000 | ||||
| Friðþjófur Þorkelsson, myndir vegna litaverkefnis | 800.000 | ||||
| 2002 | |||||
| Hrossaræktarsamtök Suðurlands, sæðingastöð Gunnarsholti | 1.500.000 | ||||
| Tilraunastöð HÍ, rannsóknir litabreytileika | 2.500.000 | ||||
| Eiríkur Jónsson, myndir vegna litaverkefnis | 400.000 | ||||
| Samtals | 31.992.601 | 15.400.202 | |||