Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 483. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 755  —  483. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.

Flm.: Guðjón A. Kristjánsson, Sigurjón Þórðarson,
Gunnar Örlygsson, Grétar Mar Jónsson.


1. gr.

    Á eftir 113. gr. bætist við ný grein, 113. gr. a, svohljóðandi:

Frestun á breytingu sparisjóða í hlutafélög.

    Gildistaka 73. gr., 74. gr., 75. gr. og 76. gr. frestast til 1. janúar 2006.
    Breyting sparisjóðs í hlutafélag sem Fjármálaeftirlitið hefur veitt samþykki fyrir skv. 1. mgr. 73. gr. fyrir 1. febrúar 2004 skal teljast lögleg og skal farið með hana eftir ákvæðum þessara laga óháð 1. mgr.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Það er tilgangur þessa frumvarps að ekki verði gengið lengra í bili með hlutafélagavæðingu sparisjóða og þar með sölu þeirra og sameiningu við önnur fjármálafyrirtæki. Á skömmum tíma hafa orðið mjög miklar breytingar á fjármálamarkaði með einkavæðingu og sameiningu banka og annarra fjármálafyrirtækja. Sú þróun hefur orðið meiri og hraðari en menn hugðu í upphafi þegar stefnt var að mjög dreifðri eignaraðild bankanna. Nú um hríð hafa áhugamenn í hópi stofnfjáreigenda í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, unnið að því að breyta rekstrinum í hlutafélagsform og selja síðan sparisjóðinn KB-banka, áður Kaupþingi – Búnaðarbanka. Um þessa hlutafélagsvæðingu og fyrirhugaða sölu hafa staðið miklar og harðar deilur. Sparisjóðir gegna mjög mikilvægu hlutverki víða um land og hafa sumir starfað á aðra öld, enda elstu starfandi fjármálastofnanir á Íslandi. Ekki fer á milli mála að við setningu laga nr. 161/2002 var ætlunin að setja varnir gegn yfirtöku á sparisjóðum en í greinargerð með frumvarpi til laganna sagði m.a.:
    ,,Ákvæðum um sparisjóði er breytt til að treysta yfirtökuvarnir sparisjóða. Þannig er kveðið á um við hvaða aðstæður sparisjóðsstjórn skal heimila framsal á virkum eignarhlut. Þá er tryggilegar búið um að tengdir stofnfjáreigendur geta ekki farið með yfir 5% heildaratkvæðamagns í sparisjóði. Að lokum er kveðið á um að sparisjóður skuli breyta rekstrarformi sínu í hlutafélag áður en samruni við aðrar tegundir fjármálafyrirtækja getur átt sér stað.“
    Þetta ferli skal, áður en það verður virkt, vera samþykkt af Fjármálaeftirliti. Nú er tímabært að staldra við og þess vegna er þetta frumvarp lagt fram.