Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 488. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 760  —  488. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um endurnýjun búsetuleyfa og dvalarleyfa útlendinga.

Frá Guðrúnu Ögmundsdóttur.



     1.      Hversu margir útlendingar hafa ekki fengið endurnýjað búsetuleyfi eða dvalarleyfi hér á landi frá gildistöku nýrra útlendingalaga vegna þess að þeir þágu fjárhagsaðstoð í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga?
     2.      Frá hvaða löndum eru þessir útlendingar og hversu lengi fengu þeir fjárhagsaðstoð?
     3.      Á hvaða aldri og af hvaða kyni er þetta fólk og hversu lengi hafði það dvalist hér á landi áður en til aðstoðar kom?
     4.      Hvaða sveitarfélög veittu fjárhagsaðstoðina?


Skriflegt svar óskast.
























Prentað upp.