Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 495. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 767  —  495. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um stafræn gögn í heilbrigðiskerfinu.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hvenær lýkur undirbúningi miðlægs gagnagrunns á heilbrigðissviði?
     2.      Hversu alvarlegum töfum hefur drátturinn við undirbúning gagnagrunnsins valdið við að stofna til rafrænnar skráningar gagna í heilbrigðiskerfinu?