Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 503. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 775  —  503. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um þriggja fasa rafmagn.

Frá Drífu Hjartardóttur.



          1.      Hve margir fengu aðgang að þriggja fasa rafmagni á orkusvæði Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða árin 2002 og 2003, sundurgreint eftir landsvæðum?
          2.      Hver var kostnaðurinn við aðgang að þriggja fasa rafmagni á þessum svæðum sömu ár?
          3.      Hve miklu fjármagni er ætlað að verja í framkvæmdir við þriggja fasa rafmagn á árinu 2004?
          4.      Hefur verið boðið upp á tímabundna úrlausn, t.d. með uppsetningu á tíðnibreytum sem breyta eins fasa rafmagni í þriggja fasa, og ef svo er, hversu margir hafa fengið slíka úrlausn?
          5.      Er spenna óstöðug á einhverjum hlutum þessara svæða?


Skriflegt svar óskast.