Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 506. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 778 — 506. mál.
til menntamálaráðherra um fölsun listaverka.
1. Hvernig hyggst ráðherra bregðast við aukinni hættu á því að fölsuð listaverk verði á boðstólum á listaverkamarkaði? Kæmi til greina að breyta lögum á þann veg að verk, t.d. myndverk sem færðar hafa verið sönnur á að séu fölsuð, yrðu merkt sérstaklega sem slík eða gerð upptæk á grundvelli þess að um stuld á hugverkarétti væri að ræða?
2. Hver er réttur listamanna eða annarra rétthafa sem hafa þurft að sæta því að á markaði hafa verið verk með fölsuðu höfundarnafni? Geta þessir aðilar gert kröfu um að fölsuð auðkenni verði afmáð af slíkum verkum?
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 778 — 506. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um fölsun listaverka.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.