Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 516. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 788  —  516. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um kostnaðarhlutdeild sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Telur ráðherra að kostnaðarhlutdeild sjúklinga í sjúkratryggingum hafi aukist um 70% á sl. 15 árum, sbr. niðurstöðu Rúnars Vilhjálmssonar, prófessors í heilsufélagsfræði við Háskóla Íslands?
     2.      Telur ráðherra rétt að gild rök megi færa fyrir því að útgjöld sjúklinga hér á landi séu þegar komin á varasamt stig og farin að bitna á aðgengi að heilbrigðisþjónustunni, sbr. niðurstöðu greinar Rúnars Vilhjálmssonar og Guðrúnar V. Sigurðardóttur um bein útgjöld íslenskra heimila vegna heilbrigðisþjónustu í 1. tbl. Læknablaðsins 2003?