Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 395. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 795  —  395. mál.




Svar



landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Þuríðar Backman um úthlutun sérstaks greiðslumarks í sauðfjárrækt.

     1.      Hvenær má vænta úthlutunar á 7.500 ærgilda greiðslumarki til svæða sem sérstaklega eru háð sauðfjárrækt, sbr. yfirlýsingu ráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar þar að lútandi á Alþingi 9. maí árið 2000 og svar ráðherra í þingskjali 1142 á 128. löggjafarþingi 2002–2003 (589. mál)?
     2.      Hafa úthlutunarreglur verið mótaðar og ef svo er, hvenær verða þær birtar?
    Reglur um úthlutun andvirðis beingreiðslna af 7.500 ærgildum á árunum 2003–2004, nr. 967/2003, voru birtar í B-deild Stjórnartíðinda 19. desember 2003. Tilgangurinn er að styrkja svæði sem eru sérstaklega háð sauðfjárrækt. Greiðsla vegna ársins 2003 fór fram 23. desember 2003.

     3.      Hver verður réttarstaða þeirra bænda sem sérstaklega eru háðir sauðfjárrækt en fá ekki úthlutað samkvæmt úthlutunarreglum?
    Í úthlutunarreglunum, sem byggðar eru á tillögum frá Byggðastofnun, kemur fram hvaða aðstæður þurfa að vera fyrir hendi svo að einstök landssvæði teljist sérstaklega háð sauðfjárrækt og hvaða skilyrði einstakir bændur þurfa að uppfylla til þess að eiga rétt á greiðslu.




















Prentað upp.