Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 540. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 815  —  540. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um dýrahald í atvinnuskyni.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



1.    Hverjir hafa fengið starfsleyfi á grundvelli 12. gr. laga um dýravernd, nr. 15/1994, til hvers konar ræktunar, verslunar, þjálfunar, tamningar, geymslu og leigu dýra í atvinnuskyni, sem ekki fellur undir búfjárhald? Hvers konar starfsemi stunda þeir, hvar er hún stunduð, hve mörg dýr eru bak við hvert leyfi og hve margir starfsmenn?
2.    Eru dæmi um að aðilar starfi á þessum vettvangi án starfsleyfa?
3.    Hvernig er háttað eftirliti með þeirri starfsemi sem hér um ræðir?
4.    Hversu algengt er að yfirvöldum berist kvartanir um starfsemi af þessu tagi og hve oft hefur umhverfisráðuneytið þurft að úrskurða um aðbúnað eða meðferð dýra á grundvelli laga nr. 15/1994?
5.    Stendur til að endurskoða reglugerð nr. 499/1997, um dýrahald í atvinnuskyni, og ef svo er, hvar er sú vinna á vegi stödd?


Skriflegt svar óskast.