Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 488. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 832 — 488. mál.
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Ögmundsdóttur um endurnýjun búsetuleyfa og dvalarleyfa útlendinga.
1. Hversu margir útlendingar hafa ekki fengið endurnýjað búsetuleyfi eða dvalarleyfi hér á landi frá gildistöku nýrra útlendingalaga vegna þess að þeir þágu fjárhagsaðstoð í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga?
Það er almennt skilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfis að framfærsla hér á landi sé trygg, sbr. a-lið 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga, nr. 96/2002. Eftir gildistöku laganna þann 1. janúar 2003 hafa tveir erlendir ríkisborgarar fengið synjun, annars vegar á umsókn um búsetuleyfi og hins vegar á endurnýjun dvalarleyfis sökum þess að fyrir lá að útlendingurinn hafði þegið fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi. Búsetuleyfi veitir rétt til ótímabundinnar dvalar og reynir því ekki á umsóknir um endurnýjun búsetuleyfa.
Í fyrra tilvikinu var um það að ræða að sótt var um búsetuleyfi en því synjað sökum þess að framfærsla var í formi félagslegrar aðstoðar. Í því tilviki var útlendingnum bent á að sækja um framlengingu dvalar- og atvinnuleyfis sem hann gerði og var það leyfi veitt. Í síðara tilvikinu var um að ræða umsókn um framlengingu dvalarleyfis aðstandanda og hafði umsækjandi leyfisins þegið fulla fjárhagsaðstoð allt frá komu til landins þar til sótt var um framlengingu þess. Þeim einstaklingi var síðar veitt dvalarleyfi hér á landi af mannúðarástæðum samkvæmt úrskurði dómsmálaráðuneytisins.
2. Frá hvaða löndum eru þessir útlendingar og hversu lengi fengu þeir fjárhagsaðstoð?
Þeir tveir útlendingar er hér um ræðir komu frá Eþíópíu og Króatíu. Ríkisborgari Eþíópíu fékk námssyrk frá félagsþjónustu allt árið 2001 og síðar fékk hann fullan framfærslustyrk í 9 mánuði á árinu 2003. Ríkisborgari Króatíu þáði fullan framfærslustyrk frá september 2002, frá komu til landsins, þar til umsókn um endurnýjun var lögð fram á árinu 2003.
3. Á hvaða aldri og af hvaða kyni er þetta fólk og hversu lengi hafði það dvalist hér á landi áður en til aðstoðar kom?
Annar aðilinn var 21 árs karlmaður er kom hingað til lands í maí 2000. Hann dvaldi hérlendis í tæpa sjö mánuði áður en hann fékk námssyrk frá félagsþjónustu. Hann var búinn að dvelja hér í tvö ár þegar hann fékk fulla fjárhagsaðstoð í 9 mánuði. Hinn aðilinn er 82 ára kona er kom hingað til lands í september 2002. Hún fékk fulla fjárhagsaðstoð strax við komu og hafði notið slíkrar aðstoðar þar til umsókn um framlengingu var lögð fram.
4. Hvaða sveitarfélög veittu fjárhagsaðstoðina?
Í báðum tilvikunum var það Félagsþjónustan í Reykjavík er veitti aðstoðina.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 832 — 488. mál.
Svar