Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 438. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 845 — 438. mál.
umhverfisráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um kælimiðla.
1. Hvernig er háttað förgun og/eða úrvinnslu kælimiðla sem heyra undir lög um úrvinnslugjald, nr. 162/2002?
Þeir kælimiðlar sem koma inn til eyðingar eru sendir til fyrirtækisins Kommunekemi í Danmörku samkvæmt sérstökum samningi við fyrirtækið. Efnamóttakan hf. meðhöndlar kælimiðlana aðeins þannig að innihald kúta sem komið er með er sett á stóra tanka.
2. Hversu mikið er flutt inn af slíkum efnum og hversu mikið kemur til endurvinnslu árlega?
Undanfarin sex ár hafa verið flutt inn á milli 86–132 tonn á ári af kælimiðlum, vetnisklórflúorkolefnum (HCFC) og vetnisflúorkolefnum (HFC), þar með talin bæði ný og endurunnin HCFC-efni. Að meðaltali gera þetta 109 tonn á ári, sjá eftirfarandi línurit yfir innflutning kælimiðla 1986–2003. Engir kælimiðlar koma inn til endurvinnslu. Árið 2001 var skilað inn 1.528 kg af kælimiðlum en árið 2002 var skilað inn 394 kg til förgunar. Ekki liggja fyrir tölur um skil á kælimiðlum fyrir árið 2003.
Skýringar.
Kælimiðlar sem stuðla að auknum gróðurhúsaáhrifum en eru ekki ósoneyðandi:
R-134a er vetnisflúorkolefni – tetraflúoretan.
HFC-blöndur eru kælimiðilsblöndur nokkurra mismunandi vetnisflúorkolefna.
Kælimiðlar sem eru ósoneyðandi (og stuðla einnig að auknum gróðurhúsaáhrifum):
HCFC-blöndur eru kælimiðilsblöndur vetnisklórflúorkolefna (HCFC) og vetnisflúorkolefna (HFC) og hafa lægri ósoneyðingarmátt en R-22 (HCFC-22) sem mest er flutt inn af nú af kælimiðlum sem falla undir úrvinnslugjaldslögin.
R-22 er HCFC-22, klórdíflúormetan. Það er bæði flutt inn nýframleitt, og þá háð innflutningsheimildum, og sem endurunnið efni og eru engar magntakmarkanir á þeim innflutningi.
R-12 er klórflúorkolefni (CFC-12), díklórdíflúormetan. Innflutningi klórflúorkolefna var hætt 1. janúar 1995. CFC-12 hefur u.þ.b. 20 sinnum meiri ósoneyðingarmátt en HCFC-22.
R-502 er blanda af CFC-115 og HCFC-22. Innflutningi þess var hætt 1. janúar 1995.
Á árunun 1994–1997 voru stundaðar úthafsveiðar og fylgdi þeim mikil kæliefnanotkun eins og sjá má á línuritinu fyrir þessi ár. Samkvæmt línuritinu er aukning á innflutningi ósoneyðandi kælimiðla á árinu 2003 í samanburði við árið 2002. Skýringin á þessu er að hluta til að spilliefnagjald sem lagt var á í nóvember árið 1999 var lækkað úr 98 kr./kg í 2,50 kr./kg frá 1. janúar 2003. 1 Innflytjendur kælimiðla gerðu hlé á innflutningi síðla árs 2002 þegar ljóst var að til stæði að lækka spilliefnagjald á kælimiðlum frá komandi áramótum, en þeir treystu sér ekki til að taka lækkunina á sig vegna aðstæðna á markaði. Kælivélaverkstæði hafa á undanförnum þremur árum getað fengið spilliefnagjaldið endurgreitt af kælimiðlum sem seldir eru í erlend skip. Útflutningurinn er dreginn frá heildarinnflutningnum og þannig fæst nettóinnflutningur sem kemur fram í súluritunum fyrir árin 2000, 2001 og 2002. Engin upplýsingaskylda er á kælivélaverkstæðum um að tilkynna útflutning í erlend skip þrátt fyrir að útflutningurinn á nýframleiddu efni dragist frá innflutningskvótanum. Innflytjendur selja sjaldan kælimiðlana beint í erlend skip. Ekki hefur verið sótt um endurgreiðslur á spilliefnagjaldi fyrir árið 2003 vegna þess hversu lága upphæð á kíló er að ræða og því er útflutningur til erlendra skipa ekki skráður og heildarinnflutningur skráður sem notkun innan lands. Árið 2002 minnkaði innflutningur nokkuð og má það að hluta rekja til bætts eftirlits með kælikerfum. Aukningin sem kemur fram á milli áranna 2002 og 2003 sýnir því ekki að öllu leyti rétta mynd. Ekki hefur verið heimilt að setja upp ný kælikerfi með ósoneyðandi kælimiðlum frá árinu 1996.
3. Hverjir senda efnin til endurvinnslu og hver er talin helsta skýringin á því hversu lítið magnið er?
Þjónustuaðilar kælikerfa koma notuðum kælimiðlum í endurnotkun með því að setja þá á kerfi sem þeir eru með í þjónustu. Skýringin á því hversu lítið kemur inn af kælimiðlum til förgunar er þessi endurnotkun sem á sér stað hjá þjónustuaðilum kælikerfa. Eingöngu ónýtum olíu- og vatnsmenguðum kælimiðlum er skilað til förgunar.
4. Hversu mikið af ósoneyðandi kælimiðlum er talið vera í notkun hér á landi og í íslenskum skipum?
Áætlað hefur verið að í íslenska fiskiskipaflotanum séu um 300 tonn af ósoneyðandi kælimiðlum. Magnið í frystikerfum frystihúsa, matvælageymslna og stórmarkaða er áætlað um 40 tonn. Hér er ekki meðtalið magn ósoneyðandi kælimiðla í heimilisísskápum og líkum tækjum.
5. Hvað hyggjast stjórnvöld fyrir til að tryggja að gömlum kælikerfum sé skilað til förgunar áður en bann við notkun þeirra gengur í gildi 2015?
Reglugerð nr. 586/2002, um ósoneyðandi efni, gerir ráð fyrir því að innflutningi nýrra ósoneyðandi efna verði hætt í áföngum fram til ársins 2010, sjá eftirfarandi töflu. Samkvæmt reglugerðinni er heimilt að flytja inn endurunnin efni til 1. janúar 2015, en engar magntakmarkanir eru á þeim innflutningi. Reglugerðin var sett til að fylgja eftir EB-reglugerð nr. 2037/2000, um ósoneyðandi efni. Jafnframt er í gildi reglugerð nr. 533/1993, um kæli- og varmadælukerfi með ósoneyðandi kælimiðlum. Þar sem óheimilt verður að flytja inn ósoneyðandi kælimiðla frá 2015 verður sjálfhætt notkun kælikerfa með slíkum kælimiðlum. Bannið árið 2015 nær til ósoneyðandi kælimiðla en ekki kælikerfanna sjálfra en hugsanlega verður hægt að breyta þeim þannig að kerfin nýti aðra kælimiðla. Árið 2002 var auk kælimiðla flutt inn vetnisklórflúorkolefni sem þenslumiðill, en tekið var fyrir þann innflutning 2003.
Þar sem 11 ár eru þar til óheimilt verður að flytja inn áðurnefnda kælimiðla hafa að svo stöddu ekki verið gerðar áætlanir um frekari ráðstafanir. Hins vegar má benda á að bannað hefur verið að setja upp ný kerfi með ósoneyðandi kælimiðlum frá 1. janúar 1996.
Verið er að vinna að innleiðingu Evróputilskipunar 2002/96/EB, um raftækja- og rafeindatækjaúrgang. Þar er tekið á hvernig meðhöndla skuli heimilisísskápa, heimilisfrysta og stærri heimilistæki ætluð til kælingar og geymslu matvæla, auk sjálfsala með kælivélum og frystum sem notaðir eru á sjúkrastofnunum, þegar eigandi ákveður að losa sig við þá. Fyrirhugað er að þessi tæki sem innihalda kælimiðla, auk mun fleiri raftækja- og rafeindatækja, verði tekin inn í lög um úrvinnslugjald.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 845 — 438. mál.
Svar

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.

Leyfilegur heildarinnflutningur nýrra vetnisklórflúorkolefna til Íslands.
| Tímabil | ODP tonn |
| 1. janúar 2002 til 31. desember 2002 | 8,4 |
| 1. janúar 2003 til 31. desember 2003 | 3,4 |
| 1. janúar 2004 til 31. desember 2004 | 2,3 |
| 1. janúar 2005 til 31. desember 2005 | 2,3 |
| 1. janúar 2006 til 31. desember 2006 | 2,3 |
| 1. janúar 2007 til 31. desember 2007 | 2,3 |
| 1. janúar 2008 til 31. desember 2008 | 1,9 |
| 1. janúar 2009 til 31. desember 2009 | 1,9 |
| 1. janúar 2010 til 31. desember 2010 | 0 |
Þar sem 11 ár eru þar til óheimilt verður að flytja inn áðurnefnda kælimiðla hafa að svo stöddu ekki verið gerðar áætlanir um frekari ráðstafanir. Hins vegar má benda á að bannað hefur verið að setja upp ný kerfi með ósoneyðandi kælimiðlum frá 1. janúar 1996.
Verið er að vinna að innleiðingu Evróputilskipunar 2002/96/EB, um raftækja- og rafeindatækjaúrgang. Þar er tekið á hvernig meðhöndla skuli heimilisísskápa, heimilisfrysta og stærri heimilistæki ætluð til kælingar og geymslu matvæla, auk sjálfsala með kælivélum og frystum sem notaðir eru á sjúkrastofnunum, þegar eigandi ákveður að losa sig við þá. Fyrirhugað er að þessi tæki sem innihalda kælimiðla, auk mun fleiri raftækja- og rafeindatækja, verði tekin inn í lög um úrvinnslugjald.
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Samkvæmt upplýsingum frá Úrvinnslusjóði var spilliefnagjald fyrir vetnisflúorkolefni lækkað árið 2003 vegna þess hve lítið af efni kom til eyðingar en hlutverk sjóðsins er að standa undir eyðingu spilliefna og það samrýmist ekki markmiðum sjóðsins að safna fé umfram það sem þarf til eyðingar viðkomandi spilliefna.