Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 550. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 852 — 550. mál.
um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Sjálfseignarstofnun fer þó með atkvæðisrétt í samræmi við hlutafjáreign sína.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fyrir fund stofnfjáreigenda skv. 1. mgr. 73. gr. verða engar skuldbindandi ákvarðanir teknar fyrir hönd sjálfseignarstofnunarinnar.
b. 2. og 3. mgr. orðast svo:
Í stjórn sjálfseignarstofnunar skv. 1. mgr. skulu eiga sæti tveir fulltrúar sveitarfélags þar sem sparisjóðurinn á heimilisfesti við breytingu hans í hlutafélag, einn fulltrúi tilnefndur af fjármálaráðherra og tveir fulltrúar tilnefndir af viðskiptaráðherra. Stjórnin, þannig skipuð, velur sér formann og fer með hagsmuni sjálfseignarstofnunarinnar frá og með fundi stofnfjáreigenda skv. 1. mgr. 73. gr. Stjórnartími skal vera fjögur ár nema annað sé ákveðið í samþykktum. Minnst tveimur mánuðum fyrir lok stjórnartíma skal formaður stjórnar afla nýrra tilnefninga skv. 1. málsl.
Fyrir fund stofnfjáreigenda skv. 1. mgr. 73. gr. skal sparisjóðurinn hafa aflað tilnefninga skv. 2. mgr. þessarar greinar.
Samruni sparisjóðs við annað fyrirtæki eða einstaka rekstrarhluta þess er því aðeins heimill að sparisjóðnum hafi áður verið breytt í hlutafélag samkvæmt ákvæðum VIII. kafla, nema þegar um er að ræða samruna tveggja eða fleiri sparisjóða sem ekki hefur verið breytt í hlutafélag eða hlutafélög.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 852 — 550. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
(Eftir 2. umr., 5. febr.)
1. gr.
B-liður 2. mgr. 70. gr. laganna orðast svo: að sýnt sé fram á að öflun stofnfjárhlutarins sé liður í eflingu samvinnu milli sparisjóða í landinu eða sparisjóða innan Evrópska efnahagssvæðisins.2. gr.
Sjálfseignarstofnun fer þó með atkvæðisrétt í samræmi við hlutafjáreign sína.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 76. gr. laganna:a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fyrir fund stofnfjáreigenda skv. 1. mgr. 73. gr. verða engar skuldbindandi ákvarðanir teknar fyrir hönd sjálfseignarstofnunarinnar.
b. 2. og 3. mgr. orðast svo:
Í stjórn sjálfseignarstofnunar skv. 1. mgr. skulu eiga sæti tveir fulltrúar sveitarfélags þar sem sparisjóðurinn á heimilisfesti við breytingu hans í hlutafélag, einn fulltrúi tilnefndur af fjármálaráðherra og tveir fulltrúar tilnefndir af viðskiptaráðherra. Stjórnin, þannig skipuð, velur sér formann og fer með hagsmuni sjálfseignarstofnunarinnar frá og með fundi stofnfjáreigenda skv. 1. mgr. 73. gr. Stjórnartími skal vera fjögur ár nema annað sé ákveðið í samþykktum. Minnst tveimur mánuðum fyrir lok stjórnartíma skal formaður stjórnar afla nýrra tilnefninga skv. 1. málsl.
Fyrir fund stofnfjáreigenda skv. 1. mgr. 73. gr. skal sparisjóðurinn hafa aflað tilnefninga skv. 2. mgr. þessarar greinar.
4. gr.
2. mgr. 101. gr. laganna orðast svo:Samruni sparisjóðs við annað fyrirtæki eða einstaka rekstrarhluta þess er því aðeins heimill að sparisjóðnum hafi áður verið breytt í hlutafélag samkvæmt ákvæðum VIII. kafla, nema þegar um er að ræða samruna tveggja eða fleiri sparisjóða sem ekki hefur verið breytt í hlutafélag eða hlutafélög.
5. gr.