Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 579. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 872  —  579. mál.




Skýrsla



Sivjar Friðleifsdóttur samstarfsráðherra Norðurlanda um störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2003.

(Lögð fyrir Alþingi á 130. löggjafarþingi 2003–2004.)




I. SKÝRSLA SAMSTARFSRÁÐHERRA UM STÖRF NORRÆNU


              RÁÐHERRANEFNDARINNAR 2003



1. Inngangur


Aðlögun, samþætting og samræmi.
    Svíar leiddu norrænt samstarf á árinu 2003 undir yfirskriftinni „Integration Norden“, eða „Norðurlönd sem heild“. Aðlögun innan og á milli norrænu landanna, samþætting og samræming voru lykilorð í formennskuáætlun þeirra í Norrænu ráðherranefndinni. Kveikjan að helstu stefnumálum Svía var meðal annars sú mikla samgöngubót sem varð með Eyrarsundsbrúnni, en með auknu streymi vinnandi fólks yfir Eyrarsund varð enn ljósara ósamræmi milli laga og reglugerða grannríkjanna svo sem á sviði skattamála. Svíar lögðu og áherslu á aðgerðir til að tryggja aukin áhrif og betri aðlögun útlendinga í norrænum fjölmenningarsamfélögum, samræmingu á innri markaði Evrópusambandsins (ESB) og samþættingu í samstarfi við Eystrasaltsríkin.

Norrænt samstarf í nýrri Evrópu.
    Svæðisbundið samstarf mun fá aukið vægi í ESB eftir stækkun þess. Ljóst er að sú þróun hefur áhrif í norrænu samstarfi. Norræna ráðherranefndin verður í þessu samhengi mikilvægur vettvangur umræðna og samráðs, en stefnt er að því að gera átak á sem flestum fagsviðum til að styrkja stöðu Norðurlanda í Evrópusamstarfinu. Það sjónarhorn var t.d. haft að leiðarljósi við endurskipulag norræna rannsóknarsamstarfsins.
    Í samræmi við ákvörðun samstarfsráðherra á árinu 2002 um að Norræna ráðherranefndin skuli vera virkur þátttakandi í svæðisbundnum samtökum og alþjóðastarfi var á árinu 2003 unnið markvisst að því að efla tengsl við alþjóðlegar samstarfsstofnanir. Liður í því var aðkoma ráðherranefndarinnar að framkvæmdaáætlun ESB um Norðlægu víddina 2004–2006, sem lögð var fyrir framkvæmdastjórnina í mars sl. Í henni er yfirlit yfir aðgerðir á mörgum fagsviðum þar sem ráðherranefndin lýsir sig reiðubúna til samstarfs við sambandið um framkvæmdina. Norðlæga víddin kveður meðal annars á um aðgerðir í öryggis- og umhverfismálum og aðstoð við að bæta lífskjör í dreifðum byggðum á norðurslóð.
    Samstarfi ráðherranefndarinnar við framkvæmdastjórn ESB verður haldið áfram með það fyrir augum að styrkja það enn frekar og koma því í svo góðan farveg að gera megi bindandi samstarfssamninga. Markmiðið er sem fyrr að tryggja hagvöxt á Norðurlöndum og í ríkjunum við Eystrasalt og að Norðurlönd hafi áhrif á mótun Evrópusamstarfsins á næstu árum þegar aðildarríkjum fjölgar svo mjög.

Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi.
    Skýrslan „Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi“ var samþykkt af samstarfsráðherrum á vordögum. Í henni kemur fram sú meginskoðun að ekki megi líta á hin dreifbýlu og fámennu lönd við Norður-Atlantshaf sem jaðarsvæði í norrænu samstarfi, heldur lönd með mikla vaxtarmöguleika. Skilgreind eru fjölmörg samstarfssvið sem beri að efla svo sem samgöngur, ferðaþjónustu, rannsóknir, umhverfisvernd og fiskveiðistjórnun. Einnig er lögð áhersla á að það þjóni norrænum heildarhagsmunum að taka upp nánara samstarf við grannsvæðin við Norður-Atlantshaf. Skýrslan er þannig grundvöllur að norrænni stefnumótun um grannsvæðasamstarf í vesturátt og fellur jafnframt vel að markmiðum norðurskautsáætlunarinnar og Evrópusamstarfsins um Norðlægu víddina sem nær yfir Grænland og norðurskautssvæðin. Með grannsvæðum Norðurlanda í vestri er einkum átt við kanadísku Atlantshafshéruðin Nunavut og Nunavik, Írland, Norður-Írland, Skotland og skosku eyjarnar.
    Ráðstefna með þátttöku fulltrúa þessara svæða var haldin í Reykjavík árið 1999 og var þá lagður grunnur að samstarfi þeirra með áherslu á verndun hafsins. Fyrsta eiginlega Norður- Atlantshafsráðstefnan var haldin í Færeyjum á árinu 2000 og önnur í Leirvík á Hjaltlandi í september sl. Þriðja ráðstefnan verður haldin í Noregi árið 2005. Til stendur að efla þetta samstarf enn frekar, t.d. með tengslanetum á rannsóknarsviði. Er það m.a. í samræmi við tillögur í skýrslunni „Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi“ en hún hefur að geyma margar hugmyndir og beinar tillögur sem eru til þess fallnar að efla samstarf þjóðanna við Norður- Atlantshaf. Þar er meðal annars lagt til að grönnum við Norður-Atlanshaf verði boðin aðild að Lánasjóði Vestur-Norðurlanda, að vestnorræna svæðasamstarfið NORA komi sterkar inn sem samræmingaraðili fyrir samstarf atvinnulífsins á svæðinu auk þess sem grönnum í vestri verði boðin bein aðild að samstarfinu. Þá er einnig lagt til að norrænu menningarstofnanirnar í Reykjavík, Nuuk og Þórshöfn fái sams konar hlutverk í menningarsamstarfi á Vestur- Norðurlöndum. Þá er lagt til að gerð verði víðtæk úttekt á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar á stöðu flug- og skipasamgangna innan vestnorræna svæðisins og milli Vestur-Norðurlanda og annarra ríkja. Við undirbúning að formennsku Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2004 var eftirfylgni við skýrsluna „Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi“ meðal helstu forgangsmála og mörg verkefni skilgreind með sérstakri áherslu á vestnorrænt samstarf.

Auðlindir Norðurlanda.
    Undirbúningur að formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni hófst síðsumars í samstarfi allra ráðuneyta. Norðurlandaskrifstofa útbjó samræmda verkefnaáætlun sem kynnt var á Norðurlandaráðsþingi í október undir fyrirsögninni „Auðlindir Norðurlanda – Lýðræði, menning, náttúra“. Hún miðar að því að nýta betur þann auð sem býr í Norðurlandabúum, norrænni lýðræðishefð og náttúru.
    Meðal þess sem Íslendingar leggja til er að Norræna ráðherranefndin setji Vestur- Norðurlönd í forgang og leiti eftir samstarfi við grannsvæði í vestri. Þá er lögð áhersla á að skoða framtíð lýðræðis í ljósi hnattvæðingar og upplýsingatækni. Norrænu samstarfsráðherrarnir hafa skipað nefnd með fulltrúum norrænu ríkisstjórnanna til að koma með tillögur að því hvernig tryggja megi að lýðræðið verði sem virkast á næstu 25 árum. Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur er formaður nefndarinnar.
    Í þremur undirflokkum verkefnaáætlunarinnar eru skilgreind ýmis verkefni og ráðstefnur sem m.a. snúa að betri auðlindanýtingu, náttúruvernd og menningar- og menntasamstarfi. Norrænn gagnabanki um sérstöðu hafsvæða og tegunda sjávardýra er meðal verkefna sem hrint verður úr vör á formennskutímanum, en Íslendingar setja á oddinn að samræma upplýsingar um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda, efnainnihald í sjávarfangi og rekjanleika sjávarafurða. Á formennskutímanum verður einnig lögð áhersla á verndun og sjálfbæra nýtingu ósnortinnar náttúru og á endurnýjanlega orkugjafa.
    Á menningarsviði eru sett fram nokkur meginmarkmið svo sem að meira verði framleitt af stafrænu menningarefni. Lagt er til að stofnaður verði norrænn margmiðlunarsjóður í þeim tilgangi.
    Formennskuáætlun Íslendinga hefur verið gefin út á prenti á íslensku og dönsku, og á vefsetrinu www.raduneyti.is/formennska2004 má fá ítarupplýsingar um stefnumál, viðburði ársins, fréttir tengdar formennskunni og tengiliði vegna viðburða.

Sjálfbær Norðurlönd.
    Norrænt samstarf um sjálfbæra þróun fer fram samkvæmt þverfaglegri rammaáætlun, „Sjálfbær þróun – ný stefna fyrir Norðurlönd“. Þar eru sett fram markmið á sex fagsviðum til næstu tveggja áratuga og framkvæmdaáætlun sem nær til loka árs 2004.
    Sviðin sex sjá um framkvæmdina, en frumkvæði að stefnumörkun áttu norrænu forsætisráðherrarnir.
    Áætlunin hefur verið send Evrópusambandinu og umhverfisnefnd framkvæmdastjórnarinnar sem innblástur og innlegg í alþjóðlegt starf um sjálfbæra þróun. Hún þykir fordæmisgefandi fyrir fjölþjóðlegt samstarf á sviði umhverfisverndar og var þannig kynnt til sögunnar á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna (S.þ.) um sjálfbæra þróun í Jóhannesarborg í september 2002.
    Framkvæmdaáætlun um sjálfbæra þróun er í endurskoðun og á að ljúka á formannsári Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni 2004. Markmiðið er að ný áætlun taki gildi árið 2005. Í tengslum við endurskoðun stefnunnar hafa Norðurlönd lagt fram eigin vísa sem stuðst verður við til að ná fram settum markmiðum um sjálfbærni og til að taka bindandi pólitískar ákvarðanir. Þá er stefnt að því að draga í auknum mæli félagslega og efnahagslega þætti inn í stefnumótunina.
    Tvær stórar norrænar ráðstefnur um sjálfbæra þróun voru haldnar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar á árinu – önnur í Kaupmannahöfn í byrjun árs og hin í Karlskrona í júni þar sem Norðvestur-Rússland og ríki við Eystrasalt áttu einnig fulltrúa.

Norrænar öndvegisrannsóknir og nýsköpun.
    Á árinu 2002 ákvað ráðherranefnd menntamála og rannsókna að láta taka saman skýrslu um hvernig koma mætti rannsóknum og atvinnulífi Norðurlanda í fremstu röð. Gustav Björkstrand, fyrrum menntamálaráðherra Finnlands og nú rektor háskólans í Åbo, var falið að gera úttekt og koma með tillögur. Þær voru kynntar á Norðurlandaráðsþingi í Ósló í október sl. undir fyrirsögninni „Norrænar rannsóknir og nýsköpun – í fararbroddi með auknu samstarfi“ (Nordisk forskning och innovation – globalt ledande genom ökat samarbete – NORIA). Undanfari þessarar hvítbókar Björkstrands var tilraunaverkefni um norræn öndvegisrannsóknarsetur á sviði náttúruvísinda sem hófst á árinu 2002 og mun standa til ársins 2006. Hugtakið öndvegisrannsóknarsetur nær þar í raun yfir tengslanet fræðimanna í mörgum norrænum háskólum og rannsóknarstofnunum eða yfir viðurkenndan hóp vísindamanna. Í báðum tilvikum stendur norrænum vísindamönnum til boða aðstaða til rannsókna, faglegt bakland, tæknibúnaður og samskiptakerfi.
    Hvítbók Björkstrands, sem miðast við aðgerðir fram til ársins 2010, byggir á þessum hugmyndum um öndvegisrannsóknir og þykir hún marka tímamót. Í henni eru lagðar til róttækar breytingar á fyrirkomulagi norræns rannsóknarsamstarfs með það fyrir augum að skapa betri tengsl milli vísinda og nýsköpunar í atvinnulífinu. Ein meginniðurstaðan er sú að líta beri á norrænt samstarf á þessu sviði sem þverfaglegt og svæðisbundið í evrópsku eða alþjóðlegu samhengi. Tillögurnar taka mið af því að Norðurlönd þurfi sem heild að efla og auka vísindarannsóknir til að styrkja samkeppnisstöðu sína og nýta sem best upplýsingatækni og sameiginlega þekkingu. Takmörkuðum fjárveitingum af norrænu fjárlögunum sé betur varið til að tengja saman háskóla, rannsóknarstofnanir og sjóði í stað þess að stærstur hluti þeirra fari, líkt og hingað til, í rekstur sameiginlegra stofnana. Kjarninn í nýju fyrirkomulagi rannsóknarsamstarfsins verði nýtt norrænt rannsóknar- og nýsköpunarráð sem taki til starfa í ársbyrjun 2005. Ráðherranefnd menntamála hefur samþykkt helstu tillögur Björkstrands. Hún er nú til umsagnar í löndunum og á því ferli að vera lokið 1. mars 2004.
    Liður í endurskipulagi norræna rannsóknarsamstarfsins verða breytingar á rekstri sameiginlegra rannsóknarstofnana sem ætlunin er að muni smám saman færast yfir til landanna. Þannig er stefnt að því að Íslendingar taki þegar á árinu 2004 yfir rekstur Norrænu eldfjallastöðvarinnar og að dregið verði úr framlögum Norrænu ráðherranefndarinnar fram til ársins 2007. Samruni Norræna iðnaðarsjóðsins og Norrænu prófunarstofunnar í Norrænu nýsköpunarmiðstöðina er einnig liður í því að efla samstarf um rannsóknir, tækniþróun og nýsköpun. Nýsköpunarmiðstöðin tekur til starfa í byrjun árs 2004.

Heimssýningin í Japan – sameiginleg þátttaka Norðurlanda.
    Norðurlönd ætla að standa fyrir sameiginlegri kynningu á heimssýningunni í Aichi í Japan á árinu 2005. Verkefnið fór af stað á árinu og hefur verið sett upp skrifstofa hjá Norrænu ráðherranefndinni í Kaupmannahöfn sem sér um framkvæmdina. Pertti Huitu, fyrrverandi forstjóri finnska útflutningsráðsins, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri norrænu sýningarinnar, en fulltrúi Íslands í stjórnarnefnd er Ólafur Egilsson sendiherra. Áætlaður heildarkostnaður við norrænu sýninguna er jafnvirði 50 millj. d.kr. Norræna ráðherranefndin leggur fram 5 millj. d.kr. Á heimssýningunni ætla Norðurlönd að kynna sig sem landamæralaust svæði og fá þau tæplega 1300 fermetra sýningarsvæði. Yfirskrift heimssýningarinnar er að þessu sinni „Viska náttúrunnar“. Hún þykir falla einkar vel að markmiðum Norðurlanda, sem annars vegar leggja áherslu á að sýna í verki norræna samstarfshefð og hins vegar hvernig stórfengleg náttúra á norðurslóð endurspeglast í norrænni menningu.

Norðurlandaráðsþing í Ósló.
    Norðurlandaráðsþing var haldið í Ósló dagana 27.–29. október. Þar komu greinilega fram breyttar áherslur í norrænu samstarfi svo sem aukin áhersla á pólitískt samstarf og sameiginlega afstöðu í Evrópumálum. Norðurlönd og umheimurinn, framtíð norræns rannsóknarsamstarfs og afnám landamærahindrana voru þau mál sem hæst bar í umræðum á þinginu. Þá var skýrslan „Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi“ lögð fram og staða Vestur-Norðurlanda rædd auk þess sem nokkrar umræður urðu um umsókn Færeyinga um fulla aðild að Norðurlandaráði.
    Forsætisráðherrar Norðurlanda ákváðu á fundi sínum í Ósló að bjóða Eystrasaltsríkjunum aðild að Norræna fjárfestingarbankanum. Jafnframt var framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar falið að kanna hvort grundvöllur væri fyrir aðild Eystrasaltsríkjanna að fleiri norrænum stofnunum.
    Ákveðið var á þinginu að veita árlega norræn kvikmyndaverðlaun en fyrir eru veitt bókmennta-, tónlistar- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs. Sænska ljóðskáldið Eva Ström hlaut að þessu sinni Norrænu bókmenntaverðlaunin, tónlistarverðlaunin fékk samíska listakonan Marie Boine og finnsku samtökin Luonto-Liitto ry fengu viðurkenningu fyrir æskulýðsstarf í þágu umhverfisverndar.


2. Samstarf forsætisráðherra Norðurlanda


    Forsætisráðherrarnir áttu tvo fundi á starfsárinu, sumarfund sem haldinn var í Harpsund, opinberum sumarbústað forsætisráðherra Svía þann 29. júní og venjubundinn fund í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Ósló þann 27. október. Þann sama dag áttu forsætisráðherrarnir fund með forsætisráðherrum Eystrasaltsríkjanna, fund með oddvitum stjórna Færeyja, Grænlands og Álandseyja og með forsætisnefnd Norðurlandaráðs.
    Þá átti forsætisráðherra Íslands fund með oddvitum stjórna Færeyja og Grænlands þann 27. nóvember þegar Norðurbryggja í Kaupmannahöfn var formlega opnuð.
    Til umræðu á fundum forsætisráðherranna voru að venju þau mál sem hæst bar í norrænu samstarfi, samstarf Norðurlanda og Norrænu ráðherranefndarinnar við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland, málefni ESB og Evrópska efnahagssvæðisins (EES) auk alþjóðlegra málefna, þar á meðal málefna Atlantshafsbandalagsins (NATO), Íraksstríðsins og baráttunnar gegn hryðjuverkaöflum í heiminum. Forsætisráðherrarnir ræddu sérstaklega stöðu og framtíð norræns samstarfs í alþjóðlegu samhengi með megináherslu á tengslin við ESB og Eystrasaltsríkin. Áhersla var lögð á að styrkja hinn pólitíska þátt samstarfsins við Eystrasaltsríkin. Þá var og lögð áhersla á mikilvægi þess að styrkja menningarsamstarf og önnur tengsl við Eystrasaltsríkin eftir því sem aðstæður leyfa. Þetta var talið nauðsynlegt samhliða þeim samdrætti í norrænu verkefnasamstarfi sem hafinn er.
    Á sumarfundi ráðherranna var tekin ákvörðun um að Eystrasaltsríkjunum yrði boðin aðild að Norræna fjárfestingarbankanum og framkvæmdastjóra ráðherranefndarskrifstofunnar falið að skoða sérstaklega hvort grundvöllur væri fyrir að bjóða þeim aðild að fleiri norrænum stofnunum. Á sameiginlegum fundi forsætisráðherra norrænu og baltnesku ríkjanna í Ósló var Eystrasaltsríkjunum síðan boðin aðild að bankanum, sem forsætisráðherrar þeirra þáðu.     Þá var lögð áhersla á mikilvægi Norrænu ráðherranefndarinnar sem vettvangs óformlegs samráðs og skoðanaskipta um málefni ESB.
    Poul Schlüter fyrrv. forsætisráðherra Dana kom til fundar við forsætisráðherrana í Ósló og gerði þeim grein fyrir störfum sínum við að ryðja úr vegi stjórnsýsluhindrunum á norrænum landamærum.
    Forsætisráðherra Íslands gerði á fundinum grein fyrir megindráttum formennskuáætlunar Íslands fyrir árið 2004, „Auðlindir Norðurlanda, lýðræði, menning, náttúra“, sem hann kynnti síðar sama dag í stefnuræðu við setningu Norðurlandaráðsþings.
    Tengslin yfir Atlantshafið og samstarfið í Atlantshafsbandalaginu ásamt Íraksstríðinu voru til umræðu á öllum fundum ráðherranna.
    Fundur forsætisráðherranna með forsætisnefnd Norðurlandaráðs var helgaður þemanu „Norðurlönd og hlutverk norræns samstarfs í Evrópu“.
    Á fundi forsætisráðherranna með forsætisráðherrum Eystrasaltsríkjanna voru, auk aðildar að Norræna fjárfestingarbankanum og þær breytingar á norrænu samstarfi sem af aðild ríkjanna að ESB leiðir, rædd málefni Eystrasaltsráðsins og starfsáætlun ESB um Norðlægu víddina. Þá var þar fjallað um þróunina á vettvangi ESB, svo sem stöðuna í stjórnarskrármálinu, fjölgun aðildarríkja EES sem afleiðingu af stækkun ESB og samstarfið við Rússland. Þá var staða mála á alþjóðavettvangi einnig á dagskrá.
    Á fundi forsætisráðherranna með oddvitum sjálfstjórnarsvæðanna var fjallað um stöðu Vestur-Norðurlanda í norrænu samstarfi á grundvelli skýrslu þeirrar sem lögð hafði verið fram í Norrænu ráðherranefndinni um samstarfið á Norður-Atlantshafssvæðinu, „Vestur- Norðurlönd í norrænu samstarfi“. Forsætisráðherra Íslands gerði þar sérstaka grein fyrir áherslum í formennskuáætlun Íslands á norrænt samstarf um málefni Vestur-Norðurlanda og aukið samstarf við grannsvæði Norðurlanda við Norður-Atlantshaf. Þá voru þar til umræðu siglingar í Norður-Atlantshafi og þær hættur sem umhverfi sjávar getur stafað af auknum olíuflutningum á nýjum siglingaleiðum kringum Færeyjar og önnur vestnorræn lönd.


3. Störf samstarfsráðherra Norðurlanda


Hlutverk.
    Samstarfsráðherrar og forsætisráðherrar Norðurlanda setja samstarfinu pólitísk markmið og eitt mikilvægasta hlutverk samstarfsráðherranna er að stuðla að því, að starfsemin sé í samræmi við þau. Auk þessarar stefnumótunar, er norræna fjárlagagerðin og skipting fjárveitinga milli samstarfssviða ríkur þáttur í starfi samstarfsráðherra. Þeir fara og með upplýsingamálin og þau samstarfsmál, sem eru þverfagleg eða falla af öðrum ástæðum ekki undir neina fagráðherranefnd. Þverfaglegum verkefnum hefur fjölgað undanfarin ár en samstarfið við grannsvæði norrænu landanna er þó enn þeirra helst.
    Norræna samstarfsnefndin, sem starfar í umboði samstarfsráðherranna og undirbýr fundi þeirra, er stjórn aðalskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn.

Fjárlög Norrænu ráðherranefndarinnar.
    Fjárlög ársins 2003 að upphæð 811 millj. d.kr. voru að raunvirði óbreytt frá fyrra ári.
    Norræna fjárlagagerðin var endurskoðuð árið 2000 í því skyni að fjárlögin nýttust betur en fyrr til að beina fjármagninu að forgangsverkefnum. Breytingarnar komu að hluta til framkvæmda við undirbúning fjárlaga ársins 2002 og að fullu við undirbúning fjárlaga ársins 2003. Þær þóttu hafa reynst allvel. Þær höfðu þó ekki eins mikil áhrif og ætlunin var í þá veru að flytja fjármagn til forgangsverkefna. Því er þegar farið að huga að frekari breytingum.
    Þegar ákvörðun er tekin um ramma og megináherslur fjárlaganna meira en ári fyrir upphaf fjárlagaársins, eins og raunin er nú, er nauðsynlegt að samstarfsráðherrarnir hafi við upphaf fjárlagaárs til ráðstöfunar nægilega fjármuni til að hrinda í framkvæmd pólitískt mikilvægum verkefnum. Því er nú í fjárlögunum liðurinn „ráðstöfunarfé ráðherranefndarinnar“, að upphæð 10 millj. d.kr. Þessi tilhögun er í raun forsenda þess að formennskulandið geti komið sínum áhersluverkefnum í framkvæmd, því þau eru ekki kynnt fyrr en á þingi Norðurlandaráðs við mánaðamót október/nóvember, tveimur mánuðum fyrir upphaf formennskuársins.

Afnám landamærahindrana.
    Mál tengd réttindum Norðurlandabúa voru í brennidepli allt árið 2003, annað árið í röð, því skýrslan „Réttindi Norðurlandabúa“ sem út kom árið 2002 sýnir að enn eru margar stjórnsýsluhindranir á norrænum landamærum. Þær hafa áhrif á daglegt líf einstaklinga og fjölskyldna sem afla tekna eða sækja þjónustu handan norrænna landamæra. Helsta forgangsmálið á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar á árinu var að vinna áfram að því að ryðja þessum hindrunum úr vegi. Í samræmi við formennskuáætlun Svía var ákveðið að fylgja af fullum þunga eftir úrbótatillögum sem settar voru fram í skýrslunni með það að markmiði að samræma sem mest lög og reglur til að auðvelda fólki ferðir og flutninga á milli landanna. Poul Schlüter fyrrverandi forsætisráðherra Dana var skipaður fulltrúi samstarfsráðherra Svía í þessu máli og falið að samræma störf fagráðherranefnda og knýja á um úrbætur.
    Schlüter einsetti sér að ná árangri á fjórum meginsviðum:
–     að samræma norræna skattalöggjöf,
–     að sníða af vankanta á norræna félagsmálasáttmálanum,
–     að samræma prófgráður og viðurkenningu á menntun á Norðurlöndum,
–     að samræma reglur um atvinnuleyfi útlendinga sem eru með landvistar- og atvinnuleyfi í einu norrænu ríki, en mega ekki vinna annars staðar á Norðurlöndum.
    Á árinu 2003 tókst að ryðja úr vegi á þriðja tug stjórnsýsluhindrana. Meðal annars var unnið að því að einfalda skráningu fólks við flutninga milli landanna með því að koma á beinu sambandi milli norrænu þjóðskránna og flýta þannig til muna fyrir úthlutun kennitalna. Íslendingar sömdu einnig við Svía í nafnamálinu svokallaða og var reglum um nafngiftir í Svíþjóð breytt á þann veg að nú er unnt að nefna börn sem hafa bæði íslenskan og sænskan ríkisborgararétt samkvæmt íslenskum nafnahefðum. Þá gerðu Danir og Svíar með sér nýjan skattasamning sem nær einkum til þeirra sem búa og starfa á Eyrarsundssvæðinu. Hann kveður á um að tekin skuli upp danska reglan um skattgreiðslur þannig að greiða skuli skatt í því landi þar sem teknanna er aflað en ekki þar sem menn hafa búsetu. Með samningnum er gamalt og erfitt ágreiningsmál til lykta leitt og betri aðlögun og samræmi á Eyrarsundssvæðinu í sjónmáli.
    1. nóvember sl. tók til starfa ný deild við skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn sem á að fylgja eftir starfi Poul Schlüters. Þrír starfsmenn munu samhæfa störf fagráðherranefnda við afnám landamærahindrana og halda til haga upplýsingum og lausnum sem berast í gegnum upplýsingaþjónustuna Halló Norðurlönd og þær þjónustuskrifstofur sem starfræktar eru á norrænum landamærum.
    Poul Schlüter mun á formennskutíma Íslendinga, fyrir hönd norrænu samstarfsráðherranna, halda áfram baráttunni við norrænt skrifræði, eða fram á mitt ár 2004.

Norrænt samstarf við grannsvæðin.
    Meginmarkmið samstarfs Norðurlanda við granna í austurvegi hefur verið að styðja lýðræðisþróun og markaðsvæðingu við Eystrasalt. Með beinum fjárframlögum, sérfræðiaðstoð og upplýsingamiðlun hefur verið unnið að uppbyggingu í Eystrasaltsríkjunum og stofnað hefur verið til sameiginlegra verkefna svo sem á sviði umhverfisverndar og sjálfbærrar þróunar. Kaflaskil verða í þessu samstarfi með inngöngu Eystrasaltsríkjanna í ESB 1. maí 2004. Ákvörðun um að hefja ekki ný samstarfsverkefni við þau nema Norðvestur- Rússland eigi einnig aðild að þeim, tók gildi á árinu og fyrir dyrum stendur að styrkja enn frekar verkefnasamstarf við Rússland. Samhliða þessu verður meira jafnræði í samstarfi við Eystrasaltsríkin og pólitíska samstarfið við þau styrkt til muna. Fyrstu skrefin hafa þegar verið tekin í þá átt eins og væntanleg aðild Eystrasaltsríkjanna að Norræna fjárfestingarbankanum ber vott um.
    Meginþungi grannsvæðasamstarfsins mun einnig færast á næstu þremur árum í áföngum yfir til Norðvestur-Rússlands. Samstarfsnet sem tengja Norðvestur-Rússland við Norðurlönd hafa eflst, ekki síst á sviði umhverfisverndar og auðlindanýtingar og verða þau styrkt enn frekar. Frá árinu 2000 hefur verið unnið að því að opna nýja upplýsingaskrifstofu í Kaliningrad og samningaviðræður sem nú standa yfir við Rússa benda til þess að af því geti orðið fyrir mitt ár 2004.
    Líta má á svæðasamstarfið við Norðvestur-Rússland sem hluta af framlagi Norrænu ráðherranefndarinnar til hinnar Norðlægu víddar ESB. Þannig hefur ráðherranefndin boðist til að samræma ýmis samstarfsverkefni í Rússlandi meðal annars í gegnum norrænu upplýsingaskrifstofurnar sem þar eru starfræktar.

Samstarfið við Norðurlandaráð.
    Samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við Norðurlandaráð á árinu var gott. Það fór fram samkvæmt stefnu þeirri sem mótuð var 2002. Meðal annars var náið samstarf við ráðið um fjárlögin á öllum stigum fjárlagagerðarinnar. Eins var rætt við Norðurlandaráð um að fækka þeim tilmælum ráðsins sem á hverjum tíma eru á dagskrá til að auka pólitískt vægi þeirra. Þessar viðræður leiddu til verulegrar fækkunar tilmælanna sem við lok Norðurlandaráðsþingsins í Ósló 2003 voru 55 talsins en árið áður voru þær 71.

Norrænt samstarf við önnur fjölþjóðleg samtök.
    Á árinu tóku samstarfsráðherrarnir stefnumarkandi ákvörðun um að Norrænu ráðherranefndinni bæri að efla samstarf og eiga nánara samráð við aðrar fjölþjóðlegar stofnanir sem einnig starfa á norðurslóðum, þ.e. Norðurskautsráðið, Barentsráðið, Eystrasaltsráðið og ESB með tilliti til Norðlægu víddarinnar. Unnið var markvisst að þessu stefnumáli. Ráðherranefndinni hefur á undanförnum árum gefist kostur á að fylgjast nokkuð með starfi þessara stofnana, ýmist með því að sitja fundi þeirra sem áheyrnarfulltrúi, en það gildir um Norðurskautsráðið, eða með setu á ráðherrafundum, sem á við um Eystrasaltsráðið. Norræna ráðherranefndin telur mikilvægt að hafa einnig nánari tengsl við Barentsráðið með því að eiga þar áheyrnarfulltrúa.
    Markmiðið með nánara samráði er að auka hagkvæmni og ná samlegðaráhrifum með því að koma á verkaskiptingu og nýta þannig betur krafta og fjármuni samtakanna fjögurra á þeim sviðum þar sem hagsmunir fara saman og viðfangsefni eru keimlík eða þau sömu. Á árinu hafði Norræna ráðherranefndin frumkvæði að því að haldnir voru fundir með fulltrúum samtakanna þriggja og var einkum unnið að því að koma persónutengslum og upplýsingagjöf í fastari farveg og að skilgreina nánar hvaða viðfangsefnum væri einkum vert að huga að. Samtökin fjögur leggja öll ríka áherslu á umhverfisvernd og sjálfbæra þróun og því er eðlilegt að efla samstarfið á þeim sviðum. Önnur viðfangsefni eru orkumál, heilbrigðismál, mennta- og vísindasamstarf, baráttan gegn skipulagðri glæpastarfsemi og landamærasamstarf.

Staða Færeyja, Grænlands og Álandseyja í norrænu samstarfi.
    Forsætisráðherrarnir fólu samstarfsráðherrunum á fundi sínum í október 2002 að skoða möguleika þess að Færeyjar, Grænland og Álandseyjar fengju aukna aðild að Norrænu ráðherranefndinni. Í framhaldinu beindu Færeyingar því til forsætisráðherra Danmerkur að umsókn um fulla aðild þeirra að Norrænu ráðherranefndinni og Helsingforssamningnum yrði lögð fram. Sú umsókn sem samstarfsráðherra Danmerkur lagði síðan fram f.h. Færeyja var ekki sama efnis og Færeyingar höfðu farið fram á. Þeir mótmæltu þegar í upphafi, er málið var tekið á dagskrá samstarfsráðherra, þeim rökum sem Danir beittu gegn því að leggja fram umsókn Færeyja óbreytta. Þess vegna hefur ekki verið grundvöllur fyrir því að taka málið til meðferðar.

4. Norrænt samstarf á vegum utanríkisráðuneytisins


Almennt.
    Norðurlandasamstarfið hefur ætíð verið einn af hornsteinum íslenskrar utanríkisstefnu. Það er nánast sjálfgefinn og óumdeilanlegur hluti af starfsemi utanríkisþjónustunnar, í ljósi sögulegra, menningarlegra og pólitískra tengsla norrænu landanna og vegna hagnýtrar þýðingar þess fyrir Ísland.
    Samstarf utanríkisráðherra Norðurlanda fer þó ekki fram innan ramma Norrænu ráðherranefndarinnar, heldur eru reglulegir fundir þeirra aðalvettvangurinn fyrir norrænt samstarf á sviði utanríkismála. Fundir utanríkisráðherra Norðurlanda hafa verið haldnir reglulega tvisvar til þrisvar sinnum á ári allt síðan 1946. Þrátt fyrir ólíkar áherslur á ýmsum sviðum í gegnum tíðina, t.d. vegna hlutleysisstefnu tveggja norrænu landanna og aðild þriggja þeirra að ESB, hefur yfirleitt náðst samstaða í þeim milliríkjamálum sem til umfjöllunar hafa verið. Skrifstofustjórar stjórnmálaskrifstofa utanríkisráðuneytanna hittast venjulega til að undirbúa hvern fund utanríkisráðherra Norðurlanda. Aðrir embættismenn norrænu utanríkisráðuneytanna hafa einnig náið og gagnlegt samstarf og samráð um flesta málaflokka sem undir ráðuneytin heyra.
    Frá því að Eystrasaltsríkin þrjú endurheimtu sjálfstæði sitt árið 1991 hafa formleg og óformleg samskipti þeirra og norrænu landanna aukist, ekki síst á sviði utanríkismála. Sem dæmi má nefna að undanfarin ár hefur einu sinni á ári verið haldinn sameiginlegur fundur utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna þriggja og samstarf og samráð embættismanna utanríkisráðuneytanna átta eykst stöðugt.

Fundir utanríkisráðherra Norðurlanda.
    Á árinu voru haldnir þrír fundir utanríkisráðherra Norðurlanda í boði Svía en sú þjóð sem er í formennsku í Norrænu ráðherranefndinni sér um að skipuleggja fundina.
    Fyrsti fundurinn var haldinn í byrjun mars í Torshälla skammt frá Stokkhólmi. Þar ræddu ráðherrar m.a. stöðu mála í Írak og fyrir botni Miðjarðarhafs, málefni ESB og Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og stöðu Rússlands með tilliti til stækkunar ESB. Þá var fjallað um átak Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í baráttunni gegn mansali, sem Anna Lindh, utanríkisráðherra Svía átti frumkvæði að á fundi í Tallinn í ágúst 2002. Staðfest var að skipaður skyldi starfshópur um málið.
    Segja má að dagskrár á fundum utanríkisráðherra Norðurlanda annars vegar og utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna hins vegar, sem fram fóru í Riga í Lettlandi í lok ágústmánaðar, hafi verið með hefðbundnu sniði. Á hinum fyrrnefnda var meðal annars rætt um þróun og stækkun ESB og framtíðarsamstarf á Evrópska efnahagssvæðinu. Utanríkisráðherra lagði m.a. áherslu á hversu mikilvægt væri að gengið yrði frá stækkun EES á sama tíma og samningurinn um stækkun ESB tæki gildi. Á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda með utanríkisráðherrum Eystrasaltsríkja var einnig rætt um evrópsk öryggismál og framtíðarsamstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna með tilliti til aðildar Eystrasaltsríkjanna að ESB. Ástand og horfur í Írak og Mið-Austurlöndum var viðfangsefni beggja funda.
    Þriðji fundur utanríkisráðherra Norðurlanda á árinu var haldinn í Ósló í tengslum við 55. þing Norðurlandaráðs, en þá funduðu þeir einnig með forsætisnefnd ráðsins. Á utanríkisráðherrafundinum var m.a. rætt um stækkun ESB og EES, samvinnu Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna og grannsvæðasamstarf, þ.m.t. við Rússland. Þá var fjallað um málefni Mið-Austurlanda, Íraks, Írans og Norður-Kóreu.
    Í umræðum á þingi Norðurlandaráðs um skýrslur norrænna utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra lagði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra áherslu á mikilvægi áframhaldandi upplýsingamiðlunar og aukins samráðs Norðurlanda um málefni Evrópu í kjölfar fyrirhugaðrar stækkunar ESB. Hann lýsti ánægju með frumkvæði sænskra stjórnvalda að fundum norrænna utanríkisráðherra annars vegar og utanríkisráðherra nokkurra Afríkuríkja hins vegar, þar á meðal nýlegan fund í Mósambík, sem nánar verður fjallað um hér að neðan. Utanríkisráðherra lagði til að fastafulltrúar Norðurlanda hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni ættu fundi með fulltrúum þessara Afríkuríkja og leituðust við að miðla málum. Þannig gætu Norðurlöndin aðstoðað við að brúa þá miklu gjá sem myndast hefði milli norðurs og suðurs.     Í umræðu á Norðurlandaráðsþingi um varnarmál lýsti utanríkisráðherra vilja Íslands til virkari þátttöku í norrænu samráði og samstarfi á sviði varnarmála. Hann nefndi í því sambandi að fundur varnarmálaráðherra Norðurlanda hefði verið haldinn á Íslandi í fyrsta sinn í september sl. og að þá hefði Ísland gerst aðili að formlegri samræmingu Norðurlanda á sviði friðargæslu, NORDCAPS (Nordic Coordinated Arrangement for Military Peace Support). Markmiðið með NORDCAPS er að auka getu og hæfni Norðurlanda til að taka að sér friðar- og öryggisgæslu á átakasvæðum undir sameiginlegri stjórn. Aðkoma Íslands að NORDCAPS er í gegnum Íslensku friðargæsluna og munu einstaklingar af viðbragðslista hennar taka þátt í verkefnum á vegum NORDCAPS í framtíðinni.
    Utanríkisráðherra eða fulltrúi hans sækir að jafnaði reglulega fundi varnarmálaráðherra Norðurlanda sem haldnir eru tvisvar sinnum á ári og fundi ráðuneytisstjóra varnarmála.

Utanríkisviðskipti.

    Utanríkisviðskiptaráðherrar Norðurlanda héldu einnig fund í tengslum við Norðurlandaráðsþingið í Ósló og var m.a. fjallað um stöðuna í viðskiptaviðræðunum hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), innri markaðsmál ESB og afnám viðskiptahindrana á Norðurlöndum.
    Samstarfshópur er um norrænt samstarf í Brussel. Í honum sitja fulltrúar frá fastanefndum norrænu landanna og fulltrúar skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn. Hópur þessi hittist að jafnaði fjórum sinnum á ári. Helstu verkefni hans eru að undirbúa, í samstarfi við norrænu samstarfsnefndina (NSK), árlegan fund samstarfsráðherra Norðurlanda með sendiherrunum sem eru norrænir fastafulltrúar í Brussel; að aðstoða við árlega þjálfunarvist starfsmanna frá Kaupmannahöfn í Brussel og að hafa yfirumsjón með og hvetja til norræns samráðs í Brussel á einstökum fagsviðum. Markmið norræna samstarfsins í Brussel er ekki að löndin séu með samræmda afstöðu til einstakra mála heldur að miðla upplýsingum þeirra í millum.

Samstarf á alþjóðavettvangi.

    Óhætt er að fullyrða að staða norrænu landanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna (S.þ.) er mun sterkari en stærð og fólksfjöldi gefa tilefni til að ætla. Vafasamt er að löndin hefðu getað haft eins mikil áhrif innan samtakanna og raun ber vitni ef þau stæðu ekki saman og kynntu sig oft sem eina heild og málstað sinn sem norrænan. Stuðningur Norðurlanda við S.þ. og hugsjónir þær sem samtökin byggja á hefur ætíð verið mikill. Víða er litið á Norðurlönd sem fyrirmyndar velferðarþjóðfélög og þykir málflutningur þeirra um jafnrétti, jafnræði, frelsi, lýðræði, mannúð og mannréttindi trúverðugur, hvort sem um er að ræða einstaklinga heima fyrir eða þjóðir í samfélagi þjóðanna. Norrænt samstarf, samráð og upplýsingamiðlun um málefni S.þ. er afar mikilvæg til að viðhalda og efla stöðu Norðurlanda á vettvangi S.þ.
    Norðurlönd vinna iðulega sameiginlega að ýmsum málum sem eru á dagskrá S.þ. og endurspegla megináherslur í utanríkisstefnu þeirra. Samstarf fastanefnda Norðurlanda hjá S.þ. í New York er því mikilvægur þáttur í starfsemi fastanefndar Íslands.
    Tvö af meginverkefnum utanríkisþjónustunnar á næstu árum varða þátttöku Íslands í starfsemi S.þ., þ.e. framboð Íslands til setu í öryggisráði S.þ. 2009–2010 og formennska Íslands fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í framkvæmdaráði Alþjóðabankans. Norrænt samstarf er sérlega mikilvægt með tilliti til þessara verkefna og málefna sem tengjast þeim, eins og fram kemur hér á eftir.
    Ákvörðun um framboð Íslands til öryggisráðs S.þ. var tekin árið 1998 en það var formlega tilkynnt aðildarríkjum S.þ. haustið 2003. Framboð til öryggisráðsins er staðfesting á stöðu Íslands á alþjóðavettvangi og þeirri ábyrgð sem Íslendingar hafa axlað. Með því gefst einstakt tækifæri til að halda fram megináherslum í utanríkisstefnu Íslands og annarra Norðurlanda, en það er lykilatriði að Ísland býður sig fram sem eitt af norrænu löndunum. Samvinna við þau, bæði í framboðinu og við upplýsingaöflun um þau mál sem tekin verða fyrir í öryggisráðinu, mun skipta miklu.
    Samstarf norrænu landanna í marghliða þróunarsamvinnu er umfangsmikið. Í Alþjóðabankanum er samráð einkar náið og í október tók Ísland við mikilvægri ábyrgðarstöðu innan þessarar stærstu þróunarstofnunar heims þegar Þorsteinn Ingólfsson sendiherra tók við stöðu stjórnarfulltrúa fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna. Þessi lönd mynda kjördæmi í bankanum og starfrækt er sérstök skrifstofa í Alþjóðabankanum þar sem ríkin átta skipa einn fulltrúa hvert. Að auki eiga viðkomandi ráðuneyti á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum með sér mjög náið samráð um þau mál er upp koma í stjórn bankans. Utanríkisráðuneytið á Íslandi leiðir þá málefnavinnu sem fer fram meðal annars með vikulegum símasamráðsfundum og fyrirmælum til skrifstofu kjördæmisins í bankanum. Sem liður í undirbúningi utanríkisráðuneytisins var starfsmaður þess sendur til starfa í utanríkisráðuneyti Danmerkur í hálft ár þar sem hann starfaði að málefnum Alþjóðabankans.
    Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, sat óformlegan samráðsfund utanríkisráðherra Norðurlanda og utanríkisráðherra Benín, Botsvana, Gana, Malí, Mósambík, Nígeríu, Senegal, Suður-Afríku og Tansaníu sem haldinn var í Pemba í norðurhluta Mósambík í október sl. Helstu umfjöllunarefni fundarins voru staða Afríkusambandsins og framkvæmd svonefnds endurnýjaðs samstarfs um þróun Afríku (NEPAD) og málefni Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) Meðal annars var ákveðið, að frumkvæði Halldórs Ásgrímssonar, að norrænir fastafulltrúar við Alþjóðaviðskiptastofnunina í Genf fylgdu eftir áherslu ráðherranna að koma svonefndum DOHA-viðræðunum á rekspöl eftir vonbrigðin með niðurstöður fundar Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í Cancun.
    Utanríkis- og þróunarmálaráðherrar Norðurlanda samþykktu í október sameiginlega yfirlýsingu um þúsaldarmarkmið S.þ. og mikilvægi þess að efna skuldbindingar svo að þeim megi ná.
    Norrænt samstarf á sviði tvíhliða þróunarsamvinnu var með hefðbundnum hætti á árinu, en framkvæmdastjórar þróunarsamvinnustofnana á Norðurlöndum hittast að jafnaði tvisvar sinnum á ári. Einnig fóru fram sérfræðingafundir á hinum ýmsu sviðum þróunarsamvinnu og sóttu þá ýmsir embættismenn.
    Samráð norrænu landanna um málefni þriggja stofnana S.þ. í Róm fer fram á milli höfuðborganna og hjá fastanefndum í Róm. Þessar stofnanir eru Matvæla- og landbúnaðarstofnun S.þ. (FAO), Alþjóðasjóður um þróun landbúnaðar (IFAD) og Matvælaáætlun S.þ. (WFP). Reglulegir samráðsfundir eru milli fastanefndanna í Róm þar sem málefni allra stofnana eru rædd.
    Samráð Norðurlanda um málefni Þróunarstofnunar S.þ. (UNDP) fer að mestu leyti fram hjá fastanefndum í New York og þá aðallega í tengslum við fundi framkvæmdastjórnar UNDP og Mannfjöldasjóðs S.þ. (UNFPA) sem fara fram í janúar og september á hverju ári. Vegna aukinna ábyrgðarstarfa utanríkisráðuneytisins í marghliða þróunarstarfi hefur samráð verið aukið við norrænt samstarfsfólk og skrifstofu UNDP í Kaupmannahöfn.

Annað samstarf og samráð.

    Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, skrifstofustjórar og ýmsir aðrir embættismenn eiga reglulega fundi með norrænum starfsbræðrum, og í mörgum tilvikum er einnig náið samráð á milli funda. Þá eiga fulltrúar sendiráða Íslands erlendis yfirleitt mikið og gott samstarf við norræna sendierindreka á staðnum, bæði í höfuðborgum Norðurlanda og annars staðar þar sem norrænar sendiskrifstofur starfa. Sendiráð skiptast á upplýsingum og hafa samráð í ýmsum málum er varða sameiginlega hagsmuni ríkjanna. Óformleg tengsl sendierindreka við embættismenn í stjórnkerfi, stjórnmálamenn og forystumenn í stjórnmála-, viðskipta- og menningarlífi eru mjög mikilvæg. En vegna opinna og vandalausra samskipta sín á milli geta norrænir sendierindrekar oft nýtt sér sambönd hvers annars með góðum árangri. Eins og áður segir er ímynd Norðurlanda yfirleitt mjög góð á alþjóðavettvangi og eru flestar dyr því opnar norrænum sendierindrekum, sérstaklega þegar þeir koma fram sem ein heild. Rétt er að minna á að hið verðmæta samráð milli utanríkisráðuneyta Norðurlanda og norrænna sendierindreka hvar sem þeir starfa, og farið er að líta á sem sjálfsagðan hlut, byggir að sjálfsögðu á langri hefð og sameiginlegri menningarlegri og sögulegri fortíð. Í breyttum heimi með breyttum tengslamynstrum er mikilvægt að vel sé hlúð að sameiginlegum norrænum gildum til þess að viðhalda vitund um og þekkingu á þeim menningarlega og sögulega skyldleika sem er forsenda þeirra nánu formlegu og óformlegu tengsla milli landanna sem við búum við.
    Eins og fram kemur hér að fra.an eru náin tengsl, samráð og samvinna milli embættismanna flestra skrifstofa og deilda utanríkisráðuneyta Norðurlanda, auk þess sem norrænir sendierindrekar í öðrum ríkjum eiga yfirleitt gott samstarf með reglulegum fundum. Ísland hefur ótvírætt mikið gagn af þessum tengslum. Til að efla þau enn frekar, einkum meðal yngri embættismanna, efndi utanríkisráðuneytið til námsstefnu fyrir unga norræna diplómata í október sl., en samkvæmt ákvörðun ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneyta Norðurlanda er gert ráð fyrir að slíkar námsstefnur verði haldnar árlega, til skiptis í löndunum fimm. Í stuttu máli má segja að markmiðið sé að vekja og viðhalda áhuga á norrænu samstarfi við upphaf starfsferils ungra diplómata, að kynna land gestgjafans hverju sinni með áherslu á menningarleg, söguleg og pólitísk tengsl á Norðurlöndum, að styrkja stöðu norrænna tungumála í samstarfi utanríkisráðuneyta Norðurlanda og almennt að efla skilning á mikilvægi norræns samstarfs.
    Á formennskuári Íslands í Norrænu ráðherranefndinni mun utanríkisráðuneytið leggja sérstaka áherslu á að efla þekkingu og skilning á norrænu samstarfi meðal embættismanna utanríkiráðuneytisins m.a. með því í að gefa þeim tækifæri til að bæta kunnáttu sína í norrænum tungumálum og þekkingu á norrænum málefnum.


5. Menningarmál



    Samstarf um menningarmál er umfangsmikið hjá Norrænu ráðherranefndinni og tekur til margháttaðrar starfsemi. Á vegum ráðherranefndarinnar um menningarmál störfuðu á árinu 8 stofnanir: Norræna húsið í Reykjavík, Norðurlandahúsið í Færeyjum, Norræna stofnunin í Grænlandi (NAPA), Norræna stofnunin á Álandseyjum (NIPÅ), Norræna fjölmiðlamiðstöðin (NJC), gagnamiðstöð um fjölmiðlarannsóknir (NORDICOM), listamannasetur í Dalsåsen og stofnun fyrir samtímalist í Sveaborg (NIFCA). Í lok ársins var ákveðið að flytja norrænu stofnunina í Finnlandi (NIFIN) af menntamálasviði til menningarsviðs, því starfsemin er mjög svipuð þeirri, sem fram fer í öðrum norrænum menningarstofnunum. Tveir sjóðir eru starfandi á sviði menningarmála; Norræni menningarsjóðurinn og Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn auk SLEIPNIS, sem veitir ungum listamönnum ferðastyrki. Stjórnar- og listanefndir eru níu: Stjórnarnefnd um menningarverkefni erlendis, stjórnarnefnd um samstarf um fjölmiðla og menningarmál, samstarfsnefnd um Norðurlandafræðslu erlendis, stjórnarnefnd um samstarf um barna- og æskulýðsmenningu, norræn æskulýðsnefnd, bókmennta- og bókasafnanefnd (NORDBOK), tónlistarnefnd (NOMUS), sviðslistanefnd (NORDSCEN) og norræna menningararfsnefndin. Norræna ráðherranefndin um menningarmál styrkir norrænt listamannasetur í Róm þar sem 2–3 íslenskir listamenn dvelja ár hvert.
    Norrænu menningarmálaráðherrarnir héldu þrjá fundi á árinu. Svíar hafa í formennskustarfi sínu lagt á það áherslu að uppbygging menningarsamstarfsins verði endurskoðuð. Í þessu skyni var unnin greinargerð um núverandi uppbyggingu menningarsamstarfsins. Á grundvelli tillagna sem fylgdu henni ákváðu ráðherrarnir að skoðað verði hvort unnt sé að sameina rekstur nefnda og ráða og jafnvel stofna norrænt menningarráð sem m.a. eigi að sjá um styrkveitingar og veita umsagnir og undirbúa mál fyrir ráðherrana. Á vettvangi ráðherranefndarinnar urðu einnig allmiklar umræður um hvernig standa eigi að því að stofna til norrænna kvikmyndaverðlauna, en Norðurlandaráð hefur ályktað um þau mál þannig að til þeirra ætti að stofna. Þá er áhugi á að stofnað verði til norræns margmiðlunarverkefnis sem sérstaklega yrði fyrir börn og ungt fólk. Árið hefur verið notað til að skoða gagnsemi slíks verkefnis fyrir norrænt samstarf.
    Sænska ljóðskáldið Eva Ström fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs á árinu og norrænu tónlistarverðlaunin fékk samíski listamaðurinn Mari Boine frá Noregi.
    Í nóvember sl. undirrituðu á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn menningarmálaráðherrar Íslands, Færeyja og Grænlands samstarfssamning um menningu, menntamál og rannsóknir til þriggja ára. Er þetta í þriðja sinn sem slíkur samningur er undirritaður og er góður árangur af þessu samstarfi landanna á milli. Nú er lokið verkefnum fyrri samnings með ráðstefnu í Færeyjum um málvísindi. Einnig var unnið að því að efla íþróttasamstarf milli landanna með því að mynda tengsl milli ungra íþróttaleiðtoga og koma upp samskiptaneti. Þá var innan ramma samningsins komið á samstarfi á sviði upplýsingatækni milli grunnskóla og framhaldsskóla. Helstu verkefni næstu ára er að þjálfa stjórnendur í barna- og unglingastarfi, að örva áhuga og hæfileika í ritlist og að kynna nútímasögu Vestur-Norðurlanda. Við sama tækifæri í nóvember voru undirritaðar reglur um vestnorræn barnabókaverðlaun sem er samstarfsverkefni Vestnorræna ráðsins og menningarmálaráðherra Íslands, Færeyja og Grænlands.
    Ísland tekur við formennsku í Norræna menningarsjóðnum árið 2004. Rannveig Guðmundsdóttir alþingismaður verður formaður.
    Til norræns íþróttasamstarfs er veitt rúmlega 1,2 millj. d.kr. Aðaltilgangur fjárveitingarinnar er að efla þátttöku barna og unglinga, kvenna og fatlaðra í íþróttastarfi, styrkja samstarfið milli landanna í útnorðri, Grænlands, Íslands og Færeyja, og á milli þeirra og annarra Norðurlanda. Einnig er veittur lítils háttar styrkur til Sama og skólaíþrótta. ÍSÍ fer með umsjón þess sem fellur í hlut Íslands, en það er um helmingur fjárveitingarinnar. Þá undirrituðu ráðherrar íþróttamála á fundi sínum í Ósló í október sl. yfirlýsingu ríkisstjórna Norðurlanda sem er viðbót við samstarfssamning þeirra um íþróttamál frá 1994.
    Norræna æskulýðsnefndin vann áfram að því að framfylgja þverfaglegri verkefnaáætlun 2001–2005. Meðal þess sem nefndin fjallaði um á árinu var (a) skipulag á starfi umsjónaraðila æskulýðsrannsókna, (b) upplýsinganet, (c) útboð á umsýslu umsókna.
    Unnið var að því að finna lausn á því hvernig best væri að koma á laggirnar miðlægum upplýsingagrunni um æskulýðsmál. Samþykkt var að leita til „Valhalla“, norræna upplýsinganetsins um barna- og unglingamenningu, með beiðni um vistun á slíkri heimasíðu.
    Á árinu héldu Svíar fjölmenna ráðstefnu „Involvera nu“, sem fjallaði um lýðræði í fjölmenningarlegu samfélagi og þátttöku ungs fólks í því.
    Stjórnarnefnd um barna- og unglingamenningu hefur unnið áfram að framgangi starfsáætlunar um menningarsamstarf á sviði barna- og unglingamenningar sem menningarmálaráðherrarnir samþykktu árið 2002. Gildir hún til ársins 2006 og er áhersla á verkefni á fjórum meginsviðum: fjölmenningarsamfélög á Norðurlöndum, leiki og leikjahefðir, nýja miðla og ný tjáningarform barna og unglinga, þekkingu og reynslu. Á árinu hefur stjórnarnefndin þróað nýja aðferð við að ná markmiðum áætlunarinnar. Frá miðju ári 2003 hætti nefndin að taka við styrkumsóknum og leggur nú áherslu á að vinna að færri og stærri samstarfsverkefnum. Í lok ágúst var haldið málþing í Malmö, þar sem fundað var með helstu stofnunum og aðilum í norrænu barnamenningarstarfi og verða í framhaldi af því valdir samstarfsaðilar til að vinna að verkefnum og þróa hugmyndir á áherslusviðunum fjórum.
    Haldið var áfram vinnu við upplýsinganetið „Valhalla“ en verið er að endurskipuleggja alla starfsemi þess og tengja það gagnabanka norræna skólanetsins. Er áætlað að endurskipulagningu „Valhalla“ verði lokið árið 2005 og þá verði ritstjórn þess boðin út.
    Stjórnarnefnd um menningu og fjölmiðla hefur á undanförnum árum unnið að tillögum um hvernig standa megi að norrænum sjóði er styrki framleiðslu stafræns efnis fyrir nýja miðla. Þær hugmyndir voru útfærðar enn frekar á árinu, m.a með aðstoð starfshóps. Hugmyndir nefndarinnar hafa fengið góð viðbrögð og verður nú unnið að því að hrinda þeim í framkvæmd.
    Þá hefur nefndinni verið falið að kanna möguleika þess að koma á kvikmyndaverðlaunum Norðurlandaráðs og gerð var skýrsla um áhrif samruna fjölmiðla á Norðurlöndum sem hægt er að nálgast á heimasíðunni www.norden.org.
    Netmiðillinn „Medier i Norden“ verður sameinaður NORDICOM frá og með næstu áramótum.
    Skrifstofa NORDBOK flutti í ársbyrjun frá Biblioteksstyrelsen í Danmörku til ABM utvikling í Ósló.
    Fulltrúi Íslands tók þátt í stýrihópi verkefnisins: „Kompetanseutvikling for medarbeidere i kulturinstitusjoner – omstilling til et multikulturelt samfunn“. Þetta er sameiginlegt verkefni NORDBOK og Norrænu safnanefndarinnar og lýkur því vorið 2004.
    Elísabet Gunnarsdóttir frá Ísafirði var ráðin forstöðumaður listamannasetursins að Dalsåsen frá október sl. til næstu fjögurra ára.
    Á síðastliðnum árum hefur Norræna ráðherranefndin lagt fram fjármagn til viðhalds Norræna hússins í Reykjavík, bæði að innan og að utan og var því verki haldið áfram á árinu. Menntamálaráðherra hefur að tillögu húsafriðunarnefndar friðað ytra borð Norræna hússins og almenningsrými þess. Nýr forstjóri Norræna hússins, Gro Kraft frá Noregi, tók við í upphafi árs af Riittu Heinämaa frá Finnlandi sem verið hafði forstöðumaður í fimm ár.
    Rætt var við Háskóla Íslands og skipulagsstjórn Reykjavíkur vegna lóðar Norræna hússins og afmörkun hennar frá lóð HÍ og nábýlis við Náttúrufræðahús háskólans.
    Norræn stofnun á Álandseyjum (Nordens institut på Åland) hefur það hlutverk að greiða fyrir alhliða menningarsamskiptum milli íbúa á Álandseyjum og annars staðar á Norðurlöndum og stuðla um leið að því að efla álenskt menningarlíf. Í gildi er árangursstjórnunarsamningur milli stofnunarinnar og Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir tímabilið 2003–2005. Samkvæmt honum er gert ráð fyrir að megináhersla sé lögð á þrjú verkefnasvið: (1) Barna- og æskulýðsmenningu, m.a. í dreifðum byggðum Álandseyja. (2) Miðlun upplýsinga um Norðurlönd og kynningu á norrænum bókmenntum. (3) Norræn menningarsamskipti með þátttöku álenskra listamanna í samstarfsverkefnum.
    Stjórnarnefnd norrænna menningarkynninga erlendis hefur unnið að því að skýra markmið og starfsaðferðir við kynningarnar og er gert ráð fyrir að í kjölfar ráðstefnu haustið 2004 verði hægt að leggja fram fullmótaða áætlun.
    Á árinu var opnuð norræn hönnunarsýning í Berlín og mun hún fara til fjölmargra borga í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada. Sýningarlok eru áætluð árið 2006.
    Helsta verkefni ársins 2004 er umfangsmikil menningarkynning á Balkanskaga og hefur undirbúningsvinnan staðið yfir síðastliðin tvö ár. Nokkur verkefni, sem tilheyra kynningunni, eru þegar hafin eins og t.d. vinnustofur listaháskóla á Norðurlöndum og á Balkanskaga.
    Víkingasýningunni lauk í Kanada sl. sumar og höfðu þá um 6 milljónir gesta séð hana. Stjórnarnefndin styrkti norræna barna- og unglingaleikhúshátíð í Skt. Pétursborg og var það jafnframt helsta framlag hennar til hátíðarhalda í tilefni af 300 ára afmæli borgarinnar.
    Network North verkefninu lauk formlega á árinu. Samstarfið þykir vel heppnað og það er talið geta eflt til muna samvinnu listamanna og stofnana á Bretlandseyjum og Norðurlöndum.

6. Menntun og rannsóknir


    Umfangsmikið samstarf um menntamál og rannsóknir fer fram innan Norrænu ráðherranefndarinnar. Það tekur til grunn- og framhaldsskólastigs, fullorðinsfræðslu, háskóla og rannsókna. Samstarfið felst einkum í starfsemi stofnana, styrkjakerfum og verkefnum sem stjórnað er af stjórnarnefndum, sem hafa m.a. umsjón með faglegum vinnuhópum er starfa tímabundið. Að jafnaði er lögð áhersla á samfellu í starfseminni og er verkefnum sem mótuð hafa verið af fyrrverandi formennskulöndum fylgt eftir.
    Undir forystu Íslands árið 1999 var unnið að því að móta heildarstefnu um Norðurlönd sem forgangssvæði í þróun mannauðs. Hún nær til tímabilsins 2000–2004. Ráðherranefndin um menntamál og rannsóknir lagði á þingi Norðurlandaráðs í nóvember 1999 fram tillögu um stefnumótun fyrir tímabilið 2000–2004 og var hún samþykkt. Megináhersla er lögð á miðlun reynslu og samvinnu um þróunarstarf á vettvangi menntunar og rannsókna og aukinn hreyfanleika nemenda, kennara og vísindamanna milli landanna. Sérstök áhersla er lögð á símenntun. Markmiðið er að stuðla að því að hið norræna samfélag í menntamálum og rannsóknum verði virkur vettvangur fyrir pólitíska úrvinnslu þeirra málefna sem eru á döfinni, vettvangur þar sem menn geta lært af reynslu hvers annars og þróað samnorrænar aðgerðir. Lögð er áhersla á skýrari verkaskiptingu milli landanna og að skilgreind verði betur þau verkefni sem skynsamlegra þykir að vinna að sameiginlega en í hverju landi fyrir sig.     Á sviði menntamála og rannsókna hefur áfram verið unnið að því að efla samstarf Norðurlanda, styrkja samstarf við önnur Evrópuríki sem og við grannsvæðin. Stefnt er að því að jafn auðvelt verði að mynda tengsl, skiptast á hugmyndum og flytjast frá einu fræðslu- og rannsóknarumhverfi til annars á Norðurlöndum og innan eigin lands.
    Ráðherranefnd menntamála og rannsókna heldur þrjá fundi árlega. Frá 1998 hafa ráðherrarnir m.a. rætt ákveðin þemu á fundum sínum, um mat og gæði í skólastarfi á öllum skólastigum að háskólastigi meðtöldu, stöðu norrænna málsamfélaga í ljósi hraðfara þróunar í upplýsingatækni og æðri menntun á Norðurlöndum, lagskiptingu nemenda í háskólum, fjármögnun og þróun háskóla á Norðurlöndum, svæðisháskóla, þróunarsamvinnu, æðri menntun í ljósi svokallaðs Bolognaferlis og raunfærni fólks til náms og starfa.

Norrænar stofnanir.

    Staða stofnana sem reknar eru af Norrænu ráðherranefndinni á sviði mennta og vísinda hefur um nokkurt skeið verið til umræðu. Norræna ráðherranefndin ákvað á árinu að breyta stöðu þeirra og færa ábyrgð á þeim yfir á aðildarlöndin. Á grundvelli úttektar sem gerð var fyrir nefndina var ákveðið að ganga til samninga við stjórnvöld í hverju landi með það fyrir augum að færa til þeirra ábyrgð á rekstri stofnananna og á fjórum árum lækka framlög ráðherranefndarinnar niður í helming þess sem var að raunvirði árið 2003. Þetta gæti losað um 25 millj. d.kr. sem yrði varið til nýrra verkefna, sérstaklega til „Norrænna öndvegissetra“. Þær stofnanir sem um ræðir eru:
–     Nordita – Norræna eðlisfræðistofnunin í Danmörku.
–     Nordvulk – Norræna eldfjallastöðin á Íslandi.
–     NIAS – Norræna Asíurannsóknastofnunin í Danmörku.
–     NIfS – Norræna sjóréttarstofnunin í Noregi.
–     NSI – Norræna samastofnunin í Finnlandi.
–     Nordinfo – Norræna bókasafnastofnunin í Finnlandi (verður lögð niður).
–     NIFIN – Norræna stofnunin í Finnlandi.
    Hér á landi hefur verið ákveðið að sameina Norrænu eldfjallastöðina jarðvísindadeild Raunvísindastofnunar háskólans og fá henni setur í hinu nýja Náttúrufræðahúsi við Háskóla Íslands.

Fastar nefndir.

    Á vegum ráðherranefndar um menntamál og rannsóknir starfa þrjár stjórnarnefndir, ein sér um samstarf um skólamál (NSS), önnur um æðri menntun (HÖGUT) og sú þriðja um fullorðinsfræðslu (SVL). Embættismannanefnd undirbýr m.a. ráðherrafundi auk annarra verkefna sem henni eru falin af ráðherranefndinni. Í stjórnarnefndunum NSS og FOVU eiga sæti einn fulltrúi frá hverju norrænu landanna en tveir í stjórnarnefndinni HÖGUT auk fulltrúa frá Grænlandi og Færeyjum. Verksvið nefndanna nær til grunnskóla og framhaldsskóla, skóla á háskólastigi og fullorðinsfræðslu. Auk stjórnarnefndanna starfa vinnuhópar að tilteknum verkefnum. Á vegum stjórnarnefndanna voru haldnar fjölmargar ráðstefnur á árinu um þau málefni sem undir þær heyra.

Samstarf um skólamál.
    NSS-stjórnarnefndin hefur umsjón með norrænu samstarfi um skólamál. Verksvið NSS nær til leik-, grunn- og framhaldsskóla. Áherslurnar í starfi nefndarinnar beinast að því að bæta skólastarf á Norðurlöndum og í því skyni fjallar nefndin um mál sem eru efst á baugi á hverjum tíma, ber saman lausnir og aðferðir sem beitt hefur verið í einstökum löndum og miðlar upplýsingum um skóla og skólastarf til þeirra sem hlut eiga að máli.
    Samkvæmt starfsáætlun byggist samstarfið á þremur meginþáttum:
–     Samstarfi norrænu landanna.
–     Samstarfi við grannsvæðin.
–     Tengslum við verkefni á vettvangi ESB.
    Í samræmi við verkáætlun fyrir tímabilið 2000–2004 fellur starfsemi nefndarinnar innan fjögurra meginsviða, þ.e. símenntunar, gilda, sýnileika (synlighed) og gæða í skólastarfi. Helstu verkefni sem komið hafa upp í samstarfinu má fella undir eitthvert þessara sviða.
    Eins og fyrr hefur samstarfið verið gagnlegt og hefur gert Íslendingum kleift að fylgjast með því sem er að gerast annars staðar á Norðurlöndum og víðar og haft áhrif á umræður um skólamál hér á landi. Vandamál sem upp koma í skólastarfi eru yfirleitt ekki bundin við einstök lönd og ýtir norræn samvinna undir nánara samstarf á þessu sviði.

Samstarf um fullorðinsfræðslu.

    Stjórnarnefndin um fullorðinsfræðslu (Styregruppe for Voksen Lering) fjallar um menntun fullorðinna og málefni sem eru efst á baugi á því sviði hverju sinni að undanskyldum þeim er falla undir verksvið háskólanefndarinnar.
    Helstu áherslur ársins hafa verið á verkefni er tengjast símenntun fullorðinna, viðurkenningu á reynslu og þekkingu þeirra sem hafa litla eða takmarkaða formlega menntun, fjarkennslu, nýbúafræðslu auk samstarfs við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland um fullorðinsfræðslu og símenntun. Í starfi sínu reynir nefndin að miðla þekkingu og reynslu milli landa, til norrænna félagasamtaka sem starfa á sviði fullorðinsfræðslu sem og annarra sem hlut eiga að máli. Samstarfið hefur verið gagnlegt fyrir Ísland og stuðlað að aukinni þekkingu á þessum málaflokki.

Norræn málnefnd.
    Norræna málnefndin var samstarfsvettvangur málnefnda á Norðurlöndum og vann að málefnum sem tengjast verksviði hverrar nefndar ásamt því að vera sérfræðivettvangur fyrir Norðurlandaráð og Norrænu ráðherranefndina.
    Málnefndirnar eru 10 talsins: Dansk Sprognævn, finnska málnefndin og Finnlandssænska málnefndin (fyrir þeirra hönd annast Forskningscentralen för de inhemska språken í Helsingfors um samstarfið), Føroyska málnevndin, Íslensk málnefnd, Norsk språkråd, Oqaasiliortut (Grønlands Sprognævn), Sámi giellalávdegoddi (Sametingets språkstyre), Svenska språknämnden og Sverigefinska språknämnden.
    Markmið samstarfsins í norrænu málnefndinni var að stuðla að bættum málskilningi á Norðurlöndum og að efla norræn tungumál og auðvelda notkun þeirra innan og utan Norðurlanda, m.a. með þátttöku í evrópsku málasamstarfi. Norræna málnefndin hafði samstarf við önnur mála- og íðorðasamtök innan og utan Norðurlanda.
    Norræna málnefndin efndi á árinu til eða tók þátt í 14 fundum og ráðstefnum um norræn mál og málrækt og gaf út 6 bækur um efnið. Á vegum nefndarinnar var áfram unnið að tveimur viðamiklum rannsóknarverkefnum. Jafnframt studdi hún fjárhagslega við orðabókarverkefni í fámennustu málsamfélögunum, þ.e. í færeysku, grænlensku, íslensku og samísku.     Á árinu samþykkti Norræna ráðherranefndin skipulagsbreytingar m.a. um norrænt málasamstarf. Ný samstarfsáætlun, Nordplus Språk, hóf göngu sína í byrjun árs 2004 og nýtt málráð Norðurlanda hefur yfirumsjón með henni. Verkefni, sem norræna málnefndin hefur hingað til séð um, munu falla undir nýju áætlunina.

Samstarf um æðri menntun.

    HÖGUT hefur umsjón með samstarfi um æðri menntun á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar. Helsta hlutverk nefndarinnar er að efla norrænt samstarf um æðri menntun m.a. með athugunum, verkefnum, ráðstefnum og samráði við háskóla. Á verksviði nefndarinnar eru meðal annars verkefni á sviði grunnmenntunar og rannsókna og auk þess hefur hún umsjón með Nordplus-áætluninni sem felst í stúdenta- og kennaraskiptum. Á hverju ári taka alls um 5000 norrænir nemendur og kennarar þátt í áætluninni. Nordplus veitir námsmönnum tækifæri til að stunda hluta af námi sínu, í allt að eitt ár, við háskóla annar staðar á Norðurlöndum og fá námið metið að fullu til eininga í heimalandi sínu. Þá er gefinn kostur á kennaraskiptum og fleiru er lýtur að kennslustörfum
    Í upphafi árs 2001 var samþykkt ný starfsáætlun HÖGUT fyrir árin 2002–2004. Forgangsverkefni eru valin með hliðsjón af eftirfarandi sviðum:
–     Norðurlönd sem leiðandi á sviði aukinnar hæfni og ævilangrar menntunar.
–     Auknir möguleikar upplýsingatækni.
–     Aukin gæði æðri menntunar.
–     Alþjóðavæðing og stuðningur við hreyfanleika
    Á grundvelli þessarar starfsáætlunar vann HÖGUT nákvæmari verkefnaáætlun er samþykkt var af embættismannanefndinni (EK-U) fyrri hluta árs 2001.
    Gildistími samnings um aðgang að æðri menntun rann út við lok ársins. Meginatriði hans er að allir norrænir stúdentar hafi jafnan aðgang að öllum háskólum á Norðurlöndum. Í samningnum eru ákvæði um greiðslukerfi sem Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð hafa tekið upp sín á milli. Samkvæmt þessu kerfi skulu þau ríki sem senda frá sér fleiri stúdenta en þau taka á móti greiða ákveðið gjald fyrir mismuninn. Ísland hefur verið undanþegið þessum ákvæðum. Þá er jafnframt í gildi samkomulag milli Noregs og Danmerkur um kvóta á fjölda námsmanna í ákveðnum greinum. Samkomulag náðist á árinu um að framlengja samninginn óbreyttan til þriggja ára, 2004–2006.

Norrænt rannsóknarsamstarf.
    Norrænt vísindastefnuráð (Nordisk Forskningspolitisk Råd, FPR) hefur starfað frá árinu 1983 og verið ráðgefandi fyrir ráðherranefnd menntamálaráðherranna um vísindarannsóknir og rannsóknamenntun. Helsta hlutverk ráðsins er að leggja fyrir ráðherranefndina tillögur um norræna rannsóknarstefnu og stuðla að markvissri forgangsröðun verkefna þar sem tekið er tillit til stefnumála aðildarlanda. Ráðið er umsagnaraðili um stuðning ráðherranefndarinnar við samstarf um rannsóknir og vísindamenntun. Ráðið hélt fimm fundi á árinu
    Um þessar mundir blása nýir vindar um norræna samstarfið á sviði vísinda og tækni. Vaxandi áhugi er á því að efla vísindasamstarfið og tengja það betur við tækniþróun og stuðning við nýsköpun í hagkerfi hins nýja þekkingarsamfélags þar sem viðskiptaöfl hnattvæðingar eru ráðandi. Norrænu löndin eru fámenn í því samhengi, en standa þó öll framarlega á sviði vísinda og tækniþekkingar og koma afar vel út í alþjóðlegum samanburði á árangri í vísindum og nýsköpun. Að undanförnu hefur því verið mikil umræða um að nýta þennan innri styrk landanna til að treysta stöðu þeirra hagrænt og félagslega á tímum hnattvæðingar og auka þar með áhrif þeirra á alþjóðavettvangi.
    Vandinn er hins vegar sá að fjármunir sem löndin verja sameiginlega til rannsókna og stuðnings við nýsköpun í gegnum norræna sjóði og stofnanir eru hverfandi í samanburði við framlög þeirra til rannsóknaáætlunar ESB og til rannsókna heima fyrir. Norræna ráðherranefndin á sviði menntamála hefur því með aðstoð FPR látið kanna með hvaða hætti væri unnt að endurskipuleggja stuðning við vísindi og tækni með það fyrir augum að löndin verði sameiginlega í fremstu röð þjóða og geti starfað sem best saman gagnvart umheiminum.
    Liður í þessu hefur verið að veita fé til að styðja nýtt fyrirkomulag í norrænni rannsóknarsamvinnu. Þetta felst í því að rannsóknarhópar og stofnanir sækja á samkeppnisgrundvelli um tímabundin fjárframlög og um að vera útnefnd sem „Norræn öndvegissetur“ (Nordic Centres of Excellence). Er þetta m.a. gert til að hvetja norræna vísindasamfélagið til að leggja fram öflugustu hugmyndir sínar og gera það sýnilegt á alþjóðlegum vettvangi. Fyrstu fjögur öndvegissetrin voru sett á laggirnar á árinu.
    Ráðherranefndin hefur látið gera svonefnda hvítbók undir heitinu „NORIA – Nordisk forskning och innvation – globalt ledande genom ökat samarbete“ Í niðurstöðum er lagt til veruleg endurskipulagning og sameining ýmissa þátta á starfinu með það fyrir augum að auka bolmagn í samstarfi og efla samræmi milli vísindarannsókna og stuðnings við nýsköpun. Einnig er gert ráð fyrir auknu beinu samstarfi systurstofnana í löndunum á norrænum grundvelli. Skýrslan fékk góðar móttökur hjá ráðherrunum og var ákveðið að senda hana til umfjöllunar hjá stofnunum og samtökum í aðildarlöndunum. Stefnt er að endanlegri ákvörðun um stefnumótun á þessu sviði árið 2004.

Ráðgjafanefnd um upplýsingatækni.
    Þróunarverkefni um tölvunet fyrir vísindarannsóknir, NORDUnet3, var til umfjöllunar á árinu í ráðgjafanefnd um upplýsingamál og lauk með því að það verður gert að styrkjakerfi til áframhaldandi verkefna sem byggja á rannsóknum. Það tengist NORDUnet a/s í rekstri og verða fyrstu styrkir auglýstir 2004. Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna var til umfjöllunar og mælt með að kanna samstarf á sviði rannsókna, háskóla á Neti og þróunarstarfs framhaldsskóla. Hópurinn vann að umsögnum og mati á tillögum um skipulag norrænna nefnda í menntun og rannsóknum. Gæðatrygging fyrir notkun upplýsingatækni í skólum og öryggismál voru til umræðu og lögðu Svíar fram matsskýrslu sem lagt var til að lögð yrði til grundvallar í norrænt verkefni. Áhersla var lögð á stefnu í upplýsingatækni til næstu 2–5 ára og fengnar kynningar hjá þeim fyrirtækjum og stofnunum sem eru í fararbroddi á Norðurlöndum í menntun og rannsóknum. Ákveðið var að leggja áherslu á samvinnuverkefni um netháskóla og á vegum Norræna skólanetsins fyrir grunn- og framhaldsskóla.

7. Upplýsingatækni


    Embættismannanefnd um upplýsingatækni (EK-IT) hélt fjóra fundi á árinu og undirbjó árlegan ráðherrafund upplýsingatækniráðherra (MR-IT).

Ráðherrafundur um upplýsingatækni.
    Fjármálaráðherra, Geir H. Haarde, sótti fund norrænna upplýsingatækniráðherra (MR-IT) sem haldinn var í Karlskrona í Svíþjóð í október sl. Í tengslum við fundinn var haldið málþing sem bar yfirskriftina „Rafræn stjórnsýsla og norræn samþætting“. Fjármálaráðherra hélt þar erindi um samþættingu í íslenskri stjórnsýslu. Einnig var kynnt samstarf sænskra fyrirtækja og opinberra aðila um þróun tæknilausna fyrir upplýsingasamfélagið. Þetta samstarf hefur gefið góða raun og ber yfirskriftina „Telekom City“ (www.telecomcity.org).
    Í samræmi við stefnuyfirlýsingu og aðgerðaáætlun, er samþykkt var á ráðherrafundi 2002, var unnið að eftirtöldum málum:

Breiðbandsmál.

    Ráðherranefndin (MR-IT) ásamt ráðherranefndinni um byggðamál og ráðgjafanefnd um upplýsingatækni (IT-policygruppen) létu gera úttekt um breiðbandsmál á Norðurlöndum. Skýrsla með niðurstöðum úttektarinnar var kynnt á ráðherrafundinum. Ljóst er að Norðurlönd eru meðal fremstu þjóða í útbreiðslu og notkun á breiðbandsstengingum. 1 Skýrslan er á vef norrænu ráðherranefndarinnar: www.norden.org/pub/uddannelse/forskning_ hojereudd/sk/IT-infrastrukturstudie-hovedrapp.pdf

Tölfræði upplýsingasamfélagsins.
    Ráðherranefndin hefur stutt samstarfsverkefni um tölfræði upplýsingasamfélagsins og lá fyrir fundinum nýtt tölfræðirit, „Nordic Information Society Statistics 2002“ (http://www.hagstofa.is/template25.asp? PageID=773). Ritið gefur glögga mynd af sterkri stöðu Norðurlanda á flestum sviðum upplýsingasamfélagsins. Tölfræði er nauðsynlegt stjórntæki á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni eins og á öðrum sviðum samfélagsins. Samstarf Norðurlanda um að þróa aðferðir við tölfræðilegar mælingar er brautryðjandastarf á heimsvísu og er því fyrirmyndarverkefni í norrænu samstarfi.

Rafrænar undirskriftir.
    Unnið var að því að skilgreina tilraunaverkefni um notkun rafrænna undirskrifta í samskiptum stjórnvalda landa í milli. Í samráði við fagnefndir þjóðskráa og skattamála verður m.a. kannað hvort nota megi þá tækni til að fækka hindrunum á frjálsri för yfir norræn landamæri.

8. Samstarf við grannsvæði Norðurlanda



    Samstarfið við grannsvæðin hefur á árinu verið í samræmi við rammaáætlun ráðherranefndarinnar um grannsvæðasamstarfið árin 2000–2002, og tekur til eftirfarandi starfsemi: upplýsingamiðlunar og samskipta, þ.m.t. rekstur norrænna upplýsingaskrifstofa á grannsvæðunum, styrkjakerfa og verkefna á ýmsum sviðum.
    Á árinu var unnin ný rammaáætlun fyrir tímabilið 2003–2005 og var henni fylgt frá ársbyrjun 2003.

Verkefni.
    Fjárveitingar ráðherranefndarinnar til grannsvæðasamstarfsins námu tæplega 86 millj. d.kr. á árinu. Auk þess runnu u.þ.b. 60 millj. d.kr. frá öðrum samstarfssviðum til starfsemi og verkefna í samstarfi við grannsvæðin. Undir lok ársins hafa ýmsir lýst þeirri skoðun að mun hægar en áætlað var hafi gengið að koma í framkvæmd þeirri stefnu að leggja aukna áherslu á samstarf við Norðvestur-Rússland.
    Af fjárlögum grannsvæðasamstarfsins var veitt rúmlega 3,5 millj. d.kr. til samstarfsins um málefni norðurskautssvæðisins. Norðurskautssamstarfið var frá og með árinu 2002 skilið frá grannsvæðaáætluninni en verkefni innan þess varða málefni frumbyggja, lífskjör og afkomu íbúa og sjálfbæra nýtingu auðlinda á norðurskautssvæðinu. Almennt eru fá verkefni tilkomin að norrænu frumkvæði. Vegna þess að norrænar umsóknir eru fáar standa flest verkefnin í tengslum við Norðurskautsráðið og/eða ráð og nefndir á vegum þess.

Upplýsingaskrifstofurnar, upplýsingamiðlun og samskipti.
    Starfsemi upplýsingaskrifstofanna í Tallinn, Ríga, Vilníus og Pétursborg hefur tekið breytingum en þær koma nú í ríkari mæli að framkvæmd verkefna fyrir ráðherranefndina. Markmiðið með því er að sníða verkefnin sem best að þörfum grannsvæðalandsins. Samráð hefur verið haft við baltnesk og rússnesk stjórnvöld um áherslur og niðurstaðan er sú að að áherslur Eystrasaltsríkjanna og Rússlands eru að stórum hluta í samræmi við norrænar áherslur í grannsvæðasamstarfinu.

Styrkja- og dvalarkerfi.
     Nordplus Nabo og NorFA Nabo: Á árinu voru stofnaðir nýir norrænir styrkir, Nordplus Nabo og NorFA Nabo, sem koma í staðinn fyrir norræna styrkjakerfið vegna Eystrasaltsríkjanna og Rússlands. Styrkjakerfi með það að markmiði að mynda tengslanet milli háskóla var stofnað árið 1991 og markmið þess og áherslur hafa tekið breytingum. Nordplus Nabo veitir styrki til að koma upp tengslanetum, en styður einnig við bakið á þeim tengslanetum sem þegar hafa verið mynduð, í háskólaumhverfinu og milli frjálsra félagasamtaka. NorFA Nabo veitir styrki til tengslaneta vísindamanna.
     Starfsmannaskipti: Starfsmannaskipti eru í umsjón upplýsingaskrifstofanna á grannsvæðunum, sem eykur skilvirkni við val á þátttakendum og úrvinnslu og möguleikana á að mæta breytilegum þörfum. Markmiðið með styrkveitingum til Eystrasaltsríkjanna er að byggja upp tengslanet og þekkingu sem lið í undirbúningi landanna fyrir inngöngu í ESB. Við styrkveitingar til Rússlands er leitast við að stuðla að þróun í átt að lýðræði og stöðugleika með því að styrkja þróun stjórnunartækja og stjórnkerfis í opinberri stjórnsýslu.
     Þingmannaskipti: Styrkja- og skiptidvalarkerfi þingmanna er í umsjón Norðurlandaráðs. Markmiðið er að miðla reynslu af norrænu þingmannasamstarfi og fulltrúalýðræði. Styrkjakerfið var endurskoðað árið 2001 og tekin var ákvörðun um að því yrði fram haldið.

Stefnumótun.
    Meginmarkmið nýrrar stefnumótunar um grannsvæðasamstarfið, „Nær Norðurlöndum“, sem tekur til grannsvæðanna í austri og norðurskautssvæðisins, voru höfð að leiðarljósi í starfsáætluninni fyrir árið 2003.
    Meginmarkmiðin eru:
–     Áhersla á fá, stór verkefni, sem hafa sýnileg áhrif og pólitískt vægi.
–     Aukin áhersla á Norðvestur-Rússland.
–     Aðgerðir skulu miðast við þarfir viðkomandi svæðis og hafa ber í huga þarfir og óskir landanna.
–     Að tryggja upplýsingamiðlun milli upplýsingaskrifstofanna, stjórnvalda og norrænna sendiráða í löndunum.
–     Að tryggja betri samhæfingu við aðgerðir norrænu landanna hvers um sig.

Norðurskautssamstarfið.
    Norðurlandaráð samþykkti í október 2001 samstarfsáætlun fyrir norðurskautssamstarfið.
    Markmið norræns samstarfs um málefni norðurskautssvæðisins eru að þróa og bæta lífsgæði íbúanna og samgöngur á svæðinu og efnahagslegar forsendur fyrir áframhaldandi búsetu. Sérstök áhersla verður lögð á fjárhagslega, félagslega og menningarlega stöðu frumbyggja og umhverfi þeirra.
    Samstarfsáætlunin hefur einnig sem markmið að varðveita óbyggðirnar, náttúrugæði og fjölbreytileika náttúrunnar sem og að tryggja ábyrga og sjálfbæra nýtingu auðlinda í samræmi við hagsmuni þeirra landa sem eiga landsvæði á norðurskautssvæðinu og í samræmi við takmarkanir vistkerfisins. Mikil áhersla er lögð á að takmarka og fjarlægja orsakir mengunar lands, sjávar, jökla og umhverfis þeirra með sameiginlegum aðgerðum. Um leið er leitast við að þróa hentugar samstarfsaðferðir og samstarfsstofnanir norðurskautslandanna og leggja þá skyldu á löndin að þau fylgi eftir ákvörðunum sem teknar hafa verið en það er gert með sameiginlegri fjármögnun, verkefnastjórnun o.s.frv. Samkvæmt rammaáætluninni skiptist norðurskautssamstarfið í þrjú svið:
–     Frumbyggjar, þ.e. úttekt á og upplýsingar um lífskjör þeirra og tekjumöguleika, svo og uppbygging þekkingar og afnám hindrana fyrir framleiðslu hefðbundinna afurða frá norðurskautssvæðinu. Almenn atvinnuþróun og möguleikar á tekjuöflun í dreifðum byggðum.
–     Velferð og lífsgæði íbúa norðurskautssvæðisins, einkum ákvarðanir sem stuðla að bættu heilbrigði, nýjar leiðir í uppbyggingu kerfisins t.d. með fjarlækningum, og uppbygging tengslanets milli kvenna sem starfa að rannsóknum og milli hinna mismunandi samtaka kvenna.
–     Sjálfbær þróun á norðurskautssvæðinu, á grundvelli skýrslunnar „Sjálbær þróun, ný stefna fyrir Norðurlönd“. Hér má m.a. nefna samstarfsáætlun um náttúru- og umhverfisvernd á norðurskautssvæðinu, líffræðilega fjölbreytni, vistvæna ferðaþjónustu o.fl.
Norræna ráðherranefndin á frá 2001 áheyrnarfulltrúa í Norðurskautsráðinu. Í samræmi við samstarfsáætlunina fyrir norðurskautssamstarfið eru fulltrúar norrænu landanna í sérfræðinganefnd, sem samanstendur af starfsmönnum utanríkisráðuneyta landanna (einnig Færeyja og Grænlands) sem hafa með höndum málefni norðurskautssvæðanna, að verkefnavali og framkvæmd samstarfsáætlunarinnar.

9. Orkumál


Inngangur.
    Markmiðið með samstarfi norrænu ráðherranefndarinnar á sviði orkumála er að stuðla að sjálfbærri, skilvirkri, samkeppnishæfri og öruggri orkuöflun á Norðurlöndum og á grannsvæðunum.
    Lögð er áhersla á að orkulindir og orka séu nýtt til að efla atvinnulíf og styrkja efnahag. Á síðustu árum hefur athygli í vaxandi mæli beinst að nýtingu endurnýjanlegra orkulinda eins og víðast hvar annars staðar í heiminum. Áherslur í samstarfinu og þau verkefni sem unnið er að eiga að hafa pólitíska þýðingu alls staðar á Norðurlöndum.

Rammaáætlun um samstarf á sviði orkumála.
    Á árinu 2001 samþykktu orkuráðherrar Norðurlanda rammaáætlun um samstarf á sviði orkumála fyrir árin 2002–2005.
    Á árinu hefur starfið í meginatriðum verið á grundvelli rammaáætlunarinnar.
    Lögð er áhersla á þrjú meginsvið:
–     Opnun raforkumarkaðarins á milli norrænu landanna fjögurra sem eru samtengd, þ.e. Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands.
–     Samstarf á sviði loftslagsmála.
–     Samstarf við grannríkin í austri, þ.e. Eistland, Lettland og Litháen og Norðvestur-Rússland, svo og ríki innan Eystrasaltsráðsins og ESB.
    Áhersla á þessi meginsvið útilokar ekki samstarf um önnur verkefni. Má þar nefna athugun á þróun gasmarkaðar á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Athuga skal hvaða möguleikar eru á að þróa endurnýtanlega orkugjafa. Einnig er lögð áhersla á að vinna að sértækum verkefnum, t.d. þróun vetnissamfélags á Norðurlöndum en þar eru Íslendingar eins og kunnugt er í fararbroddi, svo og hvernig beri að leysa orkuvandamál strjálbýlli svæða.
    Þá er í áætluninni fjallað um hlutverk Norrænu orkurannsóknaáætlunarinar (NEFP) við að styðja rannsóknir á kjarnasviðum áætlunarinnar.

Tilraunasvæði um losunarheimildir.
    Á fundi sínum í september sl. í Gautaborg undirrituðu orkuráðherrar Norðurlanda samkomulag um að gera Eystrasalt að tilraunasvæði fyrir Kyotobókunina.
    Hugmyndin um að gera Eystrasaltssvæðið að tilraunasvæði (Testing Ground) fyrir sveigjanleikaákvæði Kyoto-bókunarinnar kom fyrst fram á ráðherrafundi Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í Stavangri árið 1998 og hefur síðar margoft verið rædd á fundum norrænna orku- og umhverfisráðherra ríkjanna. Ástæða þess er sú að norrænu ríkin hafa lýst yfir vilja til að aðstoða Eystrasaltsríkin við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, sem er mjög mikil, og geta þeirra til að takast á við þetta vandamál er takmörkuð. Auk þess geta þátttökuríkin fengið losunarheimildir í samræmi við þann árangur sem kann að nást.
    Nauðsynlegt er talið að sameiginleg verkefni norrænu landanna (joint implementation) hafi ákveðinn slagkraft í upphafi. Af þeirri ástæðu hefur verið talið áríðandi að ríkisstjórnir Norðurlanda hafi í byrjun forgöngu í málinu, en norræn fyrirtæki myndu einnig í kjölfarið taka þátt í afmörkuðum verkefnum í kjölfarið. Miðað er við að verkefnið standi til ársins 2008 en þá hefst fyrsta skuldbindingartímabil Kyoto-bókunarinnar.
    Gert er ráð fyrir að Norðurlönd tryggi fjárframlag að fjárhæð 10 millj. evrur (miðað við núverandi gengi 850 millj. ISK) og mega greiðslur skiptast á árin 2003, 2004 og 2005. Gert er ráð fyrir að fjármagnið komi frá þátttökulöndum í sömu hlutföllum og framlag til norrænu fjárlaganna. Hlutur Íslands væri þá um 1% eða 8,5 millj. kr. sem kæmu til greiðslu á árunum 2003, 2004 og 2005.
    Ávinningur Íslendinga af þátttöku í þessu verkefni verður sá að íslenskum fyrirtækjum verður gert kleift að taka þátt í verkefnum að sameiginlegum framkvæmdum og að auki fær Ísland aukna losunarheimild koltvíoxíðs í hlutfalli við framlag okkar. Þátttaka ríkisins í þessu verkefni mun því opna leið fyrir íslensk orku- og ráðgjafarfyrirtæki að verkefnum, einkum við nýtingu jarðhita. Eystrasaltsríkin og mörg Austur-Evrópulönd eiga mikla möguleika á að nýta jarðhita og með þátttöku Íslands opnast möguleiki á að nýta íslenska tækniþekkingu og fjárfestinga í orkumannvirkjum í þessum löndum.

Orkurannsóknir.
    Norræna orkurannsóknaráætlunin (NEFP) hefur frá árinu 1987 verið rekin sem markáætlun til þriggja eða fjögurra ára í senn. Hún er fjármögnuð beint af orkuráðuneytum landanna og skiptist fjármögnun á milli þeirra í samræmi við skiptingu norrænu fjárlaganna. Markmiðið hefur verið að efla grunnþekkingu og samstarf háskóla, rannsóknastofnana o.fl. með það fyrir augum að styrkja samkeppnisstöðu landanna. Samþykkt var ný áætlun fyrir árin 2003–2006 og í henni eru áherslur í rannsóknum í samræmi við pólitíska stefnumörkun og rammaáætlun um norrænt samstarf í orkumálum. Áherslur orkurannsóknaráætlunarinnar munu því beinast að fimm höfuðverkefnum, þ.e. orkumarkaðsmálum, endurnýjanlegum orkulindum, orkunýtni, vetnissamfélaginu og áhrifum loftslagsbreytinga á orkubúskap Norðurlanda. Unnið er í sjö faghópum á ýmsum sviðum orkurannsókna og taka Íslendingar þátt í þremur þeirra. Á síðasta ári var ákveðið að mynda stofnun um starfsemina og flytja hana til Ósló.

ESB, EES og alþjóðaorkumál.
    Á fundum ráðherranefndarinnar, embættismannanefndarinnar og starfshópa á hennar vegum er að jafnaði fjallað um mál er varða EES og þróun orkumála innan ESB. Til að undirbúa fundi í ráðherraráði ESB um orkumál eru áður haldnir óformlegir fundir norrænu orkuráðherranna og sitja þá fulltrúar Íslands og Noregs. Þeir eru afar mikilvægir fyrir okkur Íslendinga, sem eigum þess ekki kost að taka af fullum þunga þátt í öllum málaflokkum, sem heyra undir orkusviðið innan ESB.

Samstarf við grannsvæði Norðurlanda.
    Samstarfið við grannsvæðin í austri byggir á því starfi sem unnið hefur verið í samræmi við Bergenyfirlýsingu forsætisráðherra Norðurlanda frá árinu 1997 og niðurstöðum funda norrænu orkuráðherranna og starfsbræðra þeirra við Eystrasalt. Samstarfið við grannsvæðin er tvískipt, annars vegar við Eystrasaltsríkin (Eistland, Lettland og Litháen) og Norðvestur- Rússland og hins vegar við öll lönd við Eystrasalt ásamt Noregi og Íslandi. Síðari samstarfsvettvangurinn fer fram á vegum BASREC (Baltic Sea Region Energy Cooperation) á vettvangi Eystrasaltsráðsins (Baltic Sea States Council, BSSC). Framfarir á sviði orkumála eru mjög mikilvægar í þróun Eystrasaltssvæðisins. Eystrasaltshópurinn hefur skipulagt samstarfs- og stuðningsverkefni, sérstaklega í Eystrasaltsríkjunum og Vestur-Rússlandi. Má þar m.a. nefna þjálfun starfsmanna orkufyrirtækja í þessum löndum og hafa nokkrir þeirra verið í þjálfun hér á landi. Áhersla hefur verið lögð á raforkumarkað, gasmarkað, orkustefnu og loftslagsmál svo og orkusparnað. Sérstakur gaumur hefur verið gefinn að fjárfestingum á sviði orkumála sem hefur leitt til þess að samkomulag hefur orðið um að gera Eystrasaltssvæðið að tilraunasvæði fyrir Kyoto-bókunina eins og áður segir.

Samstarf landa við Norður-Atlantshaf.
    Á síðasta ári hefur athygli í vaxandi mæli beinst að auknu samstarfi Vestur- Norðurlanda og grannríkja þeirra. Í því sambandi má sérstaklega vísa til samþykkta samstarfsráðherra Norðurlanda og skýrsluna „Alþjóðleg Norðurlönd – Norrænt samstarf á evrópskum vettvangi“. Sérstök náttúruskilyrði einkenna aðstæður á Vestur-Norðurlöndum. Þar búa fámennar þjóðir, fjarlægðir eru miklar, loftslagið er svalt og haf aðskilur löndin. Á sviði orkumála er um að ræða orkuöflun til mjög dreifbýlla svæða við erfiðar aðstæður. Til álita kemur einnig að koma á samstarfi við grannsvæði utan norræns samstarfs og við lönd á norðurskautssvæðunum.

Opinn norrænn raforkumarkaður.
    Á síðasta áratug hafa orðið miklar breytingar á skipan raforkumála á Norðurlöndum. Norðmenn hófu fyrstir breytingar og gáfu viðskipti með rafmagn frjáls. Síðan hafa Svíar, Finnar og nú síðast Danir komið á markaðsbúskap í viðskiptum með raforku, meðal annars til þess að hrinda í framkvæmd tilskipun ESB um innri raforkumarkað. Á undanförnum árum hefur verið lögð áhersla á að kanna forsendur fyrir aukinni samtengingu á raforkumarkaði umhverfis Eystrasalt og meta afleiðingar þess. Er í áætluninni bent á nauðsyn þess að norrænn raforkumarkaður tengist í auknum mæli markaði annarra Evrópuríkja og þá sérstaklega Eystrasaltsríkjunum og Austur-Evrópu. Starfshópur ráðherranefndarinnar sinnir þessu verkefni.

Orka og loftslagsmál.
    Framkvæmd rammaáætlunar um samstarf á sviði orku- og umhverfismála hefur einkum beinst að verkefnum sem tengjast rammasamningi S.þ. um loftslagsbreytingar. Starf hópsins hefur verið öflugt og vakið athygli. Mikilvægi samstarfsins hefur komið í ljós m.a. í tengslum við ráðstefnu S.þ. í Jóhannesarborg og í samstarfi um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í Eystrasaltsríkjunum.

Samstarf við önnur fagsvið hjá Norrænu ráðherranefndinni.
    Undanfarin ár hefur verið formlegt samstarf á milli orkusviðs og umhverfismálasviðs á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar. Mest áhersla hefur verið lögð á mál er varða undirbúning loftslagssamninga og Kyotobókunina, eins og að ofan greinir. Til athugunar hefur verið að koma á samstarfi milli orkusviðs og landbúnaðar- og skógræktarsviðs Norrænu ráðherranefndarinnar. Einnig hefur verið til athugunar samstarf á milli orku- og
samgöngusviðs (MR-Trafik og transport) á vettvangi ráðherranefndarinnar.

Niðurlag.
    Starf Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði orkumála hefur reynst gagnlegt fyrir Íslendinga. Mikilvægt er um þessar mundir að fylgjast með þróun raforkumarkaðar í löndunum og læra af reynslu grannþjóða af skipan þessa málaflokks meðal annars vegna víðtækrar endurskoðunar á löggjöf um orkumál sem nú er unnið að hér á landi. Starf undirnefndar ráðherranefndarinnar í tengslum við rammasamning S.þ. um loftslagsbreytingar kom að góðu gagni í baráttunni fyrir hinu svokallaða íslenska ákvæði loftslagssamningsins. Íslendingar hafa notið góðs af orkurannsóknaráætluninni og hefur af Íslands hálfu verið lögð rík áhersla á það samstarf.

10. Umhverfismál


    Samstarf norrænu umhverfisráðherranna (MR-Miljø) byggir á norrænni framkvæmdaráætlun í umhverfismálum. Sú áætlun sem nú er unnið eftir gildir fyrir tímabilið 2001–2004 og myndar ramma um umhverfismálasamstarf landanna, samstarf við grannsvæðin, við norðurskautssvæðið, við ESB og um önnur alþjóðleg málefni. Endurskoðun umhverfisáætlunarinnar hófst seint á árinu 2002 en meginhluti vinnunnar fór fram á árinu 2003. Tilgangurinn er að athuga hvort þau markmið sem sett voru í upphafi hafi náðst, hvað hafi gengið vel og hvað hefði betur mátt fara í þeirri starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar sem fellur undir umhverfissviðið. Þessi endurskoðun er einn af þeim grunnum sem byggt verður á þegar samin verður ný umhverfisáætlun fyrir árin 2005–2008 en hún verður gerð á formennskutíma Íslendinga á árinu 2004.
    Áætlun um sjálfbæra þróun er einn af hornsteinunum í samstarfi norrænu umhverfisráðherranna. Áætluninni er ætlað að gilda til ársins 2020 en vinna við nýja og endurskoðaða áætlun fyrir tímabilið 2005–2010 hófst á árinu og er áætlað að henni ljúki 2004.
    Stækkun ESB til austurs, innganga Eystrasaltsríkjanna í sambandið og sú breyting sem stækkunin hefur á samskipti norrænu landanna við Eystrasaltsríkin hefur verið rædd á árinu. Með inngöngu Eystrasaltsríkjanna í ESB mun samstarf á sviði umhverfismála breytast í samræmi við breytta stöðu Eystrasaltsríkjanna, en aukin áhersla mun verða á samstarf við Vestur-Rússland.
    Í framhaldi af skýrslu frá norrænum starfshópi um Vestur-Norðurlönd sem ber heitið „Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi“ ákváðu umhverfisráðherrar Norðurlanda að óska eftir því að vinnuhópar ráðherranefndarinnar á umhverfissviði tækju saman skýrslu um þá vinnu sem nú er unnin í tengslum við Vestur-Norðurlönd. Áætlað að hún verði lögð fram á árinu 2004.
    Eitt af markmiðum umhverfissamstarfsins er að norræn stefnumið sem varða náttúruna fái aukið vægi í alþjóðasamstarfi, einkum á vettvangi ESB. Í samræmi við það markmið var á fundi umhverfisráðherranna í október sl. ákveðið að óska eftir því að rannsakað yrði hver umhverfiskostnaður og samfélagskostnaður væri vegna nýrra tillagna frá ESB um meðhöndlun efnasambanda (REACH, Registration, Evaluation, Authorisation and Restriction of Chemicals).
    Norðurlöndin hafa einnig gefið tóninn á alþjóðavettvangi með markvissri stefnumörkun um meðhöndlun efnasambanda sem á að vera tilbúin árið 2020. Norrænu umhverfisráðherrarnir hafa lagt áherslu á að mikilvægt sé að halda áfram samstarfi um að móta markvissa stefnu um meðhöndlun efnasambanda og í sameiningu hafa áhrif á önnur ríki. Umhverfisráðherrarnir hafa ákveðið að þungmálmar verði norrænt forgangsmál í þessu samstarfi á alþjóðavettvangi.
    Á vegum norrænu umhverfisráðherranna eru 5 fastir vinnuhópar og 5 þverfaglegir hópar sem eru í samstarfi við aðra geira í samræmi við þá reglu að samþætta eigi umhverfissjónarmið á öllum sviðum samfélagsins.

Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO).
    Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið heyrir undir samstarfið um umhverfismál (sjá nánar um NEFCO, kafla 26.2.).

Fastir vinnuhópar á vegum umhverfisráðherra Norðurlanda:
Vinnunefnd um umhverfi hafs og lofts.

    Markmið vinnunefndarinnar er að efla Norðurlönd með vísindarannsóknum og skapa grunn fyrir sameiginlegar aðgerðir gegn sjávarmengun og mengandi efnum sem berast langar leiðir með lofti. Nefndin leggur áherslu á verkefni sem skapa grunn fyrir alþjóðlega samninga og stefnumörkun í Evrópu um varnir gegn mengun lofts og sjávar, afla þekkingar um ástand og þróun mengunar lofts og sjávar á Norðurlöndum og nærliggjandi svæðum, og stuðla að norrænni samvinnu í málaflokknum.
    Vinnunefndin hefur lagt áherslu á eftirfarandi málaflokka: Ofauðgun næringarefna í sjó, súrt regn, svifryk og oxandi efni, og efni sem eru hættuleg umhverfinu, þar með talin þrávirk lífræn efni og þungmálmar.

Efnavörunefndin.
    Vinnunefndin um efnavörur er í forsvari fyrir norrænu samstarfi á sviði eiturefna og hættulegra efna. Nefndin starfar á grundvelli Norrænu umhverfisverndaráætlunarinnar fyrir árin 2001–2004 og með hliðsjón af áætluninni „Sjálfbær þróun – ný stefna fyrir Norðurlönd“ bæði skammtímamarkmið fyrir árin 2001–2004 og langtímamarkmið fram til ársins 2020. Markmið starfsins er að notkun efna hafi ekki í för með sér óæskileg áhrif á heilsu og umhverfi og að losun skaðlegra efna verði hætt innan 25 ára. Nefndin stuðlar að samstarfi stjórnvalda og samræmingu verkefna þannig að tiltækt fjármagn nýtist sem best.
    Nefndin hefur unnið að verkefnum sem nýtast Norðurlöndum sérstaklega. Megináherslan hefur þó beinst að verkefnum sem nýtast í alþjóðlegu samstarfi og samningum, ekki síst þeim er koma Norðurlönd til góða vegna aðildar þeirra að ESB eða EES. Verkefnin skiptast í fjóra meginflokka, þ.e. þróun aðferða til að greina og mæla áhættu vegna efnanotkunar, flokkun og merkingu hættulegra efna, mat á áhættu vegna efnanotkunar og takmörkun áhættu. Sem dæmi um ný verkefni má nefna aukið samstarf eftirlitsaðila og samræmd eftirlitsverkefni og verkefni er tengjast nýrri efnalöggjöf í Evrópu (REACH). Undir vinnunefndinni starfa ráðgefandi verkefnahópar og átti Ísland fulltrúa í níu þeirra á árinu.
    Niðurstöður úr verkefnum vinnuhópanna eru m.a. birtar sem viðurkenndar prófunaraðferðir, haldnar hafa verið ráðstefnur og gefnar út skýrslur og fræðsluefni. Jafnframt hefur verið unnið áfram að gerð fjögurra gagnabanka sem eru mikilvæg verkfæri fyrir stjórnvöld og alla aðra sem þurfa að afla upplýsinga um notkunarsvið og áhrif af notkun efna á heilsu og umhverfi. Gagnagrunnarnir munu gegna miklu hlutverki þegar ný efnalöggjöf verður samin.

Nefnd um náttúruvernd, útivist og menningarumhverfi.
    Hlutverk nefndarinnar er á þremur meginsviðum: líffræðileg fjölbreytni og erfðaauðlindir, landslag og menningarminjar og útivist. Á árinu var lokið við eitt stærsta verkefnið sem nefndin stýrði sjálf, en það var bókin „Náttúra Norðursins“ sem lýsir þeim árangri sem náðst hefur í náttúruvernd á Norðurlöndum m.a. með friðlýsingu svæða. Í bókinni eru sýnd dæmi frá öllum löndunum.
    Auk þess sem verkefnin eru og eiga að vera norræn ber að hafa frumkvæði að því að tengja þau eftir því sem kostur er við alþjóðasamninga á sviði nefndarinnar, bæði innan og utan Evrópu. Mikil áhersla hefur á undanförnum árum einnig verið lögð á verkefni sem tengjast norðurskautssvæðunum, sjá hér að neðan, og Eystrasaltsríkjunum. Hvað Eystrasaltsríkin varðar hefur töluvert verið lagt í verkefni sem tengjast búsvæðatilskipun ESB. Innan nefndarinnar starfar einnig stýrihópur sem hefur umboð út árið 2004. Hann hefur fylgt eftir verkefnum sem heyra undir framkvæmdaáætlunina um vernd náttúru- og menningarminja á norðurskautssvæðinu (Íslandi, Grænlandi og Svalbarða). Á árinu var unnið að 7 verkefnum sem tengjast þessum málefnum. Má þar nefna stórt samvinnuverkefni um áhrif veiða á hafsbotninn í Breiðafirði sem Hafrannsóknastofnunin, sem fer með formennsku, og Umhverfisstofnun taka þátt í fyrir hönd Íslands. Mörg önnur verkefni voru í gangi t.d. í tengslum við evrópska landslagssáttmálann (Háskóli Íslands og Umhverfisstofnun), verndun menningarminja og búsetulandslags (Hvanneyri), útivist og heilsu, gagnagrunn fyrir sjófugla (Náttúrufræðistofnun Íslands), ofbeit (RALA) o.fl.

Vinnunefnd um vörur og úrgang.
    Verkefni nefndarinnar eru á sviði umhverfisvænnar vöruþróunar, hreinni framleiðslutækni og úrgangsmála. Vinna í nefndinni fer að mestu fram í verkefna- og tengiliðahópum. Þessir undirhópar stýra tilteknum verkefnum og vinna að því að bæta upplýsingastreymi milli aðila innan málaflokksins. Þá tekur vinna nefndarinnar mið af EES-samningum. Nefndin hefur að mestu einbeitt sér að sameiginlegum málefnum Norðurlanda en einnig hefur verið unnið að verkefni um vöruþróun í Eystrasaltsríkjunum. Gert er ráð fyrir að nefndin haldi áfram að sinna grannsvæðasamstarfinu, m.a. með áherslu á tengsl umhverfis og heilsu í einstökum samfélögum. Ísland hefur farið með formennsku í nefndinni undanfarin þrjú ár, en Færeyjar taka við formennsku í ársbyrjun 2004. Nefndin vinnur náið með samstarfsnefndinni um framleiðslumiðaða stefnumótun í umhverfismálum, (NMRIPP-hópnum).

Vinnunefnd um umhverfisvöktun og meðferð gagna.
    Vinnunefndin endurskipulagði starfið á árinu og mun hún á næstu árum leggja höfuðáherslu á þrjá málaflokka; líffræðilega fjölbreytni, hættuleg lífræn efni (POPs) og verkefni tengd vatnatilskipun ESB. Það var mat nefndarinnar að mikilvæg verkefni væru óunnin innan þessara málaflokka. Verkefni sem vinnunefndin mun beita sér fyrir innan þessara flokka er m.a. stöðumat – úttekt á ástandi, þróun aðferða við vöktun, umhverfisvísar og þekkingarmiðlun.
    Verkefni, sem eru hafin eða í undirbúningi innan þessara málaflokka, eru m.a. myndun þekkingarnets vegna ágengra tegunda, kortlagning vistgerða og vöktun þeirra, gerð gagnagrunns um sjófuglabyggðir á norðurskautssvæðum Norðurlanda, samanburðarúttekt á POPs efnum og afleiðum þeirra í lífríki á Norðurlöndum og stöðuúttekt á efnum sem eru hættuleg heilsu og umhverfi en styrkur þeirra í umhverfinu á Norðurlöndum er lítið þekktur.
    Á vegum vinnunefndarinnar tekur Ísland þátt í verkefni um líffræðilega vöktun í fersku vatni sem tengist rammatilskipun ESB á sviði vatnsmála, verkefni sem tengist fráveitumálum og er stýrt af Náttúrustofu Vestfjarða og Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða, og verkefni um vöktun hættulegra efna á landi. Vinnuhópurinn er ábyrgur fyrir samræmingu á langtímavöktun á Norðurlöndum og styður sambærileg verkefni á grannsvæðunum. Öll verkefni vinnuhópsins skulu vera unnin í samstarfi við aðra vinnuhópa ráðherranefndarinnar eða verkefni sem ráðherranefndin eða embættismannanefndin hefur óskað eftir.

Þverfaglegir vinnuhópar – samstarf við aðra geira.
Samstarfsnefnd um loftslagsmál.
    Á vegum umhverfisráðuneyta og orkuráðuneyta er að störfum samstarfsnefnd um loftslagsmál. Umfangsmesta verkefni nefndarinnar undanfarið ár hefur verið undirbúningur að því að Eystrasaltssvæðið verði notað sem tilraunasvæði vegna viðskipta með losunarkvóta og sameiginlegrar framkvæmdar loftslagssamningsins. Í september undirrituðu orkuráðherrar Norðurlanda samning sem gerir Eystrasaltssvæðið að tilraunasvæði fyrir sveigjanleikaákvæði Kyoto-bókunarinnar. Verkefni tengd tilraunasvæðinu verða áfram á dagskrá nefndarinnar, en á næsta ári mun hún leggja aukna áherslu á málefni norðurskautssvæðanna. Áhrif loftlagsbreytinga á norðurslóðum og möguleg nýting endurnýjanlegrar orku á jaðarsvæðum verða meðal áhersluatriða í starfi nefndarinnar.

Samstarfsnefnd um umhverfis- og efnahagsmál.
    Vinnuhópur starfar á vegum embættismannanefnda sem fjalla um efnahagsmál (EK-Finans) og umhverfismál (EK-Miljø). Meginverkefni hópsins eru almenn skoðanaskipti um umhverfismál frá hagrænu sjónarmiði og notkun á hagrænum stjórntækjum í umhverfismálum. Nefndin hittist alla jafna tvisvar á ári. Starfsemin byggir að mestu á því að sérfræðingar eru fengnir til að skrifa skýrslur um tiltekin málefni á verkefnaskrá þessa samstarfs. Á árinu var einungis unnið að eldri verkefnum. Einna fyrirferðarmest er verkefni um svokallaða aftengingu hagvaxtar og álags á umhverfið en það verkefni er unnið af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Verkefni um stjórntæki til að viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika í skóg- og votlendi er komið á útgáfustig. Hafinn er undirbúningur að gerð nýrrar skýrslu um efnahagsleg stjórntæki til að ná fram markmiðum í umhverfismálum en síðasta skýrsla um það efni kom út 2002. Í þetta sinn er ætlunin að láta skýrsluna fjalla um slík stjórntæki í Eystrasaltsríkjunum og á Norðurlöndum.

Samstarfsnefnd um fiskveiðar og umhverfismál.
    Í samstarfsnefndinni voru haldnir tveir fundir á árinu, auk eins símafundar til að ljúka afgreiðslu umsókna. Starfsemi nefndarinnar er í samræmi við fyrirliggjandi stefnumótun sem gildir til ársloka 2004. Starfsemin verður skoðuð nánar að fenginni reynslu, samhliða yfirferð stefnumótunar hjá ráðherranefndinni fyrir matvæli þar sem sjávarútvegs- (NEF), landbúnaðar- og skógræktargeirinn (NEJS) og matvælageirinn (EK-Livs) vinna saman sem og í sambærilegri vinnu á umhverfissviðinu.

Samstarfsnefnd um umhverfi, landbúnað og skógrækt.
    Í þessari nefnd starfa saman fulltrúar af umhverfis- og landbúnaðarsviði.
    Stefnumörkunin byggist á efirfarandi sjö meginþáttum: bætt nýting auðlinda, líffræðileg fjölbreytni, jarðvegseyðing, hreindýrabúskapur, nýjar framleiðsluaðferðir, menningarumhverfi og menningarlandslag og alþjóðlegt samstarf. Aðaláhersla er á verkefni sem hafa áhrif á ákvarðanir, skoðanamyndun og uppbyggingu á sameiginlegri reynslu og þekkingu Norðurlanda og geta stuðlað að og haft þýðingu fyrir þátttöku og áhrif þjóðanna á alþjóðavettvangi. Ennfremur er mikilvægt verkefni að stuðla að uppbyggingu tengslanets til samskipta og til að miðla þekkingu og reynslu í landbúnaði og skógrækt.
    Öll verkefnin miða að því að auka þekkingu og bæta stjórnsýslu á þessum sviðum.

Samstarfsnefnd um umhverfi og neytendamál.
    Þessi nefnd er samstarfsvettvangur umhverfisgeirans og þeirra sem starfa að neytendamálum og málefnum atvinnulífsins. Aðalmarkmið hennar er að draga úr neikvæðum áhrifum sem framleiðsla á vörum og þjónustu getur haft á umhverfi og heilsu manna. Þetta á að gera m.a. með því að huga að umhverfisþáttum í öllum framleiðsluþáttum og nýta auðlindir á eins sjálfbæran hátt og unnt er. Meðal grunnþátta í starfi nefndarinnar síðustu mánuði eru verkefni sem varða umhverfisupplýsingar til neytenda og græn innkaup hjá opinberum aðilum. Gert er ráð fyrir að nefndin gegni mikilvægu hlutverki í því starfi sem framundan er á sviði sjálfbærrar framleiðslu og neyslu, m.a. í kjölfar samþykkta ráðstefnunnar í Jóhannesarborg 2002. Samstarfsnefndin vinnur náið með vinnunefnd um vörur og úrgang.

11. Efnahags- og fjármál


Ráðherrafundir.
    Fjármálaráðherrar Norðurlanda héldu tvo fundi á árinu. Fyrri fundurinn var haldinn í Stokkhólmi í byrjun júní sl. og sá seinni í Ósló í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Eins og venja er ræddu ráðherrarnir stöðu og horfur í efnahagsmálum, einkum á Norðurlöndum, málefni Norræna fjárfestingarbankans og þau mál á sviði ESB og EES sem tengjast verkefnum ráðherranna. Tvenn verkefni sem Poul Schlüter hefur unnið að á formennskuári Svía hafa verið til umræðu. Annars vegar skattamál og hins vegar flutningar á peningum milli landa. Í skattamálum var ákveðið að setja af stað starfshóp á vegum ríkisskattstjóra norrænu landanna til að fara yfir hindranir og vandkvæði sem enn kynnu að vera á vinnusókn yfir norræn landamæri og önnur mál sem varða flutninga fólks, fjármuni og réttinda milli norrænu landanna. Greint er nánar frá starfi þessa hóps hér að neðan. Varðandi peningaflutninga milli landa er ekki mögulegt fyrir stjórnvöld að hafa bein áhrif á gjaldtöku peningastofnana fyrir þjónustu án þess að hætta sé á að samkeppnisstöðu sé raskað. Einnig er hér um að ræða tæknileg atriði sem unnið er að því að bæta. Hins vegar er hægt að setja reglur um hámarkstíma sem slíkar sendingar mega taka en fram hefur komið að það fer töluvert eftir því hversu nákvæmar upplýsingar peningastofnanir hafa um móttakanda hversu langan tíma yfirfærslur taka. Á ráðherrafundinum í lok október sl. var eitt meginefnið væntanleg aðild Eystrasaltsríkjanna að Norræna fjárfestingarbankanum. Forsætisráðherrar Norðurlanda höfðu daginn áður samþykkt að bjóða þessum ríkjum að gerast meðeigendur að NIB og fólu þeir fjármálaráðherrum að ganga frá samningum um aðild. Þá ákváðu ráðherrarnir að stækka svokallaðan verkefnalánaramma bankans úr 3,3 millj. evra í 4 millj. evra.

Helstu nefndir, skýrslur o.fl.
  a)      Embættismannanefndin og ýmsir vinnuhópar. Nefndina skipa háttsettir embættismenn í fjármálaráðuneytum landanna, einn frá hverju landi. Verkefni eru fjölþætt. Meginverkefnið er að undirbúa ráðherrafundi og vera ráðgefandi í öllum málefnum sem varða starf ráðherranna á norrænum vettvangi. Nefndin hefur þannig yfirumsjón með skýrslugerð og greinargerðarskrifum fyrir ráðherrafundina. Jafnframt hafa oft starfað vinnuhópar á vegum nefndarinnar til að sinna ákveðnum verkefnum. Auk þess eru málefni Norræna fjárfestingarbankans mikið til umfjöllunar. Eftirtaldir vinnuhópar hafa verið að störfum á síðasta ári:
  b)     Athugun á auknu samstarfi norrænna kauphalla. Áfram er unnið að samvinnu um innleiðingu ESB-tilskipana á fjármálasviði og öðru sem stuðlar að aukinni hagræðingu á norrænum verðbréfamörkuðum. Haldin var ráðstefna um Lamfalaussy ferilinn, þ.e. þann feril sem Evrópusambandið hefur sett fram til að flýta framgangi reglusetninga á sviði verðbréfaviðskipta, en að auki var haldinn vinnufundur (workshop) um tilskipun um markaðsmisnotkun. Þá er verið að vinna að skýrslu sem unnin er á grundvelli starfs s.k. Giovannini-hóps, um það hvort norrænu löndin hafi tekið upp alþjóðaviðmiðanir um uppgjör viðskipta. Ísland er nú í forsvari fyrir könnun um virkni markaða á Norðurlöndum og er ráðgert að skýrsla verði gefin út á árinu 2004.
  c)      Skattahópurinn var einn af nokkrum hópum sem falið var að leita leiða til að yfirstíga hindranir sem geta verið á vegi þeirra sem flytja á milli norrænu landanna til að stunda nám eða starfa tímabundið. Hér er þá fyrst og fremst átt við þá sem ekki flytja lögheimili sitt, og geta þar af leiðandi verið skattskyldir í fleiri en einu ríki á sama tíma. Þessu fólki gengur oft illa að verða sér úti um réttar upplýsingar um hvernig skattalegri meðferð skuli háttað og fær oft misvísandi og jafnvel rangar upplýsingar. Verkefni skattahópsins var að gera tillögur um úrbætur. Tillögurnar fólu í sér að gerðar yrðu samræmdar vefsíður í hverju landi þar sem m.a. megi finna samræmdar túlkanir á tvísköttunarsamningum, útreikningsforrit þar sem reikna megi skattana fyrirfram og þannig sjá hvort flutningur milli landa hafi í för með sér skattalegt óhagræði. Þá var lagt til að sett yrði á stofn samnorræn skattaskrifstofa á vefnum sem hefði með höndum það verkefni að leysa skattaleg vandamál sem upp koma og varða sérstaklega flutning á milli landa, svo sem tvísköttun o.þ.h.
        Rætt var um norræna samninginn í skattamálum, sérstaklega þau vandamál sem upp koma hjá þeim sem sækja reglulega vinnu yfir landamæri. Einnig voru rædd vandamál sem varða sérstakar starfsstéttir svo sem flugáhafnir, sjómenn og langferðabifreiðastjóra. Þá voru rædd ýmis vandamál sem snúa að lífeyrisþegum sem búa í einu landi og fá lífeyri frá öðru og mismunandi reglur sem gilda um skattalega meðferð á greiðslunum.
d)     Eystrasaltsnefndin (Baltikumudvalget). Árið 1992 samþykkti Norðurlandaráð fjárfestingaráætlun fyrir Eystrasaltsríkin sem miðaði að því að hjálpa litlum og meðalstórum fyrirtækjum og koma á fót fjárfestingarbönkum í þessum ríkjum með árlegum fjárframlögum frá Norðurlöndum. Hlutverk þessarar nefndar var að hafa eftirlit og yfirumsjón með þessu verkefni, m.a. í nánu samstarfi við fulltrúa Norræna fjárfestingarbankans (NIB), Evrópubankans í London (EBRD) og Norræna verkefnaútflutningssjóðsins (Nopef). Þessari áætlun lauk formlega árið 2000 en nefndin hefur þó áfram fylgst með einstökum þáttum hennar eftir því sem þörf er á.
e)      Efnahagsnefndin (Konjunkturgruppen). Helsta verkefni hennar er að fjalla um ástand og horfur í efnahagsmálum, einkum á Norðurlöndum. Auk þess hefur hún iðulega fjallað um afmörkuð verkefni á sviði efnahagsmála sem eru ofarlega á baugi hverju sinni. Nefndin hittist tvisvar á ári og hana skipa embættismenn úr fjármálaráðuneytum landanna. Á hverju hausti skilar nefndin skýrslu um efnahagsmál til fjármálaráðherranna sem síðan er gefin út á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Á vorfundi efnahagsnefndarinnar var umfjöllun um nákvæmni í efnahagsspám og haustfundurinn fjallaði sérstaklega um hagsveifluleiðréttingu á afkomu búskaps hins opinbera. Næsti fundur nefndarinnar verður haldinn á Íslandi vorið 2004.
f)      Norrænu-baltnesku ráðgjafanefndirnar. Haustið 2000 var ákveðið að styrkja samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna við undirbúning funda á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Settar voru á laggirnar tvær embættismannanefndir með þátttöku frá fjármálaráðuneytum og seðlabönkum landanna. Önnur nefndin, Norræna-baltneska fjármálanefndin, er almennt skipuð ráðuneytisstjórum og bankastjórum, en í hinni nefndinni, Norrænubaltnesku fulltrúanefndinni, sitja yfirmenn þeirra efnahags- og alþjóðaskrifstofa sem sinna málefnum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þessar tvær nefndir tóku við því starfi sem áður hafði verið sinnt af ráðgjafarnefnd um fjármál (NFU) og annarri, óformlegri nefnd sem var skipuð norrænum og baltneskum embættismönnum. Þessi nýskipan hefur þær meginbreytingar í för með sér að fjármálaráðuneyti landanna koma með markvissari hætti inn í þetta starf. Helstu verkefni nefndanna eru að undirbúa fundi í fjárhagsnefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMFC). Einnig er nefndunum ætlað að skoða hvernig megi efla starf norrænu-baltnesku skrifstofunnar í Washington og gera tengsl hennar við stjórnvöld heima fyrir markvissari. Loks er nefndunum falið að fylgjast náið með öllu starfi sjóðsins, með milligöngu skrifstofunnar í Washington, og undirbúa þær ákvarðanir sem þar þarf að taka.
  g)      Vinnuhópur á sviði umhverfismála (Miljø- og økonomigruppen). Vinnuhópur starfar á vegum þeirra embættismannanefnda sem fjalla um efnahagsmál (EK-Finans) og umhverfismál (EK-Miljø). Meginverkefni hans eru almenn skoðanaskipti um umhverfismál út frá hagrænu sjónarmiði og notkun á hagrænum stjórntækjum í umhverfismálum. Nefndin hittist alla jafna tvisvar á ári. Starfsemin byggir að mestu á því að sérfræðingar eru fengnir til að skrifa skýrslur um málefni á verkefnaskrá þessa samstarfs. Á árinu var einungis unnið að verkefnum sem hafði verið hleypt af stokkunum á fyrri árum. Einna fyrirferðarmest er verkefni um svokallaða aftengingu hagvaxtar og álags á umhverfið en það er unnið af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Verkefni um stjórntæki til að viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika í skóg- og votlendi er komið á útgáfustig. Hafinn er undirbúningur að gerð nýrrar skýrslu um efnahagsleg stjórntæki til að ná markmiðum í umhverfismálum en síðasta skýrsla um það efni kom út árið 2002. Í þetta sinn er ætlunin að láta skýrsluna fjalla um slík stjórntæki í Eystrasaltsríkjunum auk norrænu landanna.
h)      Nefnd norrænna skattahagfræðinga. Nefndin hittist á Íslandi í mars síðastliðnum og var farið yfir helstu skattabreytingar liðins árs. Auk þess eru til umfjöllunar í nefndinni ýmis skattamál sem eru ofarlega á baugi hverju sinni.
  i)      Sérfræðinganefnd um norræn fjárlög (Budgetexpertgruppen). Hlutverk nefndarinnar er að skila faglegri umsögn um tillögu samstarfsráðherra um frumvarp til norrænu fjárlaganna, bæði tæknilegri og efnislegri. Nefndin tekur einnig til umfjöllunar afmörkuð mál sem samstarfsráðherrar vísa til hennar. Auk embættismanna fjármálaráðuneyta sitja starfsmenn frá skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar fundi.
  j)      Norræna launa- og starfsmannanefndin (Löne- och personalutskottet). Nefndin er ráðgefandi fyrir ráðherranefndina (samstarfsráðherra Norðurlanda) og stjórnarnefnd Norðurlandaráðs í launa-, ráðningar- og lífeyrismálum þeirra starfsmanna sem starfa við stofnanir ráðherranefndarinnar svo og starfsmanna á skrifstofum Norðurlandaráðs og ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn. Nefndin fær þessi mál til umfjöllunar frá starfsmannadeild skrifstofunnar í Kaupmannahöfn og annast starfsmannastjóri undirbúning fundanna en nefndin getur einnig að eigin frumkvæði skotið málum um ráðningar- og starfskjör til ráðherranefndar og stjórnarnefndar. Ennfremur á nefndin að tryggja að um málefni er varða stofnanirnar fari eftir 5. gr. sáttmála þjóðanna frá 9. des. 1988, um réttarstöðu norrænna stofnana, og að starfsmannafélög njóti umsagnarréttar áður en ákvörðun er tekin. Haldnir voru þrír fundir í nefndinni á árinu, í Svíþjóð í mars, í Noregi í júní og í Reykjavík í desember. Helstu mál sem nefndin fjallaði um á árinu eru: Ákvörðun um stjórnarlaun stofnana á nýju ári, lífeyrisréttindi starfsmanna á skrifstofunni í Kaupmannahöfn og samþætting við lífeyrisávinning í heimalandi, hlutverk launa- og starfsmannanefndarinnar og hvernig það er í framkvæmd og eyðublöð um ráðningarsamninga við starfsmenn ráðherranefndarskrifstofunnar og samnorrænna stofnana sbr. upplýsingaskyldu um kaup og kjör skv. reglum ESB. Einnig var fjallað um reglur um flutningskostnað, menntunarkostnað vegna barna starfsmanna og árlega heimferð erlendra starfsmanna og ágreining sem kom upp á árinu um túlkun þeirra.
k)     Norræn starfsmannaskipti (nordisk tjenestemandsudveksling). Fjárframlag til starfsmannaskipta á árinu var með líkum hætti og verið hefur á undanförnum árum. Hlutdeild Íslendinga nam 6% af heildarfjárveitingu ráðherranefndarinnar og því til viðbótar fékk Ísland fjármagn af ónotaðri fjárveitingu Svíþjóðar. Þá var heimild til þess að nota ónotaða fjárveitingu frá árinu áður og var því hægt að koma til móts við fleiri umsækjendur en ella. Styrkþegar ársins voru níu talsins og hlutu þeir styrki til eins til fjögurra mánaða dvalar auk greiðslu ferðakostnaðar. Sem fyrr fóru flestir til Danmerkur, eða sjö, og tveir fóru til Svíþjóðar. Upplýsingar um starfsmannaskiptin er að finna á heimasíðu fjármálaráðuneytisins.
l)      Samstarf yfirmanna skattamála í fjármálaráðuneytum á Norðurlöndum. Samstarfið hófst 1989 að frumkvæði fjármálaráðherra Norðurlanda í þeim tilgangi að skapa vettvang til upplýsingamiðlunar og skoðanaskipta milli landanna um þróun í skattamálum. Samstarfið er fólgið í einum árlegum fundi yfirmanna skattamála og á milli þeirra er upplýsingum miðlað meðal annars með því að send eru milli ráðuneytanna frumvörp og skýrslur um skattamál. Á hinum árlegu fundum er gerð grein fyrir þeim breytingum á skattalögum, sem gerðar hafa verið í hverju landi um sig og unnið er að á hverjum tíma. Annar fastur liður er greinargerð um breytingar í skattamálum innan ESB, einkum með tilliti til áhrifa þeirra á Norðurlöndum, og er sjónarmiðum landanna utan ESB þá komið á framfæri. Í þriðja lagi eru þau skattamál rædd sem eru til umfjöllunar á vettvangi OECD og afstaða landanna til þeirra samræmd eftir atvikum. Að lokum er á fundum þessum fjallað um stærri mál á sviði skatta, sem löndin óska eftir að ræða.
m)     Norræna skattrannsóknarráðið. Ráðið var stofnað árið 1973 með samningi milli Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar. Á árinu 1999 ákvað ríkisstjórn Íslands að sækja um aðild að ráðinu. Árið 2002 var undirrituð bókun á milli aðildarríkja samningsins og Íslands um aðild Íslands að norræna skattrannsóknarráðinu frá ársbyrjun 2003. Markmið ráðsins er að stuðla að skattrannsóknum í lögfræði og hagfræði. Ráðið heldur fund einu sinni á ári auk þess sem árlega er haldin ráðstefna í einhverju aðildarlandanna þar sem tekin eru fyrir ýmis rannsóknarverkefni á sviði skattamála. Þá gefur ráðið út árbók þar sem birtir eru fyrirlestrar og skýrslur frá ráðstefnu ársins. Á síðasta fundi ráðsins sem haldinn var í Helsinki var umfjöllunarefnið skattaleg meðferð á hlutabréfum sem fjárfest er í erlendis.
n)      Samstarf fjárlagastjóra norrænu landanna. Fjárlagastjórar, þ.e. forstöðumenn þeirra skrifstofa í fjármálaráðuneytum norrænu landanna sem hafa umsjón með fjárlögum, hittast alla jafna tvisvar á ári. Þá er fjallað um ýmis þau málefni sem eru efst á baugi í fjárlagagerð landanna hverju sinni. Enn fremur eru tiltekin mál tekin til umræðu sem hafa áhrif á fjárlagagerðina, stjórn ríkisfjármála, ríkisreksturinn og ákvörðun útgjaldaramma til lengri eða skemmri tíma. Tekin eru fyrir ákveðin áherslumál í ríkisrekstri hjá hverju ríki sem efst eru á baugi hverju sinni. Samstarfið er mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og reynslu af breytingum í ríkisfjármálum og þau auðvelda samskipti milli fjármálaráðuneyta ríkjanna.

Norræni fjárfestingarbankinn.
    Norræni fjárfestingarbankinn var stofnaður 1975 til að styrkja norrænt samstarf og efnahag Norðurlanda. Með aukinni alþjóðavæðingu atvinnulífs á Norðurlöndum og stuðningi eigenda bankans hefur starfsemin orðið alþjóðlegri. Lán og ábyrgðir eru nú ekki aðeins veitt til verkefna á Norðurlöndum heldur einnig utan þeirra. Bankinn nýtir traust lánshæfi á alþjóðamarkaði til að veita lán á almennum bankakjörum til fjárfestingarverkefna einkaaðila og opinberra aðila í þágu Norðurlanda og þeirra ríkja utan Norðurlanda sem fá lán eða ábyrgðir frá bankanum. Hann hefur lagt aukna áherslu á lán til Eystrasaltsríkjanna og Norðvestur-Rússlands. Í ljósi aukinnar alþjóðlegrar starfsemi og aukinnar áhættu sem því fylgir var talið mikilvægt að treysta með formlegum hætti alþjóðlega stöðu bankans. Í því skyni tók árið 1999 gildi nýtt samkomulag um bankann sem miðar að því að styrkja stöðu hans sem alþjóðlegrar fjármálastofnunar. (Sjá nánar um Norræna fjárfestingarbankann í kafla 26.3.)

Önnur starfsemi.
    Auk þeirra verkefna sem hér hafa verið nefnd er rétt að vekja athygli á að fjármálaráðherrar Norðurlanda hafa um árabil haft náið samráð á vettvangi ýmissa alþjóðastofnana. Þannig hafa ráðherrarnir samráð fyrir fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eins og áður hefur verið minnst á. Ennfremur má nefna hliðstætt samráð vegna funda á vegum OECD. Meginlínurnar eru gjarnan lagðar á norrænum ráðherrafundum og þeim er fylgt eftir á fundum innan OECD, jafnt ráðherrafundum sem öðrum. Þá má nefna aðild ráðherranna að Eystrasaltsráðinu, ásamt fjármálaráðherrum Þýskalands, Póllands og Eystrasaltsríkjanna, en þessir aðilar halda að jafnaði einn fund á ári.

12. Byggðamál

    Samstarf Norðurlanda í byggðamálum byggir á samstarfsáætlun sem gildir fyrir árin 2001–2005. Mikilvægur þáttur er að skiptast á reynslu, byggja upp nýja þekkingu og samvinnu um þróun aðferða í því skyni að skapa traustari grunn fyrir stefnumótun í byggðamálum. Víða á Norðurlöndum taka stjórnmálamenn, yfirvöld, atvinnulíf og almenningur á einstökum stöðum og svæðum þátt í hagnýtu samstarfi við afmörkuð svæði í nágrannalöndum sínum. Norræna ráðherranefndin veitir fjárhagslegan stuðning til átta landamærasvæða.
    Svæðisbundið samstarf á Norðurlöndum hefur fengið nýjar evrópskar áherslur með þátttöku Norðurlanda í Interreg, landamærasvæðaáætlun ESB. Svæðisbundna samstarfið tengist einnig grannsvæðunum á Eystrasalts- og Barentshafssvæðinu og við Norður-Atlantshafið.
    Fjárhagsáætlun ársins hljóðaði upp á 29,2 millj. d.kr. Embættismannanefndin um byggðamál (NERP) hefur gert samstarfssamninga við átta landamærasvæði á Norðurlöndum og gilda þeir frá 2001 til 2006. Stór hluti þeirra fjármuna sem NERP hefur til ráðstöfunar fer til landamærasvæðanna eða 14.7 millj. d.kr. á árinu en þar af fær NORA verkefnið hæstu fjárhæðina eða 4,4 millj. d.kr. Á árinu var gert mat á starfi landamærasvæðanna þar eð starfstími þeirra er nú hálfnaður. Niðurstaðan er að góður árangur hafi náðst í starfinu.
    Samþykkt var á árinu að standa straum af kostnaði við einn starfsmann hjá ESPON í Luxembourg næstu tvö árin og er hlutverk hans að að vera tengiliður við ESPON og miðla þekkingu og reynslu til norrænna stofnana um það starf sem þar fer fram.
    Á vegum NERP starfar vinnuhópur sem hefur það hlutverk að fylgjast með endurskoðun á byggðastefnu ESB, en henni á að ljúka eigi síðar en árið 2006. Þá er hlutverk vinnuhópsins einnig að halda embættismannanefndinni upplýstri um áhrif stækkunar ESB á byggðastefnu sambandsins þar á meðal reglur um ríkisstyrki
    Kynnt var á árinu skýrsla um breiðbandsvæðingu á Norðurlöndum sem byrjað var að vinna að 2002.
    Síðastliðið vor skilaði norrænn samstarfshópur af sér skýrslunni „Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi“. Þeir þættir í skýrslunni sem snúa að NERP varða einkanlega NORA. Bent er á að NORA geti orðið vettvangur aukins samstarfs innan Vestur-Norðurlanda og við nágranna í vestri og suðri.
    Meðal ráðstefna sem haldnar voru á árinu var ein um skosk/norræna samvinnu og önnur um grannsvæðasamstarf við Eystrasaltsríkin.
    Í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Ósló í október sl. var haldinn fundur byggðamálaráðherra Norðurlanda. Þar kynnti Poul Schlüter, fyrrv. forsætisráðherra Dana, skýrslu sína um landamærahindranir og var rætt um framhald á því starfi. Einnig var rætt um áhrif stækkunar ESB á norræna byggðastefnu og þýðingu borga í byggðaþróun. Þá kynnti Valgerður Sverrisdóttir ráðherra byggðamála formennskuáætlun Íslands á sviði byggðamála.
    Á fundi NERP í nóvember sl. voru áhersluatriði Íslands kynnt. Þau atriði sem sett verða á oddinn eru: Mannauður dreifðu byggðanna og aukin notkun upplýsingatækni.

Nordregio.
    Nordregio er norræn fræðslu- og rannsóknastofnun í skipulags- og byggðamálum. Hún var stofnuð árið 1997 upp úr eldra samstarfi á sviðinu. Stofnunin er í Stokkhólmi og starfar þar einn Íslendingur, auk annars sem var þar í afleysingastarfi hluta af árinu. Alls starfa 34 manns hjá stofnuninni. Hlutverk Nordregio er að stunda rannsóknir á sviði skipulags- og byggðamála og þróa og miðla þekkingu um byggða- og skipulagsmál til stofnana innan þessara málaflokka á Norðurlöndum. Áhersla stofnunarinnar á byggðamál í Evrópu, sem og í málum tengdum Eystrasaltsríkjunum, hefur aukist undanfarin ár.
    Nordregio stundar auk umfangsmikilla rannsókna, fræðslustarf í formi námskeiða og rekur m.a. skólann „URSA – Urban and Regional Studies Academy“, en þar er staðið fyrir sérhæfðum námskeiðum fyrir fagfólk. Í tengslum við rannsóknaverkefni stofnunarinnar hafa Íslendingar í síauknum mæli verið þátttakendur, sem og í námskeiða- og ráðstefnuhaldi. Á árinu hélt stofnunin 23 námskeið og ráðstefnur og voru þátttakendur í þeim alls 676.
    Þá hefur Nordrego tekið nokkur skref í þá átt að efla rannsóknir og rannsóknasamstarf á Vestur-Norðurlöndum; Íslandi, Færeyjum, Grænlandi og Vestur-Noregi. Meðal annars var veitt fé til að koma á fót rannsóknarverkefnum á Vestur-Norðurlöndum og kostaði Nordregio fund sérfræðinga byggðamála í Þórshöfn í Færeyjum í júní 2002. Hefur þessi fundur m.a. leitt til þess að rannsóknaráætlun NERP, „Future challenges and institutional preconditions for regional development policy“, hefur styrkt verkefni með þátttöku Íslendinga, Færeyinga og Álandseyinga um hlutverk og framtíð lítilla sveitarfélaga í byggðaþróun framtíðarinnar. Var því hleypt af stokkunum seint á haustdögum. Fyrri lota rannsóknaráætlunarinnar var árin 2000–2002 og nú stendur sú síðari yfir, eða til loka árs 2004. Áætlunin hefur þrjú meginþemu: nýsköpun, búsetuþróun og sjálfbærni – þættir sem telja má að hafi þýðingu fyrir þróun byggðamála og stefnumótun. Íslenskir fræðimenn hafa tekið þátt í þessari áætlun frá upphafi í verkefninu „Coping Strategies and Regional Policies – Social Capital in the Nordic Peripheries“.
    Í september sl. kom út stefnumótun og starfsáætlun Nordregio fyrir árin 2004–2006 og má lesa hana í heild sinni á vefsíðu stofnunarinnar www.nordregio.se. Þar kemur m.a. fram að líta bera á stofnunina sem viðbót, á norrænum og alþjóðlegum vettvangi, við þá rannsókna- og þróunarstarfsemi á sviði byggða- og skipulagsmála sem fyrir er í hverju norrænu landanna. Þá er lögð sérstök áhersla á að stofnunin muni áfram byggja upp og viðhalda netum og tengslum innan fagsviðsins sem og að vera vettvangur þar sem fræðimenn og starfsmenn úr stjórnsýslu geta unnið saman. Faglega er lögð áhersla á að skoða verði allar hliðar sjálfbærrar byggðaþróunar í samhengi; þ.e. efnahagsþróun, jafnvægi í byggðum og þróun náttúrulegs umhverfis og menningarumhverfis.
    Heildarvelta Nordregio árið 2002 var 29,3 millj. s.kr. Í stjórn Nordregio sitja aðalfulltrúar frá norrænu löndunum fimm og áheyrnarfulltrúar frá Færeyjum, Álandseyjum og Grænlandi, auk fulltrúa starfsfólks. Þá sitja í fagráði stofnunarinnar 21 fulltrúi, þrír frá hverju norrænu landanna og tveir frá sjálfsstjórnarsvæðunum.

Norræna Atlantsnefndin (NORA); Norðurslóðaáætluninni (NPP);
og Nordic-Scottish Co-operation Liasion Group.

     Norræna Atlantsnefndin (NORA) er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja, Grænlands og Norður- og Vestur-Noregs og heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Nefndin er hluti af norrænu samstarfi á sviði byggðamála og svæðasamstarfs. Skrifstofa nefndarinnar er í Þórshöfn á Færeyjum, en hún hefur einnig fulltrúa í hverju aðildarlandi og hefur starfsmaður hjá þróunarsviði Byggðastofnunar umsjón með starfi NORA hér á landi.
    NORA veitir styrki til samstarfsverkefna er tengjast þróun atvinnulífs, nýsköpun og rannsóknasamstarfi á starfssvæði sínu. NORA hóf starfsemi í núverandi mynd árið 1996. Þrír fulltrúar frá hverju landi eiga sæti í nefndinni og eru fulltrúar Íslands skipaðir af iðnaðarráðherra. Framkvæmdaráð, þar sem hvert aðildarland á einn fulltrúa, undirbýr ákvarðanir, leggur fram tillögur og veitir framkvæmdastjóra ráðgjöf í einstökum málum.
    Meginmarkmið með starfi NORA er að hvetja til og efla samvinnu á vestnorræna svæðinu með áherslu á sjávarútveg, verndun sjávar, ferðaþjónustu, landbúnað, jarðrækt, samgöngur, upplýsingatækni, verslun og iðnað. Áhersla er á atvinnuþróun og nýsköpun í atvinnulífinu. Þá leitast nefndin við að koma á samstarfi við aðra sem vinna að hliðstæðum og tengdum verkefnum á samstarfssvæðinu. Einkum hefur verið lögð áhersla á samstarf við atvinnuþróunar- og rannsóknarstofnanir í löndunum fjórum. Einnig er miðlað á milli landanna reynslu og þekkingu í byggða- og atvinnumálum og stuðlað að rannsóknum og þróun á framangreindum sviðum þar sem löndin geta notið góðs af samskiptum stofnana, fyrirtækja og einstaklinga. Verkefni NORA hafa skilað góðum árangri, ekki síst í þekkingarmiðlun, rannsóknum, samstarfi og markaðssókn þeirra sem tekið hafa þátt.
    NORA hefur einu sinni á ári auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna, að jafnaði síðla vetrar. Umsóknir eru afgreiddar að vori. Styrkfjárhæðir geta numið allt að 500.000 d.kr. á ári. Einungis er greitt fyrir hluta af kostnaði við hvert verkefni og aldrei meira en 50% af heildarkostnaði. Til að fá styrk þarf verkefnið að vera í samstarfi landanna.
    Á árinu veitti NORA styrki til alls 32 verkefna, sem voru bæði ný og framhaldsverkefni. Íslendingar tóku þátt í 28 þeirra eða 88% sem verður að teljast afar góður árangur. Íslendingar áttu aðild að eftirfarandi: verkefni vegna kortagagnagrunns um ferðaþjónustu, íþrótta- og menningarferðaþjónusta, þróun nýrra aðferða við kræklinga-, þorsk- og seiðaeldi, þróun á rafrænni afladagbók, þróun tækis til að afhausa smáan þorsk, þróun köfunarbáts til rannsókna á hafsbotni, framleiðslu sands til byggingariðnaðar, þróun jarðarberjaræktunar, ferðastyrkur vegna alþjóðlegs móts ungra leiðtoga í Nuuk, rannsókn á nýsköpunarumhverfi smárra samfélaga á norðurslóðum, í tengslum við UNESCO verkefnið MOST – CCPP, uppbyggingu tengslanets á meðal stofnana sem veita ráðgjöf til fyrirtækja í olíu og gasiðnaði, fiskiðnaði, fiskeldi og framleiðsluiðnaði og ferðastyrkur vegna alþjóðlegrar tískusýningar á Íslandi o.fl. Af þessari upptalningu má sjá að umsóknir og verkefni voru afar fjölbreytt.
    Fjárveiting til NORA á árinu var í heild um 6.0 millj. d.kr. Norræna ráðherranefndin leggur til 4,3 millj. d.kr., Lánasjóður Vestur-Norðurlanda 1,5 millj. d.kr. og 200 þús. d.kr komu frá landsstjórninni í Færeyjum. Vegna ónýttra fjárveitinga frá fyrra ári tókst að úthluta um það bil sömu fjárhæð eða 6 millj. d.kr. til áðurnefndra 32 verkefna.
    NORA tekur jafnframt virkan og vaxandi þátt í Norðurslóðaáætluninni í „Northern Periphery Programme“ (NPP) en það er eitt af svokölluðum Interreg-verkefnum ESB. Því er ætlað að efla samvinnu yfir landamæri á svæðum á norðurslóðum þar sem lífsskilyrði eru svipuð. Þátttaka NORA í NPP er fólgin í því að skrifstofa NORA aðstoðar Ísland, Grænland og Færeyjar við að meta umsóknir í samstarfi við aðila í þessum löndum, og jafnframt annast skrifstofan ýmis sameiginleg verkefni landanna þriggja vegna þátttöku þeirra í NPP. Auk þess hefur NORA styrkt undirbúningsverkefni (forverkefni) vegna umsókna til NPP-áætlunarinnar og samtals var varið 1,3 millj. d.kr. til slíkra verkefna á árinu.
    Líta má á aðild landa utan ESB að NPP-verkefninu sem hluta af alþjóðlegri þróun og alþjóðavæðingu á sviði byggðamála sem fer vaxandi, en opnar um leið fyrir ný tækifæri til að vinna að svæðisbundnum hagsmunum á nýjan og fjölbreyttari hátt en áður.
    Norðurhéruð Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Skotlands ásamt Færeyjum, Grænlandi og Íslandi eiga aðild að NPP, en verkefninu er ætlað að stuðla að samstarfsverkefnum sem miða að því að finna lausnir og/eða stunda rannsóknir á sameiginlegum viðfangsefnum. Áhersla er lögð á samgöngu- og fjarskiptamál, atvinnuþróun og vistvænni nýtingu náttúruauðlinda og verkefni tengd eflingu samfélaga á norðurslóðum.
    Verkefni NPP eru mun umfangsmeiri og stærri en hjá NORA og hafa reynst afar vel. Heildarfjárveiting aðildarlanda til NPP-verkefnisins 2000–2006 er um 53 millj. evra eða um 4,7 milljarðar ísl.kr. Nú þegar taka Íslendingar þátt í 7 verkefnum sem telja verður afar góðan árangur og sýnir um leið þau tækifæri sem bjóðast með verkefnum sem þessum, fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Ísland gerðist aðili að NPP árið 2002. Þá áttu Noregur, Grænland og Færeyjar þegar aðild að verkefninu en lönd utan ESB sem jafnframt liggja að bandalaginu geta gerst aðilar að verkefninu með því að standa sjálf straum af þeim kostnaði sem af því hlýst. Framlag íslenskra stjórnvalda til áætlunarinnar eru 25 milljónir á ári fram til ársins 2006 og eru þau verkefni sem Íslendingar taka þátt í styrkt af þessu framlagi, en verkefnin njóta einnig framlaga og þátttöku samstarfsaðila í öðrum löndum sem eiga aðild að áætluninni.
    Þar sem áhugi Íslendinga á verkefninu er mikill sem komið hefur fram í fjölda umsókna, hefur þurft að lækka hámark einstakra styrkja er veittir eru af framlagi Íslands til að geta sinnt þeim fjölda umsókna sem standast kröfur verkefnisins. Þess skal einnig getið að styrkir til einstakra verkefna eru ekki hærri en sem nemur 50% af kostnaði þó að hámarki 70 þús. evrur. Umsækjendur verða sjálfir að sjá um fjármögnun þess sem upp á vantar. Í ljósi þessarar reynslu, mikils áhuga á verkefninu og takmarkaðrar fjárhagslegrar getu, er talið mikilvægt að auka fjármagn til þessa verkefnis.
    Á fundum NORA hefur einnig verið fjallað um mikilvægi þess að NORA færi út kvíarnar í einni eða annarri mynd, (s.s. auknum tengslum, verkefnum, ráðstefnum) til landa í kringum Norður-Atlantshaf, þar sem efnahagsstarfsemi fyrirtækja, stofnana sem og menningarleg starfsemi er í vaxandi mæli að tengjast næstu svæðum, s.s. í Skotlandi, Hjaltlandi, Orkneyjum og austurströnd Kanada. Einnig verður horft til stefnumörkunar Norrænu ráðherranefndarinnar, þar sem áhersla var lögð á aukið samstarf og áherslur á vestnorræna svæðinu.
    Í þessu sambandi ber þess að geta að þegar er starfandi nefnd norrænna og skoskra aðila um svæðisbundin málefni er ber heitið „Nordic-Scottish Cooperation Liasion Group“, er fjallar um mögulegt samstarf, upplýsingamiðlun og samstarfsverkefni. Fundir þessarar nefndar hafa verið haldnir í tengslum við NPP-fundi og er starfið frekar óformlegt, en einnig hafa verið haldnar stærri ráðstefnur og fundir. Starf nefndarinnar hefur einnig snúið að því að auka möguleika þessara landa innan annarra og tengdra alþjóðlegra verkefna sem tengjast svæðinu á einn eða annan hátt. Nýlega vann skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði byggðamála, Nordregio, skýrslu um möguleika og áherslur á þessu sviði, en skýrslan ber heitið „Trans-National Nordic-Scottish Co-operation – Lessons for Policy and Practice“ og má finna á heimasíða nefndarinnar www.eprc.strath.ac.uk/nordic/projects.htm.
    Frekari upplýsingar um NORA og NPP má fá á heimasíðu Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is en fulltrúi og starfsmaður þessara verkefna er staðsettur þar.

13. Samgöngumál



    Norrænt samstarf um samgöngumál fer að mestu fram í norrænni embættismannanefnd um samgöngumál (NET), en í henni eiga sæti ráðuneytisstjórar samgönguráðuneytanna á Norðurlöndum, ásamt staðgenglum og ráðgjöfum. Nefndin hefur að jafnaði haldið tvo fundi á ári, en í ár voru fundirnir þrír. Samgönguráðherrar Norðurlanda héldu einn fund á árinu og í tengslum við hann var fundað með samgönguráðherrum Eystrasaltsríkjanna um samstarf á sviði samgöngumála.

Sumarfundur samgönguráðherra Norðurlanda.
    Fundurinn var haldinn í Grythyttan í Svíþjóð í september sl. Helstu mál voru:
a)     Áhrif samgangna á byggðaþróun.
        Samgönguráðherra Svía opnaði umræðuna um þetta mál og sagði að gott og vel skipulagt samgöngukerfi gæti á áhrifaríkan hátt stutt við og styrkt byggðaþróun, meðal annars með því að styrkja byggðakjarna sem efldi atvinnulíf og hagvöxt.
        Samgönguráðherra Dana tók undir þetta og benti á þýðingu þess að ákvarðanir í fjárfestingum í samgöngum séu byggðar á skynsamlegum forsendum og að samfélagið í heild njóti þeirra í ríkum mæli. Varðandi fjárfestingar á landamærasvæði sem nýttust vel nefndi ráðherrann fjárfestingar á Eystrasaltssvæðinu til mótvægis við önnur vaxtarsvæði í Norður-Evrópu í kringum Hamborg og Berlín. Einnig nefndi ráðherrann að Eyrarsundssvæðið með Eyrarsundsbrúnni væri vel heppnað vaxtarsvæði. Norski samgönguráðherrann lýsti ánægju með að þetta mál væri sett í forgang. Kom fram í máli hans að oftast þegar þessi mál væru rædd væri það á þeim nótum að einblínt væri á neikvæðu þættina eins og áhrif samgangna á umhverfið. Ráðherrann lýsti byggðaþróunaráætlunum Norðmanna og þeirri stefnu að halda skuli öllu landinu í byggð. Nauðsynlegt væri að beita úrræðum í samgöngumálum til að stuðla að hagvexti í öllu landinu. Í Noregi er unnið að byggðaáætlun sem skapa á sterkt samfélag með vel skipulögðum vinnumarkaði, byggða- og þjónustukjörnum. Gott og greiðfært samgöngunet er frumforsenda þess að slíkt samfélag verði að veruleika. Vorið 2004 verður lagt fram í Stórþinginu heildstæð samgönguáætlun fyrir árin 2006–2015 þar sem tekið verður á öllum þáttum samgangna, bæði innanlands og milli landa.
        Samgönguráðherra Íslands, Sturla Böðvarsson, tók undir með Svíum. Hann greindi jafnframt frá nýrri samræmdri samgönguáætlun áranna 2003–2014 sem samþykkt var á Alþingi fyrr á þessu ári. Í henni eru í fyrsta skipti allir þættir samgöngukerfisins teknir með, vegir, hafnir og flugvellir. Einnig eru öryggismálum sjófarenda gerð skil. Þessi nýja samgönguáætlun markar tímamót í áætlanagerð í samgöngu- og byggðamálum á Íslandi.     Benti ráðherrann á að samgöngubætur í vega- og jarðgangagerð styttu til muna ferðatíma vegfarenda, sem aftur hefur mikla þýðingu fyrir þróun byggðar í landinu.
        Samgönguráðherra Færeyja gerði í stuttu máli grein fyrir sjónarmiðum Færeyinga. Vegna landfræðilegrar staðsetningar hafa samgöngur og fjarskipti mikla þýðingu fyrir eyjarnar. Hann lagði áherslu á hlutverk Færeyja í flutningum á vestnorræna svæðinu og að þörf væri fyrir stærri og afkastameiri hafnir.
        Fulltrúi Finnlands greindi frá því hvernig staðið væri að byggðaþróunarmálum í Finnlandi sem markast töluvert af þátttöku Finna í ESB. Markmið stjórnvalda í byggða- og samgöngumálum fara að miklu leyti saman. Í lok þessa árs verður lögð fyrir finnska þingið ný áætlun í byggðamálum fyrir árin 2003–2007 og samhliða verður lögð fram samgönguáætlun.
        Samgönguráðherra Álandseyja sagði að vegna legu eyjanna í miðju Eystrasalti væru eyjaskeggjar mjög háðir góðum samgöngum. Hann lýsti stöðu mála og framtíðarhorfum.
b)     Kynning á skýrslunni „Transporttelematik och individ“.
        Fulltrúi frá dönsku Vegagerðinni kynnti skýrsluna. Fram kom í máli fundarmanna að þetta efni snerti mörg svið og að nauðsynlegt væri að setja um það löggjöf. Samþykkt var að starfshópur sem ynni að málinu héldi starfi sínu áfram.
c)      Fundur með samgönguráðherrum Eystrasaltsríkjanna.
        Á fundinum var farið yfir dagskrá fundarins sem boðað var til daginn eftir. Bent var á nauðsyn þess að þau störf sem unnin eru í þágu nágrannalandanna verði samræmd þeim störfum sem unnin eru innan ESB undir merkjum Norðlægrar víddar (Den nordliga dimensionen).
d)     Verkefnaáætlun fyrir árin 2004–2006.
        Sænski samgönguráðherrann kynnti meginefni verkefnaáætlunar fyrir norrænt samstarf í samgöngumálum næstu þrjú árin og benti m.a. á að norrænni stefnumörkun um sjálfbæra þróun væru gerð góð skil. Fundarmenn lýstu ánægju sinni með það hve hátt umhverfismálum væri raðað á forgangslista áætlunarinnar.
e)      EES- og ESB-mál.
        Svíar gerðu grein fyrir þeim málum sem Ítalir settu í forgang á formennskutíma sínum til loka árs 2003 en þau eru m.a.:
        –     skipulag og fjárfestingar í landsamgöngum ( TEN-verkefnið),
        –     Eurovignet-tilskipunin, sem fjallar m.a. um vegtolla,
        –     umferðaröryggismál,
        –     loftferðasamningar við þriðja ríki,
        –     járnbrautarsamgöngur.
    Norski samgönguráðherrann vakti máls á erfiðleikum við framkvæmd EES-samningsins og nefndi sérstaklega viðræður um loftferðasamninga við þriðju ríki og stofnun EASA. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, tók undir með norska samgönguráðherranum varðandi EASA og sagði jafnframt að Ísland hefði átt í erfiðleikum í samskiptum við ESB um ýmsa þætti flugmála.

Sameiginlegur fundur samgönguráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.
    Í tengslum við sumarfund norrænu samgönguráðherranna var haldinn sameiginlegur fundur þeirra og samgönguráðherra Eystrasaltsríkjanna. Þetta var annar fundur þeirra. Eftirtalin mál voru rædd:
    –     Viðurkenning Eystrasalts sem sérlega viðkvæms hafsvæðis (Designation of the Baltic Sea as a Particularly Sensitive Sea Area).
    –     Siglingaleiðir á Eystrasalti (Motorways of the Baltic Sea).
    –     Samstarf um þjónustu ísbrjóta á Eystrasalti (Cooperation on the icebreaking services in the Baltic Sea).
    Svíar kynntu fyrsta dagskrármálið og leiddu umræðuna. Mikil og þung skipaumferð er um Eystrasalt ár hvert, umferð skipa sem flytja efni sem eru hættuleg umhverfinu. Mörg þeirra uppfylla ekki alþjóðareglur um öryggi skipa. Öllum er ljóst að ekki er á valdi ríkjanna að stöðva þessar siglingar en ríkin við Eystrasalt bera ábyrgð og skyldur samkvæmt alþjóðalögum um siglingar.
    Það sem veldur Svíum mestum áhyggjum eru siglingar olíuskipa á hafsvæðinu og er nærtækast að minnast þess er olíuskipin Erika og Prestige sukku á Eystrasalti. Þau slys hrundu af stað mikilli umræðu á vettvangi ESB um mengunarmál. Einnig hafa þessi mál verið til umræðu hjá Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO) en betur má ef duga skal.
    Nauðsynlegt er að hvetja til frekara samstarfs ríkja við Eystrasalt og að tillögur til úrbóta í þessum málum komi frá þeim. Þess vegna var lagt til að þessi fundur sendi Alþjóðasiglingamálastofnuninni sameiginlega áskorun þar sem fundarmenn lýsa því yfir að líta verði á Eystrasalt sem sérlega viðkvæmt hafsvæði og að það verði viðurkennt sem slíkt af öllum ríkjum heims.
    Eftir miklar umræður um tillögu Svía var hún samþykkt einróma.
    Finnar höfðu framsögu um annað dagskrármálið. Siglingar um Eystrasalt eru ríkjunum sem að því liggja mjög mikilvægar. Um 80% af útflutningsvörum Finna eru fluttar sjóleiðis um Eystrasalt. Svipaðar tölur má sjá frá Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Um 40% af útflutningsvörum Rússa fara um hafsvæðið. Árlega fara um 400 milljónir tonna af varningi um hafnir við Eystrasalt. Engum dylst mikilvægi þessa hafsvæðis fyrir íbúa landanna og mikið er í húfi að siglingar séu sem öruggastar og greiðastar. Mikilvægi Eystrasalts eykst við stækkun ESB og þá verður litið á það sem „innhaf“ í Evrópu í stað þess að vera á jaðarsvæði. Greint var frá starfi nefndar undir formennsku Karel Van Miert sem fékk það veganesti að gera tillögur um forgangsverkefni í samgöngumálum til ársins 2020. Skýrslan var birt í lok júní og lagði nefndin fram 18 tillögur, m.a. að veitt yrðu framlög til verkefnisins „Motorways of the sea“. Eystrasalt var meðal fjögurra svæða sem nefndin lagði til að styrkja með framlögum.
    Unnið er að útfærslu á tillögum nefndarinnar og hafa fulltrúar ríkjannna við Eystrasalt komið að því verki. Lagt var til að stofnuð yrði stýrinefnd á vegum landanna um þetta verkefni, hugsanlega með þátttöku ESB. Þessi hugmynd fékk góðar undirtektir og samþykkt var að tilnefna fulltrúa í nefndina. Kom fram í máli danska fulltrúans að mikilvægt væri að leita til einkafyrirtækja um fjármögnun þessa verkefnis.
    Sænski samgönguráðherrann opnaði umræðuna um þriðja dagskrárliðinn. Eins og fram hefur komið eru ríkin við Eystrasalt mjög háð sjósamgöngum. Frostharðir vetur hindra oft siglingar. Svíar hafa frá áttunda áratug síðustu aldar aukið mjög þjónustu ísbrjóta í sænskum höfnum. Sænski iðnaðurinn er háður sjóflutningum árið um kring. Síðasti vetur minnti á hvaða áhrif meðalárferði getur haft á viðskipti landanna og hversu mjög löndin við Eystrasalt eru háð þjónustu ísbrjóta. Svíar og Finnar vinna náið saman við að veita þessa þjónustu beggja vegna Norður-Eystrasalts til hagsbóta fyrir bæði löndin. Þetta samstarf er byggt á samkomulagi frá árinu 1961.
    Þörf á samstarfi ríkjanna á suðurhluta hafsvæðisins er augljós og jafnvel mikilvægari. Þess vegna er það áhugavert umfjöllunarefni hvort sænskfinnska samstarfsmódelið gæti hentað öðrum ríkjum við Eystrasalt. Því er til umræðu að láta samkomulagið frá árinu 1961 ná til allra ríkjannna við Eystrasalt.
    Fulltrúar allra ríkja fögnuðu þessu frumkvæði Svía og hvöttu til aukins samstarfs um þjónustu ísbrjóta á Eystrasalti. Svíar tóku að sér að fylgja málinu eftir.

Efst á baugi í samgöngumálum Norðurlanda.
    Á ráðherrafundinum og á fundum NET kynnir hvert land það markverðasta í samgöngumálum heima fyrir.
    Í ár voru fjárveitingar til reksturs járnbrauta, fast vegasamband milli Danmerkur og Þýskalands, fjárfestingaáætlun í samgöngumálum til ársins 2010, stofnun samgönguráðs, breyting á póstþjónustu í frjálsræðisátt og frelsi í leigubílamálum ofarlega á blaði í Danmörku. Í Svíþjóð var það samgönguáætlun fyrir árin 2004–2015, umferðaröryggismál, breytingar á stjórnskipulagi flugmálastofnunar og skipulag almenningssamgangna. Í Finnlandi bar hæst breyting á stjórnskipulagi siglingastofnunar, bættar járnbrautarsamgöngur milli Helsinki og Pétursborgar og bygging hraðbrautar milli Helsinki og Åbo. Í Noregi voru það breytingar á norsku járnbrautunum í hlutafélag í eigu ríkisins, samgönguáætlun fyrir árin 2006–2015, ný einkafjármögnunarverkefni í vegagerð, bætt skipulag almenningssamgangna, úthlutun á þriðjukynslóðar fjarskiptaleyfum og umferðaröryggismál. Í Færeyjum bygging tveggja jarðganga, 5 km og 6 km langra, m.a. í tengslum við flugvöllinn og einkavæðing símans í Færeyjum og á Álandseyjum siglingar og flugsamgöngur.
    Ísland gerði grein fyrir samgönguáætlun fyrir árin 2003–2007, nýjum hafnalögum, áherslum í ferðamálum og færslu umferðarmála frá dómsmálaráðuneytinu til samgönguráðuneytisins frá ársbyrjun 2004.

Störf vinnuhópa.
    Á árinu störfuðu vinnuhópar á vegum NET að eftirtöldum verkefnum:
a)     Umferðaröryggismál á Norðurlöndum.
        Þetta er eitt af mikilvægustu verkefnunum sem unnið er að á þessum vettvangi. Markmið þess er að löndin skiptist á upplýsingum um umferðaröryggismál, m.a. til að læra af reynslu hvers annars og til að koma í veg fyrir tvíverknað. Þetta starf er á ábyrgð Norðmanna. Á fundi NET í nóvember var vinnutilhögun starfshópsins fyrir árið 2004 samþykkt. Jafnframt var þess vænst að meiri árangur yrði af starfi hans m.a. með hliðsjón af því að Ísland leggur ríka áherslu á þennan málaflokk í formennskuáætlun sinni fyrir árið 2004.
b)     Upplýsingatækni í samgöngumálum.
        Verkefnið hefur verið unnið á ábyrgð Finna og gerði finnski fulltrúinn í NET grein fyrir starfinu. Verkefni vinnuhópsins skiptist í þrennt; (1) að setja upp sameiginlegt ferðaskipulagskerfi, (2) að gera úttekt á stöðu einstaklingsins í umhverfi þar sem upplýsingatækni verður nýtt til að auðvelda samgöngur, (3) að setja upp tölvukerfi til að fylgjast með flutningi á hættulegum vörum. Starfshópurinn stóð fyrir ráðstefnu í Ósló á árinu um upplýsingatækni í samgöngum sem tókst vel. Á fundinum í nóvember ræddi NET starfsemi hópsins og komu fram efasemdir um það hvort starfshópurinn ætti að vera með flutning á hættulegum varningi á verkefnaáætlun sinni.
c)     Sjálfbærar samgöngur á Norðurlöndum.
        Þetta verkefni er eitt af forgangsverkefnum NET. Starfið er unnið á ábyrgð Svíþjóðar og gerði sænski fulltrúinn í NET grein fyrir því á árinu. Þetta starf hefur gengið vel og lýsti NET yfir ánægju sinni með það. Á fundi sínum í nóvember samþykkti NET tillögur starfshópsins um verkefnaáætlun fyrir árið 2004.
d)     Samstarfið á Eystrasaltssvæðinu.
        Danmörk greindi á fundi NET í nóvember frá starfi vinnuhópa um þetta samstarf. Það er vel skipulagt og gengur vel. Danski fulltrúinn í NET gerði grein fyrir verkefnaáætlun starfshópsins fyrir árið 2004, en m.a. er á dagskrá að halda ráðstefnu í janúar um siglingaleiðir á Eystrasalti.
    NET samþykkti á fundinum umrætt vinnufyrirkomulag vegna þessa starfs á árinu 2004.
Samstarfið í framtíðinni – formennskuáætlun Íslands 2004.
    Það er sameiginlegt álit samgönguráðherra Norðurlanda að áhugi sé fyrir og þörf á því að viðhalda norrænu samstarfi á sviði samgöngu- og umferðarmála. Það getur farið fram innan vébanda Norrænu ráðherranefndarinnar eða milli einstakra landa.
    Samgöngumál snerta alla þætti þjóðlífsins og ekki óeðlilegt að þau séu vistuð á einum stað þótt þau gangi þvert á verkefni annarra ráðuneyta. Þetta á einkum við um umhverfismál og upplýsingatækni í samgöngum.
    Ísland kynnti á fundi NET í nóvember formennskuáætlun sína fyrir árið 2004. Í henni er lögð áhersla á eftirfarandi málefni, auk þeirra viðfangsefna sem norrænu samgönguráðherrarnir og NET hafa unnið að á undanförnum árum:
a)     Flug og aðrar samgöngur á Vestur-Norðurlöndum.
  b)     Umferðaröryggismál.
  c)     Upplýsingatækni í samgöngum.
  d)     Ferðamál.
  e)     Öryggi sjófarenda og siglingar.


14. Landbúnaður og skógrækt


    Á árinu 2001 varð samstaða um að mynda nýja ráðherranefnd um landbúnað og skógrækt, sjávarútveg og matvæli þannig að ekki er lengur starfandi ráðherranefnd fyrir landbúnað og skógrækt einvörðungu. Með þessari skipulagsbreytingu er stefnt að því að samþætta samstarfið þvert á ráðuneyti, enda skipan þessara málefna ólík í löndunum fimm.
    Í samstarfsáætluninni sem unnið hefur verið eftir á sviði landbúnaðar og skógræktar frá árinu 2000 er megináhersla lögð á verkefni á eftirfarandi sviðum:
–     Sjálfbær landbúnaður og sjálfbær skógrækt.
–     Varðveisla erfðaefnis og líffræðilegs fjölbreytileika.
–     Öryggi matvæla.
–     Byggðaþróun á svæðum sem eru sérstaklega háð landbúnaði og skógrækt.
    Í áætluninni er rík áhersla lögð á sjálfbærni allra þátta í landbúnaði og skógrækt. Embættismannanefndin fyrir landbúnað og skógrækt, NEJS, hefur á fundum sínum fjallað um forgangsröðun verkefna innan samstarfsáætlunarinnar.
    Þau föstu verkefni sem heyra undir NEJS eru eftirfarandi:
–     Norræni genbankinn fyrir nytjaplöntur (NGB) sem hefur það hlutverk að varðveita og tryggja sjálfbæra nýtingu erfðalinda í nytjajurtum sem upprunnar eru á Norðurlöndum.
–     Norræni genbankinn fyrir húsdýr (NGH) sem hefur það hlutverk að vera þekkingarmiðstöð fyrir verndun og sjálfbæra nýtingu erfðalinda í norrænu búfé.
–     Norræna samstarfsráðið um landbúnaðarrannsóknir (NKJ).
–     Samstarfsnefndin um norrænar skógræktarrannsóknir (SNS).
–     Samstarf Norrænu landbúnaðarháskólanna (NOVA).
–     Norræna dýralæknasamstarfið (NKVet).
–     Samstarfsnefnd um plöntusjúkdóma.
–     Samstarfsráð um erfðalindir.
    Á öllum þessum sviðum eru íslenskir vísindamenn virkir þátttakendur.
    Á árinu var meginhluta fjárlaga NEJS varið til samningsbundinna langtímaverkefna á sviði rannsókna og varðveislu erfðaauðlinda sem víðtæk samstaða er um meðal þjóðanna.     Svíar fóru með formennsku í samstarfinu á árinu. Með vísan til aukinnar alþjóðlegrar samkeppni og stórfelldra breytinga í landbúnaði, með færri og stærri búum og þeirri grisjun byggðar sem því fylgir, settu Svíar á oddinn verkefni sem lýtur að því að skilgreina stöðu bóndans og hið nýja og fjölþætta hlutverk landbúnaðar í nútímasamfélagi. Fylgt var eftir formennskuáherslu Norðmanna um öryggi matvæla og varðveislu erfðaauðlinda í dýrum og plöntum svo og að efla menntun og rannsóknir í landbúnaði. Þá beittu Svíar sér fyrir umræðum um hvernig samtvinna megi efnahagslegt og vistfræðilegt gildi skóga og menningarlegar og félagslegar hefðir sem skógrækt og skóglíf skapa.
    Miklar breytingar hafa á undanförnum árum orðið á norrænu samstarfi á sviði landbúnaðar og skógræktar. Á sameiginlegum fundi embættismannanefndanna fyrir landbúnað og skógrækt (NEJS), matvæli (EK-Livs) og fiskveiðar (NEF) í október 2002 var samþykkt að yfirfara verklag og leita leiða til að einfalda og skapa meiri skilvirkni í samstarfi embættismannanefndanna þriggja. Þetta starf leiddi til þess að á fundi ráðherranefndarinnar í júní sl. var samþykkt að setja á fót hóp embættismanna (koordinationsgrupp) sem hefur það hlutverk að tryggja heildarsýn í starfi embættismannnefndanna og taka ákvörðun um skiptingu fjármuna sem til málaflokksins er varið. Samræmingarhópurinn kemur í stað sameiginlegra funda embættismannanefndanna þriggja. Einn fulltrúi frá hverju norrænu landanna auk fulltrúa frá Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum eru í hópnum. Starf embættismannanefndanna verður óbreytt. Í framhaldi af þessari breytingu er nú unnið að sameiginlegri samstarfsáætlun embættismannanefndanna þriggja fyrir árin 2005–2008, en fram til þessa hafa þær unnið hver eftir sinni verkáætlun. Jafnframt þessu fer fram mat á árangri þess starfs sem unnið hefur verið samkvæmt núgildandi samstarfsáætlun. Gera má ráð fyrir því að þessar ákvarðanir hafi víðtæk áhrif á fyrirkomulag samstarfsins á næstu árum.
    Rétt er að geta sérstaklega samstarfs Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna á sviði landbúnaðar og skógræktar. Í samræmi við Kaupmannahafnaryfirlýsingu um sjálfbæra þróun dreifbýlis, sem samþykkt var í desember 2000, hefur verið unnið að auknu samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna, með áherslu á að efla stofnanir og stjórnsýslu á því sviði. Ákveðið var að samvinna á þessum vettvangi næði einnig til sjálfstjórnarsvæðanna, Álandseyja, Færeyja og Grænlands, svo og til Norðvestur-Rússlands, þ.e. héraðanna sem liggja austan landamæra Finnlands og Noregs. Ekki hefur tekist að finna samstarfsaðila í Rússlandi. Samráðsnefnd (Consultation Committee) hefur unnið að þróun þessa samstarfs. Starf nefndarinnar til þessa hefur fyrst og fremst beinst að því að finna þessu samstarfi farveg og er niðurstaðan sú að halda verkefninu sem mest innan ramma verkefnis ráðherranefndarinnar um öryggi matvæla í stað þess að dreifa kröftunum of víða. Hlutverk norrænu landanna í samstarfinu verður væntanlega fyrst og fremst í því fólgið að miðla reynslu og þekkingu og veita aðstoð við þjálfun og fræðslu á þessum sviðum. Þrýstingurinn á Eystrasaltsríkin að koma þessum málum í viðunandi horf er hins vegar mikill því frá og með árinu 2004 fá þau aðild að ESB, að vísu með nokkurra ára aðlögun. Í samræmi við ákvæði Kaupmannahafnaryfirlýsingarinnar frá árinu 2000 var boðað til fundar matvælaráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í nóvember sl. í Tallinn í Eistlandi. Á fundinn mætti Árni Matthiesen, sjávarútvegsráðherra, fyrir Íslands hönd. Ráðherrarnir lýstu vilja sínum til þess að halda áfram að þróa samstarf milli landanna á grundvelli þess starfs sem unnið hefur verið hjá samráðsnefndinni. Var embættismannanefndunum fyrir landbúnað og skógrækt, fiskveiðar og matvæli falið að þróa þetta samstarf áfram í samvinnu við aðila frá Eystrasaltsríkjunum. Samráðsnefndin starfar til loka árs 2004 og hefur það hlutverk að undirbúa breytt samstarfsform.

15. Sjávarútvegsmál



    Árlegur fundur sameiginlegrar ráðherranefndar norrænu sjávarútvegs-, landbúnaðar- og skógræktar- og matvælaráðherranna var að þessu sinni haldinn í Kalmar í Svíþjóð í júní sl. Venju samkvæmt funduðu annars vegar fulltrúar hinna ýmsu samtaka innan þeirra atvinnugreina sem hér um ræðir hvaðanæva að á Norðurlöndum og hins vegar ráðherrarnir sjálfir. Fyrrnefndi fundurinn (svokallaður NKO-fundur) var haldinn undir yfirskriftinni „Etik, værdier och rettigheder“.

    Á ráðherrafundinum var farið yfir stöðu mála í framkvæmd svokallaðrar Grænlandsyfirlýsingar um öryggi matvæla. Þá voru gerðar samþykktir um:
a)     siðferðilega merkingu á fóðurvörum,
b)     að settur yrði á laggirnar vinnuhópur til að kanna hvort koma mætti upp sameiginlegu norrænu rannsókna- og fræðslustarfi innan þessarar sameinuðu ráðherranefndar,
c)     aðgang og réttindi varðandi erfðaauðlindir,
d)     að skipaður yrði stýrihópur fyrir ráðherranefndina með einum fulltrúa frá hverju landi og sjálfstjórnarsvæði. Fulltrúar formennskulandsins hverju sinni í embættismannanefndunum þremur (NEF, NEJS og EK-Livs) sætu einnig fundi hópsins og jafnframt yrði heimilt að löndin hvert fyrir sig sendu fleiri fulltrúa til fulltingis sínum aðalfulltrúa eftir því sem sérfræðiþekking á úrlausnarefnum gæfi tilefni til,
e)     að lokaskýrsla sameiginlegs vinnuhóps embættismannanefndanna þriggja, „Udredning og forslag til EK'ernes ansvar for fødevarekæden: Fagområder, roller og samarbejdsformer“, yrði lögð fyrir stýrihópinn sem stefnumarkandi plagg.
         Nokkur fleiri atriði voru tekin til umfjöllunar á ráðherrafundinum og samþykktir gerðar um sum þeirra, svo sem um verslun með timbur. Í framhaldi af samþykktum ráðherrafundarins hefur vinnuhópur um sameiginlega stefnumörkun (handlingsprogram) fyrir ráðherranefnd fiskveiða, landbúnaðar og skógræktar og matvæla nú hafið störf og skal sú stefnumörkun ná til áranna 2005 til 2008. Einnig hefur vinnuhópurinn samkvæmt lið b) hér að ofan hafið störf. Fleiri stefnumótunarverkefni sem tengjast m.a. þessum geira eru í fullri vinnslu svo sem framkvæmdaáætlun um sjálfbæra þróun.
    Ráðherranefnd fiskveiða, landbúnaðar og skógræktar og matvæla kom með virkum hætti að fundi með ráðherrum Eystrasaltsríkjanna í þessum málaflokkum í Tallinn í nóvember sl. Var þetta fyrsti fundurinn eftir að ráðherranefndin var stækkuð, en hingað til hefur landbúnaðar- og skógræktargeirinn einvörðungu komið að slíkum fundum. Drjúglega var unnið á árinu að fiskveiðisamstarfi í austurvegi en til sumra þeirra verkefna hefur verið stofnað af öðrum aðilum en Norrænu ráðherranefndinni. Einnig kom ráðherranefndin að annarri Norður-Atlantshafsráðstefnunni sem fram fór á Hjaltlandi í október sl. en næsta ráðstefna með slíku sniði verður haldin í Noregi 2005.
    Á árinu mátti jafnvel greina aukna áherslu skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn á samstarf við nágranna okkar í norðvestri. Á árinu kom út skýrsla um stöðu Vestur-Norðurlanda í norrænu samstarfi. Margt gott má um þá skýrslu segja en frá sjónarhóli sjávarútvegsins þykir þó að fiskveiðum og hafrannsóknum sé vart gerð nægjanlega hátt undir höfði eins mikilvægar og þær og rannsóknir þeim tengdum eru á þessu svæði.
    Norræna embættismannanefndin um sjávarútvegsmál (NEF) hélt á árinu fjóra fundi. Jafnframt var haldinn einn sameiginlegur fundur embættismannanefndanna þriggja undir ráðherranefndinni en stýrihópnum sem getið var um hér að framan er ætlað að taka yfir þá fundi. Á vegum NEF starfar vinnuhópur (AG-fisk) sem sér um ýmis úrlausnarefni fyrir nefndina og undirbýr dagskrá funda. Einnig starfa á vegum NEF tvær vinnunefndir, annars vegar samstarfsnefnd umhverfis- og sjávarútvegsmála (MiFi) sem er faglegur samstarfsvettvangur sjávarútvegs- og umhverfisgeirans og hins vegar norrænn vinnuhópur um sjávarútvegsrannsóknir (NAF) sem í sitja fulltrúar rannsóknastofnana. Stefnumótun fyrir þessar vinnunefndir báðar verður sett fram í tengslum við heildarstefnu fyrir starfið í ráðherranefndinni á árunum 2005 til 2008 sem nú er unnið að, en erindisbréf nefndanna var framlengt út árið 2004. Enn fremur starfar á vegum NEF hópur sem sinnir umhverfismerkingum fisks m.t.t. sjálfbærrar nýtingar.
    Á árinu komu mörg mál til kasta NEF og vinnunefndanna, en þau helstu voru:
a)        Ítrekað var rætt um hvernig helst bæri að skipuleggja starfið innan sameinaðrar ráðherranefndar, um fjárveitingar til sameiginlegra verkefna og aðkomu sjávarútvegsgeirans að þeim. Einnig hefur í ljósi fenginnar reynslu verið fjallað um hvernig helst bæri að skipuleggja sameiginlega ráðherrafundi og NKO-fundina sem haldnir eru í tengslum við þá. Niðurstaðan varð sú að leitast yrði við að skipuleggja fundina með þeim hætti að tími gæfist til að geirarnir hver fyrir sig ræddu sín úrlausnarefni innbyrðis, en sú skoðun er nokkuð almenn að eftir sameininguna hafi slík efni ekki fengið nægjanlegt rúm vegna áherslu sem lögð hefur verið á umfjöllunarefni sem höfðað gætu til allra þriggja geiranna. Þau úrlausnarefni eru vitaskuld mörg hver afar brýn en mega þó ekki verða allsráðandi, ekki hvað síst ef höfða á til sértæks áhuga þeirra sem starfa í greininni sjálfri og þátttaka í NKOfundinum er ætlað að höfða til.
b)     NEF svaraði öllum núgildandi tilmælum frá Norðurlandaráði og lagði til að þau yrðu þar með afskrifuð. Á þingi ráðsins í Ósló í október sl. samþykkti Norðurlandaráð tillögur NEF í þessu efni og voru þar með öll núgildandi tilmæli afskrifuð.
c)     Í samræmi við formennskuáætlun Svía fyrir árið 2003 studdi NEF að rannsóknir á díoxíni í sjó og sjávarfangi yrðu efldar. Fjárframlögum til þessa var veitt í gegnum MiFi og NAF.
d)     NEF samþykkti jafnframt að styðja verkefni um rannsókn á erfðabreytileika í fiski sem unnið er að á vegum norræns ráðs um erfðaauðlindir (NGR).
e)     NEF lagði áherslu á að efla starfsemi vinnuhópsins um umhverfismerkingar enda telur NEF sig hafa greint aukinn áhuga á slíku starfi frá atvinnugreininni sjálfri og markaðsaðilum. NEF þurfti jafnframt að koma í veg fyrir tvíverknað frá hendi MiFi hvað þetta varðar og einnig að stöðva verkefni um skráningu fisks í meintri útrýmingarhættu (rødlistning af fisk). Vinnuhópurinn hefur haldið fundi með fulltrúum frá ESB, „Marine Stewardship Council“ (MSC) og stórum fisksöluaðilum. Einn af þeim aðilum sem situr í vinnuhópnum veitti forystu vinnufundi sérfræðinga á vegum FAO um þetta efni í október sl. Skýrslan sem þar var tekin saman mun fara fyrir fund viðskiptanefndar COFI í febrúar 2004 og mun þetta efni væntanlega komast á dagskrá hjá COFI árið 2005. NEF hefur jafnframt samþykkt að styðja fund innan atvinnugreinarinnar á Norðurlöndum um þetta efni í janúar 2004.
f)     Í tengslum við könnun á því hvort koma megi á sameiginlegu norrænu rannsókna- og fræðslustarfi hjá sameinaðri ráðherranefnd fiskveiða, landbúnaðar, skógræktar og matvæla, samþykkti NEF að láta gera greiningu á styrkleikum og veikleikum í rannsókn og fræðslu í þessum geira. Jafnframt að mat yrði gert á starfsemi NEF og raunar sjávarútvegsamstarfsins í heild vegna stefnumörkunarinnar sem nú er verið að vinna að fyrir ráðherranefndina (handlingsprogrammet). Hvoru tveggja skal lokið í febrúar 2004.
g)     Á fyrsta fundi sínum á árinu samþykkti NEF að gera samning til fimm ára við Norrænu stofnunina um vísindamenntun (NorFA) um stofnun og starfrækslu norræns verkefnis um vísindamenntun á sviði sjávarútvegs (Nordisk Marint Akademi). Samningurinn gildir fyrir árin 2004–2008 og skuldbindur NEF sig til að leggja árlega til fjármagn til verkefnisins gegn tilsvarandi framlagi frá NorFA. Er það von NEF að þetta skili sér í betri rannsóknum og fræðslu innan sjávarútvegsgeirans.
    Á árinu hélt NAF tvo fundi og bárust nefndinni 42 umsóknir en samþykkt var að styrkja 19 verkefni. MiFi hélt tvo reglulega fundi á árinu og einn símafund.

16. Norrænn vinnumarkaður og vinnuvernd


    Á árinu voru liðin 20 ár frá því að Ísland hóf að taka virkan þátt í norrænu vinnumálasamstarfi sem fullgildur aðili samningsins um sameiginlegan vinnumarkað Norðurlanda sem var undirritaður árið 1982 og gekk í gildi 1. ágúst 1983. Frá þeim tíma hefur þátttaka Íslands í norrænu vinnumála- og vinnuverndarsamstarfi sífellt orðið umfangsmeiri. Hér á eftir verður gerð grein fyrir helstu þáttum þessa samstarfs á árinu.

Ráðherranefnd vinnumála og vinnuverndarmála (MR-A).
    Norrænu vinnumálaráðherrarnir héldu tvo fundi á árinu og voru báðir haldnir á Öland í Svíþjóð í september sl. Annar fundurinn var undirbúningsfundur fyrir fund með ráðherrum vinnumála í Eystrasaltsríkjunum og Póllandi. Árni Magnússon félagsmálaráðherra sótti fundina. Í ráðherranefndinni fóru fram skoðanaskipti um verkefni sem Poul Schlüter fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur hefur unnið að og miðar að því að auðvelda fólki að flytjast á milli norrænu landanna án þess að glata áunnum félagslegum réttindum. Ákveðið var að vinna frekar að nokkrum þáttum. Þeirra á meðal er rafræn norræn vinnumiðlun, samhæfing norrænu atvinnuleysistryggingakerfanna, könnun á kostum þess og göllum að auka réttindi borgara frá þriðju ríkjum sem löglega eru búsettir á Norðurlöndum og úttekt á störfum og embættum þar sem ríkisborgararéttur er gerður að skilyrði fyrir ráðningu eða skipun í embætti.
    Á fundinum með ráðherrum vinnumála í Eystrasaltsríkjunum og Póllandi var fjallað um áhrif stækkunar ESB á flutning fólks á milli landa og hvaða afleiðingar hún hefði á þróun vinnumarkaðsmála í ríkjunum.

Embættismannanefnd um vinnumál og vinnuverndarmál.
    Á formennskutíma Svíþjóðar í Norrænu ráðherranefndinni hélt embættismannanefndin um vinnumál og vinnuverndarmál tvo fundi. Sá fyrri var í Stokkhólmi í apríl 2003. Þar samþykkti nefndin breytingar á starfsháttum og skipulagi auk annarra breytinga sem snerta starf nokkurra nefnda sem undir hana heyra. Nefndin fjallaði um og afgreiddi svör við tilmælum frá Norðurlandaráði sem heyra undir verksvið hennar. Enn fremur voru á dagskrá drög að fjárhagstillögum.
    Embættismannanefndin fjallaði að auki um skýrsluna „Störf fyrir alla – stefna Norðurlandanna á hindrunarlausum evrópskum vinnumarkaði“. Einnig um tillögur sem miða að auknu frelsi Norðurlandabúa til að taka sér búsetu og ráða sig í starf án þess að glata félagslegum réttindum við flutning á milli landanna.
    Á seinni fundinum í ágúst sl. undirbjó embættismannanefndin fund ráðherranefndarinnar í september. Embættismönnum frá Eystrasaltsríkjunum og Póllandi var boðið að taka þátt í fundinum. Þá fjallaði nefndin um stækkun ESB og ræddi undirbúning að endurskoðun norrænnar samstarfsáætlunar á sviði vinnumála og vinnuverndarmála fyrir árin 2005–2008.

Norræna samstarfsnefndin um vinnuvernd.
    Norræna samstarfsnefndin um vinnuvernd hefur það meginhlutverk að stuðla að samstarfi stjórnvalda á Norðurlöndum á sviði vinnuverndarmála. Unnið er að margvíslegum verkefnum, en það hefur háð starfi nefndarinnar að undanfarin ár hefur jafnt og þétt verið dregið úr fjármagni til hennar. Haldnir voru tveir fundir í á árinu. Greint er frá helstu verkefnum hér að neðan:
    Haldið var áfram samstarfi um þátttöku í starfi evrópsku staðlastofnunarinnar (CEN) til þess að auka þar áhrif Norðurlanda. Ísland hefur umsjón með þátttöku landanna í stöðlun véla til matvælavinnslu.
    Haldið var áfram samstarfsverkefni um markaðseftirlit með persónuhlífum og ýmis konar öryggisbúnaði.
    Lokið er samstarfsverkefni um efnahagsleg áhrif vinnuverndar. Meðal niðurstaðna er að efnahagslegt tjón af völdum vinnuslysa og atvinnutengdra sjúkdóma nemi sennilega 2–4 % af landsframleiðslu.
    Undirbúið var verkefni sem miðar að því að þróa norræna aðferð til að meta árangur í vinnuverndarstarfi.
    Haldin var ráðstefna um sjálfbæra þróun og vinnuvernd, og samráðsfundir stjórnvalda um mat á sálfélagslegum þáttum vinnuverndar (streituvaldar, einelti, áreitni) annars vegar og vinnuverndarsjónarmið tengd opinberum útboðum hins vegar.
    Haldinn var á Íslandi samráðsfundur stjórnvalda um reynslu af lagaákvæðum um samstarf og samráð stjórnenda og starfsmanna fyrirtækja um vinnuverndarmál og reynsluna af mismunandi fyrirkomulagi í löndunum.

Norræna samráðsnefndin um ESB-málefni.
    Nefndin fundar að jafnaði fjórum sinnum á ári og hefur það hlutverk að skiptast á sjónarmiðum og samræma sjónarmið norrænu landanna í þeim málum sem til umfjöllunar eru á vettvangi ráðherraráðs ESB. Starfssviðið nær bæði til vinnuverndar- og vinnumarkaðsmála.
    Fundirnir eru haldnir 2–3 vikum fyrir ráðsfundi og er m.a. farið yfir dagskrá þeirra lið fyrir lið. Því má segja að þetta samstarf sé liður í undirbúningi norrænu aðildarríkjanna fyrir ráðherraráðsfundina.
    Með þátttöku í þessari nefnd fá fulltrúar Noregs og Íslands að sumu leyti greiðari aðgang að ákvörðunum á vettvangi ráðherraráðs ESB en unnt er að fá á grundvelli EES-samningsins.
    Ýmis mál, sem vörðuðu vinnumarkað, jafnrétti og vinnuvernd, komu til umfjöllunar nefndarinnar á árinu. Á sviði vinnumarkaðsmála má nefna áhrif stækkunar ESB á vinnumarkað og hvernig Norðurlönd hyggjast nýta heimildir til aðlögunar („2+3+2“-reglan leyfir allt að 7 ára aðlögun). Á sviði vinnuverndar er verið að undirbúa nýjar reglur um rafsegulsvið í vinnuumhverfi.

Vinnumarkaðsnefndin.
    Vinnumarkaðsnefndin er umræðuvettvangur um atvinnumál, vinnumarkaðsmál og vinnumarkaðsrannsóknir í norrænu samstarfi. Nefndin endurnýjaði umboð sitt með nýju erindisbréfi sem tók gildi á árinu. Meðal áherslubreytinga sem í því fólst var að auka rannsóknir í þeim tilgangi að koma á fullri atvinnu og auka framboð á hæfu vinnuafli í framtíðinni; að þróa tengsl milli hópa sem eiga erfitt með að fóta sig á vinnumarkaðnum og styrkja vinnumiðlun til þessa fólks til að draga úr vandamálum sem minna framboð á vinnuafli í framtíðinni getur leitt af sér. Í starfi nefndarinnar hefur auk þess verið lögð áhersla á að styðja uppbyggingu á norrænu vinnumiðlunarneti á tímabilinu 2003–2004.
    Verkefni undir heitinu „Nýtt norrænt skipulag“ þar sem m.a. er fjallað um velferðaráherslur á vinnumarkaði hófst á árinu með því að stofnaður var vinnuhópur um aðlögun innflytjenda að norrænum samfélögum. Meðal verkefna hópsins var að greina stöðu innflytjenda á norrænum vinnumarkaði með samanburði milli landanna, aðstoða við að afla upplýsingar og leggja mat á skýrslu sem unnin var af verkefnastjóra frá Danmörku.
    Vinnumarkaðsnefndin styrkti ýmis verkefni á árinu m.a:
–     Rannsókn á vinnufærni vinnuafls á vestnorræna svæðinu, með sérstakri áherslu á Grænland.
–     Verkefni um vinnumarkað í Eystrasaltsríkjunum og hreyfanleika til Norðurlanda.
–     Verkefni vegna samkeppnisstöðu eldra fólks.
–     Verkefni um þjónustu vinnumiðlana á svæðum með einhæft atvinnulíf.
    Verkefninu lauk með skýrslu í lok ársins. Að því unnu Háskólinn á Akureyri og Fróðskaparsetur Færeyja.
–     Ákveðið var að kanna þörf á samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna vegna samstarfs um vinnumiðlunartækni í ríkjunum.
–     Ákveðið var að kanna mat á hæfni og menntun á Norðurlöndum.
–     Ráðstefna var haldin í september í Svíþjóð um innflytjendur og vinnumarkaðinn í tengslum við stækkun ESB.
–     Nefndin stóð fyrir ráðstefnu um þátttöku eldra fólks á vinnumarkaðnum í Eistlandi í nóvember sl.
–     Ákveðið er að efna til ráðstefnu í byrjun árs 2004 um áhrif vinnumarkaðsstefnu og menntun.
–     Ákveðið var að fjármagna frumathugun vegna tölfræðilegrar úttektar sem kann að nýtast í athugun á launamuni kynjanna.

Norrænn stýrihópur um vinnumiðlun.
    Nýr stýrihópur um vinnumiðlun á Norðurlöndum var settur á laggirnar á árinu.
    Hlutverk hópsins, sem mun starfa árin 2003 og 2004, er að auka upplýsingamiðlun hjá norrænum vinnumiðlunum. Markmið hópsins er að tryggja að norræn vinnumiðlun verði virk m.a. með því að tengja heimasíður norrænna vinnumiðlana og nýta betur netþjónustu þeirra. Laus störf í norrænu löndunum skulu einnig verða sýnileg og atvinnuleitin eins einföld og mögulegt er. Einnig skal hópurinn koma með tillögur um pólitísk úrræði til þess að auðvelda hreyfanleika vinnuafls.

Atvinnuskipti ungs fólks.
    Eitt af stærri norrænum samstarfsverkefnum á sviði vinnumarkaðar er NORDJOBB, sem byggir á atvinnuskiptum ungs fólks milli landanna, en Norrænu félögin annast þessi samskipti. Á árinu fór 131 ungmenni héðan í vinnu á Norðurlöndum á vegum NORDJOBB og 70 norræn ungmenni komu hingað til lands til vinnu.

Samstarfshópur um upplýsingamiðlun um vinnumarkaðsmál (NIAL).
    Á vegum starfshópsins, sem fer með miðlun upplýsinga á vinnumálasviði með útgáfu ritsins „Arbejdsliv i Norden“ og enskrar útgáfu á „Nordic Labour Journal“, voru haldnir tveir fundir. Gefin voru út þrjú blöð af „Arbejdsliv i Norden" og eitt „Nordic Labour Journal“.

Norræna rannsóknarnefndin á vinnuverndarsviði.
    Stjórn NIVA og norræna nefndin um rannsóknir á vinnuverndarsviði, sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, halda fundi tvisvar á ári og til skiptis í löndunum. Fyrri fundirnir voru að þessu sinni í Helsinki í mars sl., þeir síðari í Kaupmannahöfn í október. Efnt var til stuttrar ráðstefnu í tengslum við vorfundina og flutt var erindið: „Vinna og heilsa; hvernig koma á niðurstöðum rannsókna í framkvæmd“.
    Nefndin um rannsóknir á vinnuverndarsviði úthlutar styrkjum til rannsókna og til ýmissa verkefna, en forsenda er að a.m.k. þrjú norræn lönd standi að vernefnunum. Um 40% af heildarupphæð styrkja á árinu fór í starf sérfræðinefndar um mengunarmörk efna (Nordiska expertgruppen för kriteriedokument om kemiska hälsorisker, NEG). Ísland á fulltrúa í þessari nefnd en á árinu var kynnt skýrsla um mat á starfi NEG. Þar kom fram að NEG hefur unnið gott starf að því er varðar að safna saman grunnupplýsingum og setja fram í skýrslum. Nefndinni um rannsóknir á vinnuverndarsviði þykir hins vegar óeðlilegt að þessi vinna sé háð styrkjum frá ári til árs enda alls ekki um hefðbundna vísindastarfsemi að ræða. Það liggur því fyrir að finna aðra fjármögnun frá sérhverju landi fyrir þetta mikilvæga starf þannig að meiri stöðugleiki náist. Styrkir fyrir árið 2004 fara í 8 verkefni og eru Íslendingar þátttakendur í 3 þeirra. Einu sem rannsakar eðli slysa í byggingariðnaði, öðru um könnun á öryggi á vinnustöðum, og Norrænu vinnuverndarráðstefnunni 2004 sem haldin verður á Íslandi í ágústlok 2004.
    Umræður um verkefnin voru á sameiginlegum haustfundi með norrænu samstarfsnefndinni um vinnuvernd og má líta svo á að áherslan á að styrkja verkefnið um vinnuslys í byggingariðnaði sé afrakstur þess samstarfs. Starf þessara nefnda og afrakstur af verkefnum hefur verið mjög mikilvægt fyrir íslenskt vinnuverndarstarf og má nefna að í fimm mismunandi stórverkefnum á sl. 3 árum hjá Vinnueftirlitinu hefur afrakstur af norrænu rannsóknasamstarfi verið notaður (sjá skýrslur á heimasíðu vinnueftirlitsins www.vinnueftirlit.is).
    Þá fjallaði nefndin um hvernig koma mætti af stað rannsóknum á góðum áhrifum vinnu á heilsu og líðan fólks og er það verkefni í vinnslu. Samþykkt var að Ísland taki við formennsku í nefndinni árið 2004.

Stjórn norrænu stofnunarinnar um menntun á sviði vinnuverndar (NIVA).
    Á fundum stjórnar norrænu stofnunarinnar um menntun á sviði vinnuverndar (Nordiska institutionen for vidareutbildning inom arbetsmiljöområdet) var unnið að markvissum undirbúningi námskeiða (sjá heimasíðuna www.niva.org þar sem einnig er að finna árskýrslu NIVA) en á árinu 2004 er gert ráð fyrir 13 námskeiðum. Reynt er að leggja áherslu á námskeið sem nýtast sem hluti af menntun á sviði vinnuverndar en einnig á námskeið sem henta þeim sem vinna við vinnuverndarstarf á öðrum vettvangi s.s. starfsmenn vinnueftirlita og heilsuverndarfyrirtækja. Lögð er áhersla á að fyrirlesarar séu þekktir fræðimenn sem komi víða að. Þótt þessi námskeið hafi nýst nemendum á þessu sviði allt frá stofnun NIVA þá var það niðurstaða fundanna að meira formlegt samstarf þyrfti við háskóla á Norðurlöndum. Danir og Finnar hafa verið ötulir við þetta og eru námskeiðin metin til eininga í nokkrum háskólum í þessum löndum. Var talið mikilvægt að efla þetta enn frekar til að styrkja menntun á þessu sviði. Einnig var talað um fjarkennslu hjá stofnuninni en þó án þess að draga úr formlegum námskeiðum sem hafa þann kost að koma á tengslum nemenda við helstu fræðimenn á þessum sviðum Á haustfundi NIVA var jafnframt fjallað um 12 möguleg námskeið á árinu 2005 og lagður grunnur að námskeiðshaldi fyrir 2006. Á fundinum kynnti fulltrúi Norrænu ráðherranefndarinnar skýrslu um starf norrænna stofnana á heilbrigðissviði. Hann lýsti áhyggjum sínum af skýrslunni sem ekki svaraði mikilvægum spurningum um starfsemi þessara stofnana, þ.m.t. NIVA, og taldi hann hana í raun ófullnægjandi. Þetta voru stjórn NIVA nokkur vonbrigði.
    Samþykkt var að Ísland tæki við formennsku í stjórn NIVA fyrir árið 2004.

17. Heilbrigðis- og félagsmál

Ráðherrafundur.
    Í ágúst sl. var árlegur fundur heilbrigðis- og félagsmálaráðherra Norðurlanda í Karlskrona í Svíþjóð. Ráðherrarnir fjölluðu m.a. um afnám landamærahindrana, skýrslu um framkvæmd samstarfsáætlunar, breytingu á nafni Norræna heilbrigðisfræðaháskólans og framkvæmd samnings um viðbúnað á heilbrigðissviði. Ennfremur voru umræður um forgangsverkefni formennskulandsins Svíþjóðar, samvinnuverkefni á grannsvæðunum, samskipti við ESB og stöðu velferðarrannsókna á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar.
    Meginþemu fundarins voru tvö. Annars vegar upplýsingatækni á heilbrigðis- og félagsmálasviðinu og hins vegar gæðamál í heilbrigðisþjónustu. Í upplýsingatæknimálum beindist athyglin einkum að uppbyggingu og þróun heilbrigðisneta. Mikilvægt var talið að kortleggja stöðu mála og koma á skipulegra samstarfi á því sviði. Í gæðamálum var ákveðið að halda áfram samstarfi um gæðamælingar í heilbrigðisþjónustu. Verkefni á þessu sviði, sem unnið var að á árunum 2001–2003 á norrænum vettvangi er nú komið á verkefnaskrá OECD í París.

Embættismannanefndin.
    Norræna embættismannanefndin á sviði heilbrigðis- og félagsmála (EK-S) hélt þrjá fundi á árinu. Á fundi í apríl á Akureyri var m.a. fjallað um formennskuáætlun Svía, Norrænu tannlækningastofnunina (NIOM), fjármögnun á starfsemi Norræna háskólans í heilbrigðisvísindum, ályktanir Norðurlandaráðs, stofnanir á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, fjárhagsáætlun fyrir árið 2004, málefni ESB/EES og önnur alþjóðleg mál. Fundur embættismannanefndarinnar í tengslum við ráðherrafundinn í ágúst snerist aðallega um að undirbúa ráðherra. Á dagskrá haustfundar, sem haldinn var í nóvember sl. í Ósló, voru m.a. málefni fatlaðra (Design for alle), sjálfbær þróun, réttindi Norðurlandabúa, upplýsingatækni í heilbrigðis- og félagsmálageirunum, gæðamælingar í heilbrigðiskerfinu, velferðarmál, skipulag norrænna stofnana og fjárframlög til norrænna verkefna á árinu 2004.

Norræni háskólinn í heilbrigðisvísindum (NHV).
    Norræni háskólinn í heilbrigðisvísindum er sameiginleg menntastofnun fyrir æðri menntun og rannsóknir í heilbrigðisfræðum. Háskólinn er í Gautaborg í Svíþjóð og starfar samkvæmt samningi við Norrænu ráðherranefndina sem gerður er til þriggja ára í senn.
    Tuttugu og þrír Íslendingar stunduðu nám við skólann á árinu. Námið er byggt upp með stuttum námskeiðum, heimanámi og verkefnavinnu. Heildarfjöldi námsvikna sem Íslendingarnir tóku á árinu var 80 vikur.
    Mikið var unnið að því á árinu að efla tengsl við aðra háskóla sem kenna heilbrigðisfræði á Norðurlöndum og semja um að námskeið sem tekin eru við skólann geti nýst sem námseiningar í öðrum háskólum. Eins og nokkur undanfarin ár átti skólinn samstarf við Endurmenntun Háskóla Íslands um kennslu í rekstri og stjórnun í heilbrigðisþjónustu.
    Á árinu fagnaði skólinn hálfrar aldar afmæli og í tengslum við það var nafni skólans breytt úr „Norræna heilbrigðisfræðaháskólanum“ í „Norræna háskólann í heilbrigðisvísindum“ (Nordiska högskolan för folkhälsovetenskap). Þá var eftir áralangar umræður samið um fyrirkomulag á skiptingu kostnaðar milli norrænu landanna og greiðslur landanna.

Norræna tannlækningastofnunin (NIOM).
    Það er einkum tvennt sem hefur borið hæst í starfsemi NIOM á árinu: Í fyrsta lagi var 30 ára starfsafmælis minnst. Virðist framtíðin fjárhagslega tryggð næstu árin eftir mörg óvissuár og skýrslugerðir um reksturinn. Hefur vinnuandi hjá stofnuninni batnað mikið og vinnuafköst aukist. Ráðist hefur verið í að endurnýja rannsóknartæki samkvæmt sérstakri áætlun og aukafjárveitingu, en mörg tæki og tól voru komin til ára sinna og orðin viðhaldsfrek og úrelt. Þar sem rannsóknir í efnisfræði tannfyllingaefna krefjast mikils og dýrs tækjabúnaðar, hefur vegna fjárskorts ekki verið unnt að koma á fót slíkri rannsóknarstofu við Tannlæknadeild HÍ. Það hefur því verið ómetanlegt að taka með beinum hætti þátt í þessu norræna samstarfi.
    Í öðru lagi hefur nýr forstöðumaður NIOM tekið til starfa og eru miklar vonir bundnar við hann. Fráfarandi forstöðumaður fer til annarra starfa vegna starfstímareglu Norrænu ráðherranefndarinnar. Með honum hverfur einstök þekking á þröngu en mikilvægu sérsviði, sem m.a. hefur gert NIOM þekkta á alþjóðavettvangi. Þá hafa heilbrigðisyfirvöld og háskólar á Norðurlöndum og víðar í ríkum mæli notfært sér sérþekkingu NIOM á þessu sérsviði. Nú verður stofnunin að byrja að nýju frá grunni með ærnum tilkostnaði, því aðrir sérfræðingar eru ekki á Norðurlöndum. Að mati fulltrúa Íslands í stjórn stofnunarinnar er mikilvægt að breyta þessari starfstímareglu, til að sérhæfðar stofnanir eins og NIOM eigi sér framtíð og búi ekki við stöðugan atgervisflótta.

Norræna rannsóknarnefndin á sviði vímuefna (NAD).
    NAD (nordiska nämnden för alkohol och drogforskning) hefur það markmið að efla og þróa þverfaglega samvinnu á sviði áfengis- og vímuefnarannsókna. Starfsemin miðast að verulegu leyti við samfélagslegar rannsóknir, samfélagslækningar og samfélagsgeðlækningar. NAD er ætlað að auka þekkingu manna á neyslu vímuefna, forvörnum, stefnumótun og meðferð á fíklum. Helsta verkefni NAD er að stuðla að öflugum sameiginlegum rannsóknum á þessu sviði og miðla upplýsingum. NAD á að vera vettvangur skoðanaskipta og upplýsinga fyrir Norðurlandabúa sem hafa áhuga á áfengis- og vímuefnamálum. NAD gefur út eigið blað (NAT) og rekur skrifstofu í Helsingfors.
    NAD hélt tvo reglulega stjórnarfundi á árinu. Á þeim var fjallað um rekstur NAD og teknar ákvarðanir um styrkveitingar og verkefni á vegum nefndarinnar.
    NAD hélt á árinu fundi fyrir vísindamenn og rannsóknaraðila um kynjamun í rannsóknum, fíkniefnastefnu í Vestur-Evrópu, um áfengi og streitu og um stefnu í áfengismálum.
    Rannsóknarverkefni stendur yfir þar sem borin er saman áfengisneysla á Norðurlöndum og gefin var út skýrslan „Regulating drugs – between users, the police and social workers“.

Norræna samstarfsmiðstöðin um málefni fatlaðra (NSH).
    Meginverkefni NSH er að stuðla að því að markmið Norðurlanda um jafnrétti og fulla þátttöku fatlaðra í samfélaginu verði að veruleika. NSH styrkir mörg verkefni sem hafa það að markmiði að auka og bæta þjónustu við fatlaða á Norðurlöndum og auðvelda þeim aðgang að upplýsingasamfélaginu. NSH hefur það einnig á stefnuskrá að styrkja stöðu fatlaðra í stefnumótun um velferðarsamfélagið. NSH hélt þrjá fundi á árinu.
    Á stjórnarfundi miðstöðvarinnar í febrúar sl. var m.a. fjallað um stefnumörkun til framtíðar og hvernig samstarfi NSH og norræna ráðsins um málefni fatlaðra (NHR) skyldi hagað. Ákveðið var að samstarfið yrði tekið til umræðu í heimalöndunum. Einnig var fjallað um skýrslur um stjórnsýsluhindranir í málefnum fatlaðra á Norðurlöndum og aðgengi fyrir alla. Einnig voru umræður um væntanlega ráðstefnu um hvort til væri norræn stefnumörkun í málefnum fatlaðra.
     Á stjórnarfundi miðstöðvarinnar í júní sl. var fjallað um vinnuáætlun NSH fyrir starfsárið og kynnt staða Norrænu miðstöðvarinnar fyrir hjálpartæki (NUH). Fjallað var um fjármálalega, stjórnunarlega og skipulagslega úttekt á þeirri starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar sem snýr að verksviði félagsog heilbrigðisþjónustu. Stefnumörkun NSH og norræna ráðsins um málefni fatlaðra (NHR) um samstarf var áfram til umfjöllunar.
    Á stjórnarfundi miðstöðvarinnar í október sl. var fjallað um stöðumat NSH fyrir árið. Kynnt voru helstu verkefni á vegum Norrænu miðstöðvarinnar um hjálpartæki (NUH). Einnig var fjallað um þá úttekt sem hófst á árinu á starfsemi NSH og fleiri stofnana á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar.

Norræna menntamiðstöðin á sviði daufblindu (NUD).
    Meginmarkmið með starfsemi NUD er að vinna að framgangi og þróun norræns samstarfs á sviði daufblindu. NUD á að stuðla að því að styrkja faglega þróun starfsfólks og þeirra stofnana eða samtaka þar sem það starfar. Norrænt samstarf á að auka gæðin á þjónustu við daufblinda og styrkja norræna samkennd hjá starfsfólki á þessu sviði.
    Verkefni NUD eru að:
–     sjá starfsfólki, sem vinnur með daufblindum, fyrir norrænni menntun sem styður og bætir fagþekkingu í hverju landi,
–     þjóna sem þekkingarmiðstöð á sviði daufblindu,
–     safna og þróa þekkingu, viðhalda tengslaneti og sinna alþjóðlegu samstarfi á sviði daufblindu,
–     koma á og stýra starfi við þróun og skráningu grunnþekkingar á þessu sviði.
    Haldin voru tvö grunnnámskeið, fjögur þemanámskeið og tvær ráðstefnur. Tvö þemanámskeið voru opin fyrir þátttakendur utan Norðurlanda. Eitt ráðgjafanámskeið var fellt niður vegna lítillar þátttöku og þemanámskeiði um CHARGE heilkennið var frestað til janúar 2004 vegna fjárskorts. 186 þátttakendur voru á þessum námskeiðum, þar af 18 Íslendingar. Einn fyrirlesari var íslenskur.
    Auk fyrrgreindrar starfsemi hélt miðstöðin 4 málþing og 8 fyrirlestra í fjarkennslu til samstarfslandanna. Bókasafn NUD var mikið notað til gagnaöflunar og lestrar. Tvö fréttabréf voru gefin út og fjögur hefti með vinnutextum og skýrslum. Nokkrir norrænir hópar hittust á NUD og héldu vinnufundi um ákveðin málefni.
    Á sl. ári var skipulagi breytt á einu námskeiði til reynslu (um samskipti við daufblindfædda). Haldið var tveggja vikna námskeið, síðan skipulögð verkefnavinna heima og að síðustu bjóða þátttakendur sínu samstarfsteymi upp á fyrirlestur/ráðgjöf um viðfangsefnið.

Norræna heilbrigðistölfræðinefndin (NOMESKO).
    Meginmarkmið NOMESKO er að vinna að því að samræma og safna tölfræðilegum upplýsingum um ýmsa þætti heilbrigðisþjónustunnar, sjúkdóma, dánarorsakir og tengda þætti. Þetta starf fer að töluverðu leyti fram með því að samræma skilgreiningar, skráningar og afmarkanir einstakra þátta til þess að tryggja að upplýsingarnar verði sem líkastar og sem best sambærilegar.
    NOMESKO kemur aðallega niðurstöðum sínum á framfæri í meginriti sínu, „Health Statistics in the Nordic Countries" en einnig í sérútgáfum og öðru efni sem birt er á heimasíðu nefndarinnar. Aukin áhersla hefur verið lögð á að gera öll gögn aðgengileg á heimasíðunni www.nom-nos.dk. Ársskýrslu NOMESKO er einnig að finna þar.
    Helstu verkefni sem unnið hefur verið að á árinu hafa verið athugun á mannafla og fjármagni í heilbrigðisþjónustu, staðtölur fyrir sjúklinga sem ekki eru lagðir inn, flokkun dánarorsaka, upplýsingar um lyfjanotkun, gæðamat á flokkun aðgerða og fleira. Málþing var haldið í Stokkhólmi í samstarfi við NOSOSKO um sjálfbæra þróun í heilbrigðis- og félagsmálaþjónustu og niðurstöður hennar gefnar út í riti.
    Undanfarin ár hefur NOMESKO átt mikið samstarf við Eystrasaltsríkin og m.a. unnið að útgáfumálum og námskeiðshaldi fyrir þau lönd. Áfram er unnið á því sviði.
    Norræna stofnunin um sjúkdómaflokkanir (Nordiskt Center för klassifikation av sjukdomar) í Uppsölum starfar í nánu samstarfi við NOMESKO og eru stjórnafundir oft haldnir sameiginlega.

Norræna hagskýrslunefndin á sviði félagsmála (NOSOSKO).
    Meginverkefni NOSOSKO er að vinna að samanburðarhæfri skýrslugerð um velferðarmál á Norðurlöndum og gefa árlega út skýrslu um það efni. Nefndinni ber einnig að fylgjast með alþjóðlegu samstarfi í hagskýrslugerð og vinna að því að samræma upplýsingar frá þátttökulöndunum. Öll norrænu löndin fimm eiga aðild að samvinnu Evrópulanda á sviði hagskýrslugerðar, Eurostat, vegna aðildar sinnar að ESB eða EES. Eurostat vinnur að bættri hagskýrslugerð á sviði heilbrigðis- og félagsmála og sundurliðun útgjalda eftir svonefndri ESSPROS-flokkun.
    Á árinu var á vegum NOSOSKO og NOMESKO haldin ráðstefna um sjálfbæra þróun, þ.e. hvernig væri hægt að mæla og veita tölulegar upplýsingar um hana á sviði heilbrigðis- og félagsmála. Í ársskýrslu nefndarinnar var birt skýrsla um hag og félagslegar aðstæður einstæðra foreldra á Norðurlöndum. NOSOSKO hefur um nokkurn tíma aðstoðað Eystrasaltsríkin við að skipuleggja vinnslu á staðtölum og á árinu var gefin út fyrsta sameiginlega skýrsla landanna og nefnist hún „Baltic Social Protection Statistics".

Norræna menntamiðstöðin fyrir þróun félagsþjónustu (NOPUS).
    Í byrjun árs var skrifstofa NOPUS flutt til Malmö í Svíþjóð. Á árinu 2002 var gengið frá samningi Norrænu ráðherranefndarinnar og NOPUS um framtíðarstarfsemi NOPUS. Í honum er meðal annars kveðið á um aukna starfsemi NOPUS allt til loka árs 2004 en meginmarkmið starfseminnar er að bjóða upp á menntun/fræðslu fyrir fólk er starfar að félagsþjónustu. Einnig er stefnt að því að auka þátt og samstarf allra stofnana eða skóla er hafa eða gætu boðið upp á slíka fræðslu.
    Seinni hluta ársins var mikil vinna lögð í að byggja upp samskiptanet háskóla sem eru áhugasamir að vinna með NOPUS og í að bjóða upp á slíkt nám. Í lok þessa árs náði samskiptanetið til háskóla í öllum norrænu löndunum og hittust tengiliðir þeirra á fundi í janúar. Einnig má nefna að á árinu voru skipulagðar ráðstefnur og er ráðgert að á árinu 2004 verði haldin ráðstefna í samvinnu við sænsk félagsmálayfirvöld um menntun og fræðslu fyrir fólk í félagsþjónustu. Tveir starfsmenn voru ráðnir að NOPUS. Annar mun halda utan um menntanetið (samstarf milli háskóla landanna) en hinn mun sinna markaðssetningu NOPUS.

Norðurlandasamningur um sameiginlegan norrænan vinnumarkað
fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna.

    Samningurinn fjallar um gagnkvæma viðurkenningu prófskírteina hjá starfsstéttum í heilbrigðis- og dýralæknaþjónustu og á að tryggja aðgang norrænna ríkisborgara að norrænum vinnumarkaði á þessum sviðum. Hann nær nú til alls 22 faghópa en Ísland er einungis aðili varðandi 19 þeirra. Eftirlitsnefnd fylgist ekki aðeins með framkvæmd samningsins heldur tekur einnig saman upplýsingar um flutning heilbrigðisstarfsmanna milli norrænu landanna, svo og um fjölda innritaðra og útskrifaðra nemenda á þeim sviðum er undir samninginn heyra. Nefndin fylgist auk þess með því að tilkynningarskyldu sé fylgt vegna sviptingu eða takmarkana á starfsleyfum á Norðurlöndum.
    Haldinn var einn fundur á árinu, í Kaupmannahöfn í september. Helstu mál voru framkvæmd nýrra starfsreglna nefndarinnar, framkvæmd norræna samningsins með tilliti til stækkunar ESB og að gefnu tilefni var rætt um nánara samstarf á sviði upplýsinga um þá heilbrigðisstarfsmenn sem misst hafa starfsleyfi á Norðurlöndum.

18. Jafnréttismál

    Ísland tekur virkan þátt í mörgum norrænum nefndum og verkefnum á sviði jafnréttismála. Hér verður gerð grein fyrir starfi á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar, auk samstarfs á Vestur-Norðurlöndum og norðurskautssvæðunum.

Ráðherranefnd jafnréttismála (MR-JÄM).
    Ráðherranefndin hélt tvo fundi á árinu. Sá fyrri var í Stokkhólmi í apríl sl., og hann sótti fyrir hönd Íslands ráðherra jafnréttismála, Páll Pétursson. Þetta var sameiginlegur ráðherrafundur Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna. Meðal umfjöllunarefna var hvernig halda skyldi áfram baráttunni gegn mansali. Samþykkt var á fundinum yfirlýsing og tillögur, þar sem fram kemur að löndin skuli gera áætlun um aðgerðir gegn verslun með konur og börn.
    Seinni fundurinn var haldinn í Stokkhólmi í nóvember sl. Þann fund sótti Árni Magnússon, ráðherra félagsmála. Nýr framkvæmdastjóri norrænnar rannsóknarstofu um kvenna- og kynjarannsóknir (NIKK) var kynntur fyrir ráðherrum og síðan var kynning á efninu „klámvæðing í opinberu rými“. Á fundinum var samþykkt aðgerðaáætlun um karla og jafnrétti. Einnig var rætt samstarf Norðurlanda við nágrannalöndin svo og jafnréttissamstarf innan ramma Norðlægu víddarinnar (den Nordliga Dimensionen), svo og norrænt starf í aðgerðaáætlun ESB vegna áranna 2004 til 2006.

Embættismannanefnd jafnréttismála (ÄK-JÄM).
    Embættismannanefndin hélt fjóra fundi á árinu og síðan var hist á óformlegum vinnufundi í tengslum við ráðherrafund. Unnið var samkvæmt framkvæmdaáætlun fyrir árin 2001 til 2005, og störfuðu vinnuhópar um flest verkefnin. Ísland á fulltrúa í öllum vinnuhópunum. Áhersla var á samþættingu, sérstaklega á kynja- og jafnréttissjónarmiðum í fjármálum Norrænu ráðherranefndarinnar. Einnig var ákveðið að fara af stað með mat á starfsemi NIKK í tengslum við gerð nýs samnings við stofnunina. Ýmis verkefni sem átti að vinna að á árinu töfðust og munu þau því hefjast á árinu 2004.

Vinnuhópar:
–      Karlar og jafnrétti.
        Haldnir voru sex vinnufundir á árinu og var einn þeirra hér á landi. Hlutverk hópsins hefur meðal annars verið að reyna að auka hlut karla í jafnréttisumræðu og jafnréttisstarfi. Ákveðið var að fara af stað með verkefni fyrir árin 2004 til 2005. Þá verður staðið fyrir sex ráðstefnum frá árinu 2004 til 2006 og verður ein þeirra hér á landi.
–      Jafnlaunaverkefni.
        Búið er að kynna tillögu að jafnlaunaverkefni (På sporet af likaløn) sem nú er verið að breyta. Fyrir liggur að farið verður í það verkefni á árinu 2004. Það er samstarfsverkefni milli ÄK-JÄM og ÄK-A (embættismannanefndarinnar á sviði atvinnumála). Fulltrúi Íslands í verkefninu er frá Jafnréttisstofu. Þungamiðja þess er að kanna af hverju launamunurinn minnkar svona hægt og lítið, þrátt fyrir að konur hafi í auknum mæli tileinkað sér þekkingu og atferli karla.
–          Samstarf við Eystrasaltsríkin.
        Verið er að vinna að nýju samstarfsverkefni með Eystrasaltsríkjunum fyrir árin 2004 til 2005. Fulltrúi Íslands í vinnuhópnum var framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu.
        Í samstarfsáætlun Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna fyrir árin 2001 til 2003 var lögð áhersla á eftirfarandi þætti: Samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða í sameiginlegum verkefnum og áætlunum, samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða í fjárlagagerð, atvinnurekstur kvenna, ofbeldi gegn konum, karla og jafnrétti og loks ungt fólk og jafnrétti.
–         Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða í fjárlagagerð.
        Norræna ráðherranefndin hefur undanfarin ár unnið að samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða í stefnumörkun og daglegu starfi nefndarinnar. Þetta hefur verið samstarfsverkefni milli fjármála- og jafnréttissviða stjórnsýslunnar. Árið 2002 var samþykkt áætlun um samþættingu í fjárhagsáætlanagerð ráðherranefndanna og tekið upp ákveðið vinnulag til að tryggja að svo megi verða. Vinnuhópur tók til starfa á sama tíma. Lítið gerðist í þessu verkefni á árinu annað en að undir lok ársins var verið að ráða verkefnastjóra. Fulltrúar Íslands í verkefninu voru frá fjármálaráðuneyti og Jafnréttisstofu.
–          Mansal.
        Eitt af aðaláhersluatriðum framkvæmdaáætlunar ÄK-JÄM er baráttan gegn kynbundnu ofbeldi. Á árinu var haldið áfram átaki gegn mansali og er því starfi nú að mestu lokið, aðeins er eftir að ganga frá skýrslu. Vinnuhópur með norrænum fulltrúum og fulltrúum Eystrasaltsríkjanna hafði umsjón með átakinu og að auki voru skipaðir starfshópar í hverju landi. Fulltrúar Íslands í erlenda starfshópnum voru frá dómsmálaráðuneyti, félagsmálaráðuneyti og Jafnréttisstofu. Heimasíða verkefnisins er www.nordicbalticcampaign.org/. Ekki hefur verið ákveðið hvort og þá hvernig unnið skuli að þessu verkefni í framtíðinni.
–          Vefsíða um jafnréttismál.
        Á árinu var unnið að upplýsingastefnu embættismannanefndarinnar. Megináhersla var á að miðla upplýsingum á Netinu, bæði í tengslum við NIKK (sjá að neðan) og með vefsíðu á vefsetri Norrænu ráðherranefndarinnar. Starfandi var ritstjórn sem fundaði í gegnum síma og Netið. Sérfræðingur á Jafnréttisstofu var fulltrúi Íslands í stjórninni. Vefslóðin er www.norden.org/gender. Nú um skeið hefur ekki verið starfandi vefstjóri. Í félagsmálaráðuneytinu á Íslandi er verið að auglýsa eftir nýjum ritstjóra og mun hann hefja störf í byrjun árs 2004.
–      NIKK – Norræna rannsóknarstofan um kvenna- og kynjarannsóknir.
        Í stjórn NIKK situr fyrir Íslands hönd lektor við Háskóla Íslands. Nú eru hlutlausir aðilar að meta starfsemi stofnunarinnar og er búist við niðurstöðu árið 2004. NIKK stóð fyrir öflugri útgáfu og fjölmörgum rannsóknarverkefnum á árinu. NIKK heldur úti mjög virkum upplýsingavef á heimasíðu sinni www.nikk.uio.no/ og þar eru upplýsingar um útgáfu, verkefni og ýmislegt annað.
–      Norræna stofnunin um vísindamenntun (NorFA).
        Á vegum NorFA er starfrækt rannsóknaráætlunin „Kön och våld“, sem miðar að því að kanna umfang, eðli og leiðir til að vinna gegn kynbundnu ofbeldi á Norðurlöndum. Sérfræðingur á Jafnréttisstofu er fulltrúi Íslands í úthlutunarnefndinni.
        Önnur rannsóknaráætlun á vegum NorFA, „Velferðaráætlunin“, hófst á árinu 2002. Jafnréttisstofa tók þátt í tveimur jafnréttisverkefnum á því sviði á árinu.
–      Konur fara, karlar eru um kyrrt.
        Byggðarannsóknastofnunin á Akureyri og Jafnréttisstofa taka saman þátt í verkefni á vegum norræna velferðarrannsóknarverkefnisins. Verkefnið ber heitið „Kvinner reiser, menn blir“ og beinist að því að kanna orsakir og afleiðingar þess að konur flytja frekar en karlar af jaðarsvæðum á norðurslóð. Hvað Ísland varðar hefur verið ákveðið að beina athyglinni að þremur stórum svæðum. Á árinu hófst gagnasöfnun hérlendis, bæði söfnun tölfræðilegra gagna og viðtala við fólk sem hefur búið alla tíð á ákveðnu svæði, fólk sem hefur flutt og það fólk sem hefur flutt burtu en komið aftur. Áætlað er að verkefninu ljúki árið 2004.
–      Velferð, karlar og félagslegt frumkvæði.
        Hitt verkefnið sem Jafnréttisstofa er aðili að heitir „Velferd, maskulinitet og social innovation“. Þar er sjónum beint að því hvernig staða og hegðun kynjanna, karla sérstaklega, breytist með auknu jafnrétti. Hvaða áhrif hefur það á stöðu karla og samspil launavinnu og fjölskyldulífs að konur eru sífellt að auka þátttöku sína á vinnumarkaði og karlar taka aukinn þátt í heimilisstörfum og uppeldi og umönnun barna? Hérlendis verður sjónum einkum beint að áhrifum hinna nýju laga um fæðingar- og foreldraorlof. Árið 2002 var unnið að sameiginlegum viðtalsvísi sem síðan verður lagaður að hinum einstöku rannsóknarverkefnum. Verkefninu lýkur 2004.
–      Norðurskautsráðið.
        Jafnréttisstofa hefur tekið virkan þátt í samstarfi á norðurskautssvæðunum, en nokkur óvissa er um hvernig þessu verður háttað í framtíðinni. Heimasíða Norðurskautsráðsins er á vefslóðinni www.arctic-council.org. Ísland gegnir nú formennsku í ráðinu.
–      Vestnorrænt samstarf.
        Í maí 2000 var samþykkt þingsályktun um nokkur vestnorræn samstarfsverkefni, flest á jafnréttissviði. Aðeins einu þeirra hefur verið hrint úr vör. Það er starfshópur um aðgerðir gegn ofbeldi gagnvart konum. Í hópnum eiga sæti tveir fulltrúar frá hverju landanna þriggja, einn frá jafnréttissviðinu og einn frá þeim sem starfa að stuðningi við konur sem beittar eru ofbeldi. Til stóð að gera skýrslu um verkefnið en því er ekki enn lokið.
–      Ráðstefna um konur og lýðræði.
        Ráðstefna um konur og lýðræði var haldin í Tallinn í Eistlandi. Hún var sú þriðja í röðinni en sú fyrsta var haldin 1998. Á ráðstefnunni voru tekin fyrir ólík efni, svo sem konur og ákvarðanir, konur og efnahagsleg völd, ofbeldi gegn konum og konur og fjölmiðlar. Í hverjum málaflokki voru nokkrir undirhópar. Þátttakendur á ráðstefnunni voru um 700 stjórnmálamenn, embættismenn, fræðimenn og fulltrúar frjálsra félagasamtaka.
–      Ráðstefna um innflytjendakonur.
        Í Malmö í Svíþjóð var haldin ráðstefna um innflytjendakonur. Frá Íslandi fór hópur kvenna, aðfluttar og aðrar. Upp úr þessari ráðstefnu voru stofnuð fyrstu samtök innflytjendakvenna á Íslandi.
–     Undirbúningur ráðstefnu um kvennahreyfingar.
        Í júní 2004 verður haldin ráðstefna á Íslandi um norrænar kvennahreyfingar frá 1974 til 2004. Framkvæmdastýra Jafnréttisstofu var fulltrúi ÄK-JÄM í undirbúningshópnum. Verkefnið er styrkt af ÄK-JÄM.

19. Vímuefnamál



    Svíar, sem fóru með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á árinu, buðu til fundar í embættismannanefndinni um vímuefnamál (EK-Narko) í Stokkhólmi í mars sl. Fundarefnið var að vanda nokkuð af sama toga og áður, þar sem farið var yfir þau höfuðatriði, sem málaflokkinn varða, s.s. yfirlit frá ýmsum aðilum, sem vinna á vettvangi eða stunda rannsóknir og bar þar hátt skýrsla NAD (Nordiska nämden for alkohol og drogforskning), PTN (Polis och Tull i Norden) og Dublin-hópsins.
    Á fundinum kynnti ráðherranefndarskrifstofan nokkur fróðleg atriði s.s. starfið varðandi Norðlægu víddina og verkefni Poul Schlüters um afnám landamærahindrana. Þessum málum tengist umræða um lyfjakort, sem ferðamenn þurfa að hafa meðferðis eftir að Schengen- samstarfið varð að veruleika. Á fundinum var ákveðið að tilnefna einn lyfjafræðing frá stjórnvöldum hvers lands til að finna flöt á því máli. Mjög mikill munur hefur verið á hve mörgum lyfjum, löglegum og ólöglegum, hvert land hefur viljað koma fyrir á þeim lyfjalistum, sem neytendum ber að hafa með sér til að sýna við landamærastöðvar á Norðurlöndum á komandi árum, sé þess óskað. Þetta verður auðvitað að samræma svo vel sé.
    Farið var yfir styrki til rannsókna á árinu og var hlutur Íslands aðallega tengdur könnun um lífsvenjur ungmenna og neyslu þeirra á vímuefnum, áfengi og tóbaki. Þetta verkefni hefur verið í gangi í eyjasamfélögunum á Norðurlöndum, þ.e. á Álandi, í Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Könnunin gengur samkvæmt áætlun og verða niðurstöður hennar væntanlega kynntar á árinu 2004.
    Ljóst er að breytingar eru í aðsigi vegna inngöngu Eystrasaltsríkjanna í ESB, því áherslur nágranna þeirra á Norðurlöndum eru að byrja að taka mið af breyttu umhverfi. Sem eitt vestnorrænu landanna er Ísland enn sem fyrr heils hugar fylgjandi góðu samstarfi við þessi ríki sem og Rússland.
    Seinni fundur EK-Narko og fundur Norrænu ráðherranefndarinnar um vímuefnamál (MR-Narko) var haldinn í Lundi í september sl. Á fundinum var umræða um menntun þeirra, sem fara með ýmsa þætti málaflokksins. Fulltrúi PTN lýsti því yfir, að vaxandi gróska væri í samstarfi lögreglu- og tollayfirvalda og var því fagnað. Lyf á landamærum voru enn á dagskrá svo og fleiri mál, sem eru fastir liðir á dagskránni. Fundinum lauk með því að blaðamönnum var boðið að ræða við ráðherra, sem sátu fyrir svörum.
    Fulltrúar Íslands í EK-Narko telja það æskilegt að allir fulltrúar Íslands í nefndinni gætu setið þá fundi, sem haldnir eru.

20. Iðnaður og atvinnumál



    Bætt samkeppnisstaða norrænu þjóðanna er meginviðfangsefni ráðherranefndarinnar um iðnaðar- og atvinnumál. Starfið tekur fyrst og fremst mið af stefnuskjalinu „Ný norræn dagskrá“ og samstarfsáætluninni „Nordiskt Näringspolitiskt samarbetsprogram 2002–2005“ sem m.a. hefur að markmiði að afmá réttarheimildir sem standa í vegi samstarfs milli landanna og bættrar samkeppnisstöðu þeirra. Í samræmi við þetta nefndu Svíar formennskuáætlun sína „Norðurlöndin sem heild“ sem er framhald af umræðu fyrra árs um skýrslu Ole Norrback „Réttindi Norðurlandabúa“ sem unnin var fyrir norrænu samstarfsráðherrana.
    Í samvinnu við Norræna iðnaðarsjóðinn var efnt til ráðstefnu í Karlstad í maí um „Entreprenørskap og regelforenkling for øgt nordisk konkurransekraft“. Á grundvelli niðurstaðna ráðstefnunnar var m.a. ákveðið að norrænu löndin ynnu sameiginlega að því að innleiða löggjöf um Evrópuhlutafélög og evrópskar tilskipanir um lögmælifræði.
    Fjallað var um skattamál fyrirtækja og mismunandi skattlagningu í löndunum, m.a í tilefni af útgáfu skýrslunnar: „Skat og lokalisering“ sem unnin var af ECON Analyse fyrir ráðherranefndina. Þar kemur m.a. fram að margskonar hindranir eru í vegi aukins samstarfs og sameiningar fyrirtækja yfir landamærin, sem í mörgum tilvikum er talin nauðsynleg til að mæta alþjóðlegri samkeppni.
    Ljóst er að umtalsverðar landamærahindranir eru á Norðurlöndum og standa þær í vegi fyrir þróun atvinnulífsins. Ákveðið var að úttekt yrði gerð á þeim og tók Norræni iðnaðarsjóðurinn það verk að sér. Fyrsti hluti þeirrar vinnu hófst á árinu og felst í því að safna saman og vinna úr fyrirliggjandi skýrslum og öðrum gögnum sem gerð hafa verið síðustu fimm árin, eða frá 1998. Að því loknu verður síðari hlutinn skilgreindur. Stefnt er að því að lokaskýrsla og aðgerðaáætlun verði tilbúin fyrir norrænan ráðherrafund um iðnaðar- og atvinnumál sem haldinn verður á Íslandi haustið 2004. Þessi skýrsla verður veigamesta framlag atvinnumálaráðherranna í þeirri samræmdu vinnu að afnema hindranir á norrænum landamærum, sem Poul Schluter er talsmaður fyrir.
    Hvítbók Gustavs Björkstrands: „NORIA – Vitbok om nordisk forskning og innovation“ var talsvert til umfjöllunar meginhluta ársins. Skýrslan var unnin fyrir norrænu menntamálaráðherrana og er tillaga að stefnumótun fyrir samstarfið á vísindasviði. Mikilvægur hluti stefnumótunarinnar fjallar engu að síður um nýsköpun og málefni atvinnulífsins. NORIA stendur fyrir „Nordic Research and Innovation Area“ og lýsir því að stefnur í vísindum og nýsköpun þurfa að taka mið hvor af annarri, eins og nú er gert í opinberri stefnumótun á Íslandi og í Finnlandi.
    Hvítbókin er gott framlag sem legið getur til grundvallar fyrir nánara mati á samræmingu á áherslum á sviði vísinda og nýsköpunar. Fyrirliggjandi vinna tekur þó aðeins að litlu leyti á þeim þætti sem snýr að nýsköpun og atvinnuþróun. Því var ákveðið að á vegum atvinnumálaráðherra yrði á næsta ári gerð úttekt á nýsköpun á Norðurlöndum og hver ávinningur af umræddri samræmingu gæti orðið fyrir atvinnulífið og samkeppnisstöðu landanna. Þessi skýrsla hefur fengið heitið „Innovasjonsboken“. Samráð verður haft við fulltrúa menntamálaráðherra Norðurlanda um gerð nýsköpunarbókarinnar.
    Áfram var unnið að sameiningu Norræna iðnaðarsjóðsins og Norrænu prófunarstofunnar. Grunnur að þessari vinnu var lagður á árinu 2002 en þá komu fram efasemdir um að rekstrarform hinna fjölmörgu smærri stofnana sem reknar eru á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar skiluðu tilætluðum árangri. Við skoðun á starfsemi þeirra kom í ljós að hvor stofnunin fyrir sig hefur skilað góðum árangri en hann mætti engu að síður bæta með sameiningu. Einnig gæfist gott tækifæri til að leggja nýjar áherslur í starfið sem tækju mið af alþjóðlegri þróun. Ráðherrarnir samþykktu sameininguna á fundi sínum í september. Ný stofnun, Norræna nýsköpunarmiðstöðin (NICe), tekur til starfa við upphaf ársins 2004.
    Segja má að hlutverk NICe verði að vinna að framgangi þeirra meginmála sem greint er frá hér að framan. Þannig eiga þau verkefni, sem NICe tekur þátt í, að stuðla að sameiginlegum þekkingarmarkaði á Norðurlöndum, aukinni nýsköpun og samkeppnishæfara atvinnulífi. NICe á að vinna að því að Norðurlönd verði hindrunarlaus innri markaður fyrir frjálsan flutning þekkingar, hæfni, hugmynda, fjármagns, fólks og afurða. Lögð verður áhersla á að styrkja samkeppnishæfni Norðurlanda með því að byggja þau upp sem eina samstæða heild sem mun veita þeim brautargengi í evrópsku og einnig alþjóðlegu tilliti.
    Áherslur Íslands á árinu 2004 munu taka mið af því nýja umhverfi sem grunnur var lagður að á árinu 2003 og verða þær aðallega þrjár. Í fyrsta lagi að gera aðgerðaráætlun fyrir afnám hindrana í atvinnulífinu. Í öðru lagi að leiða vinnu við nýsköpunarbókina og meta ávinning af samstarfi um stefnumótun á sviði vísinda og nýsköpunar. Í þriðja lagi að skapa NICe þá stöðu að hún geti náð þeim markmiðum sem liggja til grundvallar stofnunar hennar.
    Ferðaþjónusta og umhverfisvernd eru málaflokkar sem iðnaðarráðherrarnir láta sig varða. M.a. hefur verið starfandi vinnuhópur um ferðaþjónustu frá árinu 2000 (Næringssektorens adhoc arbejdsgruppe for turisme). Lokið var við skýrslu um sjálfbæra ferðaþjónustu: „A Road Map for Sustainable Tourism in the Nordic Countries“ en í henni eru sett fram markmið sem norrænu löndin vilja vinna að í sameiningu. Meðal þess er fræðsla um sjálfbæra ferðaþjónustu; þróun sameiginlegra viðmiða (indikatorer) fyrir rekstur sjálfbærrar ferðaþjónustu; og innleiðing aðferða við umhverfisstjórnun svo nokkuð sé nefnt. Einnig verður unnið að stefnumótun um sjálfbæra ferðaþjónustu á norðurskautssvæðum (bæredygtig arktisk turisme) og sameiginlegum norrænum vef um ferðaþjónustu.
    Í desember sl. var haldinn norrænn samstarfsfundur á sviði félagaréttar þar sem rætt var um Evrópufélög. Gert er ráð fyrir að í framtíðinni fari samstarf á sviði félagaréttar fram í norrænni nefnd en fyrirsjáanlegt er að starf á því sviði muni aukast til muna, einkum vegna samþykktar framkvæmdaáætlunar ESB á árinu.

Norræni iðnaðarsjóðurinn (NI).
    Norræni iðnaðarsjóðurinn (Nordisk Industrifond – senter for innovation og næringsutvikling) er stofnun á vegum ráðherranefndarinnar um iðnað og atvinnumál. (Sjá nánar um Norræna iðnaðarsjóðinn, kafla 26.5.)

Norræna prófunarstofan (Nordtest).
    Árið 2003 markaði 30 ára starfsafmæli Nordtest. Síðastliðin ár hafa áherslur í starfsemi Nordtest breyst frá prófunaraðferðum yfir í breiðara svið „conformity assessment“ (CA) eða samræmingu krafna og prófana. Um áramótin 2003–2004 sameinast Nordtest og Norræni iðnaðarsjóðurinn í nýrri norrænni stofnun, Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni (Nordisk Innovationscenter). Starfsemi hennar mun m.a. halda áfram að stuðla að betri innri markaðsaðstæðum á Norðurlöndum. Enn þann dag í dag eru viðskiptahindranir á Norðurlöndum. Norræn samkeppni getur enn styrkst með norrænum heimamarkaði.
    Um 50 verkefnum var lokið á árinu. Alls voru samþykktar 24 nýjar og endurbættar Nordtest aðferðir og 30 Nordtest skýrslur voru gefnar út. Hafist var handa við 48 ný verkefni og önnur 12 héldu áfram. Alls var um 116 millj. kr. varið til nýrra verkefna.
    Nordtest vinnuhópunum var fækkað á árinu úr níu í sex. Helstu viðfangsefni þeirra, fyrir utan að meta verkefni, hafa verið að endurskoða og aðlaga starfsemina til samræmis við breytt starfsvið Nordtest.
    Þrír markaðshópar á vegum Nordtest hafa starfað og hefur einn þeirra, sem fjallaði um málm- og vélaframleiðslu skilað tillögum. Þar er athygli beint að litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem eiga erfitt uppdráttar vegna þeirra samhæfðu staðla sem ný tilskipun kveður á um. Fyrirtækjunum reynist erfitt að standa undir þessum kvöðum og geta lítið haft áhrif á þróun nýrra staðla.
    Nýr norrænn hópur var settur á laggirnar í byrjun ársins. Hlutverk hans er að kanna þörf og áhuga á vottunaráætlun við sýnasöfnun úrgangs, mengaðs jarðvegs, grunnvatns og botnsets. Niðurstöður hópsins voru þær að áhugi er fyrir hendi og munu tillögur liggja fyrir við árslok 2004.
    Nordtest hefur unnið í verkefninu NordProLink, sem er samvinna milli norrænna rannsóknarstofa og aðila sem vinna við samræmingu krafna og prófana (CA) í Eystrasaltsríkjunum og Norðvestur-Rússlandi. Markmið þess er að styrkja samvinnu á þessu sviði milli landanna.
    Hlutverk Nordtest hefur verið að leggja sitt af mörkum til CA-mála á alþjóðavettvangi og er þar áherslan á norrænni nálgun og sérstaklega málefnum sem snerta lítil og meðalstór fyrirtæki. Samvinna við EUROLAB, CEN/STAR og CEN/SABE hefur haldið áfram og Nordtest er aðili að netsamstarfinu METROPOLIS sem er evrópskt verkefni um mælitækni á umhverfissviði með 38 aðilum frá 17 Evrópuríkjum.
    Heimasíða Nordtest hefur verið mikilvæg við miðlun upplýsinga um starfsemina. Fjöldi heimsókna, pantana og gagnaöflunar frá heimasíðunni hefur fjölgað umtalsvert á árinu. Allar Nordtest-aðferðirnar eru aðgengilegar í gegnum www.nordtest.org.
    Þá hefur Nordtest staðið fyrir mörgum ráðstefnum á árinu, t.d. var haldin í Borås í Svíþjóð ráðstefna um norræna mælitækni þar sem gefin var út skýrsla um framtíð mælitækni á Norðurlöndum. Ennfremur var haldin fyrirlestraröð í samvinnu við Norræna iðnaðarsjóðinn (NI), Norrænu stofnunina um vísindamenntun (NorFA), NEFR og norrænu upplýsingaskrifstofurnar í Tallinn og Vilnius.

21. Húsnæðis- og byggingarmál

    Samstarfið á árinu byggðist á samstarfsáætlun Norðurlanda á sviði húsnæðis- og byggingarmála fyrir tímabilið 2002–2005 sem húsnæðisráðherrarnir samþykktu árið 2001. Áætlunin miðast við samstarf um félagsleg húsnæðismál, sjálfbæra þróun húsnæðis- og byggingarmála og borgarstefnu. Á formennskuári Svía var lögð áhersla á að leita leiða til að lækka byggingarog húsnæðiskostnað og draga úr landamærahindrunum vegna byggingarstarfsemi og viðskipti með byggingarvörur.
    Á árinu var haldinn húsnæðisráðherrafundur (MR-BO), fjórir fundir í embættismannanefndinni (EK-BYGG) og sameiginlegur fundur með embættismönnum frá Eystrasaltsríkjunum og Póllandi um áætlun um aukið samstarf um viðskipti með byggingarvörur og byggingarstarfsemi. Í upphafi ársins komu Færeyingar inn í starf embættismannanefndarinnar og á síðasta fund ársins mætti fulltrúi Grænlendinga á fund nefndarinnar og tilkynnti um þátttöku.
    Á ráðstefnum og fundum á vegum samstarfsins var meðal annars fjallað um stefnumótun í félagslegum húsnæðismálum, íbúðaskort og vandamál húsnæðislausra, um jafnvægi byggðasvæða og neikvæðar afleiðingar fólksfækkunar fyrir húsnæðismarkað. Einnig var fjallað um húsnæðiskostnað og borgarstefnu.

Útgáfa og rannsóknarstarf.
    Veittur var styrkur til forverkefnis um aðgengi að byggingum undir heitinu „Virkemidler til fremme af tilgængelighed“ árið 2001. Markmið þess er að kortleggja hvaða aðferðum er beitt til að bæta aðgengi að eldri og nýrri byggingum. EK-BYGG veitti viðbótarstyrk árið 2002 til að ljúka skýrslu um verkefnið og kom hún út á árinu undir heitinu „Et Norden för alle“ (TemaNord 2003:511). Skýrslan er fyrsta samantekt um aðgerðir til að auka og bæta aðgengi í byggingum og mannvirkjum. Markmið með yfirlitinu er að hvetja til samstarfs margra aðila sem nauðsynlegt er þegar bæta þarf aðgengi að eldri mannvirkjum og húsum.
    Á vegum Íslands var unnið að rannsóknarverkefni um framtíð félagslegrar húsnæðisstefnu þar sem fjallað er um stöðu og framtíðarþróun á Norðurlöndum. Skýrsla undir heitinu „Allmännyttiga och sociala bostäders framtid i Norden“ kom út á árinu (TemaNord 2003:536). Skýrslan verður til umfjöllunar á ráðstefnu sem haldin verður á Íslandi árið 2004.
    Á árinu var unnið að verkefni sem fjallar um samanburð á norrænni byggingarlöggjöf. Endurskoðun byggingarlaga og reglugerða er víða á döfinni. Rannsóknarverkefnið heitir „Sammenligning af Nordisk bygningslovgivning“. Á vegum norska íbúðalánasjóðsins (Husbanken) var unnið að verkefni um samræmingu á tölfræðilegum upplýsingum um húsnæðismál undir heitinu „Kartläggning av statistikproduktionen för bygg- och bostadssektorn“.
    Samanburður á borgarstefnu er verkefni sem unnið er að undir heitinu „Erfaringer med implementering af bypolitik i de nordiske lande“. Markmiðið er að kortleggja og greina áhrif borgarstefnu á Norðurlöndum. Niðurstöður eiga að liggja fyrir árið 2004 og verða kynntar á ráðstefnu undir heitinu „Bypolitik og boligpolitik“.

Ráðstefnur og fundir.
    Húsnæðismál í ljósi byggðaþróunar og ólíkra aðstæðna sveitarfélaga voru í brennidepli á árinu. Efnt var til ráðstefnu á Íslandi (í Reykholti í Borgarfirði) um jafnvægi byggðasvæða, neikvæðar afleiðingar fólksfækkunar fyrir húsnæðismarkað og þróun þéttbýlissvæða undir heitinu „Regioner i balans“. Ráðstefnan var haldin í samvinnu við Borgarfræðasetur og Byggðastofnun. Fyrirlesarar hvaðanæva að á Norðurlöndum fluttu erindi á málþinginu.
    Í september sl. var haldinn í Gautaborg samráðsfundur embættismannanefndarinnar og embættismanna frá Eystrasaltríkjunum og Póllandi um aðgerðir til að afnema hindranir annars vegar innbyrðis milli landanna í viðskiptum með byggingarvörur og byggingarstarfsemi og hins vegar milli norrænu landanna og Eystrasaltsríkjanna og Póllands. Markmiðið er meðal annars að lækka byggingar- og húsnæðiskostnað. Lögð var fram greinargerð undir heitinu „The Nordic and Baltic regions – a common market for constructions and managament of housing“. Í fyrstu var einungis miðað við Eystrasaltríkin en á síðari stigum var Póllandi bætt við. Greinargerðin fjallar um reglur sem hindra viðskipti milli landanna, byggingarmarkað og byggingarkostnað. Á fundinum var samþykkt samstarfsáætlun um aukið samstarf milli landanna í húsnæðis- og byggingarmálum (Action plan for increased exchange in the building sector between the Nordic countries and between the Nordic and the Baltic regions and Poland).
    Í lok október sl. var haldinn húsnæðisráðherrafundur í Ósló í tengslum við Norðurlandaráðsþingið. Á fundinum ræddu ráðherrarnir meðal annars aðgerðir til að aðstoða fólk sem á erfitt uppdráttar á húsnæðismarkaði og um úrræði fyrir húsnæðislausa sem er vaxandi vandamál. Kynnt var samstarfsáætlun um aukið samstarf Norðurlanda, Eystrasaltsríkjanna og Póllands. Þá var fjallað um skýrsluna „Allmännyttinga och sociala bostäders framtid“ og stöðu félagslegra íbúðamála í löndunum. Byggðaþróun og húsnæðismál voru einnig rædd en svipuð þróun hefur verið í öllum norrænu löndunum. Húsnæðisvandi norrænna dreifbýlissvæða hefur með tímanum birst meir og meir í æ fleiri félagslegum íbúðum sem standa auðar. Þá hafa þeir íbúar dreifbýlissvæða sem búa í eigin húsnæði lent í erfiðleikum vegna verðfalls á eigum sínum þegar þeir hafa neyðst til þess að flytja á brott. Norrænar stjórnsýslustofnanir á sviði húsnæðismála hafa á undanförnum árum orðið að grípa til margvíslegra aðgerða í því skyni að ráða bót á erfiðleikum af þessu tagi. Ísland kynnti áform um að efna til rannsóknarverkefnis á formennskuárinu um jafnvægi og ójafnvægi í búsetumynstri á Norðurlöndum.

22. Neytendamál



    Undir forystu Svía var á árinu lögð áhersla á aukinn samruna (integration) á Norðurlöndum jafnt innan landamæra þeirra sem og yfir landamærin. Einföldun lagareglna hefur leitt til aukins frelsis og meiri samruna á ýmsum sviðum sem snertir mikinn fjölda einstaklinga og fyrirtækja með beinum eða óbeinum hætti. Til umræðu á árinu var því hvernig þessi samrunaþróun kemur fram í fyrsta lagi í ríkjunum. Í öðru lagi hvernig hún kemur fram í samskiptum milli norrænu ríkjanna og í þriðja lagi gagnvart grannsvæðunum (Eistlandi, Lettlandi, Litháen og Norðvestur-Rússlandi). Loks í fjórða lagi með hvaða hætti þessi þróun hefur áhrif á samstarf ríkjanna um Evrópumál.
    Framangreind áhersluatriði mótuðu dagskrá og umræður funda og verkefna sem unnið var að á neytendasviði í norrænu samstarfi. Í framtíðinni mun t.d. í embættismannanefndinni um neytendamál verða lögð aukin áhersla á að ræða ýmis mikilvæg málefni sem eru á döfinni hverju sinni á vettvangi ESB enda er þar sífellt lögð meiri áhersla á málefni neytenda, sbr. 153. gr. Rómarsáttmálans.
    Ráðherrafundur neytendamála var haldinn í Svíþjóð í ágúst sl. Það er staðreynd að neytendamál er málaflokkur sem fellur undir ólík ráðuneyti á Norðurlöndum en það telur sænski landbúnaðarráðherrann, sem nú gegnir stöðu neytendamálaráðherra, aðeins vera til þess fallið að breikka og styrkja samstarfið á þessu sviði. Á fundinum var einnig rætt um nýja starfs- og stefnuáætlun fyrir norrænt samstarf á sviði neytendamála en núgildandi áætlun fyrir samstarfið rennur út í lok ársins 2004. Undirbúningur að nýrri samstarfsáætlun er nú þegar hafinn og var í mars sl. haldinn opinn fundur fyrir öll frjáls félagasamtök sem með einum eða öðrum hætti vinna að málefnum er snerta hag og hagsmuni neytenda (fölkrörelsesdag). Auk þess var embættismannanefndinni falið að vinna að frekari undirbúningi þannig að unnt verði að samþykkja nýja stefnu- og framkvæmdaáætlun á næsta ráðherrafundi á Íslandi árið 2004. Á fundinum ræddu ráðherrar einnig um nauðsyn þess að sjónarmið neytenda nái einnig fram að ganga við gerð og undirbúning staðla en ekki einungis sjónarmið framleiðenda og annarra sérfræðinga sem vinna að gerð alþjóðlegra staðla. Til þess að ná sem bestum árangri á þessu sviði, en það er einnig kostnaðarminnst, sé æskilegt að vandlega sé hugað að upphafi staðlavinnunnar þ.e. samþykkt svonefndra umboða til staðlagerðar og með því tryggt að tekið verði tillit til grunnþarfa neytenda þegar öryggisstaðlar fyrir vörur eru þróaðir. Í tengslum við framþróun laga og reglna sem gilda eiga í samskiptum neytenda og seljenda er mikilvægt að byggt sé á traustum gögnum og upplýsingum um þau vandamál sem raunverulega eru fyrir hendi á markaðnum. Á ráðherrafundinum var því samþykkt að fela embættismannanefndinni að hafa samstarf við framkvæmdastjórn ESB um uppbyggingu á gagnagrunni sem geti veitt mikilvægar upplýsingar og verið mælikvarði á ánægju neytenda á markaði. Ráðherrar ræddu einnig um sífellt vaxandi þrýsting sem börn og unglingar verða fyrir með beinni markaðssókn fyrirtækja á þennan markhóp neytenda. Samþykkt var að í samstarfinu á árinu 2004 verði lögð áhersla á verkefni og athuganir sem geti varpað betra ljósi á þann vanda sem sum norræn heimili standa frammi fyrir á þessu sviði. Í lok fundarins opnuðu ráðherrarnir heimasíðu með safni ókeypis forrita sem neytendum stendur til boða að nýta sér til ýmissa hluta, sbr. vefsíðan www.nordicos.org.
    Loks hélt embættismannanefndin á sviði neytendamála sinn fyrsta fund með samstarfsaðilum í ráðuneytum Eistlands, Lettlands og Litháen. Þess er vænst að í kjölfar þessa fyrsta fundar megi takast að þróa nánara samstarf milli Norðurlanda og þessara nýju aðildarríkja ESB.

23. Matvælamál



    Undir norrænu ráðherranefndinni um matvæli, sjávarútveg, landbúnað og skógrækt starfa þrjár embættismannanefndir: embættismannanefnd um matvæli (EK-Livs), embættismannanefnd um sjávarútveg (NEF) og embættismannanefnd um landbúnað og skógrækt (NEJS).
    Í samræmi við svokallaða „Grænlandsyfirlýsingu“ frá árinu 2002 hafa norræna embættismannanefndin um matvælamál og fastanefndir á hennar vegum, sem fjalla um eiturefnafræði matvæla og áhættugreiningu (NNT), matvælaörverufræði og áhættugreiningu (NNM), matvælaeftirlit (NNK), matvælalöggjöf (NNL) og manneldismál (NKE), sett heilsuvernd neytenda í öndvegi á árinu með því að leggja áherslu á:
–     að tryggja neytendum örugg matvæli,
–     að verja neytendur fyrir villandi upplýsingum um matvæli,
–     að fræða neytendur um heilnæmi matvæla,
–     að unnið sé í anda sjálfbærrar þróunar.
    Ísland hefur tekið virkan þátt í starfi allra fastanefnda embættismannanefndarinnar um matvæli svo og undirnefnda þar sem unnið er að sérgreindum verkefnum tengdum matvælum. Heildarendurskoðun matvælalöggjafar hjá ESB undanfarin misseri hefur verið grundvöllur fyrir norrænu samstarfi á matvælasviði. Unnið hefur verið að því að samstilla breytta framkvæmd og túlkun matvælalöggjafarinnar á Norðurlöndum og setja fram samræmdar norrænar útfærslur og innlegg í umræðuna á evrópskum og alþjóðlegum vettvangi.
    Afrakstur þessara verkefna eru tengiliðanet sérfræðinga, útgáfa af prentuðu efni, ráðstefnur, námskeið o. fl.
    Eftirtaldir fastanefndafundir, verkefnafundir og málþing voru skipulögð á Íslandi á árinu: –     Hið evrópska viðvörunarkerfi fyrir matvæli og fóður (RASFF). Þátttakendur voru hvaðanæva að á Norðurlöndum. Í kjölfar þessa verkefnis hefur Ísland lagt til að komið verði á fót norrænu tengiliðaneti um RASFF. Þá verður gefin út skýrsla á næsta ári.
–     Fundur um þjálfun og fræðslu fyrir starfsfólk í matvælafyrirtækjum og verður skýrsla gefin út á næsta ári.
–     Tengiliðanet um næringarfræðileg málefni (Sär-När Nätverk). Þetta er tengslanet norrænna þjóða þar sem umfjöllunarefnið er allt sem viðkemur sérfæði. Auk þess er fjallað um úrlausnarefni er tengjast íblöndun bætiefna í matvæli, fæðubótarefnum, ofnæmi og óþoli, markfæði og mörgu öðru sem snertir hina ýmsu fleti næringarfræðinnar. Reynt er að samræma stefnumótun og afgreiðslu mála t.d. um takmarkanir á heilsufullyrðingum sem nota má þegar matvæli eru markaðssett.
–     Verkefni um sjálfbæra þróun er varðar matvælaöryggi, þ.e. gerð tillagna að vísum (indikatorum) til að fylgjast með þróun helstu atriða er hafa áhrif á öryggi matvæla gagnvart neytendum. Með verkefninu er ætlunin að leggja fram tillögur að nýjum markmiðum og leiðum til að auka öryggi matvæla ásamt því að leggja til vöktunarvísa til að fylgjast með þróun og árangri. Ráðgert er að gefa út skýrslu með lokatillögum að vöktunarvísum á sjálfbærri þróun á Norðurlöndum.
–     Málþing um campylobacter undir yfirskriftinni „Interventions aimed at reducing the risk of acquiring campylobacter from poultry products“. Með verkefninu er ætlunin að safna saman og meta upplýsingar um reynslu norrænu landanna af íhlutandi aðgerðum sem leitt hafa til að dregið hefur úr campylobactermengun í alifuglum. Farið var yfir stöðu mála hvað varðar þróun sýkinga af völdum campylobacter og tíðni bakteríunnar í helstu sláturdýrum og matvælum. Settar voru fram tillögur að framtíðaraðgerðum til að draga úr hættunni á smiti í alifuglum og þar með sýkingum í mönnum af völdum campylobacter. Stefnt er að því að birta enska skýrslu úr verkefninu um mitt næsta ár.
    Auk þessa tók Ísland m.a. þátt í verkefnum og fundum um:
–     Umbúðir matvæla — tengslanet.
–     Áhættumat í fiski ef olíuslys verður á fiskimiðum (NNT).
–     Merkingar matvæla — tengslanet.
–     Varnarefnaeftirlit (NNK).
–     Kjöteftirlit (NNK).
–     Rekjanleika (NNK).
–     Bragðefni (NNT).
–     Viðbragðsáætlanir.
–     Norræna eftirlitsráðstefnu um matvælaeftirlit framtíðarinnar.
–     Merkingar á næringargildi matvæla (NKE).
–     Sérfæði – tengslanet.
–     Sýkla sem berast milli dýra og manna (NNM).
–     Vöktun þols gegn sýklalyfjum hjá bacterium (NNM).
–     Norrænu matvælarannsóknanefndina (EK-Livs).
–     Norræna samanburðarprófun (sjálfstætt).
    Ísland hefur einnig tekið virkan þátt í samvinnu Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna um eftirlit með matvælum (NordicBaltic Group on Food Control). Sama má segja um norræna samstarfsvettvanginn á sviði matvælaeftirlits, en þar hefur Ísland verið virkur þátttakandi um árabil og áhersla verið á að kynna stjórnsýslu, lagaumhverfi og framkvæmd matvælamála með sérhagsmuni svæðisins að leiðarljósi.

24. Málefni dómsmálaráðuneytis



Samstarf um löggjafarmál.
    Norrænt samstarf dómsmálaráðuneytanna byggist aðallega á samstarfsáætlun um löggjafarsamstarf og á árlegri framkvæmdaáætlun sem henni fylgir.
    Samstarfsáætlun fyrir árin 2002–2005 var samþykkt af dómsmálaráðherrum Norðurlanda (MR-Lov) árið 2002. Markmið hennar eru meðal annars að standa vörð um lýðræðislega ákvarðanatöku á Norðurlöndum og tryggja réttaröryggi þeirra sem búa og dveljast þar. Löggjafarsamstarfið á að miða við notagildi hjá Norðurlandaþjóðum og ná til þeirra sviða réttarins þar sem það er mest. Stefnt skal að samræmingu löggjafar, en þó er sá fyrirvari gerður að útfærsla einstakra réttarreglna þurfi ekki endilega að vera sú sama í öllum löndunum. Á sviði einkamálaréttar er hefð fyrir samræmdri löggjöf, og þar er stefnt að áframhaldandi þróun norræns samstarfs. Einnig hefur verið vaxandi þörf á samræmingu á sviði refsiréttar. Á þeim réttarsviðum þar sem ekki er hægt að ná samræmingu er lögð áhersla á gagnsemi þess að miðla af reynslu og skiptast á upplýsingum. Þá er sérstaklega tekið fram að norrænt löggjafarsamstarf skuli leggja sitt af mörkum til réttarþróunar í evrópsku og alþjóðlegu samhengi.
    Í framkvæmdaáætluninni 2003–2004, sem samþykkt var á fundi dómsmálaráðherranna í Saltsjöbaden í Svíþjóð sumarið 2003, eru talin upp þau verkefni og mál sem ráðherrarnir leggja áherslu á að unnið verði að. Talið er mikilvægt að halda áfram og eftir atvikum styrkja samvinnuna í málum er varða réttaröryggissjónarmið í baráttunni gegn hryðjuverkum, verslun með fólk, brotastarfsemi sem einkennist af nasistiskum viðhorfum og kynþáttafordómum, norrænan sifja- og erfðarétt og kynferðisbrot gegn börnum.
    Verkefni, sem styrkt verða af norrænum fjárlögum 2003–2004 eru fjölmörg. Að tillögu Íslands og í tilefni af formennskuári 2004 verður stofnað til rannsóknarverkefnis um aðgang að dómstólum eða kærumeðferð; hvort rétt sé að rýmka aðgang að dómstólum til að endurskoða stjórnsýsluákvarðanir eða hvort aðrar leiðir séu heppilegri. Önnur samstarfsverkefni sem styrkt verða samkvæmt framkvæmdaráætluninni eru eftirfarandi:
–     Refsimörk á Norðurlöndum. Rannsakaðar verða refsingar við brotum eins og morðum, líkamsárásum, kynferðisbrotum og fíkniefnabrotum. Athugað verður hvort refsing er mismunandi vegna svipaðra brota og ef svo er, hver gæti verið orsök þessa.
–     Baráttan gegn hryðjuverkum. Settur var á laggirnar starfshópur undir forystu Norðmanna til að fjalla um aðgerðir gegn hryðjuverkum, sérstaklega með tilliti til mannréttinda og réttaröryggis. Málþing var haldið í október sl. með frummælendum frá öllum norrænu löndunum. Stefnt er að útgáfu skýrslu vorið 2004.
–     Norrænn sifja- og erfðaréttur. Metin verður þörf á að samræma norræna löggjöf í kjölfar ítarlegrar samantektar um þetta efni. Samantektin skiptist í þrjár bækur; um hjúskaparlöggjöf, um erfðarétt og um foreldra og börn. Búið er að gefa tvær hinar fyrstnefndu út. Auk þess hefur samantekt þeirra komið út í skýrslu, „Äktenskapsrätten och successionsrätten i de fem nordiska länderna – Om möjligheterna och nyttan av lagharmonisering“ (TemaNord 2002:538).
–        Löggjafarstefna. Í framhaldi af málþingi um löggjafarstefnu síðsumars 2002 í Finnlandi verða frekari verkefni tekin til athugunar.
–        Norrænar framsalsreglur. Áfram verður unnið að endurskoðun norrænna framsalsreglna í ljósi evrópskrar handtökuskipunar, sem gildir í löndum ESB frá byrjun ársins 2004.
–     Norræn skuldabréfalög. Settur verður á laggirnar starfshópur til að ræða hvort þörf sé á endurskoðun laganna.
–     Stjórnsýsluviðurlög við afbrotum. Þróunin í Noregi bendir til þess að slík viðurlög séu að aukast í stað refsingar. Stefnt verður að málþingi í Noregi árið 2004.
    Auk samþykktar á nýrri framkvæmdaáætlun 2003–2004 ræddu norrænu dómsmálaráðherrarnir á fundi sínum í Saltsjöbaden ýmis mál. Rætt var um áhrif væntanlegrar stjórnarskrár ESB á norrænan rétt og norræna lagasamvinnu á sviði dómsmálaráðuneytanna. Ákveðið var að setja á laggirnar vinnuhóp sem yrði fyrst og fremst vettvangur skoðanaskipta og upplýsingamiðlunar milli ráðuneytanna. Þá var fjallað um samræmingu norræns sifja- og erfðaréttar í kjölfar þess að fyrir liggur ítarleg úttekt sem gerð hefur verið með fjárstyrk frá Norrænu ráðherranefndinni, sjá nánar umfjöllun um framkvæmdaáætlun hér að framan. Ákveðið var að norrænir sérfræðingar í sifja- og erfðarétti fái það verkefni að ræða hvort og þá á hvaða sviðum norræn lagasamræming sé möguleg og gagnleg. Um þetta var einnig fjallað á ráðstefnu sem haldin var í Stokkhólmi í desember sl. Ísland mun á formennskuári sínu vinna áfram að þessu máli. Einnig var á fundi dómsmálaráðherranna að frumkvæði Svía rætt um hvort gera ætti kaup á kynlífsþjónustu refsiverð.
    Norrænt löggjafarsamstarf fer að miklu leyti óformlega fram í vinnuhópum, ýmist milli ráðuneytanna eða einstakra embættismanna. Hið hefðbundna löggjafarsamstarf er fyrirferðarmest á sviði einkamálaréttarins, fyrst og fremst á sviði sifjaréttar, félagaréttar, skaðabótaréttar og neytendamála. Samstarf á sviði refsiréttar hefur aukist undanfarin ár, einkum vegna baráttunnar gegn skipulagðri glæpastarfsemi og hryðjuverkum. Auk löggjafarsamstarfs nær norrænt samstarf einnig til annarra þátta í starfi dómsmálaráðuneytanna, þar á meðal lögreglu og ákæruvalds, forvarna og viðurlagastefnu.
    Samstarf dómsmálaráðuneytanna fer einkum fram undir yfirstjórn norrænu embættismannanefndarinnar um löggjafarsamstarf (EK-Lov) þar sem unnið er að samræmingu samstarfsins og sameiginleg hagsmunamál rædd. Taka má fram að á hverjum fundi er gerð grein fyrir nýrri eða væntanlegri löggjöf í löndunum. Til að vinna að forgangsverkefnum eru starfshópar gjarnan settir á fót til tiltekins tíma og eru þeir skipaðir fulltrúum landanna.
    Á árinu störfuðu tveir starfshópar sem hvor um sig hafði til ráðstöfunar tiltekna fjárveitingu af norrænu fjárlögunum:
a)     Starfshópur um samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.
b)     Starfshópur um baráttuna gegn hryðjuverkum með tilliti til mannréttinda, réttaröryggis og alþjóðlegra ákvarðana, sbr. umfjöllun um framkvæmdaáætlunina hér á undan.
    Áður hafði verið ákveðið að leggja niður starfshóp um rannsóknir á Evrópurétti frá og með árinu 2003. Í staðinn munu einstök verkefni á þessu sviði vera styrkt af norrænum fjárlögum.
    Óformlegir starfshópar (sem ekki fá fjárveitingu af norrænum fjárlögum) voru þrír; sérfræðingahópur um sifjarétt, starfshópur ráðuneytanna um refsirétt og starfshópur um endurskoðun norrænna framsalsreglna (sbr. lög um framsal sakamanna til Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar nr. 7 14. mars 1962) í ljósi evrópsku handtökuskipunarinnar.
    Á árinu var haldið áfram, ásamt jafnréttissviðinu, þátttöku í starfshópi Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna um átak gegn mansali. Hvert land skilaði skýrslu um árangur og upp úr henni var unnin sameiginleg skýrsla sem skila átti til Norrænu ráðherranefndarinnar. Átakinu lauk í lok ársins.

Málefni flóttamanna.
    Samráðsnefnd háttsettra embættismanna um málefni flóttamanna (NSHF) fjallar um stefnumótun í þeim málaflokki. Þar fer einnig fram upplýsingamiðlun milli stjórnvalda um þróun löggjafar um málefni útlendinga almennt, um móttöku flóttamanna, um breytingar á framkvæmd mála er varða flóttamenn, ákvarðanatöku í slíkum málum, heimflutning o.fl. Samstarf er einnig um að afla upplýsinga vegna aðstæðna í löndum þaðan sem flóttamenn koma, m.a. með því að miðla skýrslum sem sendinefndir einstakra landa gera. Þá er haft samráð um ýmis atriði er varða útlendingaeftirlit, m.a. með hliðsjón af norræna vegabréfasambandinu og Schengen-samstarfinu, sem kom að fullu til framkvæmda á Norðurlöndum í mars 2001, og þar með atriði er varða framkvæmd Dyflinnarsamnings ESB-ríkjanna sem Ísland og Noregur eru nú einnig aðilar að. Þá hafa á fundunum atriði verið rædd sem varða mansal og innflutning vinnuafls.
    Starf nefndinnar á árinu fólst einkum í þremur fundum sem allir voru sóttir af hálfu Íslands. Fyrsti fundurinn var í Kaupmannahöfn í júlí sl. Þá var haldinn ráðherrafundur í september sl. þar sem boðið var ráðherrum frá Balkanskaga, en stór hluti þeirra hælisleitenda sem að undanförnu hafa knúið dyra á Norðurlöndum eru þaðan komnir. Þá var haldinn fundur embættismanna í desember sl., þar sem einkum var rætt um samstarf við Eystrasaltsríkin og við ríki á Balkanskaga.

Björgunarsamstarf.
    Norrænt björgunarsamstarf (NORDRED) tekur til samstarfs yfir landamæri og miðar að því að koma í veg fyrir eða takmarka tjón á mönnum, eignum eða umhverfi vegna slysa eða óhappa. Markmiðið er að veita gagnkvæma aðstoð og auðvelda að hjálparlið og búnaður komist sem allra fyrst á vettvang. Ísland hefur tekið þátt í þessu samstarfi undanfarin ár en það byggist á rammasamningi um björgunarþjónustu (NORDRED) frá árinu 1989 milli Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar. Ísland er formlegur aðili samningsins.
    Á árinu voru fundir haldnir í janúar, maí og ágúst. Í maí var jafnframt haldin ráðstefna í Danmörku um stöðu mála í löndunum, skilgreiningar um yfirstjórn, aðgerðastjórn og vettvangsstjórn. Síðan var farið yfir og framkvæmd skrifborðsæfing þar sem tilfellið var eiturefnaárás á Kastrup flugvelli. Markmiðið var að reyna að koma með tillögur til úrbóta varðandi viðbúnað og viðbrögð innan ramma Nordred samningsins og skila skýrslu til Norrænu ráðherranefndarinnar. Skýrslan er á vefslóðinni www.norden.org/pub/velfaerd/ lagstiftning/sk/TN2003548.asp en hún verður gefin út í janúar 2004. Í lok ráðstefnunnar færðist formennska í NORDRED frá Danmörku til Íslands. Stefnt er að því að halda ráðstefnu hérlendis eftir þrjú ár.

25. Norrænar stofnanir á Íslandi



25.1. Norræna húsið
    Norræna húsið er lifandi miðstöð norrænnar menningar og lista. Í húsinu fer fram fjölþætt menningar- og upplýsingastarf sem miðar að því að auka þekkingu á tungu og menningu norrænu þjóðanna og vekja áhuga fólks á norrænu samstarfi á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins.
    Forstjóraskipti urðu um áramótin og tók Gro Kraft frá Noregi við starfinu af Riittu Heinämaa, sem hafði stýrt Norræna húsinu í 5 ár. Gro Kraft er cand.phil. í listasögu.
    Starfsemi Norræna hússins var fjölbreytt að vanda. Sýningin „Young Nordic Design – The generation X“ var opnuð í lok janúar. Hún var sett upp í samstarfi við Form Ísland, og unnin af Design Forum í Finnlandi í samvinnu við Dansk Design Center, Norsk Form, Svensk Form og Form Ísland. Alþjóðleg ráðstefna „Hönnun – Máttur og möguleikar“ var haldin í samstarfi við iðnaðarráðuneytið. Styrktaraðilar voru nokkrir þar á meðal Norræna ráðherranefndin og Norræni menningarsjóðurinn. Í anddyri var sýning á bóklist eftir finnsku listakonuna Senju Vellonen og grænlenski listamaðurinn og hönnuðurinn Thue Christiansen sýndi verk sín.
    Norrænar bókmenntir voru í sviðsljósinu í febrúar. Sendikennarar í norrænum tungumálum við Háskóla Íslands kynntu bókmenntir sinna þjóða. Rithöfundarnir Sara Lidman (S), Vigdis Hjorth (N), Christina Hesselholdt (DK) og Petri Tamminen (FIN) fjölluðu um verk sín og lásu upp. Rithöfundar, sem tilnefndir voru til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, ferðuðust um Norðurlönd og kynntu verk sín undir yfirskriftinni „Raddir frá Norðurlöndum“. Rithöfundarnir Pirjo Hassinen (FIN) Jørgen Norheim (N), Liv Kølzow (N), Morten Søndergaard (DK), Kelly Berthelsen (GR), Jóhann Hjálmarsson og Álfrún Gunnarsdóttir komu fram í Norræna húsinu. Dagskráin var á vegum NORDBOK.
    Norrænir bíódagar voru haldnir í samstarfi við norrænu sendikennarana og Háskólabíó/kvikmyndaklúbbinn Filmund. Sýndar voru 5 nýjar myndir fremstu leikstjóra Norðurlanda.
    Í mars var þess minnst að 60 ár voru liðin frá fæðingu samíska skáldsins og fjöllistamannsins Nils-Aslaks Valkeapää. Harald Gaski og John Gustavsen frá Noregi fluttu erindi um samíska menningu og lesið var úr ljóðum Nils- Aslaks í þýðingu Einars Braga. Dagskráin var haldin í samvinnu við SAMÍS, nýstofnaðs vináttufélags Sama og Íslendinga. Fyrirlestrarröð um grænlenska tungu og menningu var haldin í samvinnu við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur. Þessir dagskrárliðir voru undir merkjum „Norðurlandanna í fókus“. Tvær norrænar ráðstefnur voru haldnar í Norræna húsinu í maí, annars vegar „Börn og tungumál“ í samvinnu við Borgarbókasafn Reykjavíkur og styrkt af NORDBOK, hins vegar ráðstefnan „Arfur, menning, áform“, þar sem bókmenntir voru í brennidepli, og var hún sú þriðja í röð ráðstefna um „Breytingar á norrænni menningarstefnu“. Samstarfsaðilar voru Bandalag íslenskra listamanna, Stofnun Sigurðar Nordals, Rithöfundasamband Íslands, Reykjavíkurborg og Menntamálaráðuneytið. Norræni menningarsjóðurinn stóð fyrir þessari ráðstefnuröð.
    Sænskir listamenn frá Umeå komu fram í Norræna húsinu í mars. Þetta voru danshópurinn Nomo Daco, rithöfundurinn Katarina Mazetti og fiðluleikarinn Torbjörn Näsbom.
    Á vormisseri var sett upp sýningin „Hraun-Ís-Skógur“, sem var samstarfsverkefni Íslands, Grænlands og Samalands. Markmiðið var að tengja saman sérkenni norðurslóða og kynna þannig menningararfinn fyrir börnum og unglingum. Fjölmargir styrktu þetta verkefni m.a. Norræna ráðherranefndin og menningarsjóðir landanna. Í anddyri sýndu listamenn sem höfðu haft aðstöðu til listsköpunar í gestavinnustofum hjá Norrænu listamiðstöðinni Dalsåsen í Noregi. „Norskar myndabækur á faraldsfæti“ var heitið á farandsýningu sem var einnig í anddyri á vormisseri. „Kvæði úr norræna farteskinu, eldgömul kvæði og nýsamin stef með dansi“ hét dagskrá flutt af tónlistarmönnum frá Noregi, Finnlandi, Svíþjóð og Íslandi. Norræni menningarsjóðurinn styrkti dagskrána.
    Að venju voru kvikmyndasýningar fyrir börn og unglinga á vor- og haustmánuðum og var tekin upp sú nýbreytni að bjóða upp á skólasýningar auk hinna hefðbundnu fjölskyldusýninga á sunnudögum.
    Aðalverkefni sumardagskrárinnar var „Stóra norræna fílasýningin“, sem einkum var ætluð yngri kynslóðinni. Dönsku listamennirnir Thomas og Victoria Winding, Peter Hentze og Pernelle Maegaard skópu ævintýraheim með fílinn sem þema. Leikskólabörnum og börnum á sumarnámskeiðum ÍTR var boðið að koma á sýninguna og námskeið var haldið fyrir börn í dansi og frjálsri hreyfingu. Í anddyri var ljósmyndasýning Ragnars Th. Sigurðssonar „Vestan við sól og norðan mána“ með ljósmyndum frá Grænlandi, Færeyjum og Íslandi. Ari Trausti Guðmundsson samdi texta við myndirnar. Tónlistarhópurinn Camerartica flutti norræna sumartóna á þrennum tónleikum um sumarsólstöður. Ráðstefna norrænna tónlistar- og tónmenntakennara um tónlist í samfélaginu var haldin í júnílok og héldu ungir tónlistarnemar frá Danmörku og Svíþjóð tónleika í Norræna húsinu af þessu tilefni. Norræna tríóið Koppel-Andersson-Gunnarsson hélt jasstónleika í ágúst og á menningarnótt í Reykjavík spiluðu Spaðarnir fyrir fullu húsi.
    Í ágústlok var opnuð sýning á skartgripum eftir norsku listakonuna Liv Blåvarp. Charon Kransen listfræðingur frá Bandaríkjunum hélt fyrirlestur um verk hennar. Í tengslum við sýninguna var á vegum „Norðurlandanna i fókus“ haldið málþing í október um skartgripahönnun. Fyrirlesarar voru Gro Kraft, forstjóri Norræna hússins, Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur og Tinna Gunnarsdóttir listhönnuður.
    Alþjóðleg bókmenntahátíð var haldin i sjötta sinn í september með fyrirlestrum og pallborðsumræðum í Norræna húsinu og upplestrarkvöldum í Iðnó. 22 rithöfundar víðs vegar að úr heiminum tóku þátt í hátíðinni auk 18 íslenskra rithöfunda. Fulltrúum frá erlendum útgáfufyrirtækjum var einnig boðið til hátíðarinnar. Bókmenntahátíðin dró að sér marga gesti og var áberandi að þorri áheyrenda var af yngri kynslóðinni. Reykjavíkurborg og menntamálaráðuneytið styrktu hátíðina, einnig Norræni menningarsjóðurinn, norrænu sendiráðin og innlendir kostunaraðilar.
    Sænsk menningarvika var haldin í fyrstu viku nóvember. Framlag Norræna hússins var tónleikar með kvartett sænska jasstónlistarmannsins Jonas Kullhammars. Í lok nóvember héldu Anette Maria Slaatto, Marianne Rørholm og Pål Lindtner Eide tónleika með tónverkum eftir Atla Heimi Sveinsson og fleiri tónskáld. Norræni menningarsjóðurinn veitti m.a. styrk til tónleikaferðarinnar. Listamannahópur sem rekur galleríið Meistari Jakob opnaði afmælissýningu í sýningarsölum í lok október.
    Dagskrá undir merkjum „Norðurlandanna í fókus“ var áberandi á haustmánuðum. Í byrjun september var sett upp sýningin „Súldduld“ í anddyrinu þar sem finnska listakonan Sari Maarit Cedergren sýndi lágmyndir úr steinsteypu og og gifsi. Sænski rithöfundurinn Per Helge kom fram á bókakaffi í Norræna húsinu og var dagskráin skipulögð í samstarfi við sendiráð Svíþjóðar og Lars-Göran Johansson sendikennara í sænsku við Háskóla Íslands. Um miðjan október hófst dagskráin „Norræn leikskáld – dramatísk fimmtudagskvöld", þar sem íslenskir leikstjórar kynntu eftirlætis norrænu leikskáldin sín. Hver leikstjóri fékk til liðs við sig tvo leikara til að leiklesa brot úr verkum skáldsins. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands og leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, reið á vaðið og kynnti sænska rithöfundinn og leikskáldið Per Olov Enquist. Kjartan Ragnarsson leikstjóri fjallaði um Henrik Ibsen, Þorsteinn Bachmann leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar kynnti Axel Hellstenius, Hlín Agnarsdóttir leikstjóri og rithöfundur ræddi um Lars Norén og á síðasta leiklistarkvöldinu fyrir áramótin kynnti Stefán Baldursson Þjóðleikhússtjóri þá Thomas Vinterberg og Mogens Rukov. Dagskráin mun halda áfram í janúar og febrúar 2004. Ljósmyndir af listaverkum Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara í opinberu rými var sett upp í anddyrinu um miðjan október í tengslum við málþing sem skipulagt var af Birgittu Spur hjá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Þar komu fram innlendir og erlendir listfræðingar, arkitektar og myndlistarmenn. Finnski píanóleikarinn Tuulikki Lehtinen hélt tónleika í byrjun nóvember og lék verk klassískra meistara tónbókmenntanna.
    Í lok nóvember var sett upp jólasýning að norskri fyrirmynd undir yfirskriftinni „List – Hönnun – Handverk. Jólasýning Norræna hússins 2003“. Á sjötta tug íslenskra listamanna, hönnuða og handverksmanna tók þátt í sýningunni. Stefnt er að því að gera slíkar jólasýningar að árlegum viðburði og þá einnig með þátttöku listafólks frá öðrum norrænum löndum.
    Bókasafnið hélt uppi reglubundinni starfsemi á árinu og fer hún sívaxandi. Ástæður þess eru margþættar en aukin innkaup á bókum, tímaritum og öðru safnefni, ásamt síauknu aðgengi að ýmsum upplýsingabönkum á Internetinu, vega trúlega þyngst. Safnið nýtur nú sömu styrkja og sænsk og norsk almenningsbókasöfn og því hefur svigrúm til innkaupa aukist. Sænska og norska ríkið kaupa ákveðinn fjölda bókatitla á hverju ári og senda til almenningsbókasafna í sínum löndum þeim að kostnaðarlausu. Það efni sem ekki hentar bókasafni Norræna hússins hefur verið sent Landsbókasafni – Háskólabókasafni og Borgarbókasafni og komið þar að góðum notum.
    Bókasafnið tók að venju þátt í „Norrænu bókasafnavikunni“ með dagskrá fyrir leikskólabörn.
    Letterstedtska sjóðurinn styrkti safnið til innkaupa á sænskum myndböndum/ DVD-diskum á árinu. Keypt eru myndbönd/DVD-diskar eftir því sem fjárveitingar leyfa, en höfundarréttindi á efni frá Danmörku valda miklum erfiðleikum.
    Nýr tölvubúnaður sem tekinn var á leigu í ársbyrjun hefur reynst vel. Ljósleiðaratenging kom í húsið í haust og því er nettenging eins góð og hún getur orðið.
    Hafin er endurskoðun á því hvaða tímarit eru í áskrift og einnig voru tekin í reynsluáskrift nokkur ný dagblöð til viðbótar í kaffistofu.
    Kennsluráðgjafinn í Norræna húsinu bauð nemendum á öllum skólastigum að heimsækja húsið og taka þátt í fjölbreyttri fræðsludagskrá um Norðurlönd, norræn tungumál, norrænt samstarf og Norræna húsið. Fræðsluefni hefur verið útbúið fyrir skólana þar sem boðið er upp á níu mismunandi dagskrár. Íslenskir og erlendir nemendahópar hafa nýtt sér þessa þjónustu. Farið var með hluta þessarar dagskrár í grunnskóla á Akranesi, Hveragerði, Stokkseyri og Eyrarbakka.
    Gefnar voru út á vegum kennsluráðgjafans talæfingar, tólf spjöld með myndum sem tengjast Norðurlöndum. Með efninu fylgja kennsluleiðbeiningar, fyrirmæli til nemenda og matsblað og er það á heimasíðu kennsluráðgjafans. Efnið var gefið grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Einnig gaf kennsluráðgjafinn út afmælisdagatal þar sem menn geta lært nokkur orð í Norðurlandamálum auk þess að muna mikilvæga afmælisdaga. Afmælisdagatölin voru einnig send í grunnskóla á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
    Kennsluráðgjafinn bauð að venju kennurum og leiðbeinendum sem kenna dönsku í 7. bekk upp á aðstoð og kennsluráðgjöf. Með því er reynt að létta undir með kennurum og styrkja þá í starfi sínu með byrjendum.
    Boðið var upp á námskeið í dönsku fyrir 8 og 9 ára börn og var markmið þess að vekja og viðhalda áhuga þeirra á málinu.
    Sem fyrr átti kennsluráðgjafinn gott samstarf við Norræna húsið og skipulagði að venju tveggja vikna sumarnámskeið í íslensku fyrir Norðurlandabúa. Hann tók einnig þátt í „Stóru norrænu fílasýningunni“ með því að skipuleggja verkstæðisvinnu og útbúa verkefni handa þeim börnum sem sýninguna sóttu.
    Norræna húsið er enn sem fyrr eftirsótt fyrir fundi og ráðstefnur. Sagnfræðingafélag Íslands, Garðyrkjufélag Íslands, Vísindafélag Íslendinga og Leikskólar Reykjavíkur héldu fundi reglulega eins og undanfarin ár. Háskólatónleikar voru haldnir á vor- og haustmisseri. Fundarherbergi hússins er einnig mikið notað fyrir minni fundi.
    Kaffistofan er vinsæl meðal almennings, háskólafólks og nemenda. Helstu dagblöð frá Norðurlöndum liggja þar frammi og sækjast margir eftir að lesa nýjustu fréttir frá frændþjóðum okkar.
    Sendikennarar frá Norðurlöndum hafa skrifstofur í Norræna húsinu og afnot af kennslurými í kjallara. Háskóli Íslands greiðir leigu fyrir húsnæðið.
    Stjórn Norræna hússins er skipuð fulltrúum frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð auk þess sem Grænland, Færeyjar og Álandseyjar eiga áheyrnarfulltrúa á stjórnarfundum.

25.2. Norræna eldfjallastöðin (NORDVULK)
    Unnið var að gagngerum breytingum á rekstri Norrænu eldfjallastöðvarinnar á árinu. Eftir langvarandi umræðu og athuganir á norrænum vettvangi hafa menntamálaráðherrar Norðurlanda ákveðið að flytja yfirstjórn norrænna rannsóknastofnana frá Norrænu ráðherranefndinni til þeirra landa sem hýsa stofnanirnar. Eldfjallastöðin er ein fimm stofnana sem þannig verður breytt. Íslenska menntamálaráðuneytið hefur haft forgöngu um að Háskóli Íslands (HÍ) yfirtaki starfsemi Norrænu eldfjallastöðvarinnar, sem yrði þá lögð niður sem sjálfstæð stofnun. Starfsemin, sem fram fer í dag á Eldfjallastöðinni, haldi þó áfram og verði sameinuð annarri jarðvísindastarfsemi við HÍ. Unnið er að samningi milli Norrænu ráðherranefndarinnar og HÍ um málið og áætlað er að hann verið frágenginn fyrri hluta árs 2004. Yfirlýsing um framtíð starfseminnar hefur þegar verið samþykkt. Fyrirhugað er að til verði ný Jarðvísindastofnun Háskólans sem starfi innan Raunvísindastofnunar Háskólans. Áætlað er að starfsemi nýju stofnunarinnar hefjist 1. júlí 2004, og þar sameinist jarðog jarðeðlisfræðistofur Raunvísindastofnunar Háskólans og Norræna eldfjallastöðin. Því hefur samningur Norrænu ráðherranefndarinnar við Norrænu eldfjallastöðina um óbreytta starfsemi aðeins verið framlengdur til loka júní árið 2004.
    Norræna eldfjallastöðin var stofnuð árið 1974 og hefur æ síðan verið rannsókna- og menntasetur í eldfjallafræði og skyldum greinum, með áherslu á menntun og þjálfun ungra vísindamanna. Stofnunin hefur til þessa verið sjálfstæð en þó jafnan starfað náið með Háskóla Íslands. Starfsemin á árinu var í svipuðum farvegi og undanfarin ár en í árslok voru 20 starfsmenn við stofnunina, helmingurinn Íslendingar. Í starfseminni hefur ávallt verið lagt upp með að nota hinar einstæðu aðstæður á Íslandi til að þjálfa unga vísindamenn í eldfjallafræði. Landið er þannig nýtt sem eins konar yfirgripsmikil rannsóknastofa í eldfjallafræði. Öflugar rannsóknir á afmörkuðum sviðum í samvinnu við aðra íslenska og erlenda jarðvísindamenn hafa þannig verið stundaðar við stofnunina frá upphafi. Norræn og alþjóðleg tengsl hafa verið sterk, og stofnunin hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu, m.a. vegna tíðra birtinga rannsóknaniðurstaðna í alþjóðlegum vísindatímaritum.
    Fjármagn til starfseminnar hefur að miklu leyti komið af norrænum fjárlögum og á árinu 2003 komu um 67% tekna frá Norrænu ráðherranefndinni. Heildarfjárveitingar á árinu námu 137 millj. ísl.kr. Þar af var heildarframlag Norrænu ráðherranefndarinnar 92 millj. ísl.kr. og framlag íslenska menntamálaráðuneytisins 18 millj. ísl.kr. Styrkir og aðrar tekjur námu 27 millj. ísl.kr. Áætlað er að á næstu árum muni draga úr föstum norrænum fjárveitingum til hinnar nýju Jarðvísindastofnunar Háskólans. Tillaga ráðherranefndarinnar er að fjárveitingar til starfseminnar verði óbreyttar á árunum 2004 og 2005 en síðan dragi úr þeim í áföngum. Árið 2007 verði þær komnar niður í 56 millj. ísl.kr. á verðlagi ársins 2004. Samt er áætlað að tryggja afkomu hinnar nýju Jarðvísindastofnunar þannig að starfsemin sem þar sameinist verði a.m.k. eins öflug og hún er nú. Ljóst er þó, að það er aðeins gerlegt ef aukið fjármagn fæst til starfseminnar. Stofnunin mun þurfa að sækja fjármagn í auknum mæli úr íslenskum, norrænum og evrópskum samkeppnissjóðum. Ekki er tryggt að það takist, umfram það sem nú er, þar sem mikið fé er sótt í slíka sjóði nú þegar. Íslensk stjórnvöld hafa lýst sig samþykk áformum Háskóla Íslands um að byggja upp metnaðarfulla alþjóðlega stofnun á sviði jarðvísinda og áætla jafnframt að styðja við uppbygginguna. Mikilvægt er að þessum fyrirætlunum verði fylgt eftir af einurð svo unnt verði að tryggja framhald þeirrar starfsemi sem nú er á Norrænu eldfjallastöðinni.
    Flutningur Norrænu eldfjallastöðvarinnar í nýtt Náttúrufræðahús Háskólans var undirbúinn á árinu og gengið frá lokaskipulagi. Áætlað er að flytja þegar húsnæðið verður fullbúið á fyrsta ársfjórðungi ársins 2004. Ávallt hefur staðið til að Eldfjallastöðin flytti inn í Náttúrufræðahúsið, þannig að flutningurinn er óháður fyrirætluðum samruna Eldfjallastöðvarinnar við HÍ. Samkvæmt reglum um samnorrænar stofnanir ber stjórnvöldum heimalandsins að leggja þeim til húsnæði. Menntamálaráðuneytið gerði því samning við HÍ um aðstöðu fyrir Eldfjallastöðina í Náttúrufræðahúsinu, þar sem heppilegt húsnæði undir starfsemi stofnunarinnar vantaði. Árið 1996 flutti Eldfjallastöðin úr Jarðfræðahúsi Háskólans sem þá var löngu orðið of þröngt, í leiguhúsnæði að Grensásvegi 50. Fram til árins 1996 var stofnunin því í mjög nánu sambýli við jarðvísindastarfsemi Háskólans, sem auðveldaði samnýtingu á tækjum og rannsóknastofum. Hönnun Náttúrufræðahússins tekur mið af sambýli Eldfjallastöðvarinnar og annarrar jarðvísindastarfsemi og það auðveldar mjög samnýtingu. Með nýrri Jarðvísindastofnun Háskólans verða litlar breytingar á húsnæðisnotkun, því ný stofnun yfirtekur starfsemi sem þegar hefur lagað sig að samnýtingu á rannsóknastofum og búnaði. Eldfjallastöðin fær góða aðstöðu á þremur hæðum í vesturenda Náttúrufræðahússins, næst annarri jarðvísindastarfsemi í miðhluta þess.

Norræn verkefni og samstarf.
    Af 20 manna starfshópi á stofnuninni eru fimm ungir vísindamenn frá Norðurlöndum, sem sitja hverju sinni í stöðum sem veittar eru til eins árs í senn, með möguleika á framlengingu í 1 eða 2 ár. Þessar stöður hafa verið ásóttar og frá upphafi hafa nálægt 100 manns gegnt þeim. Þetta er í reynd einn mikilvægasti þátturinn í starfsemi Norrænu eldfjallastöðvarinnar og grundvöllur að norrænni vídd í starfseminni. Að auki starfar einn reyndur vísindamaður frá Noregi við stofnunina, og einn ungur danskur vísindamaður er kostaður af styrkjum frá Rannís og ESB. Fyrirhugað er að norrænar fjárveitingar nýtist áfram til að kosta fimm stöður ungra norrænna vísindamanna, og jafnframt eina stöðu vísindamanns með reynslu í eldfjallafræði og skyldum greinum. Stjórn Norrænu eldfjallastöðvarinnar ákvað því, þrátt fyrir breytingar á starfseminni, að auglýsa þessar stöður frá 1. júni 2004, líkt og gert hefur verið árlega.
    Verkefni norrænna starfsmanna á stofnuninni eru margvísleg. Þau tengjast jarðfræðilegum ferlum á Íslandi en hafa jafnframt alþjóðlega skírskotun. Á árinu unnu norrænir starfsmenn m.a. að rannsóknum á uppruna og þróun bergkviku í jaðargosbeltum Íslands, myndun súrrar bergkviku (líparíts), jarðskjálftavirkni m.a. í Kötlu, og rannsóknum á jarðskorpuhreyfingum með gervitunglatækni.

Alþjóðleg verkefni og samstarf.
    Sumarskóli Norrænu eldfjallastöðvarinnar, sem var alþjóðlegur þetta ár, fjallaði um samspil jarðskorpuhreyfinga og kvikuhreyfinga. Hann var haldinn í samvinnu við Ridge 2000 Program, National Science Foundation í Bandaríkjunum og Norrænu stofnunina um vísindamenntun (NorFA). Samtals voru yfir 60 manns á skólanum, um 30 Bandaríkjamenn og 30 Norðurlandabúar, ásamt nokkrum vísindamönnum frá öðrum löndum. Sumarskólinn var haldinn í byrjun september á Hótel Geysi. Norræna eldfjallastöðin hefur staðið fyrir sumarskólum um valin efni í jarðvísindum síðan 1995 og eru þeir mikilvægur þáttur í starfsemi stofnunarinnar, m.a. vegna þess að þar tekst að ná til stórs hóps ungra vísindamanna frá Norðurlöndum.
    Á árinu tók Norræna eldfjallastöðin þátt í tveimur evrópskum samstarfsverkefnum, sem styrkt eru af Evrópusambandinu. Fjölmargir vísindahópar frá ýmsum Evrópulöndum koma að báðum verkefnunum. Í öðru þeirra, RETINA (Realistic Evaluation of Interaction of Natural Hazards), er unnið að rannsóknum á samspili jarðskjálfta, eldgosa og skriðufalla og markmiðið er að skilja og skilgreina samsetta náttúruvá og tengsl atburða í jarðskorpunni. Norræna eldfjallastöðin leiðir verkefnið hér á landi, en auk hennar koma að verkefninu Veðurstofa Íslands, Raunvísindastofnun Háskólans, Íslenskar Orkurannsóknir og Almannavarnadeild Ríkslögreglustjóra. Hitt verkefnið heitir PREPARED og er leitt af Veðurstofu Íslands. Það verkefni snýst um Suðurlandsskjálftana árið 2000, rannsókn á eðli þeirra og áhrifum á jarðskorpuna. Markmiðið er að leita aukins skilnings, sem gæti auðveldað spár um sambærilegar hamfarir í framtíðinni.
    Á árinu tók Norræna eldfjallastöðin þátt í umsóknum um ný evrópsk samstarfsverkefni. Eitt þeirra, FORESIGHT, fékk mjög góða dóma í mati á umsóknum (29.5 stig af 30 mögulegum), en eftir er að ákveða hversu háar fjárveitingar verkefnið fær frá ESB.

Íslenskt verkefni og samstarf.
    Í desembermánuði fékk Karl Grönvold úthlutað 5 millj. kr. styrk úr minningarsjóði Ludvig Storr, til að kaupa tæki til efnagreininga á upplausnum með rafdrætti (Capillary Electrophoresis). Tækið mun gera það mögulegt að greina mjög smá vökvasýni svo sem innlyksur í kristöllum.
    Sem fyrr kom Norræna eldfjallastöðin að margvíslegum mælingum á eldfjöllum Íslands og jarðskjálftasvæðum. Þessar mælingar eru mikilvægur þáttur í heildarrannsóknum á náttúru landsins. Hluti rannsóknanna nýtist sem hlekkur í vöktun eldfjalla, án þess að það sé að jafnaði megintilgangur þeirra. Við rannsóknir á jarðskorpuhreyfingum er beitt ýmsum aðferðum, m.a. nákvæmum samanburði á gervitunglamyndum sem sýna með um 5–10 millimetra nákvæmni hvernig jarðskorpan hreyfist. Einnig hafa verið gerðar nákvæmar GPS-landmælingar í samvinnu við Veðurstofu Íslands og Raunvísindastofnun Háskólans. Á árinu voru m.a. gerðar mælingar á Suðurlandi til að fylgjast með áframhaldi jarðskorpuhreyfinga eftir Suðurlandskjálftana. Einnig voru gerðar mælingar á mörgum virkustu eldstöðvum landsins til að meta kvikuinnstreymi þeirra. Niðurstöðurnar sýna viðvarandi söfnun bergkviku grunnt undir Grímsvötnum og Kötlu. Samtúlkun á þessum niðurstöðum og öðrum gögnum bendir til að langtímaforboðar fyrir eldgos bæði í Grímsvötnum og Kötlu séu nú komnir fram og að eldgos geti orðið í báðum þessum eldstöðvum með skömmum fyrirvara.

26. Norrænir sjóðir og peningastofnanir



26.1. Norræni menningarsjóðurinn
    Norræni menningarsjóðurinn var stofnaður árið 1966 og er hlutverk hans að efla norrænt menningarsamstarf. Sjóðurinn styrkir verkefni af ýmsum toga á sviði rannsókna, menntunar og menningar í víðri merkingu. Fjárveitingar til sjóðsins á árinu námu 29,1 millj. d.kr. og stjórnarfundir voru þrír.
    Skrifstofa sjóðsins er í Kaupmannnahöfn og starfsmanna- og fjármál eru í umsjón skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í samræmi við samstarfssamning við stjórn sjóðsins.
    Í stjórn hafa verið tveir fulltrúar frá hverju norrænu landanna og einn fulltrúi fyrir sjálfstjórnarsvæðin þrjú. Árið 2003 tók sú breyting gildi að hvert sjálfstjórnarsvæðanna fær sinn fulltrúa.
    Sjóðurinn úthlutar aðallega styrkjum til verkefna á menningarsviði, sem einstaklingar, samtök og stofnanir geta sótt um. Umsóknarfrestur er nú tvisvar á ári fyrir styrki sem eru hærri en 100.000 d.kr., en sex sinnum á ári fyrir lægri styrki. Þetta nýja fyrirkomulag verður til reynslu til ársins 2006 en markmiðið er að auka sveigjanleika í styrkveitingum og áhuga frjálsra félagasamtaka á að standa fyrir norrænum menningarverkefnum. Alls bárust sjóðnum 750 styrkhæfar umsóknir. Veittir voru styrkir til 210 verkefna að upphæð 26 millj. d.kr. Frá Íslandi bárust 35 styrkhæfar umsóknir en 14 þessara verkefna fengu styrki að upphæð alls 1,24 millj. d.kr.
    Með því markmiði að ná til nýrra markhópa utan höfuðborga norrænu landanna hefur verið komið á samstarf við norrænu svæðisupplýsingaskrifstofurnar átta á Norðurlöndum en ein þeirra er á Akureyri.
    Sjóðurinn átti einnig samstarf við tvíhliða norræna sjóði, sem eru alls 12 talsins. Ísland á aðild að fjórum tvíhliða sjóðum, þ.e. Sjóðnum fyrir dansktíslenskt samstarf, Dansk-íslenska sjóðnum, Menningarsjóði Íslands og Finnlands og Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum.
    Frá stofnun sjóðsins hefur það verið skilyrði fyrir styrkveitingu að verkefni nái til a.m.k. þriggja norrænna landa eða sjálfsstjórnarsvæða. Á árinu var ákveðið að víkja frá þessari meginreglu og styrkja einnig tvíhliða verkefni svo framarlega sem þau hafa að markmiði að styrkja samstarfið milli norrænu ríkjanna í austri og vestri. Þannig má frá og með árinu 2004 veita styrk til verkefna sem Ísland og eitt annað norrænt land standa að. Menningarsjóðurinn vill á þennan hátt beina athyglinni að 60 ára afmæli íslenska lýðveldisins.
    Í lok ársins 2002 lauk rannsóknarverkefninu „Nordisk kulturpolitik under forandring“ sem hefur að mestu verið fjármagnað af menningarsjóðnum. Í framhaldinu var haldin röð ráðstefna, alls sex talsins, þar af ein á Íslandi í maí sl.
    Tungumálaverkefni hófst á árinu á vegum menningarsjóðsins. Kannað verður hve mikinn skilning unglingar á aldrinum 16–19 ára hafa á skandínavískum tungumálum. Könnunin á að fylgja eftir svipaðri könnun og gerð var árið 1976. 1200 unglingar á Norðurlöndum taka þátt – þar af eru 50 reykvískir unglingar og 25 búsettir á Akureyri.
    Formennskan í sjóðsstjórn er til tveggja ára. Ísland tekur við formennsku í upphafi árs 2004.
    Frekari upplýsingar um norræna menningarsjóðinn er að finna á vefsíðu www.nordiskkulturfond.dk.

26.2. Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO)
    Árið 2002 var tólfta starfsár Norræna umhverfisfjármögnunarfélagsins (NEFCO). Megintilgangur félagsins skv. stofnsamningi er að stuðla að umhverfisbótum svo sem bættum mengunarvörnum í löndum Mið- og Austur- Evrópu. Núverandi stofnfé félagsins er 93 millj. ekna. NEFCO tekur þátt í verkefnum með því að leggja fram fjármagn í formi hlutafjár eða lána til fyrirtækja. Þátttaka NEFCO er ákveðin á grundvelli mats á umhverfisáhrifum verkefna og efnahagslegra forsendna þeirra. Almenn skilyrði fyrir þátttöku NEFCO í umhverfisverkefnum er að fyrirtæki eða einstaklingar í því landi þar sem verkefnið er unnið og frá einu norrænu landanna eigi aðild að verkefninu og leggi til þess fjármagn. Hlutdeild NEFCO nemur að jafnaði ekki meira en 25% af heildarhlutafé eða stofnkostnaði. Í lok ársins var NEFCO þátttakandi í 65 verkefnum sem voru í gangi, með fjármögnun í formi hlutafjár og lána að upphæð 84 millj. ekna, en áætluð heildarfjárfesting í þessum verkefnum er um 840 millj. ekna.
    Verkefnin skiptast þannig eftir löndum: Pólland 12, Slóvakía 2, Eistland 11, Lettland 19, Litháen 7, Tékkland 2 og Rússland 11. Aðild norrænna fyrirtækja skiptist þannig eftir löndum: Ísland 2, Danmörk 15, Finnland 12, Noregur 16 og Svíþjóð 19. Verkefnin með íslenskri aðild eru á sviði jarðhitanýtingar í Slóvakíu. Annars vegar er um að ræða ráðgjafarfyrirtæki á því sviði, Slovgeoterm, þar sem íslenska fyrirtækið Virkir-Orkint er eignaraðili, hins vegar orkuveitu á sviði jarðhita, Galantaterm, þar sem Orkuveita Reykjavíkur er meðeigandi auk Slovgeoterm.

Norræni umhverfisþróunarsjóðurinn (NMF).
    Með hliðsjón af því, að allmörg viðfangsefni sem við blasa, einkum austast í Austur-Evrópu, verða ekki leyst við óbreyttar aðstæður með markaðslausnum, var ákveðið að stofna styrktarsjóð við NEFCO árið 1995 og starfrækja hann næstu þrjú árin til reynslu. Árið 1998 var ákveðið að halda starfsemi sjóðsins áfram næstu fimm árin með hliðsjón af þeirri reynslu sem fengist hafði af starfsemi sjóðsins. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um áframhaldandi greiðslur í sjóðinn fyrir árið 2004, en það mun skýrast á næstunni. Á starfsárinu námu framlög til sjóðsins 38 millj. d.kr., 26 millj. d.kr. frá norrænu löndunum og 12 millj. d.kr af norrænum fjárlögum. Tilgangur sjóðsins er að styrkja verkefni til umhverfisbóta á sömu landsvæðum og hefðbundin starfsemi NEFCO, en fyrst og fremst verkefni sem ekki hafa sömu fjárhagslegar forsendur og NEFCO gerir kröfu til. Þátttaka sjóðsins í verkefnum er annars vegar í formi styrkja en hins vegar í formi lána á hagstæðum kjörum. Stjórn NEFCO, sem er einnig stjórn Norræna umhverfisþróunarsjóðsins, hafði í árslok samþykkt að taka þátt í 52 verkefnum, sem skiptast þannig eftir löndum: Eistland 8, Lettland 9, Litháen 2, Pólland 0 og Rússland 33.

26.3. Norræni fjárfestingarbankinn (NIB)
    Afkoma Norræna fjárfestingarbankans var góð fyrstu átta mánuði ársins þrátt fyrir lægð í evrópskri hagþróun. Hagnaður bankans á tímabilinu jókst um 3,6% í 8,92 mia. ISK (100 mio. EUR) samanborið við 8,65 mia. ISK (97 mio. EUR) fyrir sama tímabil 2002. Efnahagsreikningur bankans nam 1.543 mia. ISK (17,3 mia. EUR) í samanburði við 1.418 mia. ISK (15,9 mia. EUR) í árslok 2002. Lausafé bankans í lok ágúst sl. var 339 mia. ISK (3.802 mio. EUR) á móti 262 mia. ISK (2.947 mio. EUR) áramótin 2002/2003.
    Í júní 2003 fengu eigendur bankans, norrænu löndin fimm, greiddan arð af hagnaði ársins 2002 að fjárhæð 40,3 milljónir EUR.
    Ný útlán á tímabilinu janúar-ágúst 2003 voru 910 milljónir EUR (937). Heildarútlán bankans 31. ágúst námu 10.323 milljónum EUR samanborið við 10.110 milljónum EUR um áramót 2002/2003.
     Skuldabréfaútgáfa bankans á fyrstu átta mánuðum ársins 2003 nam 2.759 milljónum EUR samanborið við 1.679 milljónir EUR á sama tímabili árið 2002. Í apríl 2003 gaf bankinn út flokk alþjóðlegra skuldabréfa (global bonds) til fimm ára og var heildarfjárhæð 1 milljarður bandaríkjadala. Fjárfestar brugðust vel við og seldust skuldabréfin víða um heim.
    Útlána- og eignasafn bankans er áfram í hæsta gæðaflokki.
    Allar horfur eru á að afkoma bankans á árinu 2003 í heild verði jafngóð og á fyrstu átta mánuðum ársins.

Aðild Eystrasaltsríkjanna að NIB.
    Eigendur bankans hafa ákveðið að bjóða Eistlandi, Lettlandi og Litháen aðild að NIB. Á fundi forsætisráðherra Norðurlanda í Ósló í október sl., sem forsætisráðherrar Eystrasaltsríkjanna sátu einnig, komu ráðherrarnir sér saman um almenn skilyrði fyrir þessari fjölgun aðildarlanda í NIB. Þeir fólu síðan fjármálaráðherrum landanna átta að gera formlegan milliríkjasamning sem felur í sér að Eystrasaltsríkin verða aðilar að NIB með sömu skyldum og réttindum og gilda um Norðurlönd í samræmi við núgildandi samning um starfsemi bankans.
    Fjármálaráðherrar Norðurlanda skipuðu nefnd til þess að vinna að samningsgerðinni. Forsenda samningaviðræðna var að fjárhagsgrundvöllur bankans skyldi varðveittur. Þessi forsenda er mikilvæg til þess að tryggja að NIB haldi framvegis sem hingað til framúrskarandi lánshæfi, AAA/Aaa, enda er það kjarninn í viðskiptastefnu bankans. Fjármálaráðherranir settu sem markmið að nýr samningur um NIB skyldi vera tilbúinn til undirritunar í ársbyrjun 2004. Þessu marki var náð. Að því er stefnt að þjóðþing landanna átta staðfesti samninginn á árinu 2004 svo hann geti gengið í gildi í ársbyrjun 2005.
    Eystrasaltsríkin eru í fararbroddi Mið- og Austur-Evrópuríkja sem á síðasta áratug hafa umbreytt hagkerfum sínum frá miðstýringu til markaðsbúskapar með virkri þátttöku í opnu viðskiptakerfi Vesturlanda.
    Hagvöxtur Eystrasaltsríkjanna hefur síðustu árin verið hinn mesti í Evrópu. Í þessum löndum er mikil þörf fyrir fjárfestingar en skortur á fjármagni. Ríkin þrjú fá aðild að ESB og NATO vorið 2005.
    Til þess að stuðla að áframhaldandi jákvæðri hagþróun í Eystrasaltsríkjunum þarf að fjármagna innviðaframkvæmdir og fjárfestingar fyrirtækja yfir landamæri milli ríkjanna átta innan NIB. Í þessum efnum getur NIB gengt mikilvægu hlutverki.
    Miklir möguleikar eru á því að Eystrasaltssvæðið í heild verði þróttmikið hagvaxtarsvæði á komandi árum. Aðild Eystrasaltsríkjanna að NIB mun efla hagvöxt á Eystrasaltssvæðinu öllu sem er mikilvægt markmið fyrir Norðurlönd og nýju aðildarríkin í NIB.
    Aðild Eystrasaltsríkjanna að NIB er ekki aðeins sögulegur áfangi fyrir bankann. Hún felur jafnframt í sér að samstarf Norðurlanda við þessi nágrannalönd er hafið á nýtt stig.

Innviðir og iðnaður á Norðurlöndum.
    Útlánum NIB á Norðurlöndum er mest varið til að fjármagna innviðaframkvæmdir og til fjárfestingar í iðnaði. Flest lán fyrstu átta mánuði ársins voru veitt til framleiðslu- og matvælaiðnaðar m.a. til umhverfisverkefna og kaupa á fyrirtækjum í öðrum löndum. Fjórðungur nýrra lána á Norðurlöndum var til orkugeirans. NIB fjármagnaði meðal annars orkufyrirtækjakaup í Svíþjóð, fjárfestingu í lífrænu orkuveri í Finnlandi, vindorkuveri í Danmörku, vatnsaflsvirkjun í Noregi og í dreifineti raforku í Danmörku og á Íslandi. Hlutfall umhverfislána jókst og nam um fjórðungi lána á fyrstu átta mánuðum ársins.

Orkugeirinn áberandi í alþjóðalánum.
    Lán NIB til verkefna utan Norðurlanda á tímabilinu janúar til ágúst 2003 voru einkum til innviðaframkvæmda, fyrst og fremst til orkugeirans og til samgangna og fjarskipta. Aukning varð á útlánum til umhverfisverkefna sem og til heilbrigðiskerfisins. Bankinn á útistandandi lán í 32 löndum utan Norðurlanda. Fjármögnun með milligöngu endurlánastofnana í lántökulöndum verður stöðugt mikilvægari í alþjóðlegum útlánum bankans.
    Bankinn jók verulega útlán til Eystrasaltsríkjanna og Póllands, einkum til raforkugeirans. Lánin stuðla að öruggari, hreinni og hagkvæmari orkubúskap í þessum löndum. Á árinu var meðal annars gengið frá stóru láni til lettneska ríkisorkufyrirtækisins.

Umhverfislán.
    Snar þáttur í útlánum bankans er að fjármagna ýmis umhverfisverkefni. Á fyrstu átta mánuðum ársins samþykkti bankinn átta ný umhverfislán sem námu 135 milljónum EUR. Af útborguðum lánum voru rúmlega 18% umhverfislán. Á þessu tímabili hefur hlutfall umhverfislána, sérstaklega á grannsvæðum Norðurlanda, haldið áfram að aukast.
    Í janúar sl. tók gildi nýr útlánarammi bankans fyrir umhverfislán til grannsvæða Norðurlanda í austri (MIL). Ramminn var aukinn úr 100 milljónum EUR í 300 milljónir EUR. Þar með hafa möguleikar til að fjármagna slík verkefna á þessum svæðum aukist til muna.
    Bankinn gegnir mikilvægu hlutverki innan „Northern Dimension Environmental Patnership“ (NDEP), sem sér um að samhæfa og efla fjármögnun umhverfisverkefna í Norðvestur-Rússlandi. NDEP hefur sett fram fjárfestingaráætlun fyrir 12 stór umhverfisverkefni sem verður unnið að á þessum vettvangi. NIB sér um undirbúning og samhæfingu á sjö af þessum tólf verkefnum, sem flest eru á sviði veitustofnana sveitarfélaga. Auk þeirra hefur NDEP haft frumkvæði að verkefnaáætlun sem miðar að því að hreinsa og geyma með öryggum hætti kjarnorkuúrgang á Kólaskaga. Í byrjun verður 500 milljónum EUR varið til þessa verks sem þó er aðeins upphaf á stærra verkefni sem miðar að því að draga úr þeirri umhverfisvá sem stafar af geislavirkum úrgangi á svæðum við Barentshaf.

Fráveitur í Norðvestur-Rússlandi.
    Í mars sl. undirritaði bankinn lánasamning við rússneskt fyrirtæki, í eigu rússneskra og norrænna aðila, sem stendur fyrir endurbótum og uppbyggingu á fráveitukerfi Pétursborgar. Framkvæmdir eru þegar hafnar. Gert er ráð fyrir að þeim ljúki innan þriggja ára. Nú þegar hefur hluti lánsins verið greiddur út. NIB hefur frá árinu 2000 haft forystu um undirbúning og fjármögnun þessa verkefnis í samstarfi við aðra banka og fjármögnunaraðila, svo sem ESB, EBRD, umhverfisyfirvöld í Finnlandi og Svíþjóð auk borgaryfirvalda í Pétursborg. Þessar fráveituframkvæmdir, en kostnaður við þær er nálægt 200 milljónum EUR, eru mikilvægasta umhverfisverkefnið við Eystrasalt um þessar mundir og munu bæta verulega lífríki sjávar á komandi árum.
    Til þess að fjármagna smærri umhverfisverkefni í Norðvestur-Rússlandi hefur bankinn samið um lánaramma við rússneskan banka til endurlána. Markmiðið er fyrst og fremst að fjármagna veituframkvæmdir til umhverfisbóta í nokkrum smærri sveitarfélögum í Leningradhéraði norðan við Pétursborg.

Starfsemi NIB á Íslandi.
    Útistandandi lán til íslenskra lántaka námu ríflega 537 milljónum EUR í árslok 2003. Þetta samsvarar nærri 7% af heildarlánveitingum bankans til lántaka á Norðurlöndum.
    Útborguð ný lán á árinu námu 89 milljónum EUR en 80 milljónum EUR árið 2002. Á árinu voru samþykkt lán til 7 nýrra verkefna. Verkefnin voru fjölbreytt. Um 10 milljónir EUR voru lánaðar til að byggja upp dreifikerfi hjá RARIK og til Norðurorku hf. vegna uppbyggingar á hitaveitu í Eyjafirði og á Akureyri. Veitt var lán til Orkuveitu Reykjavíkur sem nam 24 milljónum EUR vegna lokaáfanga Nesjavallavirkjunar en bankinn hefur frá upphafi verið mikilvægur við fjármögnun þessarar virkjunar. Bankinn tók þátt í fjármögnun Smáralindar hf. og voru á árinu samþykkt lán í þessu skyni upp á 5 milljónir EUR.
    Í starfsemi NIB á Íslandi hefur jafnan verið lögð áhersla á náið samstarf við íslenska banka í útlánum til einstakra verkefna, sér í lagi til einkafyrirtækja. Á árinu var þetta samstarf eflt enn frekar með undirritun og útborgun á sérstökum lánarömmum til Landsbanka Íslands hf. að fjárhæð 30 milljónir EUR og KB Banka að fjárhæð 25 milljónir EUR. Tilgangurinn með þessum lánarömmum er að beina útlánum NIB til smárra og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi. Skilyrði lánveitinga er að verkefni feli í sér norræna hagsmuni. Með þessu móti getur fjármögnun bankans nýst fleiri fyrirtækjum og verkefnin þar með orðið fjölbreyttari. Samstarf af þessu tagi er viðbót við samvinnu NIB við íslenska banka í stærri verkefnum þar sem NIB leggur fram lánsfé til langs tíma innan fjármögnunarramma sem íslensku bankarnir standa að. Slíkt samstarf gerir íslensku bönkunum mögulegt að sjá um slíka fjármögnun. NIB starfar á þennan hátt með öllum helstu bönkum á Íslandi.
    Þá var á árinu samþykkt lán til FARICE hf. upp á 15 milljónir EUR vegna lagningar á nýjum sæstreng milli Íslands og Evrópu og verkefna sem honum tengjast. Sæstrengurinn er afar mikilvægur fyrir samskipti Íslands við umheiminn, vegna öryggis í gagnaflutningum og rekstraröryggis fyrirtækja á sviði upplýsingatækni. FARICE-verkefnið byggir á samvinnu íslenska ríkisins, símafyrirtækja á Íslandi og færeyska símafélagsins.

Lykiltölur NIB janúar-ágúst 2003
(í milljónum evra)
Til samanburðar
jan.–ágúst 2002
Allt árið 2002
1-8/2003 1-8/2002 1-12/2002
Hreinar vaxtatekjur 102 100 150
Hagnaður 100 97 142
Útborguð lán 910 937 1.648
Samningsbundin lán 1.029 1.020 1.807
Tekin lán (ný) 2.759 1.679 3.320
Hagnaður / eigið fé (%) 9,5 9,9
9,5
31/8 2003 31/8 2002 31/12 2002
Útistandandi lán 10.323 9.929 10.110
Niðurstaða efnahagsreiknings 17.303 14.892 15.948
Handbært fé 3.802 2.287 2.947
Fjöldi starfsmanna 147 141 144
10/10 2003: 1.00 EUR = 89,2 ISK

26.4. Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (Nopef)
    Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (Nopef) hefur það að markmiði að efla alþjóðlega samkeppnishæfni norrænna fyrirtækja og stuðla að þátttöku þeirra í verkefnum á alþjóðavettvangi. Sjóðurinn sinnir hlutverki sínu með því að styðja útflutning fyrirtækja á skilgreindum verkefnum og með því að styðja fyrirtæki sem vilja koma á fót starfsemi erlendis. Þau verkefni sem sjóðurinn kemur að verða að liggja utan EFTA- og ESB-landanna.
    Stuðningur sjóðsins felst m.a. í að kosta að hluta for- og hagkvæmniathuganir, gerð viðskiptaáætlana, lögfræðiaðstoð, samningagerð m.m. Lán til alþjóðavæðingar geta numið allt að 40% af viðurkenndum kostnaði og er hægt að fara fram á að láninu verði breytt í styrk liggi fyrir skýrsla um árangur verkefnisins og samþykkt kostnaðaruppgjör. Í þeim tilfellum þar sem alþjóðavæðingunni er hrundið í framkvæmd er hægt að sækja um viðbótarstyrk upp á 20% af undirbúningskostnaðinum. Lán vegna verkefnaútflutnings eru 50% af samþykktum kostnaði og greiðast til baka verði af sölu verkefnisins og lánin eru vaxtalaus. Misheppnist verkefnið er hægt að sækja um að lánið falli niður og breytist það þá í styrk.
    Sjóðurinn leggur áherslu á samstarfsverkefni norrænna og baltneskra fyrirtækja sem stuðla að alþjóðavæðingu í Eystrasaltsríkjunum: Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Svipuð tilhögun gildir um samstarf á grannsvæðum í Norðvestur-Rússlandi.
    Núverandi samningur Nopef og Norrænu ráðherranefndarinnar rennur út í árslok 2004. Á síðari hluta ársins 2003 gerði utanaðkomandi ráðgjafi úttekt á starfsemi sjóðsins. Það var fyrsta skrefið í að meta starfsemina og skilvirkni sjóðsins. Ennfremur á úttektin að vera grunnur að mati á framtíð Nopef og nýjum samningi sjóðsins og ráðherranefndarinnar frá og með 2005. Þáttur í endurskoðun sjóðsins er að á miðju ári 2004 munu helstu áherslulönd Nopef í dag fá fulla aðild að ESB.
    Helstu forsendur fyrir stuðningi Nopefs eru:
–     að verkefnið sé vel skilgreint og byggt á viðskiptalegum grunni,
–     að verkefnið tengist löndum utan ESB og EFTA,
–     að norrænir hagsmunir liggi að baki verkefninu,
–     að raunhæf fjárhagsáætlun vegna verkefnisins liggi fyrir.
    Stjórn sjóðsins er skipuð fimm fulltrúum, einum frá hverju norrænu landanna. Nopef, sem sett var á stofn árið 1982, er systurstofnun Norræna fjárfestingarbankans (NIB), Norræna þróunarsjóðsins (NDF) og Norræna umhverfisfjármögnunarfélagins (NEFCO). Þessar stofnanir eru allar með aðsetur í Helsinki í Finnlandi. Upplýsingar um starfsemi sjóðsins er að finna á vefsíðu hans, www.nopef.com.
    Stjórnin hélt fimm fundi á árinu. Á milli stjórnarfunda voru tólf verkefnafundir. Þar taka starfsmenn, framkvæmdastjóri og formaður stjórnar fyrir þær umsóknir sem borist hafa og afgreiða þær í samræmi við þær heimildir sem sjóðsstjórnin hefur samþykkt. Niðurstaðan er síðan formlega staðfest af stjórn Nopef á næsta stjórnarfundi á eftir. Þessi vinnuregla á að bæta þjónustu sjóðsins við viðskiptavinina og stytta tímann frá því að umsókn berst þar til svar liggur fyrir.

Verkefni.
    Nopef bárust 257 umsóknir á árinu en á árinu 2002 voru þær 277. Samþykktar umsóknir voru samtals 181 (165 árið 2002). Ein íslensk umsókn var samþykkt á árinu en fjórar árið 2002. Verkefnin sem samþykkt voru hjá Nopef í ár fara fram í Rússlandi (50), Litháen (31), Eistlandi (21), Lettlandi (14), Kína (12), Póllandi (15), Úkraníu (9), Baltikum (5), og 24 verkefni voru í öðrum löndum.
    Hlutfallsleg skipting verkefna milli aðilarlanda hefur verið sem hér segir:

Árið 2003 1998 – 2003
Danmörk 26,0% 30,5%
Finnland 19,0% 20,5%
Ísland 1,0% 1,5%
Noregur 25,0% 20,5%
Svíþjóð 29,0% 27,0%

    Ekki var á árinu gert átak, af hálfu starfsmanna sjóðsins, í því að koma Nopef á framfæri við íslensk fyrirtæki. Fyrir liggur, þegar framtíð Nopef hefur verið ákveðin, að koma upplýsingum um sjóðinn á framfæri við fyrirtæki á Íslandi og eru áform um að það verði gert á vormánuðum 2004.

26.5. Norræni iðnaðarsjóðurinn (NI)
    Norræni iðnaðarsjóðurinn (Nordisk industrifond – senter for innovation og næringsutvikling) hefur tekið allmiklum breytingum hin síðari ár. Ráðstöfunarfé hans hefur farið minnkandi og dregið hefur úr vægi hans sem hefðbundins iðnaðarsjóðs. Hann hefur á móti fengið mun meira hlutverk við að koma hinum atvinnupólitísku áherslum ráðherranna í framkvæmd, t.d. með beinni þátttöku í verkefnum og með því að veita nefndum á vegum ráðherranna faglega þjónustu. Norræni iðnaðarsjóðurinn gegnir mikilvægu hlutverki við að hrinda í framkvæmd samstarfsáætlun norrænu iðnaðarráðherranna „Nordisk Näringspolitiskt samarbetsprogram 2002–2005“.
    Fjárveitingar til einstakra rannsókna- og nýsköpunarverkefna hafa minnkað en aukin áhersla verið lögð á að styrkja rannsókna- og nýsköpunarsamstarf þjóðanna, samstarf lítilla og meðalstórra fyrirtækja og rannsóknarstofnana. Sjóðurinn tekur þátt í fjármögnun verkefna sem eru til þess fallin að efla mannauð þjóðanna og sem stuðla að uppbyggingu nýrra fyrirtækja sem tengjast þekkingariðnaði. Sérstök áhersla er lögð á að miðla þekkingu og að niðurstöður allra verkefna sem sjóðurinn kemur að fái sem víðtækasta útbreiðslu meðal þeirra sem hag hafa af.
    Norræni iðnaðarsjóðurinn leggur mikla áherslu á hvers konar stuðning við lítil og meðalstór fyrirtæki og hefur verkefnastjórn til að sinna þeim (SMBforum). Hlutverk hennar er að vera vettvangur samstarfsverkefna lítilla og vaxandi fyrirtækja er starfa á framsæknum tæknisviðum. SMB-forum hefur reynst mjög hentugur vettvangur fyrir íslensk fyrirtæki, enda eru þau almennt minni en fyrirtæki annars staðar á Norðurlöndum. Lögð er áhersla á að styrkja frumkvöðla, miðla tækniþekkingu til lítilla fyrirtækja sem ekki hafa getu til að stunda eigin rannsóknir og hvetja til nýsköpunarverkefna í starfandi fyrirtækjum.
    Norræni iðnaðarsjóðurinn hefur staðið fyrir mati á einstökum þáttum í nýsköpunarumhverfinu á Norðurlöndum og bent á úrbætur.
    Eftirfarandi eru dæmi um verkefni á árinu:
    Verkefnið „Good practices in Nordic Innovation Policy“ er úttekt sem gerð var á þeim aðferðum sem beitt er í löndunum til að auka nýsköpun í litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Þar koma fram gagnlegar ábendingar fyrir þá sem vinna að stefnumótun á þessu sviði.
    Annað sams konar dæmi er verkefnið „Towards an entrepreneurship policy – a Nordic perspective“, þar sem m.a. er bent á aðferðir sem dugað hafa hvað best til að virkja frumkvöðlakraft einstaklinga.
    Í öllum norrænu löndunum hefur tónlistariðnaðurinn skapað sér veglegan sess og umtalsverðar útflutningstekjur. Verkefnið „Behind the music – Profiting from sound: A systems approach of the Nordic music industry“ skýrir samspil þeirra fjöldamörgu sem að tónlistariðnaðinum standa, greinir samkeppnisstöðu iðnaðarins og bendir á hvernig kljást megi við veikleika og efla styrkleika hans.
    Mikilvægast fyrir Ísland er sennilega umfangsmikið verkefni um öryggi matvæla. Komið hefur verið á fót samstarfi sérfræðinga í öllum norrænu löndunum sem unnið hafa að matvælarannsóknum á vegum sjóðsins og er tilgangurinn að skilgreina 4–8 lykilverkefni sem sjóðurinn mun styðja við. Jafnframt þessu verður unnið að því að færa þetta norræna samstarf út og bjóða öðrum EES-þjóðum aðgang að því í gegnum ERA-Nett verkefnið „Proforsafe“.
    Framangreind verkefni eru dæmi um breytta stefnu sem Norræni iðnaðarsjóðurinn hefur tekið upp. Í stað þess að bíða eftir umsóknum um stuðning hefur sjóðurinn haft frumkvæði að því að skilgreina framsækin verkefni sem hafa ótvírætt mikla þýðingu fyrir þróun atvinnulífsins. Samstarfið um framkvæmd verkefnanna hefur síðan verið bundið í tengslanet sérfræðinga frá sem flestum landanna og niðurstöðurnar birtar og gerðar aðgengilegar öllum.
    Norræni iðnaðarsjóðurinn hefur náið samstarf við ráðherranefndina (Nordisk Ministerråd – MR-Næring) og annast framkvæmd verkefna fyrir hönd hennar og er í samstarfi við embættismannanefndina (EK-Næring). Norræni iðnaðarsjóðurinn stóð að tveimur ráðstefnum með embættismannanefndinni á árinu. Í maí sl. var efnt til ráðstefnu í Karlstad um „Entreprenørskap og regelforenkling for øgt nordisk konkurransekraft“.
    Á grundvelli niðurstaðna ráðstefnunnar var m.a. ákveðið að Norðurlönd ynnu sameiginlega að því að innleiða löggjöf um Evrópuhlutafélög og evrópskar tilskipanir um lögmælifræði. Þá var ráðstefna í Malmö í nóvember sl. um framtíðarþróun norrænnar nýsköpunarstefnu (Nordic Innovation Policies for the Future). Tilgangur beggja þessara ráðstefna var að kalla fram hugmyndir er lúta að pólitískum áherslum ráðherranna, annars vegar um norrænan innri markað og afnám hindrana á landamærum og hins vegar um hugmyndir að nánara samstarfi og stefnumótun á sviði vísinda og nýsköpunar.
    Norræni iðnaðarsjóðurinn og Norræna prófunarstofan (Nordtest) hafa verið starfrækt í 30 ár og á þeim tíma hafa faglegar áherslur iðnaðarráðherranna að miklu leyti verið á þeirra herðum. Í ljósi alþjóðlegra breytinga í atvinnulífi og viðskiptum og vegna aðildar og aukins samstarfs við ESB, t.d. á sviði vísinda og nýsköpunar, er eðlilegt að samstarf norrænu þjóðanna þróist til samræmis. Þessar tvær stofnanir hefa stutt hvor aðra og hin síðari ár hafa mörg verkefni sem unnin hafa verið að tilstuðlan Norræna iðnaðarsjóðsins verið þróuð áfram með stuðningi Nordtest. Fagleg samlegðaráhrif og rekstrarleg hagræðing eru meginforsendur sameiningar stofnananna tveggja. Hin nýja stofnun, Norræna nýsköpunarmiðstöðin (Nordisk Innovationscenter), tekur til starfa við byrjun árs 2004.

26.6. Norræni þróunarsjóðurinn (NDF)
    Norræni þróunarsjóðurinn (NDF) tók formlega til starfa árið 1989 og er í eigu landanna fimm, Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar. NDF hefur aðsetur við hlið Norræna fjárfestingarbankans (NIB) í Helsinki og nýtur að mörgu leyti samrekstrar með honum og öðrum norrænum stofnunum í borginni.
    Markmið NDF er að styrkja efnahagslegar og félagslegar framfarir í fátækustu þróunarríkjunum í samvinnu við aðrar lánastofnanir. Lánakjörin eru með þeim bestu sem þekkjast: lán eru til 40 ára, afborganalaus fyrstu 10 árin, vaxtalaus, en bera 0,75% þjónustugjald á ári fyrir þann hluta láns, sem er útgreiddur, og 0,5% staðfestingargjald fyrir þann hluta láns, sem ekki hefur verið greiddur. Lánin eru jafnan veitt til ríkissjóða viðkomandi landa, en til afmarkaðra verkefna í samstarfi við aðrar alþjóðlegar lánastofnanir. Helstu samstarfsaðilar NDF eru Alþjóðabankinn í Washington, þróunarbankarnir í Ameríku (IADB), Asíu (AsDB) og Afríku (AfDB), auk tvíhliða þróunarstofnana á Norðurlöndum, þar á meðal Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ).
    Stofnfé sjóðsins, sem greiðist samkvæmt norræna deililyklinum, er 515 milljón SDR og 330 milljón EUR, eða alls um 1 milljarður EUR (um 85 milljarðar ísl.kr.). NDF tók upp Evruna (EUR) sem mynteiningu 1. janúar 2001. Á árinu undirritaði NDF 14 lánasamninga að fjárhæð 83 milljónir EUR (um 7,3 milljarðar ísl.kr.). Frá stofnun hefur sjóðurinn þar með veitt lán að fjárhæð 811 milljónir EUR (um 72 milljarðar ísl.kr.) til 170 verkefna í 33 þróunarlöndum. Um 48% lánsfjárins hefur farið til landa í Afríku, 34% til Asíu og 18% til Rómönsku Ameríku.
    Alþjóðastofnanir flokka þróunarlöndin eftir vergri þjóðarframleiðslu á íbúa og er yfirleitt miðað við Bandaríkjadali (USD) á ári. Um 41% lána NDF hafa farið til fátækustu landanna (LLDC, <380 USD/ári), 42% til lágtekjulanda (LIC, <760 USD/ári), og 17% til lægri meðaltekjulanda (LMC, 761–3030 USD/ári). Þjóðarhagur hefur sem betur fer batnað í allmörgum lántökulöndum NDF frá fyrstu árum sjóðsins og hafa þau ekki lengur möguleika á að taka lán hjá sjóðnum. Árið 2001 samþykkti stjórn sjóðsins að takmarka lán næstu árin við um tuttugu samstarfslönd. Áður var miðað við um 30 samstarfslönd. Stjórn sjóðsins ákvað á árinu að hefja undirbúning að starfsemi í þremur nýjum löndum, Kambódíu, Kenýa og Rúanda.
    Stærstu lántakendur sjóðsins eru Mósambík, Senegal, Úganda, Ghana, Malaví, Laos, Nepal, Bólivía og Níkaragúa. NDF tekur fullan þátt í að létta lánabyrðir skuldsettustu lántökulanda sinna í samræmi við ramma og reglur sem alþjóðlegar lánastofnanir setja til aðstoðar fátækustu ríkjum heims. Sjóðurinn hefur þegar tekið á sig slíkar skuldbindingar vegna Bólivíu, Eþíópíu, Ghana, Malaví, Mósambík, Níkaragúa, Senegal, Tansaníu og Úganda. Heildarkostnaður sjóðsins vegna skuldbindinganna er áætlaður 20,5 milljónir EUR (um 1,8 milljarðar króna).
    Norræna ráðherranefndin breytti samþykktum NDF árið 2001 þannig að nú getur sjóðurinn veitt áhættulán til einkafyrirtækja í lántökulöndum án ríkisábyrgðar. Slík lán verða þó aðeins lítill hluti heildarlána sjóðsins á hverju ári. Áhættulánin verða veitt á þrenna vegu: (a) beint til fjárfestingarverkefna; (b) með lánaramma í samstarfi við þróunarbanka; (c) með eignaraðild að áhættulánasjóðum í viðkomandi löndum. Þessi lán munu væntanlega auka möguleika íslenskra útrásarfyrirtækja á samstarfi við fyrirtæki í þróunarlöndunum. NDF starfar með norrænu áhættulánasjóðunum, þeirra á meðal Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, en einnig með áhættulánasjóðum alþjóðlegu þróunarbankanna. NDF hefur jafnframt eignaraðild að áhættulánasjóðum í Afríku (African Infrastructure Fund, Development Bank of South Africa og Aureos Southern Africa Fund), í Asíu (Mekong Enterprise Fund, sem starfar í Víetnam, Laos og Kambódíu), og í Mið-Ameríku (Central American Small Enterprise Investment Fund).
    Frá stofnun sjóðsins hafa sjö lán verið undirrituð þar sem íslensk fyrirtæki eiga beinna hagsmuna að gæta. Þeirra á meðal eru fimm fiskveiðiverkefni (í Malaví, Mósambík, Namibíu, Grænhöfðaeyjum og Úganda). Fiskveiðiverkefnin á Grænhöfðaeyjum, í Malaví og Mósambík voru í samvinnu við ÞSSÍ. Heildarlán til verkefna með beinum íslenskum hagsmunum eru u.þ.b. 17 milljónir SDR (tæpir 2 milljarðar ísl.kr.). Íslensk fyrirtæki hafa gert samninga sem nema um 1,1% af heildarfjárhæð samninga við norræn fyrirtæki sem sjóðurinn hefur fjármagnað frá stofnun. Hlutdeild Íslands í fjármögnun sjóðsins er 1,1%. Auk þess hefur sjóðurinn í nokkrum tilvikum keypt íslenska sérfræðiþjónustu til að undirbúa verkefni og eftirlit.
    Í ársbyrjun 2004 hefst úttekt á starfsemi sjóðsins að frumkvæði Norrænu ráðherranefndarinnar og verða niðurstöðurnar hafðar til hliðsjónar þegar ákveðið verður hvort stofnfé verði aukið á árinu 2005. Slík úttekt er gerð á fimm ára fresti.
    Í stjórn NDF sitja fulltrúar landanna fimm. Fulltrúi Íslands var stjórnarformaður frá 1. maí 2002 til 30. apríl 2003. Starfsmenn sjóðsins eru 16, þar á meðal einn Íslendingur.

26.7. Lánasjóður Vestur-Norðurlanda

Útlán.

    Lánasjóður Vestur-Norðurlanda hefur á árinu greitt út tólf lán, fjögur til Færeyja og átta til Grænlands.

Rekstur.
    Samkvæmt ársreikningum var eigið fé sjóðsins um áramót 2002/2003 119,7 MDKK og á sama tíma námu útlán samtals 78,5 MDKK.
    Breytingar á samþykktum er tóku gildi um áramótin 1997/98 kveða á um að Lánasjóður Vestur-Norðurlanda skuli styrkja Norrænu Atlantsnefndina (NORA) um allt að 1,5 MDKK á ári.

Stjórn.
    Stjórn Lánasjóðs Vestur-Norðurlanda skipa sjö menn, einn frá hverju aðildarlandi, og hefur hver þeirra einn varamann. Stjórnarmaður og varamaður hvers aðildarlands eru skipaðir af ríkisstjórn þess.
    Nánari upplýsingar má finna á slóð: www.vestnorden.is.

II. MEGINÞÆTTIR NORRÆNU FJÁRLAGANNA 2004


SAMÞYKKT NSK/MR-SAM 62/2003

    Með fyrirvara um samþykki þjóðþinganna samþykkir Norræna ráðherranefndin hjálögð fjárlög fyrir árið 2004. Fjárhagsramminn nemur samtals 811,263 millj. d.kr. á verðlagi ársins 2003.
    Starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar er fyrst og fremst fjármögnuð með beinum framlögum frá löndunum, og er skipting þeirra ákveðin samkvæmt sérstakri skiptireglu sem ráðherranefndin ákveður á hverju ári. Skiptireglan byggist á hlutdeild hlutaðeigandi lands í vergum þjóðartekjum norrænu landanna. Aðrar tekjur ráðherranefndarinnar nema u.þ.b. 1% fjárhagsrammans.
    Skiptireglan fyrir framlög landanna árið 2004 er sem hér segir:
         Danmörk     22,8 %
         Finnland     17,6 %
         Ísland         1,1 %
         Noregur     25,2 %
         Svíþjóð     33,3 %
    Norræni samningurinn um aðgang að æðri menntun hefur áhrif á framlög landanna til starfsemi ráðherranefndarinnar á þann hátt að greiðslur vegna samningsins eru reiknaðar inn í fjárlögin. Þegar talað er um greiðslur vegna samningsins er átt við Danmörku, Finnland, Noreg og Svíþjóð. Ísland, Grænland, Færeyjar og Álandseyjar taka ekki þátt í greiðslum vegna samningsins. Við lokaútreikning á framlögum viðkomandi lands er tekið tillit til þessara greiðslna.
    Við ákvörðun fjárhagsramma ráðherranefndarinnar er tekið mið af útreikningi danska seðlabankans á meðalgengi fyrir tímabilið 01.01.–31.08.2003:
         100 evrur     =     743 d.kr.
         100 ísl.kr.     =     9 d.kr.
         100 n.kr.     =     94 d.kr.
         100 s.kr.     =     81 d.kr.
    Útreikningur framlaga til stofnana og verkefna er samkvæmt eftirfarandi stuðlum:
    1. Reikningsstuðlar vegna framlaga til stofnana fyrir árið 2004 eru sem hér segir:
        Danmörk     1,9 %
         Finnland     0,5 %
         Ísland         2,5 %
         Noregur     1,2 %
         Svíþjóð     1,3 %

    2. Reikningsstuðull vegna verkefna er 1,4 % fyrir árið 2004.
    Framlög landanna vegna fjárlaga fyrir árið 2004 eru í samræmi við þær reglur sem tíðkast hafa og eru samkvæmt 7. grein fjármálareglna Norrænu ráðherranefndarinnar (Ökonomireglementet).
    Ráðherranefndin veitir framkvæmdastjóranum umboð til:
–     að ákveða nánar um fjárhagsramma stofnananna varðandi gengisútreikninga,
–     að taka ákvarðanir um breytingar innan heildarrammans, allt að 300.000 d.kr.
    Samkvæmt ákvörðun samstarfsráðherranna hljóðar fjárhagsrammi menningar-, menntamála- og rannsóknasviðs upp á 356.392 þús. d.kr. (verðlag 2003). Innan þessa ramma ákveða fagráðherranefndirnar á þessu sviði skiptingu rammans. Er það samkvæmt 64. grein Helsingforssáttmálans.

Fjárlög fyrir 2004

    Í fjárlögum fyrir árið 2004 er fjárhagsramminn, 817,517 millj. d.kr. að teknu tilliti til verðlagsþróunar og gjaldeyrisbreytinga, óbreyttur frá síðasta ári. Á greiðslugrunni eru fjárlögin 807,517 millj. dkr., sem er 10 millj. d.kr. lægri en fjárhagsramminn. Ráðherranefndin á þannig kröfu á hendur löndunum sem þeirri upphæð nemur.
    Í þeim áherslum sem koma fram í fjárlögunum er tekið mið af tilmælum Norðurlandaráðs, áherslum í „Nýrri norrænni dagskrá“, ásamt þeirri forgangsröðun sem formennskuáætlanir landanna hafa í för með sér.
    Fjárlagaliðurinn ráðstöfunarfé ráðherranefndarinnar (strategiske initiativer) er áfram á fjárlögum fyrir 2004 og nemur 13.187 þús. d.kr. Ráðstöfunarfé ráðherranefndarinnar er einkum hugsað til einstakra aðgerða fremur en langtímaverkefna. Ef veitt er fé af þessum lið til langtímaverkefna skal í upphafi fjallað um hvernig staðið skuli að framtíðarfjármögnun.
    Við gerð fjárlaga fyrir árið 2003 var í fyrsta sinn farið að ákvörðun samstarfsráðherranna um nýtt fjárlagaferli sem tekin var á árinu 2002. Nýja fjárlagaferlið felur í sér skýrari fyrirmæli um fjárlagagerð, hverju fagsviði eru settir fjárhagsrammar, gert er ráð fyrir aukinni þátttöku af hendi fagsviðanna, sem og nánara samráði við Norðurlandaráð um fjárlagagerðina. Miðað við fyrri fjárlagagerð er að nokkru leyti um að ræða breytingar í uppsetningu og útliti skjalsins. Fjárlög fyrir 2004 eru unnin samkvæmt ákvörðun um nýja tilhögun við fjárlagaferli.
    Í fjárlögunum eru sérstök yfirlit yfir fagsviðin, samstarf við frjáls félagasamtök, starf að málefnum barna og unglinga, starf ráðherranefndarinnar að málefnum grannsvæðanna í heild sinni og yfir fjárveitingar til upplýsingamiðlunar um norrænt samstarf. Þetta er gert vegna þeirrar athygli sem beinst hefur að þessum sviðum sökum þverfaglegs eðlis þeirra. Rannsóknaráætlanir binda þó nokkuð fjármagn í fjárlögunum og því er einnig yfirlit yfir áætlaða þróun þeirra.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Óráðstafaðir fjármunir eru skilgreindir sem fjármunir sem ekki hefur verið ákveðið að verja á tiltekinn hátt. Óráðstafaðir fjármunir koma einungis fram á fjárlagaliðum sem varða verkefni og styrki. Verkefni og styrkir eru samtals um það bil 55% af fjárlögum ráðherranefndarinnar. Á árunum 2001–2002 hafa óráðstafaðir fjármunir ráðherranefndarinnar lækkað um 7,5 millj. d.kr. eða um það bil 38%.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Skipting fjárlaganna á ýmsa þætti fjárlagaliðanna 2004 og 2003
    Flokkun fjárlagaliðanna í verkefni, styrki, stofnanir og félagasamtök, byggir á þeirri úttekt sem gerð var á fjárlögunum árið 2000. Vakin er athygli á því að margir fjárlagaliðir fela í sér fleiri flokka fjárveitinga og ræður þungvægasti flokkurinn því undir hvaða flokk fjárveitinga fjárlagaliðurinn fellur.
    Stofnanirnar eru skilgreindar út frá skipulagi þeirra en ekki faglegu inntaki. Því flokkast Norræna stofnunin um vísindamenntun (NorFA), Norræni iðnaðarsjóðurinn og Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (NOPEF) með stofnunum. Fjárveitingar til skrifstofu ráðherranefndarinnar og upplýsingaskrifstofanna í Pétursborg og Eystrasaltsríkjunum eru einnig skilgreindar sem stofnanarekstur en koma fram sem sérstakur flokkur á eftirfarandi myndum. Á yfirlitinu á næstu blaðsíðu er skrifstofa ráðherranefndarinnar hluti af fjárlagaliðnum Skrifstofan og önnur samnorræn starfsemi, en upplýsingaskrifstofurnar aftur á móti hluti af fjárlagaliðnum Umhverfis- og auðlindamál og grannsvæðin, og flokkast með stofnunum.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Yfirfærsla og samruni fjárlagaliða
    Miðað við fjárlög fyrir árið 2003 hafa einstaka fjárlagaliðir verið lagðir niður og skipt á aðra fjárlagaliði. Þetta á við um fjárlagaliðina 2-2514-2 Nemendaskipti á Vestur-Norðurlöndum og 2-2516-2 Nordplus Mini sem ásamt fyrra verkefni Nordplus Junior (sem einungis átti við um unglingamenntun) verða nú lagðir saman í nýja samstarfsáætlun undir fjárlagaliðnum 2-2512 Nordplus Junior og mun hún taka til grunnskóla og unglingamenntunar í heild sinni. Fjárlagaliðirnir 2-2540-1 Norræn málnefnd og 2-2542-1 NORDKURS verða lagðir saman undir fjárlagaliðnum 2-2543-2 Nordplus Sprog. Jafnframt verður stofnaður nýr fjárlagaliður 2-2544-1 Norræna málráðið. Þessar breytingar eru til komnar vegna endurskipulagningar á styrkjaog samskiptaáætlunum á sviði menntamála.
    Frá og með 1.1.2004 verður fjárlagaliðurinn 1-2548-3 NIFIN fluttur frá fagsviði menntamála og rannsókna til menningarmála.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Tekjuliðir fjárlaganna
    Starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar er fyrst og fremst fjármögnuð með beinum framlögum frá löndunum, og er skipting þeirra ákveðin samkvæmt sérstakri skiptireglu. Skiptireglan byggist á hlutdeild hlutaðeigandi lands í vergum þjóðartekjum miðað við framleiðsluverð tveggja síðustu ára sem upplýsingar liggja fyrir um, þ.e. fyrir árin 2000 og 2001.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Athugasemdir:
Gjöld af tekjum starfsmanna: Byggja á gjaldskyldri launafjárhæð starfsmanna á skrifstofunni.
Vaxtatekjur: Í fjárlögunum er gert ráð fyrir vaxtatekjum að fjárhæð 5,76 millj. d.kr., sem eru áætlaðar á grundvelli þess að væntanlegir meðalvextir fjárfestinga nemi 2,4% árið 2004 og meðallausafjárstaða á því ári nemi 240 millj. d.kr.
Aðrar tekjur: Þessi tekjuliður felur í sér dráttarvexti, gengisbreytingar og væntanlegar endurgreiðslur óráðstafaðra verkefnafjármuna frá ýmsum stjórnsýsluaðilum.

Kröfur gagnvart löndunum
    Vegna þeirrar fjárstreymisskerðingar sem ákveðin var fyrir árin 2001, 2002, og 2003 innheimtir ráðherranefndin upphæð sem er 10 millj. d.kr. lægri en eiginlegt framlag frá löndunum og mun sami háttur hafður á varðandi árið 2004. Því verða til kröfur gagnvart löndunum. Skiptingin milli landanna ræðst af skiptireglunni vegna viðkomandi fjárlagaárs. Þetta felur í sér að löndin koma til með að standa í skuld við Norrænu ráðherranefndina sem ber enga vexti og ekki er tiltekinn endurgreiðslutími. Kröfurnar dreifast á löndin eins og segir í eftirfarandi töflu. Einnig er tiltekið hve miklar heildarkröfur verða við árslok 2004.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Meiri háttar breytingar á tilteknum fjárlagaliðum
    Í fjárlögunum nemur hækkun á tilteknum fjárlagaliðum samtals 38,274 þús. d.kr. Af töflunni hér fyrir neðan má sjá hvernig helstu hækkanir skiptast á tiltekna fjárlagaliði. Þar kemur einnig fram hvar niðurskurður á fjárlagaliðum er mestur. Til samanburðar námu breytingar á fjárlögum fyrir 2003 samtals 20,129 þús. d.kr.
    

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Skipulagsrammi Norrænu ráðherranefndarinnar til lengri tíma

    Skipulagsramminn til lengri tíma sýnir þróun fjárlaganna, miðað við þriggja ára tímabil, að óbreyttum fjárhagsramma frá fjárlögum fyrir 2004 á því tímabili sem fjárlagaspáin nær til. Lögð er áhersla á að hér er um að ræða tæknilegt atriði en ekki pólitískt mat eða forgangsröðun. Það er því ekki tekin afstaða til hvernig það fé sem verður til ráðstöfunar verður nýtt. Þar að auki getur hluti þess fjármagns sem notað er til verkefna færst til, annaðhvort innan eða á milli einstakra fjárlagaliða.
    Forsendur skipulagsramma til lengri tíma eru sem hér segir:
–     Ef annað er ekki ákveðið eða áætlað, er áætluðu umfangi starfseminnar í fjárlögum fyrir 2004 haldið óbreyttu á spátímabilinu, þ.e. árin 2005 og 2006.
–     Fjármögnun starfsemi sem samkvæmt áætlun fellur niður er ekki reiknuð með inn i spátímabilið.
    Líta ber á upplýsingar um spátímabilið sem leiðbeinandi en þær sýna þá þróun sem búast má við miðað við óbreytt fjárlög næstu tvö árin, að teknu tilliti til ákveðinna og fyrirhugaðra breytinga. Hér er því ekki um að ræða fjárlög til fleiri ára þar sem upphæðir á spátímabilinu eru þekktar. Þeir fjármunir sem eru til ráðstöfunar eru líkt og áður einungis árlegar fjárveitingar eins og þær koma fram á samþykktum fjárlögum. Heildarrammi fjárlaganna er ákveðinn á ári hverju og er ekki þekktur fyrir spátímabilið. Í yfirlitinu er gert ráð fyrir að rammar fyrir spátímabilið séu þeir sömu og fyrir fjárlagaárið 2004.
    Yfirlit á næstu töflu er samantekt fjárlagaliða hinna einstöku fagsviða.
    Með hugtakinu „Frávik frá fjárlögum 2004“ er átt við muninn á upphæðum hvers árs á spátímabilinu og þeim upphæðum sem koma fram á samþykktum fjárlögum fyrir árið 2004. Ef frávikið er neikvætt, merkir það ófullnægða fjármögnunarþörf á því ári spátímabilsins. Jákvætt frávik merkir að það er fjármagn til ráðstöfunar miðað við árið 2004.
    Að óbreyttum heildarramma að fjárhæð 817,517 millj. d.kr. á spátímabilinu verða 22,5 millj. d.kr. samtals til ráðstöfunar fyrir árið 2005, og 38,2 millj. d.kr. fyrir árið 2006 hjá ráðherranefndinni, að gefnum ofangreindum forsendum.
    Yfirlitið er samantekt yfir meginsamstarfssviðin fjögur að því gefnu að fjárlagarammi hinna einstöku sviða sé óbreyttur.
    Á fagsviðinu „Menningar-, menntamál og rannsóknir“ verða 22,5 millj. d.kr. til ráðstöfunar fyrir árið 2005 og 32,3 millj. d.kr. fyrir árið 2006. Upphæðirnar endurspegla þær fjárhagslegu afleiðingar sem vænta má vegna skipulagsbreytinga sem hafnar eru á sviði mennta og rannsókna og snerta stofnanirnar, en þær munu losa um fjármagn á spátímabilinu. Að öðru leyti er um að ræða minni háttar breytingar, meðal annars er tilraunaverkefni um Norræn öndvegissetur að ljúka en áætluð lokafjárveiting vegna þess verkefnis er á árinu 2005. Sama á við um rannsóknarverkefnið um kyn og ofbeldi sem og tungutækni en áætlaðar lokafjárveitingar vegna þessara verkefna eru á árinu 2004.
    Á sviðinu „Velferðar- og atvinnumál“ nemur fjármagn til ráðstöfunar á árinu 2006 3,3 millj. d.kr. Þetta er vegna fyrirhugaðrar þróunar á velferðarrannsóknarverkefninu (fjárlagaliður 4-4620-1).
    Þær 2,7 millj. d.kr. sem eru til ráðstöfunar undir liðnum „Skrifstofan og önnur samnorræn starfsemi“ á árinu 2006 eru til komnar vegna þess að lokafjárveitingar til rannsóknarverkefnis um Vestnorrænt hafveðurfar eru áætlaðar á árinu 2005.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





Samstarf við frjáls félagasamtök og aðra aðila sem hvorki
eru opinberar né einkareknar stofnanir

    Eins og í fyrra er í fjárlögum fyrir 2004 lagt fram sérstakt yfirlit yfir fjárveitingar til frjálsra félagasamtaka. Í yfirlitinu er gerður skýr greinarmunur á þremur flokkum og tekið mið af inntaki samstarfsins við samtök sem hvorki eru opinberar né einkareknar stofnanir, og falla frjáls félagasamtök þar undir. Samstarf ráðherranefndarinnar við frjáls félagasamtök markast af að samræmdar kröfur um starfsemina eru ekki forsenda þess að viðkomandi samtök falli undir hugtakið frjáls félagasamtök. Því eru styrkir sem einstaklingar/ óformlegir hópar jafnt sem frjáls félagasamtök geta sótt um, hluti af yfirlitinu. Það sem greinir á milli er hvort styrkþegi sé opinber aðili eða einkaaðili.
    Það eru því þrír eftirgreindir flokkar sem liggja til grundvallar yfirlitinu:
1.     Fjárveitingar til reksturs frjálsra félagasamtaka.
2.     Fjárveitingar til verkefna sem frjáls félagasamtök stjórna fyrir hönd ráðherranefndarinnar.
3.     Styrkir sem frjáls félagasamtök/einstaklingar/óformleg hagsmunasamtök geta sótt um.
    Á yfirlitinu sem hér fer á eftir má sjá hvaða fjárlagaliðir fela í sér fjárveitingar og hversu háar upphæðirnar eru, samkvæmt ofangreindri flokkun. Það skal tekið fram að upphæðirnar á hverjum lið fyrir sig eru byggðar á mati og því ekki bindandi fyrir einstaka fjárlagaliði. Matið endurspeglar væntingar og byggir á reynslu fyrri ára og þeim áætlunum sem liggja fyrir um hin ýmsu fagsvið fyrir árið 2004.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Starfsemi í þágu barna og unglinga

    Eftirfarandi yfirlit sýnir hvaða fjárlagaliðir fela í sér samstarf í þágu barna og unglinga. Það skal tekið fram að upphæðir á hverjum fjárlagalið fyrir sig eru byggðar á mati, og því ekki bindandi fyrir fjárlagaliðina. Matið endurspeglar væntingar og reynslu fyrri ára og áætlanir fagsviðanna fyrir árið 2004.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heildaryfirlit yfir starfsemi ráðherranefndarinnar að málefnum grannsvæðanna

    Starfsemi ráðherranefndarinnar að málefnum grannsvæðanna er fjármögnuð bæði af fjárveitingum fagsviðanna og af grannsvæðaáætluninni. Hlutdeild einstakra fagsviða fyrir árin 2004 og 2003 er byggð á mati á því hve stór hluti fjárhagsramma þeirra rennur til grannsvæðasamstarfsins. Smávægileg lækkun frá 2003 til 2004 kemur fram í heildarframlagi til grannsvæðasamstarfs. Hvað varðar niðurstöður fyrir 2002, byggja þær á skráningu verkefnis þegar fjárveitingin var veitt og á ársskýrslum fyrir starfsárið 2002 frá stofnunum, samstarfsaðilum og styrkjakerfum.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Aðgerðir á sviði vísinda og rannsókna
    Á sviði vísinda og rannsókna einkennist þróun á alþjóðavettvangi af auknum fjárfestingum í rannsóknum, sem ætlað er að tryggja áframhaldandi þróun þekkingarsamfélaga. Því fylgir aukin samkeppni háskóla, rannsóknarstofnana og fyrirtækja sem byggja starfsemi sína á rannsóknum. Þessir aðilar keppa um fjármagn, besta námsfólkið, vísindamenn og annað starfsfólk. Á evrópskum vettvangi er verið að kanna möguleika á að byggja upp evrópskt rannsóknarsvæði (European Research Area) og Norðurlönd standa andspænis sama úrlausnarefni, þ.e.a.s. að þróa möguleika svæðisins á vísindalegri framþróun.
    Til að styrkja stöðu norrænna vísindamanna á alþjóðlegum vettvangi þarf norrænt samstarf um rannsóknir og menntun vísindafólks því að beinast út á við. Uppbygging alþjóðlega viðurkenndra miðstöðva fyrir afburða rannsóknir (Centres of Excellence) með þátttöku vísindamanna úr alþjóðlegu rannsóknarumhverfi gæti styrkt samkeppnisstöðu Norðurlanda til framtíðar. Sem tilraun í þessa átt hefur Norræna samstarfsnefndin á sviði náttúruvísinda (NOS-N), Norræna samstarfsnefndin á sviði læknavísinda (NOS-M) og Norræna samstarfsnefndin á sviði hug- og félagsvísinda (NOS-H/S), í samstarfi við Norrænu ráðherranefndina hafið tilraunaverkefni um norræn öndvegissetur.

Norrænu fjárlögin.
    Á norrænu fjárlögunum nema fjárframlög til vísinda- og þróunarsamstarfs u.þ.b. 200 millj. d.kr. en það er minna en 1% af því heildarfjármagni sem varið er til rannsókna á Norðurlöndum. Áherslur ráðherranefndarinnar á sviði rannsókna stuðla því einkum að því að prófa nýjar hugmyndir og örva sérstaka norræna starfsemi. Hana þarf að samræma svo hún falli að áherslum og forgangsröðun landanna.
    Aðgerðir Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði vísinda- og þróunarsamstarfs skiptast á þrenns konar starfsemi:
–     Samnorrænar rannsóknarstofnanir
–     Sjóði og styrki (Norræna stofnunin um vísindamenntun, NorFA)
–     Tímabundnar rannsóknaráætlanir
    Hlutverk Norræna vísindastefnuráðsins (FPR) er að vera til ráðgjafar og brydda upp á nýjum hugmyndum um rannsóknarsamstarf. Viðmiðunarreglur fyrir starfið koma fram í Norrænu vísindastefnuáætluninni sem samþykkt var árið 1999. Auk þess hefur FPR lagt fram skýrsluna: „Norðurlönd – vettvangur fyrir afburða rannsóknir, 2000“ sem hefur að geyma greiningu á þeim úrlausnarefnum sem vænta má í framtíðinni.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Yfirlit yfir rannsóknaráætlanir sem eru komnar til framkvæmda eða eru áformaðar á tímabilinu 2002–2008 í þús. d.kr. á verði hvers tíma fyrir árin 2002–2003 og á verðlagi 2004 fyrir tímabilið 2005–2008. Við gerð skipulagsramma fyrir tímabilið 2005–2008 er gert ráð fyrir að fjárlagarammi Norrænu ráðherranefndarinnar verði óbreyttur á komandi árum.

Samnorrænar rannsóknarstofnanir.
    Samnorrænar rannsóknarstofnanir eru stofnanir sem búa yfir einstakri sérfræðiþekkingu á sviðum þar sem Norðurlönd telja samstarf vera hagkvæmt. Af 33 stofnunum ráðherranefndarinnar verja 14 þeirra meira en 50% fjárveitinga til rannsókna og nýsköpunar, og sex stofnanir verja á milli 10 og 50% fjárveitinga til rannsókna. Sem dæmi um hreinar rannsóknarstofnanir má nefna Norrænu stofnunina um Asíurannsóknir (NIAS), Norrænu sjóréttarstofnunina (NifS) og Norrænu kjarnfræðistofnunina (NORDITA).

Norræna stofnunin um vísindamenntun (NorFA).
    
Norræna stofnunin um vísindamenntun (NorFA) sér um þróun og skipulagningu samstarfsverkefna og styrkjafyrirkomulags þar sem megináherslan liggur á menntun og hreyfanleika vísindamanna.

Rannsóknaráætlanir.
    Samnorrænum rannsóknaráætlunum er hrint í framkvæmd á forgangssviðum þar sem Norðurlönd búa yfir sérþekkingu og hafa sérstakra hagsmuna að gæta. Samnorrænum rannsóknaráætlunum er meðal annars ætlað að stuðla að því að:
–     Efla myndun tengslaneta og menntun og hreyfanleika vísindamanna.
–     Tryggja skilvirka nýtingu norræns fjármagns.
–     Stuðla að verkaskiptingu og sérhæfingu á Norðurlöndum.
–     Efla norræna þátttöku í evrópsku og alþjóðlegu samstarfi á sviði rannsókna og þróunar.
    Heildarfjárlög vegna þátttöku í fjármögnun rannsóknaráætlana nema u.þ.b. 30 millj. d.kr. árið 2004, samanber yfirlit hér að framan.
    Markmið með áætlun um öndvegissetur (Centres of Excellence) er að efla rannsóknir og menntun vísindamanna á tilteknum sviðum og stuðla þannig að sýnileika norrænna rannsókna á alþjóðlegum vettvangi.

Fjárlagaliðir þar sem sameiginleg upplýsingamiðlun er mikilvægur þáttur
    Verulegur hluti fjárveitinga ráðherranefndarinnar fer til uppýsingamiðlunar af ýmsum toga. Þar er um að ræða útgáfu tímarita og skýrslna, málþing og ráðstefnur, fréttamannafundi og rekstur heimasíðu með daglegum fréttum. Markmið þessarar starfsemi er margþætt. Bæði eru þar veittar upplýsingar um verkefni og niðurstöður norrænna samstarfsverkefna og almennar upplýsingar um norrænt samstarf.
    Skrifstofa ráðherranefndarinnar og skrifstofa Norðurlandaráðs reka sameiginlega upplýsingadeild. Norræna ráðherranefndin stendur undir 60% af útgjöldum við rekstur deildarinnar og Norðurlandaráð 40%.
    Eftirfarandi er yfirlit yfir þá þætti upplýsingastarfseminnar sem eru sérstakir fjárlagaliðir á fjárlögum fyrir árið 2004. Hér er fyrst og fremst um að ræða starfsemi sem er sameiginleg fyrir ráðherranefndina í heild sinni. Það skal þó tekið fram að veigamikill hluti upplýsingastarfseminnar er fjármagnaður beint af fjárveitingum fagsviðanna og norrænu stofnananna. Fjármagn til upplýsinga er og oft samofið almennri starfsemi og kemur því ekki fram á þessu yfirliti.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.







1)     Norrænu upplýsingaskrifstofurnar í Eystrasaltsríkjunum og Pétursborg sjá einnig um verkefnisstjórn fyrir hönd skrifstofunnar í Kaupmannahöfn.
2)        Framlag til reksturs Sambands Norrænu félaganna og svæðisbundinna upplýsingamiðstöðva í norrænu löndunum ásamt upplýsingamiðstöðvarinnar í Suður-Slésvík.
3)        Þessi fjárlagaliður sýnir hlut Norrænu ráðherranefndarinnar í fjármögnun upplýsingadeildarinnr, en launaútgjöld ráðherranefndarinnar koma fram á fjárlagalið 5-0180-3, Skrifstofa ráðherranefndarinnar. Í fjárlögum skrifstofunnar fyrir árið 2004 eru þessi útgjöld áætluð 5,96 millj. d.kr.
4)     Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta þar sem norrænir þegnar geta fengið upplýsingar um lög og reglur og réttindi m.a. í tengslum við búferlaflutninga milli norrænu landanna. Þetta byggir á samningum milli landanna og snertir ýmsa þætti samfélagsins.
5)        Útgáfustarfsemin er að meginhluta fjármögnuð af fagsviðunum, sem greiða fyrir þjónustu, ásamt sölu útgefinna skýrslna sem og beinum framlögum frá ráðherranefndinni og Norðurlandaráði .
Neðanmálsgrein: 1
1 Breiðband þýðir í þessu samhengi möguleika á sítengingu við Internetið með hærri hraða en sem nemur lögbundnum kröfum um alþjónustu. Til samræmis við venjur OECD var í skýrslunni miðað við gagnaflutningshraða 256 kb/s og þar yfir.