Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 583. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 876  —  583. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um útgáfu bókarinnar Forsætisráðherrar Íslands.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hvenær var tekin ákvörðun um útgáfu bókarinnar Forsætisráðherrar Íslands á vegum ríkisstjórnarinnar?
     2.      Hefur þetta verk verið boðið út?
     3.      Hver er áætlaður kostnaður við útgáfu bókarinnar og hvernig skiptist hann (höfundarlaun, þóknun ritstjóra eða ritnefndar, myndir, umbrot, prentun, kynningarkostnaður)?
     4.      Hver er höfundur bókarinnar?
     5.      Hver er fyrirhugaður formlegur útgefandi bókarinnar?
     6.      Hyggur ríkisstjórnin á útgáfu fleiri bóka á árinu og þá hverra?