Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 470. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 882  —  470. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um rjúpnaveiðar veiðikortshafa.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu margir veiðikortshafar stunduðu eingöngu rjúpnaveiðar á síðasta veiðiári? Hversu hátt hlutfall er það af veiðikortshöfum?
     2.      Hversu margir veiðikortshafar stunduðu rjúpnaveiðar á síðasta veiðiári? Hversu hátt hlutfall er það af veiðikortshöfum?
     3.      Hvernig verður komið til móts við þá sem stunda rjúpnaveiðar og hafa greitt fyrir veiðikort á þessu veiðiári?


    Árið 2002 voru alls gefin út 10.619 veiðikort, þ.e. almenn veiðikort og hlunnindaveiðikort. Af þessum veiðikortshöfum gáfu 1.250 veiðimenn upp á veiðiskýrslum sínum að þeir hefðu eingöngu stundað rjúpnaveiði eða alls um 12%. Þeir sem stunduðu hins vegar rjúpnaveiði með annarri veiði voru sama ár 3.880 eða um 37% veiðikortshafa. Heildarskýrslufjöldi þar sem gerð var grein fyrir einhverri veiði var um 6.000. Upplýsingar fyrir árið 2003 liggja ekki fyrir þar sem endurnýjun veiðikorta er rétt hafin.
    Í umræðunni undanfarið hafa verið nefndar hærri prósentutölur en 12% og 37% yfir veiðimenn sem veiða rjúpur. Í því sambandi er nauðsynlegt að hafa í huga að þá eru aðrar forsendur fyrir matinu en í spurningum fyrirspyrjanda. Hér að framan er hlutfallið tekið af 10.619 sem eru öll veiðikort sem gefin voru út árið 2002, jafnt almenn veiðikort sem hlunnindaveiðikort. Ljóst er að aðeins hluti þeirra hefur farið á veiðar og hugsanlega hafa enn færri skilað veiðiskýrslum. Árið 2002 er sérstakt hvað upplýsingar um veiði varðar að því leyti að hluti veiðimanna endurnýjar ekki veiðikortin fyrir rjúpnaveiðitímann 2003, þ.e. sækir ekki um veiðikort 2003 vegna rjúpnaveiðibanns og skilar því ekki veiðiskýrslum fyrir 2002 og telur Umhverfisstofnun að um 1.000 veiðiskýrslur hafi ekki skilað sér vegna þess fyrir árið 2002. Sé hlutfallið reiknað af þeim 6.000 sem skilað hafa skýrslum og gert hafa grein fyrir veiði á árinu 2002 væru þessar prósentur 21% og 65% í stað 12% og 37%.
    Þeir sem greitt hafa fyrir veiðikort hafa heimild til þess að stunda veiðar hér á landi í samræmi við lög og reglur um veiðar. Veiðikort eru ekki bundin við veiðar á tilteknum dýrum eða tegundum. Handhafar veiðikorta sem réttindi hafa til fuglaveiða geta því stundað veiðar á öllum þeim tegundum fugla sem heimilt er að veiða burtséð frá því hvort þeir ætli sér eingöngu að veiða ákveðna tegund. Meginreglan samkvæmt lögum nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, er að rjúpan er friðuð, sbr. 6. gr. laganna, en skv. 17. gr. getur umhverfisráðherra að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands aflétt þeirri friðun frá 15. október til 22. desember ár hvert. Síðustu árin hafa verið teknar ákvarðanir um takmarkanir á rjúpnaveiðum innan framangreinds tímabils. Sem dæmi má nefna hafa stór svæði verið alfriðuð, m.a. árið 2002, og rjúpnaveiðitímabilið stytt árið 1993. Handhafar veiðikorta mega því búast við að reglur um veiðar breytist á gildistíma kortsins. Handhafar veiðikorta sem endurnýjað höfðu veiðikort sín áður en rjúpnaveiðibannið var sett á höfðu því heimild til þess að stunda veiðar á öðrum tegundum fugla eins og áður segir. Ógerningur er þar að auki að ganga úr skugga um það hvort einstakir handhafar veiðikorta hafi nýtt sér réttinn til veiða eða ekki og að endurgreiða þeim sem aðeins ætluðu sér að nýta réttinn til veiða á rjúpu. Niðurstaða ráðuneytisins var því sú að ekki væru forsendur til endurgreiðslu veiðikortagjalds vegna rjúpnaveiðibannsins.