Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 517. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 895  —  517. mál.




Svar



sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Jóns Bjarnasonar um veiðar og verkun grásleppu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hve margar grásleppuverkunarstöðvar eru á landinu og hvar eru þær?
     2.      Hvert var heildarmagn grásleppuhrogna sl. fimm ár og hvert var heildarútflutningsverðmæti þeirra?
     3.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við eindregnum óskum Landssambands smábátaeigenda um breytingar á reglum um grásleppuverkunarhús og túlkun Fiskistofu á þeim reglum?
     4.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að veita sérstakt fjármagn til stuðnings fiskverkun í smáum einingum til að bæta aðstöðu grásleppuverkenda svo að þeir uppfylli nýjar kröfur um aðbúnað?


    Ráðuneytið sendi fyrirspurnina til Fiskistofu og fylgir hér með svar hennar:
    Í 1. tölulið fyrirspurnarinnar er spurt um fjölda grásleppuverkunarstöðva og staðsetningu þeirra. Vinnsluleyfi til grásleppuverkunar eru nú 41 en gert er ráð fyrir að þeim fjölgi u.þ.b. um 30 þegar verkun hefst í vor. Þessar stöðvar eru á eftirfarandi svæðum:
    Keflavík – Akranes, 8 stöðvar.
    Hellissandur – Búðardalur, 5 stöðvar.
    Tálknafjörður – Ísafjörður, 4 stöðvar.
    Strandir, 4 stöðvar.
    Skagafjörður og Siglufjörður, 9 stöðvar.
    Eyjafjörður, 6 stöðvar.
    Kópasker – Stöðvarfjörður, 5 stöðvar.

    Í 2. tölulið er spurt um heildarmagn grásleppuhrogna sl. fimm ár og útflutningsverðmæti þeirra. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands var magn og verðmæti útfluttra saltaðra grásleppuhrogna sem hér segir:

Ár
Magn í tonnum
Verðmæti í kr.
1999 251 85.000.000
2000 195 73.000.000
2001 310 166.000.000
2002 503 312.000.000
2003 (jan.–nóv.) 824
583.000.000

    Auk þess var kavíar fluttur út þessi ár. Taflan sýnir magn og verðmæti útflutts kavíar síðustu fimm ár:

Ár Magn í tonnum Verðmæti í kr.
1999 1.154 795.000.000
2000 1.074 684.000.000
2001 872 752.000.000
2002 661 623.000.000
2003 (jan.–nóv.) 632 684.000.000

    Að því er varðar 3. tölulið fyrirspurnarinnar var á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda í október 2003 mikið rætt um þær kröfur sem Fiskistofa gerir til húsnæðis þar sem grásleppuhrogn eru söltuð. Af því tilefni var á fundinum samþykkt eftirfarandi :
    „Aðalfundur LS felur stjórn LS að fá reglum um grásleppuhrognaverkunarhús breytt. Fundurinn mótmælir túlkun Fiskistofu á þeim reglum sem gilda um grásleppuhrognaverkunarhús.“ Enn fremur segir í greinargerð með samþykktinni: „Reglur og kröfur Fiskistofu ganga allt of langt hvað varðar notkun húsnæðis þegar veiðitímabili lýkur. Venjulega stendur vinnsla yfir í þrjá mánuði og er algjörlega óásættanlegt að Fiskistofa geti bannað notkun á húsnæðinu hina níu mánuði ársins. Reglur og kröfur Fiskistofu ganga allt of langt um breytingar á húsnæði grásleppuverkana. Það er óásættanlegt að ekki fáist að nýta starfsmannaaðstöðu og salernisaðstöðu í nærliggjandi húsnæði. Þessi krafa Fiskistofu er í engu samræmi við hvernig heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa framfylgt reglum um matvælaöryggi.“
    Að Fiskistofa banni notkun þess húsnæðis sem notað er sem vinnsluhúsnæði fyrir grásleppuhrognavinnslu þá mánuði sem ekki fer fram grásleppuhrognavinnsla þar, eins og kemur fram í fyrri hluta samþykktar aðalfundarins, er á misskilningi byggt. Fiskistofa hefur ekki lagt neitt slíkt bann við notkun húsnæðis, enda uppfylli það almennar kröfur um fiskvinnsluhús varðandi hreinlæti og aðstöðu þegar grásleppuhrognavinnsla hefst.
    Þá skal það tekið fram að undanfarin ár hefur Fiskistofa leiðbeint grásleppuhrognaverkendum sérstaklega um hvaða kröfur gildi um húsnæði, aðstöðu og innra eftirlit framleiðenda.
    Til grásleppuverkenda eru gerðar sömu kröfur og almennra fiskvinnslna hvað varðar aðstöðu, hreinlæti og öryggi vörunnar. Grásleppuhrogn eru viðkvæm vara sem í framhaldsvinnslu til kavíars eru hitameðhöndluð (gerilsneydd) einungis við um 70°C. Kavíar er seldur sem tilbúin matvara og neytandinn hvorki sýður eða hitar vöruna áður en hennar er neytt. Það er því ljóst að vöruna þarf að framleiða við mikið hreinlæti og öruggar aðstæður.
    Grásleppuverkendur hafa á undanförnum árum verið að bæta aðstöðu sína. Nokkrir verkendur sem hafa vinnsluaðstöðu nálægt heimilum sínum hafa þó talið óþarft að hafa salernisaðstöðu og starfsmannaaðstöðu í vinnsluhúsinu, nægjanlegt sé að hafa fataskipti og nýta sér salernisaðstöðu í nálægu húsi.
    Í reglugerð nr. 233, 30. mars 1999, um hollustuhætti við meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafla og fiskafurða, viðauka 3, eru settar fram almennar kröfur til bygginga, búnaðar og hreinlætis sem fiskvinnslur skulu uppfylla. Með hliðsjón af því og þess sem áður er sagt, þ.e. að varan sé viðkvæm, hefur Fiskistofa ekki fallist á að fiskverkendur hafi salernisaðstöðu og búningsherbergi í nærliggjandi húsi, ekki síst í ljósi þess að í mörgum tilvikum sem þannig hagar til um þyrfti viðkomandi að fara yfir svæði sem húsdýr og búpeningur kann að hafa aðgang að. Getur það haft í för með sér að til að mynda jarðvegsgerlar og önnur mengun berist með starfsmönnum inn í vinnslusalinn.
    Eftir lok síðustu grásleppuvertíðar var farið yfir hvaða verkendur uppfylltu ekki lágmarkskröfur, og var þeim vinnsluleyfum lokað (tímabundið). Í bréfi til þessara verkenda var þeim tjáð að Fiskistofa myndi taka út aðstöðu þeirra sem hyggðust verka hrogn á næstu vertíð og endurvekja leyfi þeirra sem stæðust kröfur. Eftirlitsmenn Fiskistofu hafa bæði í desember sl. og það sem af er þessu ári, heimsótt fjölmarga verkendur, bæði að frumkvæði Fiskistofu og samkvæmt beiðni verkenda og leiðbeint þeim hvað gera þurfi til að lágmarkskröfum sé mætt. Þeirri vinnu verður haldið áfram fram að vertíð.
    Með þessum aðgerðum hefur og mun aðstaða til grásleppuhrognasöltunar halda áfram að stórbatna hér á landi, sem hefur í för með sér aukin gæði og öryggi vörunnar.
    Sem svar við 4. tölul. vill ráðuneytið láta fram koma að ekki eru áform um að úthluta sérstöku fjármagni til endurbóta í verkunaraðstöðu á grásleppu, enda hafa verkendur grásleppuhrogna sjálfir víðast hvar gert ráðstafanir til þess að mæta þeim kröfum sem nú eru gerðar til verkunaraðstöðu.