Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 602. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 910  —  602. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um aflaheimildir fiskiskipa úr íslenskum deilistofnum.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



     1.      Úr hvaða deilistofnum hefur verið ákveðið að takmarka heildarafla skv. 5. gr. laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands? Hvernig var aflahlutdeild ákveðin hverju sinni, hvaða skip fengu hlutdeild og hve mikla í hverju tilviki?
     2.      Hefur ráðherra nýtt heimildir 4. mgr. 5. gr. laganna um að binda úthlutun því skilyrði að skip afsali sér aflaheimildum innan lögsögu Íslands? Ef svo er, hver var skerðingin í hverju tilviki, reiknuð í prósentum og þorskígildum, og hvernig skiptist hún milli einstakra fiskiskipa?
     3.      Hvernig var aflaheimildum skv. 2. lið úthlutað? Hversu miklu var úthlutað í hverju tilviki, reiknað í prósentum og þorskígildum, og til hvaða skipa?
     4.      Hefur ráðherra nýtt heimild 9. mgr. 5. gr. laganna þess efnis að allt að 5% heildaraflans verði sérstaklega úthlutað til þeirra skipa sem hófu veiðar úr viðkomandi stofni ? Ef svo er, hversu miklu var úthlutað í hverju tilviki, reiknað í prósentum og þorskígildum, og til hvaða skipa?
     5.      Úr hvaða deilistofnum eru stundaðar veiðar án þess að heildarafli hafi verið takmarkaður og ákvæðum 5. gr. laganna beitt? Hve lengi hafa þær veiðar staðið? Hve mikið hefur verið veitt ár hvert og hve mörg skip eiga í hlut? Hver eru áform ráðherra varðandi um veiðar úr þessum deilistofnum?


Skriflegt svar óskast.