Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 617. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 925  —  617. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um tæknimenntun.

Frá Katrínu Júlíusdóttur.



     1.      Hversu margir hafa lokið tæknimenntun á háskólastigi á Íslandi?
     2.      Er til skoðunar að rýmka heimildir Tækniháskóla Íslands til að taka inn nemendur til að svara eftirspurn nemenda og atvinnulífs eftir tæknimenntun?