Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 344. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 938  —  344. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 33 16. apríl 2002, um eldi nytjastofna sjávar, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 23. febr.)



1. gr.

    Við 4. mgr. 3. gr. laganna bætist: þar á meðal um takmörkun eða bann eldis á nytjastofnum er lög þessi ná til ef ljóst þykir að aðrar verndar- og friðunaraðgerðir sem kveðið er á um í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum duga ekki til að koma í veg fyrir erfðablöndun við staðbundna stofna eða að líffræðilegri fjölbreytni sé ógnað og tegundum eða stofnum stefnt í hættu.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.