Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 633. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 946  —  633. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um eftirlit með vinnubúðum og öðrum vistarverum við Kárahnjúka.

Frá Atla Gíslasyni.



     1.      Hvaða byggingar- og skipulagsnefndir og byggingar- og skipulagsfulltrúar hafa farið með byggingar- og skipulagsmál og haft eftirlit með byggingu vinnubúða og annarra íverustaða starfsmanna við Kárahnjúka og hvernig hefur eftirliti verið háttað?
     2.      Hafa verið gefin út formleg leyfi fyrir byggingunum og hefur farið fram úttekt á þeim fullgerðum í því skyni að ganga úr skugga um hvort þær fullnægi ákvæðum byggingarreglugerðar?
     3.      Hefur ráðherra eða stofnanir sem heyra undir ráðuneytið haft afskipti af heilbrigðiseftirliti með starfsmannabústöðum, starfsmannabúðum, matstöðum og öðrum vistarverum starfsmanna við Kárahnjúka? Ef svo er, hvaða afskipti eru það?


Skriflegt svar óskast.