Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 557. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 947 — 557. mál.
sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar, Einars Más Sigurðarsonar og Kristjáns L. Möllers um veiðar á kolmunna.
Leitað var til Hafrannsóknarstofnunarinnar, Fiskistofu og Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) við öflun upplýsinga til að svara fyrirspurninni.
1. Hvernig hafa kolmunnaveiðar Íslendinga þróast sl. 10 ár?
Fyrir 1997 voru beinar kolmunnaveiðar Íslendinga óverulegar, þó er rétt að geta þess að nokkuð var veitt af kolmunna hér við land á árunum 1973 til 1983. Frá 1997 jukust veiðar íslenskra skipa ár frá ári til 2001 þegar veiðar þeirra náðu 365.000 tonnum. Árið 2002 setti ráðherra síðan reglugerð þar sem heildarveiði íslenskra skipa var takmörkuð við 282.000 tonn. Þetta var gert samhliða því að tekin var ákvörðun um sambærilegan samdrátt veiða hjá öðrum strandríkjum í kolmunna, að Noregi þó undanskildum. Árið 2003 voru aflaheimildir íslenskra skipa auknar í 547.000 tonn í kjölfar ákvarðana annarra strandríkja um að auka heimildir sínar. Þróun veiða frá 1995 er kemur fram í eftirfarandi töflum.
Tafla 1. Veiði íslenskra skipa sl. 10 ár.
Tafla 2. Kolmunnaafli íslenskra skipa síðustu 10 ár. Tölurnar miðast við kg af afla upp úr sjó.
2.
Hversu miklu af kolmunna hefur verið landað hér á landi sl. 10 ár og hversu mikið af því veiddu erlend skip? Svar óskast sundurliðað eftir löndunarhöfnum og skipum.
Mestum hluta afla íslenskra skipa er landað hér á landi, eins og sjá má af töflu 3. Í töflu 4 er gerð grein fyrir löndunum erlendra skipa í íslenskum höfnum. Töflur 5 og 6 gera nánari grein fyrir stöðunni eftir einstökum höfnum og skipum, þar sem tafla 5 veitir upplýsingar um landanir íslenskra skipa og tafla 6 erlendra skipa.
Tafla 3. Landanir íslenskra skipa í íslenskum höfnum sl. 10 ár.
Tafla 4. Landanir erlendra skipa í íslenskum höfnum sl. 10 ár.
Tafla 5. Kolmunnaafli íslenskra skipa eftir löndunarhöfnum síðustu 10 ár. Tölurnar miðast við tonn af afla upp úr sjó.
Tafla 6. Kolmunnaafli erlendra skipa landað í Íslandi síðustu 10 ár. Tölurnar miðast við tonn af afla upp úr sjó.
3. Hvernig hefur veiðin skipst milli þjóða sl. 10 ár?
Í töflu 7 er gerð grein fyrir skiptingu veiða milli allra þjóða sem skráð hafa kolmunnafla á árunum 1993–2002. Ljóst er að veiðarnar hafa þróast mikið á þessu tímabili, sérstaklega hjá Íslendingum, Færeyingum, Norðmönnum og Rússum. Hafa ber þó í huga þegar þetta er skoðað að réttur einstakra þjóða til veiða úr deilistofnum byggist ekki nema að takmörkuðu leyti á veiðireynslu úr þeim stofnum en mikið fremur á líffræðilegri dreifingu stofnsins, auk annarra þátta, svo sem framlagi til rannsókna og því hversu háð einstök ríki eru fiskveiðum, bæði almennt og kolmunna sérstaklega.
Tafla 7. Skipting veiða allra þjóða, skráður kolmunnafli 1993–2002.
4.
Hvar eru helstu veiðisvæðin? Óskað er eftir að helstu veiðisvæðin og afstaða þeirra til efnahagslögsagna komi fram á korti.
Veiðisvæði eru sýnd á eftirfarandi myndum. Veiðarnar hafa þróast mikið á undanförnum 10 árum með tilliti til veiðisvæða og fara nú fram á mun stærra svæði en áður. Er hér sérstaklega um að ræða veiðar norðar en áður var og að miklu leyti innan íslenskrar lögsögu, þar sem gjöful kolmunnamið er að finna.
Á fyrstu myndinni er sýnd hlutfallsleg dreifing kolmunnaaflans eftir svæðum árið 2002. Þar sést að kolmunnaflinn dreifist yfir geysimikið svæði í Norður-Atlantshafi. Af um 1,55 millj. tonna afla veiddust um 830 þús. tonn vestan Bretlandseyja (á hryggningartíma í janúar– mars í lögsögu Evrópusambandsins og alþjóðlegu hafsvæði) og við Færeyjar. Um 450 þús. tonn við Ísland og í Noregshafi, um 145 þús. tonn við sunnanverðan Noreg (norsku rennunni) og Norðursjó og um 40 þús. tonn við Spán og Portúgal.
Á næstu mynd er sýnd hlutfallsleg dreifing kolmunnaflans eftir ársfjórðungum árið 2000.
Á síðustu myndinni er sýnd hlutfallsleg dreifing íslenska kolmunnaaflans árin 2002 og 2003.
Hlutfallsleg dreifing kolmunnaaflans 2002.
Hlutfallsleg dreifing kolmunnaflans eftir ársfjórðungum 2000.
Kolmunnaafli Íslendinga 2002. Kolmunnaafli Íslendinga 2003.
5. Hvert er mat sérfræðinga á stöðu kolmunnastofnsins nú og hvernig hafa spár um veiðiþol gengið eftir sl. 10 ár?
Leitað var til Sveins Sveinbjörnssonar fiskifræðings Hafrannsóknarstofnunarinnar og byggist eftirfarandi á svari hans.
Meðalnýliðun á árunum 1981–85 var 10,5 milljarðar 1-árs nýliða en á árunum 1996–2002 tæplega 30 milljarðar 1-árs nýliða og hafa allir árgangarnir á seinna tímabilinu verið langtum stærri en langtímameðaltal, sjá mynd.
1-árs nýliðun 1981–2002.
Talið er að varúðarveiðidánartala (Fpa) fyrir kolmunna sé 0,32.Veiðidánartalan hefur verið 0,14-0,50 á tímabilinu 1981–2002. Á tímabilinu 1986–1990 var hún nokkuð yfir varúðarveiðidauða og frá 2000 er veiðidauðinn einnig stærri en Fpa, mest 0,5 árið 2002. Árið 2003 er heildarkolmunnaaflinn álitinn hafa verið 2,3–2,4 millj. tonna svo búast má við enn meiri veiðidauða 2003, sjá mynd.
Afli og veiðidánartala 1981–2003.
Afli á árunum 1987–94 var minni en ráðlagður afli Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Á árunum 1995–97 var aflinn nálægt ráðlögðum afla eða nokkuð meiri en frá 1998 hefur aflinn farið langt yfir ráðlagðan afla og mest árið 2003, þá var ráðlagður afli 600 þús. tonn en varð meira en 2,3 millj. tonna, sjá mynd.
Ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins og afli.
Þrátt fyrir stórauknar veiðar umfram ráðgjöf er stofnmatið 2003 mun bjartsýnna en árin á undan (1999–2002) og er ástæðan að nýliðunarárgangarnir á undanförnum árum eru miklu sterkari en fyrra mat gaf til kynna. Þar af leiðandi hefur verið tilhneiging til að vanmeta stofnstærð og ofmeta veiðidauða. Það er talið að án þessarar miklu nýliðunar síðan 1995 væri stofninn í slæmu ástandi. Varúðarnálgun á stærð hrygningarstofnsins (Bpa) er 2,25 milljónir tonna en hrygningarstofninn á árunum 1998–2003 er nú metinn 3,3–4,2 millj. tonna, sjá mynd.
Stærð hrygningarstofns 1981–2003.
Á næstu dögum mun sérfræðingahópur innan Alþjóðahafrannsóknaráðsins skoða mismunandi aðferðir í stofnstærðarmati og reyna að komast að hver eigi best við í ljósi reynslunnar. Íslendingar munu taka þátt í þeirri vinnu.
6. Hvaða kröfur um aflahlutdeild gera þær þjóðir og ríkjasambönd sem koma að samningum um veiðar á kolmunna og með hvaða rökum?
Kröfur einstakra þjóða og ríkjasambanda eru útlistaðar í töflu 8, og byggjast þær á mismunandi röksemdum.
Íslensk stjórnvöld hafa að meginstefnu byggt kröfur sínar á líffræðilegri dreifingu stofnsins og rétti strandríkis til að nýta þær auðlindir sem finnast innan lögsögu þess, að auki hefur verið vísað til framlags til rannsókna og þess hve háðir Íslendingar eru fiskveiðum. Jafnframt þessu er ákveðinnar hlutdeildar krafist af veiðum á úthafinu á grundvelli veiðireynslu. Noregur hefur lagt áherslu á líffræðilega dreifingu stofnsins í málflutningi sínum, Evrópusambandið á veiðireynslu og hvar veiðin fór fram á tímabilinu 1977–97, en málflutningur Færeyja hefur byggst á blöndu hinna ýmsu viðmiða. Ekki er ljóst á hverju Grænland byggir kröfu sína, Rússland byggir helst á veiðireynslu en hefur reynt að sýna fram á stöðu sína sem strandríki.
Tafla 8. Kröfur þjóða og ríkjasambanda.
7. Hver er staða samninga núna?
Lítið hefur miðað í samningum frá því þeir hófust árið 1999, þó að 14 fundir hafi verið haldnir, veiðar hafa aukist jafnt og þétt og eru langt umfram veiðiráðgjöf ICES. Ekki hefur verið boðað til samningafundar. Evrópusambandið hefur þegar gefið út einhliða veiðiheimildir fyrir árið 2004 og Norðmenn og Færeyingar hafa þegar heimilað veiðar án þess að settar hafi verið heildartakmarkanir á veiðar.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 947 — 557. mál.
Svar
sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar, Einars Más Sigurðarsonar og Kristjáns L. Möllers um veiðar á kolmunna.
Leitað var til Hafrannsóknarstofnunarinnar, Fiskistofu og Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) við öflun upplýsinga til að svara fyrirspurninni.
1. Hvernig hafa kolmunnaveiðar Íslendinga þróast sl. 10 ár?
Fyrir 1997 voru beinar kolmunnaveiðar Íslendinga óverulegar, þó er rétt að geta þess að nokkuð var veitt af kolmunna hér við land á árunum 1973 til 1983. Frá 1997 jukust veiðar íslenskra skipa ár frá ári til 2001 þegar veiðar þeirra náðu 365.000 tonnum. Árið 2002 setti ráðherra síðan reglugerð þar sem heildarveiði íslenskra skipa var takmörkuð við 282.000 tonn. Þetta var gert samhliða því að tekin var ákvörðun um sambærilegan samdrátt veiða hjá öðrum strandríkjum í kolmunna, að Noregi þó undanskildum. Árið 2003 voru aflaheimildir íslenskra skipa auknar í 547.000 tonn í kjölfar ákvarðana annarra strandríkja um að auka heimildir sínar. Þróun veiða frá 1995 er kemur fram í eftirfarandi töflum.
Tafla 1. Veiði íslenskra skipa sl. 10 ár.
| 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 |
| 368.828 | 501.710 | 10.463.624 | 68.782.562 | 160.424.778 | 259.160.908 | 365.103.000 | 286.429.000 | 501.494.000 |
Tafla 2. Kolmunnaafli íslenskra skipa síðustu 10 ár. Tölurnar miðast við kg af afla upp úr sjó.
| Skipanr. | Nafn skips | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 |
| 130 | Júpiter | 918.026 | 175.313 | |||||||
| 155 | Jón Kjartansson | 5.156.363 | 1.935.311 | 27.993.407 | 34.136.000 | 27.625.000 | 48.962.000 | |||
| 226 | Beitir | 359.500 | 302.220 | 1.830.211 | 10.583.004 | 8.846.036 | 14.762.616 | 7.519.000 | 4.909.000 | 18.624.000 |
| 1012 | Örn | 85.000 | ||||||||
| 1020 | Guðmundur Ólafur II | 17.000 | ||||||||
| 1031 | Bergur | 2.208.971 | 16.613.000 | 20.544.000 | 24.814.000 | |||||
| 1171 | Leifur Halldórsson | 1.000.027 | ||||||||
| 1275 | Jón Vídalín | 2.599 | ||||||||
| 1293 | Börkur | 3.192.959 | 11.107.624 | 37.379.876 | 38.323.000 | 37.105.000 | 62.153.000 | |||
| 1308 | Venus | 494 | ||||||||
| 1360 | Kleifaberg | 3.672 | 81 | |||||||
| 1411 | Huginn | 98.003 | 9.095 | 3.424.075 | 3.150.672 | 897.872 | ||||
| 1413 | Harpa | 1.018.730 | 257.000 | |||||||
| 1416 | Steinunn | 3.735 | 15.000 | |||||||
| 1501 | Þórshamar | 99.637 | ||||||||
| 1504 | Neptúnus | 1.803.148 | 98.145 | 1.669.000 | ||||||
| 1508 | Björg Jónsdóttir | 1.267.414 | 85.000 | |||||||
| 1525 | Hólmaborg | 1.061.793 | 4.753.694 | 14.253.775 | 29.719.887 | 45.555.000 | 28.449.000 | 49.010.000 | ||
| 1530 | Sigurbjörg | 39.800 | ||||||||
| 1556 | Seley | 27.329 | ||||||||
| 1610 | Ísleifur | 208.201 | 733.000 | |||||||
| 1742 | Faxi | 121.709 | 4.867.550 | 5.615.819 | 3.022.240 | 34.965.000 | 23.014.000 | 33.924.000 | ||
| 1807 | Áskell | 14.757.453 | 11.584.210 | 12.541.000 | 15.240.000 | |||||
| 1809 | Jóna Eðvalds | 11.159.000 | ||||||||
| 1903 | Þorsteinn | 3.255.880 | 12.156.356 | 18.455.729 | 10.589.891 | 12.272.000 | ||||
| 2170 | Örfirisey | 9.328 | ||||||||
| 2184 | Vigri | 585.812 | 883.728 | 131.960 | ||||||
| 2212 | Baldvin Þorsteinsson | 8.291.000 | ||||||||
| 2233 | Jóna Eðvalds | 48.000 | ||||||||
| 2253 | Elliði | 1.677.924 | 2.470.539 | 3.208.402 | ||||||
| 2275 | Jón Sigurðsson | 101.487 | ||||||||
| 2277 | Antares | 343.070 | 155.081 | 1.423.000 | ||||||
| 2281 | Sighvatur Bjarnason | 1.184.093 | 1.671.561 | 5.540.931 | 5.331.569 | 9.160.000 | 7.249.000 | 11.082.000 |
| Skipanr. | Nafn skips | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 |
| 2287 | Bjarni Ólafsson | 979.849 | 9.015.620 | 7.417.833 | 14.216.862 | 15.100.000 | 14.595.000 | 26.024.000 | ||
| 2312 | Gardar | 9.461.895 | ||||||||
| 2329 | Guðmundur Ólafur | 18.127.268 | 20.809.422 | 4.298.000 | 2.285.000 | 2.345.000 | ||||
| 2334 | Óli í Sandgerði | 18.117.055 | 18.713.579 | |||||||
| 2336 | Sunnuberg | 8.244.366 | 15.544.500 | 17.526.000 | 15.259.000 | 35.869.000 | ||||
| 2345 | Hoffell | 204.576 | 13.341.467 | 16.688.387 | 8.449.000 | 13.587.000 | 34.092.000 | |||
| 2363 | Gullberg | 2.046.974 | 1.942.698 | 1.045.000 | 1.397.000 | |||||
| 2388 | Ingunn | 34.287.000 | 27.134.000 | 46.955.000 | ||||||
| 2407 | Hákon | 5.927.000 | 14.798.000 | |||||||
| 2410 | Vilhelm Þorsteinsson | 9.593.000 | 11.784.000 | 10.924.000 | 7.766.000 | |||||
| 2411 | Huginn | 35.087.000 | 15.655.000 | 19.327.000 | ||||||
| 2412 | Ásgrímur Halldórsson | 17.671.422 | 23.930.000 | 27.065.000 | 22.581.000 | |||||
| 2413 | Guðrún Gísladóttir | 2.695.000 | ||||||||
| 2530 | Svanur | 739.000 | 7.081.000 | |||||||
| Samtals | 368.828 | 501.710 | 10.463.624 | 68.782.562 | 160.424.778 | 259.160.908 | 365.103.000 | 286.429.000 | 501.494.000 |
Mestum hluta afla íslenskra skipa er landað hér á landi, eins og sjá má af töflu 3. Í töflu 4 er gerð grein fyrir löndunum erlendra skipa í íslenskum höfnum. Töflur 5 og 6 gera nánari grein fyrir stöðunni eftir einstökum höfnum og skipum, þar sem tafla 5 veitir upplýsingar um landanir íslenskra skipa og tafla 6 erlendra skipa.
Tafla 3. Landanir íslenskra skipa í íslenskum höfnum sl. 10 ár.
| 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 |
| 368.828 | 501.710 | 10.463.624 | 64.421.562 | 136.521.778 | 223.586.908 | 308.623.000 | 277.439.000 | 454.558.000 |
Tafla 4. Landanir erlendra skipa í íslenskum höfnum sl. 10 ár.
| 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 |
| 0 | 0 | 0 | 38.581 | 8.917 | 24.346 | 40.718 | 6.697 | 73.672 |
Tafla 5. Kolmunnaafli íslenskra skipa eftir löndunarhöfnum síðustu 10 ár. Tölurnar miðast við tonn af afla upp úr sjó.
| Hafnarnr. | Löndunarhöfn | Skipanr. | Nafn skips | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 |
| 1 | Vestmannaeyjar | 226 | Beitir | 1.039 | ||||||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 1031 | Bergur | 487 | 2.946 | 3.134 | ||||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 1171 | Leifur Halldórsson | 472 | ||||||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 1275 | Jón Vídalín | 3 | ||||||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 1411 | Huginn | 98 | 9 | 2.110 | 872 | |||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 1413 | Harpa | 104 | ||||||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 1610 | Ísleifur | 208 | ||||||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 1742 | Faxi | 3.710 | 1.661 | 2.111 | ||||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 2277 | Antares | 343 | 23 | 1.423 | ||||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 2281 | Sighvatur Bjarnason | 1.184 | 1.672 | 4.885 | 5.332 | 9.160 | 7.249 | 9.726 | ||
| 1 | Vestmannaeyjar | 2287 | Bjarni Ólafsson | 112 | ||||||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 2345 | Hoffell | 1.307 | ||||||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 2363 | Gullberg | 71 | 1.214 | 956 | 674 | |||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 2411 | Huginn | 928 | 2.317 | 5.469 | ||||||
| 1 | Höfn alls: | 98 | 1.536 | 7.966 | 6.170 | 9.733 | 15.517 | 9.566 | 22.421 | |||
| 11 | Þorlákshöfn | 1171 | Leifur Halldórsson | 476 | ||||||||
| 11 | Þorlákshöfn | 1742 | Faxi | 13.502 | 16.870 | 21.753 | ||||||
| 11 | Höfn alls: | 476 | 13.502 | 16.870 | 21.753 | |||||||
| 13 | Grindavík | 226 | Beitir | 1.059 | ||||||||
| 13 | Grindavík | 1031 | Bergur | 18.764 | 10.343 | |||||||
| 13 | Grindavík | 1293 | Börkur | 1.369 | ||||||||
| 13 | Grindavík | 1504 | Neptúnus | 1.669 | ||||||||
| 13 | Grindavík | 1807 | Áskell | 954 | ||||||||
| 13 | Grindavík | 1903 | Þorsteinn | 3.001 | 4.796 | 5.186 | ||||||
| 13 | Grindavík | 2336 | Sunnuberg | 1.200 | 1.280 | |||||||
| 13 | Grindavík | 2410 | Vilhelm Þorsteinsson | 4.107 | 1.688 | 10.924 | 7.724 | |||||
| 13 | Grindavík | 2412 | Ásgrímur Halldórsson | 980 | ||||||||
| 13 | Grindavík | 2530 | Svanur | 968 | ||||||||
| 13 | Höfn alls: | 3.001 | 11.162 | 6.874 | 32.637 | 22.338 | ||||||
| 21 | Keflavík | 1807 | Áskell | 2.234 | 2.479 | |||||||
| 21 | Keflavík | 2287 | Bjarni Ólafsson | 565 | ||||||||
| 21 | Keflavík | 2329 | Guðmundur Ólafur | 2.330 | ||||||||
| 21 | Keflavík | 2412 | Ásgrímur Halldórsson | 2.922 | ||||||||
| 21 | Höfn alls: | 2.799 | 7.731 | |||||||||
| 33 | Reykjavík | 1807 | Áskell | 233 | ||||||||
| 33 | Reykjavík | 2170 | Örfirisey | 9 |
| Hafnarnr. | Löndunarhöfn | Skipanr. | Nafn skips | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 |
| 33 | Reykjavík | 2184 | Vigri | 586 | 884 | 132 | ||||||
| 33 | Reykjavík | 2407 | Hákon | 45 | 547 | |||||||
| 33 | Höfn alls: | 9 | 586 | 1.117 | 132 | 45 | 547 | |||||
| 35 | Akranes | 2253 | Elliði | 940 | 515 | |||||||
| 35 | Akranes | 2287 | Bjarni Ólafsson | 858 | 876 | 162 | ||||||
| 35 | Akranes | 2334 | Óli í Sandgerði | 1.587 | 3.488 | |||||||
| 35 | Akranes | 2345 | Hoffell | 3.877 | ||||||||
| 35 | Akranes | 2388 | Ingunn | 15.429 | 27.134 | 21.650 | ||||||
| 35 | Akranes | 2407 | Hákon | 1.267 | ||||||||
| 35 | Höfn alls: | 1.798 | 2.102 | 3.488 | 16.305 | 27.134 | 26.956 | |||||
| 93 | Siglufjörður | 2412 | Ásgrímur Halldórsson | 966 | ||||||||
| 93 | Höfn alls: | 966 | ||||||||||
| 95 | Ólafsfjörður | 1360 | Kleifaberg | 4 | 0 | |||||||
| 95 | Ólafsfjörður | 1530 | Sigurbjörg | 40 | ||||||||
| 95 | Höfn alls: | 43 | 0 | |||||||||
| 107 | Akureyri | 1293 | Börkur | 1.554 | ||||||||
| 107 | Höfn alls: | 1.554 | ||||||||||
| 119 | Raufarhöfn | 226 | Beitir | 1.136 | ||||||||
| 119 | Raufarhöfn | 2412 | Ásgrímur Halldórsson | 853 | 1.014 | |||||||
| 119 | Höfn alls: | 853 | 2.150 | |||||||||
| 121 | Þórshöfn | 1031 | Bergur | 2.108 | ||||||||
| 121 | Þórshöfn | 1508 | Björg Jónsdóttir | 85 | ||||||||
| 121 | Þórshöfn | 1903 | Þorsteinn | 1.028 | 1.411 | |||||||
| 121 | Höfn alls: | 1.113 | 1.411 | 2.108 | ||||||||
| 125 | Vopnafjörður | 1742 | Faxi | 1.421 | ||||||||
| 125 | Vopnafjörður | 1807 | Áskell | 952 | ||||||||
| 125 | Vopnafjörður | 2336 | Sunnuberg | 7.250 | 13.126 | 14.523 | 11.400 | 34.281 | ||||
| 125 | Vopnafjörður | 2388 | Ingunn | 3.755 | 1.877 | |||||||
| 125 | Höfn alls: | 7.250 | 13.126 | 18.278 | 11.400 | 38.531 | ||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 226 | Beitir | 1.097 | 3.124 | |||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 1031 | Bergur | 3.111 | ||||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 1293 | Börkur | 886 | 8.571 | |||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 1411 | Huginn | 400 | 824 | 898 | ||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 1508 | Björg Jónsdóttir | 1.267 | ||||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 1610 | Ísleifur | 366 | ||||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 1807 | Áskell | 7.513 | 4.543 | 3.555 | ||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 1809 | Jóna Eðvalds | 9.380 |
| Hafnarnr. | Löndunarhöfn | Skipanr. | Nafn skips | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 |
| 131 | Seyðisfjörður | 1903 | Þorsteinn | 1.347 | ||||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 2212 | Baldvin Þorsteinsson | 854 | ||||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 2253 | Elliði | 849 | ||||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 2287 | Bjarni Ólafsson | 958 | 2.791 | 6.664 | 11.511 | 14.595 | 13.147 | |||
| 131 | Seyðisfjörður | 2329 | Guðmundur Ólafur | 17.856 | 16.860 | 4.280 | 2.285 | 926 | ||||
| 131 | Seyðisfjörður | 2334 | Óli í Sandgerði | 5.335 | 1.036 | |||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 2336 | Sunnuberg | 60 | ||||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 2363 | Gullberg | 1.022 | 393 | |||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 2388 | Ingunn | 377 | 1.852 | |||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 2407 | Hákon | 6.922 | ||||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 2410 | Vilhelm Þorsteinsson | 1.343 | ||||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 2411 | Huginn | 23.323 | 7.452 | 2.319 | ||||||
| 131 | Seyðisfjörður | 2412 | Ásgrímur Halldórsson | 12.446 | 21.233 | 24.551 | 12.294 | |||||
| 131 | Seyðisfjörður | 2530 | Svanur | 739 | 3.200 | |||||||
| 131 | Höfn alls: | 1.358 | 37.459 | 42.839 | 65.823 | 49.622 | 69.255 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 130 | Júpiter | 736 | ||||||||
| 135 | Neskaupstaður | 226 | Beitir | 360 | 302 | 1.830 | 10.583 | 7.176 | 12.665 | 6.356 | 4.909 | 12.295 |
| 135 | Neskaupstaður | 1020 | Guðmundur Ólafur ll | 17 | ||||||||
| 135 | Neskaupstaður | 1031 | Bergur | 506 | 734 | 770 | ||||||
| 135 | Neskaupstaður | 1293 | Börkur | 3.193 | 8.539 | 32.370 | 34.168 | 36.290 | 46.879 | |||
| 135 | Neskaupstaður | 1413 | Harpa | 238 | 153 | |||||||
| 135 | Neskaupstaður | 1501 | Þórshamar | 100 | ||||||||
| 135 | Neskaupstaður | 1504 | Neptúnus | 1.213 | ||||||||
| 135 | Neskaupstaður | 1556 | Seley | 27 | ||||||||
| 135 | Neskaupstaður | 1742 | Faxi | 1.437 | 6.129 | 2.876 | ||||||
| 135 | Neskaupstaður | 1807 | Áskell | 1.063 | 870 | 9.595 | 6.478 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 1809 | Jóna Eðvalds | 1.779 | ||||||||
| 135 | Neskaupstaður | 1903 | Þorsteinn | 3.256 | 12.070 | 11.788 | 4.731 | 2.600 | ||||
| 135 | Neskaupstaður | 2212 | Baldvin Þorsteinsson | 4.745 | ||||||||
| 135 | Neskaupstaður | 2253 | Elliði | 1.496 | 455 | |||||||
| 135 | Neskaupstaður | 2287 | Bjarni Ólafsson | 980 | 689 | 10.922 | ||||||
| 135 | Neskaupstaður | 2312 | Gardar | 3.670 | ||||||||
| 135 | Neskaupstaður | 2329 | Guðmundur Ólafur | 1.419 | ||||||||
| 135 | Neskaupstaður | 2334 | Óli í Sandgerði | 949 | ||||||||
| 135 | Neskaupstaður | 2336 | Sunnuberg | 142 | 1.301 | |||||||
| 135 | Neskaupstaður | 2363 | Gullberg | 39 | 723 | |||||||
| 135 | Neskaupstaður | 2407 | Hákon | 5.882 | 4.639 |
| Hafnarnr. | Löndunarhöfn | Skipanr. | Nafn skips | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 |
| 135 | Neskaupstaður | 2410 | Vilhelm Þorsteinsson | 1.332 | 5.214 | |||||||
| 135 | Neskaupstaður | 2411 | Huginn | 1.252 | ||||||||
| 135 | Neskaupstaður | 2412 | Ásgrímur Halldórsson | 986 | 1.051 | 2.514 | 7.327 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 2413 | Guðrún Gísladóttir | 144 | ||||||||
| 135 | Neskaupstaður | 2530 | Svanur | 1.697 | ||||||||
| 135 | Höfn alls: | 360 | 302 | 7.562 | 30.804 | 30.790 | 54.408 | 60.716 | 56.602 | 105.102 | ||
| 137 | Eskifjörður | 155 | Jón Kjartansson | 5.156 | 1.248 | 21.684 | 33.686 | 27.625 | 45.248 | |||
| 137 | Eskifjörður | 1031 | Bergur | 903 | ||||||||
| 137 | Eskifjörður | 1525 | Hólmaborg | 1.062 | 4.754 | 12.026 | 23.521 | 45.555 | 28.449 | 46.611 | ||
| 137 | Eskifjörður | 1742 | Faxi | 122 | 1.158 | 5.171 | 796 | 4.562 | 1.676 | |||
| 137 | Eskifjörður | 1807 | Áskell | 1.177 | 295 | 133 | ||||||
| 137 | Eskifjörður | 1903 | Þorsteinn | 86 | 35 | |||||||
| 137 | Eskifjörður | 2253 | Elliði | 182 | 1.076 | 1.844 | ||||||
| 137 | Eskifjörður | 2275 | Jón Sigurðsson | 101 | ||||||||
| 137 | Eskifjörður | 2287 | Bjarni Ólafsson | 4.785 | ||||||||
| 137 | Eskifjörður | 2312 | Gardar | 1.044 | ||||||||
| 137 | Eskifjörður | 2329 | Guðmundur Ólafur | 202 | 153 | |||||||
| 137 | Eskifjörður | 2334 | Óli í Sandgerði | 6.928 | 5.815 | |||||||
| 137 | Eskifjörður | 2336 | Sunnuberg | 54 | ||||||||
| 137 | Eskifjörður | 2345 | Hoffell | 3.874 | ||||||||
| 137 | Eskifjörður | 2363 | Gullberg | 373 | ||||||||
| 137 | Eskifjörður | 2388 | Ingunn | 517 | 1.789 | |||||||
| 137 | Höfn alls: | 101 | 1.366 | 18.059 | 29.024 | 57.075 | 84.320 | 56.074 | 95.457 | |||
| 139 | Reyðarfjörður | 2212 | Baldvin Þorsteinsson | 829 | ||||||||
| 139 | Reyðarfjörður | 2312 | Gardar | 866 | ||||||||
| 139 | Höfn alls: | 866 | 829 | |||||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 130 | Júpiter | 175 | ||||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 155 | Jón Kjartansson | 1.558 | ||||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 1031 | Bergur | 18 | 7.395 | 243 | ||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 1293 | Börkur | 1.234 | ||||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 1411 | Huginn | 914 | 1.316 | |||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 1416 | Steinunn | 4 | ||||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 1504 | Neptúnus | 98 | ||||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 1525 | Hólmaborg | 3.693 | ||||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 1610 | Ísleifur | 293 | ||||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 1742 | Faxi | 63 | 1.420 | 211 | ||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 1807 | Áskell | 326 | 843 |
| Hafnarnr. | Löndunarhöfn | Skipanr. | Nafn skips | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 |
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 1903 | Þorsteinn | 1.529 | ||||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 2277 | Antares | 132 | ||||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 2287 | Bjarni Ólafsson | 1.246 | 1.122 | 2.050 | ||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 2334 | Óli í Sandgerði | 1.035 | 2.308 | |||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 2336 | Sunnuberg | 32 | 1.368 | |||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 2345 | Hoffell | 205 | 11.763 | 10.066 | 6.306 | 13.570 | 25.472 | |||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 2388 | Ingunn | 3.219 | 7.891 | |||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 2410 | Vilhelm Þorsteinsson | 3.539 | ||||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 2413 | Guðrún Gísladóttir | 2.308 | ||||||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 2530 | Svanur | 108 | ||||||||
| 141 | Höfn alls: | 2.365 | 15.372 | 20.355 | 25.810 | 17.489 | 33.682 | |||||
| 147 | Djúpivogur | 1413 | Harpa | 781 | ||||||||
| 147 | Djúpivogur | 2281 | Sighvatur Bjarnason | 1.092 | ||||||||
| 147 | Djúpivogur | 2345 | Hoffell | 1.156 | ||||||||
| 147 | Djúpivogur | 2411 | Huginn | 6.113 | ||||||||
| 147 | Höfn alls: | 781 | 8.361 | |||||||||
| 149 | Hornafjörður | 1171 | Leifur Halldórsson | 53 | ||||||||
| 149 | Hornafjörður | 1416 | Steinunn | 15 | ||||||||
| 149 | Hornafjörður | 2233 | Jóna Eðvalds | 48 | ||||||||
| 149 | Hornafjörður | 2281 | Sighvatur Bjarnason | 656 | ||||||||
| 149 | Hornafjörður | 2412 | Ásgrímur Halldórsson | 15 | 52 | |||||||
| 149 | Höfn alls: | 101 | 656 | 15 | 67 | |||||||
| 159 | Erlendis | 130 | Júpiter | 182 | ||||||||
| 159 | Erlendis | 155 | Jón Kjartansson | 687 | 4.751 | 450 | ||||||
| 159 | Erlendis | 226 | Beitir | 1.670 | 66 | |||||||
| 159 | Erlendis | 1012 | Örn | 85 | ||||||||
| 159 | Erlendis | 1031 | Bergur | 295 | 6.272 | |||||||
| 159 | Erlendis | 1293 | Börkur | 2.569 | 3.456 | 2.035 | ||||||
| 159 | Erlendis | 1411 | Huginn | 138 | ||||||||
| 159 | Erlendis | 1504 | Neptúnus | 591 | ||||||||
| 159 | Erlendis | 1525 | Hólmaborg | 2.227 | 2.507 | |||||||
| 159 | Erlendis | 1610 | Ísleifur | 74 | ||||||||
| 159 | Erlendis | 1742 | Faxi | 444 | 502 | 14.044 | ||||||
| 159 | Erlendis | 1807 | Áskell | 2.537 | 3.072 | 2.103 | ||||||
| 159 | Erlendis | 1903 | Þorsteinn | 3.667 | 199 | |||||||
| 159 | Erlendis | 2287 | Bjarni Ólafsson | 479 | 2.829 | 5.503 | 2.713 | |||||
| 159 | Erlendis | 2312 | Gardar | 3.882 |
| Hafnarnr. | Löndunarhöfn | Skipanr. | Nafn skips | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 |
| 159 | Erlendis | 2329 | Guðmundur Ólafur | 69 | 1.467 | 18 | ||||||
| 159 | Erlendis | 2334 | Óli í Sandgerði | 3.231 | 5.117 | |||||||
| 159 | Erlendis | 2336 | Sunnuberg | 940 | 1.218 | 2.769 | ||||||
| 159 | Erlendis | 2345 | Hoffell | 1.578 | 2.748 | 2.143 | ||||||
| 159 | Erlendis | 2363 | Gullberg | 543 | 336 | 89 | ||||||
| 159 | Erlendis | 2388 | Ingunn | 10.990 | ||||||||
| 159 | Erlendis | 2410 | Vilhelm Þorsteinsson | 4.154 | ||||||||
| 159 | Erlendis | 2411 | Huginn | 10.836 | ||||||||
| 159 | Erlendis | 2412 | Ásgrímur Halldórsson | 450 | 1.594 | |||||||
| 159 | Höfn alls: | 4.361 | 23.904 | 35.575 | 56.480 | |||||||
| 160 | Skotland | 1293 | Börkur | 1.270 | ||||||||
| 160 | Skotland | 2411 | Huginn | 2.770 | ||||||||
| 160 | Höfn alls: | 4.040 | ||||||||||
| 163 | Noregur | 2410 | Vilhelm Þorsteinsson | 42 | ||||||||
| 163 | Noregur | 2411 | Huginn | 20 | ||||||||
| 163 | Höfn alls: | 62 | ||||||||||
| 167 | Færeyjar | 155 | Jón Kjartansson | 3.714 | ||||||||
| 167 | Færeyjar | 226 | Beitir | 2.069 | ||||||||
| 167 | Færeyjar | 1031 | Bergur | 803 | 5.348 | |||||||
| 167 | Færeyjar | 1293 | Börkur | 815 | 4.064 | |||||||
| 167 | Færeyjar | 1525 | Hólmaborg | 2.399 | ||||||||
| 167 | Færeyjar | 1742 | Faxi | 15 | 3.876 | |||||||
| 167 | Færeyjar | 1807 | Áskell | 3.168 | ||||||||
| 167 | Færeyjar | 2212 | Baldvin Þorsteinsson | 1.863 | ||||||||
| 167 | Færeyjar | 2281 | Sighvatur Bjarnason | 264 | ||||||||
| 167 | Færeyjar | 2287 | Bjarni Ólafsson | 1.793 | ||||||||
| 167 | Færeyjar | 2336 | Sunnuberg | 1.211 | 287 | |||||||
| 167 | Færeyjar | 2345 | Hoffell | 17 | 2.280 | |||||||
| 167 | Færeyjar | 2388 | Ingunn | 11.896 | ||||||||
| 167 | Færeyjar | 2407 | Hákon | 1.423 | ||||||||
| 167 | Færeyjar | 2411 | Huginn | 5.886 | 1.384 | |||||||
| 167 | Færeyjar | 2413 | Guðrún Gísladóttir | 243 | ||||||||
| 167 | Færeyjar | 2530 | Svanur | 1.108 | ||||||||
| 167 | Höfn alls: | 8.990 | 46.936 | |||||||||
| Samtals: | 369 | 502 | 10.464 | 68.783 | 160.425 | 259.161 | 365.103 | 286.429 | 501.494 |
| Hafnarnr. | Löndunarhöfn | Skipanr. | Nafn skips | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 |
| 1 | Vestmannaeyjar | 4606 | Christian í Grjótinum | 1.905 | |||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 4731 | Tróndur í Götu | 2.637 | |||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 4925 | Serene | 2.000 | |||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 4978 | Antares | 1.602 | |||||
| 1 | Vestmannaeyjar | 4979 | Zephyr | 3.302 | |||||
| 1 | Höfn alls: | 4.904 | 2.000 | 4.542 | |||||
| 21 | Keflavík | 4731 | Tróndur í Götu | 2.404 | |||||
| 21 | Keflavík | 4802 | Gunnar Langva | 1.257 | |||||
| 21 | Keflavík | 4980 | Quantes | 2.650 | |||||
| 21 | Keflavík | 4991 | Kristína S | 1.291 | |||||
| 21 | Höfn alls: | 7.601 | |||||||
| 107 | Akureyri | 4975 | Jón Sigurðsson | 457 | |||||
| 107 | Höfn alls: | 457 | |||||||
| 119 | Raufarhöfn | 4188 | Polar | 606 | |||||
| 119 | Raufarhöfn | 4226 | Sunnanö | 550 | |||||
| 119 | Raufarhöfn | 4228 | Rigel | 355 | |||||
| 119 | Höfn alls: | 1.511 | |||||||
| 121 | Þórshöfn | 4883 | Strömfjord | 300 | |||||
| 121 | Þórshöfn | 4975 | Jón Sigurðsson | 812 | |||||
| 121 | Höfn alls: | 812 | 300 | ||||||
| 125 | Vopnafjörður | 4000 | Krúnborg | 2.366 | 2.372 | ||||
| 125 | Vopnafjörður | 4163 | Cazador | 198 | |||||
| 125 | Vopnafjörður | 4404 | M/b Philorth | 846 | |||||
| 125 | Vopnafjörður | 4463 | Júpiter FD-42 OW-2011 | 3.768 | 1.319 | ||||
| 125 | Vopnafjörður | 4606 | Christian í Grjótinum | 1.912 | 3.866 | 1.943 | |||
| 125 | Vopnafjörður | 4731 | Tróndur í Götu | 2.550 | |||||
| 125 | Vopnafjörður | 4988 | Fertile | 845 | |||||
| 125 | Höfn alls: | 3.603 | 10.184 | 5.628 | 2.570 | ||||
| 131 | Seyðisfjörður | 4199 | Högaberg | 4.183 | |||||
| 131 | Seyðisfjörður | 4224 | Vastfjord | 396 | |||||
| 131 | Seyðisfjörður | 4782 | Júpíter | 275 | |||||
| 131 | Seyðisfjörður | 4985 | Kings Cross | 1.830 | |||||
| 131 | Seyðisfjörður | 4986 | Mögsterhav | 2.389 | |||||
| 131 | Höfn alls: | 4.219 | 275 | 4.579 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4000 | Krúnborg | 2.492 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4181 | Bristol | 679 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4199 | Högaberg | 8.831 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4219 | Kamito | 402 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4220 | Ingrid Gai | 298 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4221 | Midsjö | 920 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4222 | Skawbank | 514 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4223 | Thomas Bach | 485 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4225 | Monsun | 619 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4226 | Sunnanö | 539 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4227 | Veronica | 159 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4229 | Themis | 376 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4606 | Christian í Grjótinum | 1.934 | 3.920 | ||||
| 135 | Neskaupstaður | 4975 | Jón Sigurðsson | 1.872 | 186 | 1.737 | |||
| 135 | Neskaupstaður | 4978 | Antares | 2.212 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4988 | Fertile | 711 | |||||
| 135 | Neskaupstaður | 4989 | Chris Andra | 1.047 | |||||
| 135 | Höfn alls: | 5.842 | 2.119 | 8.149 | 13.822 | ||||
| 137 | Eskifjörður | 4000 | Krúnborg | 4.760 | 2.297 | ||||
| 137 | Eskifjörður | 4401 | Nordborg OW2106 | 1.833 | |||||
| 137 | Eskifjörður | 4606 | Christian í Grjótinum | 4.185 | 147 | 1.987 | 1.897 | 3.852 | 1.920 |
| 137 | Eskifjörður | 4685 | Tróndur í Götu | 2.606 | |||||
| 137 | Eskifjörður | 4975 | Jón Sigurðsson | 2.765 | |||||
| 137 | Eskifjörður | 4978 | Antares | 2.371 | |||||
| 137 | Eskifjörður | 4983 | Research | 1.780 | |||||
| 137 | Höfn alls: | 13.707 | 147 | 1.987 | 8.490 | 3.852 | 4.217 | ||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 4000 | Krúnborg | 6.753 | 2.364 | 14.065 | |||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 4206 | Taits | 1.240 | |||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 4211 | Hallarklettur | 547 | |||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 4218 | Orkama | 795 | |||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 4401 | Nordborg OW2106 | 1.753 | 3.852 | ||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 4410 | Murman-2 | 3.609 | |||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 4463 | Júpiter FD-42 OW-2011 | 1.076 | |||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 4606 | Christian í Grjótinum | 3.047 | 9.573 | ||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 4731 | Tróndur í Götu | 2.587 | 9.913 | 10.416 | |||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 4975 | Jón Sigurðsson | 853 | 836 | ||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 4980 | Quantes | 999 | |||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 4981 | H.Östervold | 240 | |||||
| 141 | Fáskrúðsfjörður | 4989 | Chris Andra | 1.090 | |||||
| 141 | Höfn alls: | 1.851 | 3.047 | 10.176 | 17.639 | 42.894 | |||
| 147 | Djúpivogur | 4205 | Nordbúgvin | 1.324 | |||||
| 147 | Djúpivogur | 4211 | Hallarklettur | 483 | |||||
| 147 | Höfn alls: | 1.807 | |||||||
| Samtals: | 38.581 | 8.917 | 24.346 | 40.718 | 6.697 | 73.672 |
3. Hvernig hefur veiðin skipst milli þjóða sl. 10 ár?
Í töflu 7 er gerð grein fyrir skiptingu veiða milli allra þjóða sem skráð hafa kolmunnafla á árunum 1993–2002. Ljóst er að veiðarnar hafa þróast mikið á þessu tímabili, sérstaklega hjá Íslendingum, Færeyingum, Norðmönnum og Rússum. Hafa ber þó í huga þegar þetta er skoðað að réttur einstakra þjóða til veiða úr deilistofnum byggist ekki nema að takmörkuðu leyti á veiðireynslu úr þeim stofnum en mikið fremur á líffræðilegri dreifingu stofnsins, auk annarra þátta, svo sem framlagi til rannsókna og því hversu háð einstök ríki eru fiskveiðum, bæði almennt og kolmunna sérstaklega.
Tafla 7. Skipting veiða allra þjóða, skráður kolmunnafli 1993–2002.
| Land | 1993 | 1994 | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | Samtals |
| Eistland | 1033 | 4342 | 7754 | 10982 | 5678 | 6320 | 0 | 0 | 0 | 0 | 36109 |
| Færeyjar | 16506 | 24342 | 26009 | 24671 | 28546 | 71218 | 105006 | 147991 | 259761 | 205421 | 909471 |
| Ísland | 0 | 0 | 369 | 302 | 10464 | 68681 | 160425 | 260857 | 365101 | 287336 | 1153535 |
| Japan | 1742 | 2574 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 4316 |
| Lettland | 10626 | 2582 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 13208 |
| Litháen | 2046 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 2046 |
| Noregur | 211489 | 229643 | 339837 | 394950 | 347311 | 560568 | 528797 | 533280 | 573311 | 571479 | 4290665 |
| Rússland | 139000 | 116781 | 107220 | 86855 | 118656 | 130042 | 178179 | 245198 | 315478 | 290068 | 1727477 |
| Evrópusambandsríki | |||||||||||
| Bretland | 2284 | 4470 | 10583 | 14326 | 33398 | 92383 | 98853 | 42478 | 50147 | 26403 | 375325 |
| Danmörk | 41053 | 20456 | 12439 | 52101 | 26270 | 61523 | 64653 | 57686 | 53333 | 51279 | 440793 |
| Frakkland | 1195 | 0 | 720 | 6442 | 12446 | 7984 | 6662 | 13481 | 13480 | 14688 | 77098 |
| Holland | 18482 | 21076 | 26775 | 17669 | 24469 | 27907 | 35843 | 46128 | 73595 | 37529 | 329473 |
| Írland | 0 | 3 | 222 | 1709 | 25785 | 45635 | 35240 | 25200 | 29854 | 17825 | 181473 |
| Portúgal | 1236 | 1350 | 2285 | 3561 | 2439 | 1900 | 2625 | 2032 | 1746 | 1659 | 20833 |
| Spánn | 31020 | 28118 | 25379 | 21538 | 27683 | 27490 | 23777 | 22622 | 23218 | 17506 | 248351 |
| Svíþjóð | 2867 | 3675 | 13000 | 4000 | 4568 | 9299 | 12993 | 3319 | 2086 | 18549 | 74356 |
| Þýskaland | 100 | 2 | 6313 | 6876 | 4724 | 17969 | 3170 | 12655 | 19060 | 17050 | 87919 |
| ESB-ríki samtals | 98237 |
79150 |
97716 |
128222 |
161782 |
292090 |
283816 |
225601 |
266519 |
202488 |
1835621 |
| Samtals | 480679 | 459414 | 578905 | 645982 | 672437 | 1128919 | 1256223 | 1412927 | 1780170 | 1556792 | 9972448 |
Veiðisvæði eru sýnd á eftirfarandi myndum. Veiðarnar hafa þróast mikið á undanförnum 10 árum með tilliti til veiðisvæða og fara nú fram á mun stærra svæði en áður. Er hér sérstaklega um að ræða veiðar norðar en áður var og að miklu leyti innan íslenskrar lögsögu, þar sem gjöful kolmunnamið er að finna.
Á fyrstu myndinni er sýnd hlutfallsleg dreifing kolmunnaaflans eftir svæðum árið 2002. Þar sést að kolmunnaflinn dreifist yfir geysimikið svæði í Norður-Atlantshafi. Af um 1,55 millj. tonna afla veiddust um 830 þús. tonn vestan Bretlandseyja (á hryggningartíma í janúar– mars í lögsögu Evrópusambandsins og alþjóðlegu hafsvæði) og við Færeyjar. Um 450 þús. tonn við Ísland og í Noregshafi, um 145 þús. tonn við sunnanverðan Noreg (norsku rennunni) og Norðursjó og um 40 þús. tonn við Spán og Portúgal.
Á næstu mynd er sýnd hlutfallsleg dreifing kolmunnaflans eftir ársfjórðungum árið 2000.
Á síðustu myndinni er sýnd hlutfallsleg dreifing íslenska kolmunnaaflans árin 2002 og 2003.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hlutfallsleg dreifing kolmunnaaflans 2002.
Hlutfallsleg dreifing kolmunnaflans eftir ársfjórðungum 2000.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Kolmunnaafli Íslendinga 2002. Kolmunnaafli Íslendinga 2003.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
5. Hvert er mat sérfræðinga á stöðu kolmunnastofnsins nú og hvernig hafa spár um veiðiþol gengið eftir sl. 10 ár?
Leitað var til Sveins Sveinbjörnssonar fiskifræðings Hafrannsóknarstofnunarinnar og byggist eftirfarandi á svari hans.
Meðalnýliðun á árunum 1981–85 var 10,5 milljarðar 1-árs nýliða en á árunum 1996–2002 tæplega 30 milljarðar 1-árs nýliða og hafa allir árgangarnir á seinna tímabilinu verið langtum stærri en langtímameðaltal, sjá mynd.
1-árs nýliðun 1981–2002.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Talið er að varúðarveiðidánartala (Fpa) fyrir kolmunna sé 0,32.Veiðidánartalan hefur verið 0,14-0,50 á tímabilinu 1981–2002. Á tímabilinu 1986–1990 var hún nokkuð yfir varúðarveiðidauða og frá 2000 er veiðidauðinn einnig stærri en Fpa, mest 0,5 árið 2002. Árið 2003 er heildarkolmunnaaflinn álitinn hafa verið 2,3–2,4 millj. tonna svo búast má við enn meiri veiðidauða 2003, sjá mynd.
Afli og veiðidánartala 1981–2003.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Afli á árunum 1987–94 var minni en ráðlagður afli Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Á árunum 1995–97 var aflinn nálægt ráðlögðum afla eða nokkuð meiri en frá 1998 hefur aflinn farið langt yfir ráðlagðan afla og mest árið 2003, þá var ráðlagður afli 600 þús. tonn en varð meira en 2,3 millj. tonna, sjá mynd.
Ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins og afli.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Þrátt fyrir stórauknar veiðar umfram ráðgjöf er stofnmatið 2003 mun bjartsýnna en árin á undan (1999–2002) og er ástæðan að nýliðunarárgangarnir á undanförnum árum eru miklu sterkari en fyrra mat gaf til kynna. Þar af leiðandi hefur verið tilhneiging til að vanmeta stofnstærð og ofmeta veiðidauða. Það er talið að án þessarar miklu nýliðunar síðan 1995 væri stofninn í slæmu ástandi. Varúðarnálgun á stærð hrygningarstofnsins (Bpa) er 2,25 milljónir tonna en hrygningarstofninn á árunum 1998–2003 er nú metinn 3,3–4,2 millj. tonna, sjá mynd.
Stærð hrygningarstofns 1981–2003.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Á næstu dögum mun sérfræðingahópur innan Alþjóðahafrannsóknaráðsins skoða mismunandi aðferðir í stofnstærðarmati og reyna að komast að hver eigi best við í ljósi reynslunnar. Íslendingar munu taka þátt í þeirri vinnu.
6. Hvaða kröfur um aflahlutdeild gera þær þjóðir og ríkjasambönd sem koma að samningum um veiðar á kolmunna og með hvaða rökum?
Kröfur einstakra þjóða og ríkjasambanda eru útlistaðar í töflu 8, og byggjast þær á mismunandi röksemdum.
Íslensk stjórnvöld hafa að meginstefnu byggt kröfur sínar á líffræðilegri dreifingu stofnsins og rétti strandríkis til að nýta þær auðlindir sem finnast innan lögsögu þess, að auki hefur verið vísað til framlags til rannsókna og þess hve háðir Íslendingar eru fiskveiðum. Jafnframt þessu er ákveðinnar hlutdeildar krafist af veiðum á úthafinu á grundvelli veiðireynslu. Noregur hefur lagt áherslu á líffræðilega dreifingu stofnsins í málflutningi sínum, Evrópusambandið á veiðireynslu og hvar veiðin fór fram á tímabilinu 1977–97, en málflutningur Færeyja hefur byggst á blöndu hinna ýmsu viðmiða. Ekki er ljóst á hverju Grænland byggir kröfu sína, Rússland byggir helst á veiðireynslu en hefur reynt að sýna fram á stöðu sína sem strandríki.
Tafla 8. Kröfur þjóða og ríkjasambanda.
| Ísland | 23% |
| Evrópusambandið | 58% |
| Noregur | 37% |
| Færeyjar | 37% |
| Rússland | 20% |
| Grænland | 1% |