Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 636. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 950  —  636. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um hálkuvarnir á þjóðvegum.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hvaða vinnureglur gilda hjá Vegagerðinni um aðgerðir til hálkuvarna á þjóðvegum landsins?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir samræmdum reglum um hálkuvarnir, líkt og gilda t.d. um snjómokstur, til að auka öryggi í umferðinni á þjóðvegum landsins?