Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 625. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 973  —  625. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um eignir lífeyrissjóða sem hlutfall af þjóðarframleiðslu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hverjar eru heildareignir lífeyrissjóða hér á landi sem hlutfall af þjóðarframleiðslu?
     2.      Hversu miklar eru eignir lífeyrissjóða í öðrum löndum OECD?


    Til að auðvelda samanburð við önnur OECD-lönd er miðað við hlutfall af vergri landsframleiðslu en ekki þjóðarframleiðslu.

Heildareignir lífeyrissjóða á Íslandi sem hlutfall af landsframleiðslu, í milljörðum kr.
Heildareignir lífeyrissjóða VLF Heildareignir sem hlutfall af VLF
2000 569,5 662,4 86%
2001 648,1 745,2 87%
2002 684,0 779,0 88%

Heildareignir lífeyrissjóða í OECD-ríkjum 2001, í milljörðum dollara.
Land

Heildareignir lífeyrissjóða

Hlutfall af VLF (%)
Ástralía 417,9 62
Austurríki1 22,8 1
Belgía1 13,4 6
Kanada 418,8 48
Tékkland 1,8 4
Danmörk 39,0 22
Finnland 10,9 9
Frakkland - -
Þýskaland1 63,0 3
Grikkland2 4,7 4
Ungverjaland 2,3 5
Írland1 48,5 52
Ítalía1 48,1 4
Japan 811,6 21
Kórea1 11,5 3
Luxemborg .. ..
Mexíkó 11,4 2
Holland 383,2 113
Nýja-Sjáland 8,6 11
Noregur4 12,9 8
Pólland 4,9 3
Portúgal1 12,4 12
Slóvakía - 1
Spánn2 12,8 2
Svíþjóð1 6,8 3
Sviss3 268,6 102
Tyrkland .. ..
Bretland1 1.226,3 85
Bandaríkin 5.115,9 75
1 = Gögn frá árinu 2000.
2 = Gögn frá árinu 1999.
3 = Gögn frá árinu 1998.
4 = Án olíusjóðsins.
- = Óverulegt.
.. = Vantar gögn.