Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 626. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 974 — 626. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þór Þórðarsonar um hlutfall á milli lífeyrisþega og fólks á vinnumarkaði.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvert er hlutfallið á milli fjölda lífeyrisþega og fólks á vinnumarkaði hér á landi?
2. Hvert er hlutfallið á milli fjölda lífeyrisþega og fólks á vinnumarkaði í OECD-ríkjunum?
Samkvæmt upplýsingum frá OECD var hlutfallið á milli fjölda lífeyrisþega og fólks á vinnumarkaði hér á landi 20,3 á síðasta ári.
Hlutfallið á milli fjölda lífeyrisþega og fólks á vinnumarkaði í OECD-ríkjunum kemur fram í töflunni hér á eftir.
Nokkrum vandkvæðum er bundið að finna hlutfallið á milli fjölda ellilífeyrisþega og fólks á vinnumarkaði í OECD-ríkjunum. Eftirlaunaaldur er nokkuð mismunandi eftir löndum og sums staðar einnig eftir kyni. Fyrrgreindar upplýsingar sýna hlutfallið á milli fólks 65 ára og eldri og fólks á aldrinum 20–64 ára.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 974 — 626. mál.
Svar

| Ástralía | 20,4 |
| Austurríki | 25,2 |
| Bandaríkin | 21,7 |
| Belgía | 28,1 |
| Bretland | 26,6 |
| Danmörk | 24,2 |
| Finnland | 25,9 |
| Frakkland | 27,2 |
| Holland | 21,9 |
| Írland | 19,7 |
| Ítalía | 28,8 |
| Japan | 27,7 |
| Kanada | 20.4 |
| Kórea | 11,3 |
| Noregur | 25,6 |
| Nýja-Sjáland | 20,4 |
| Portúgal | 26,7 |
| Pólland | 20,4 |
| Spánn | 27,1 |
| Svíþjóð | 29,4 |
| Swiss | 25,1 |
| Tékkland | 21,9 |
| Ungverjaland | 23,7 |
| Þýskaland | 26,6 |
| Meðaltal | 23,8 |
| Heimild: OECD, 2003. | |