Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 599. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 975  —  599. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Atla Gíslasonar um eignarskatt, sérstakan eignarskatt og sérstakan tekjuskatt.

     1.      Hverjar voru heildartekjur ríkissjóðs af álagningu eignarskatts á einstaklinga annars vegar og lögaðila hins vegar gjaldárin 2001 og 2002?

Eignarskattar einstaklinga og lögaðila 2001 og 2002, í millj kr.


2001 2002
Einstaklingar 3.095 3.302
Lögaðilar 1.999 1.873

     2.      Hverjar voru heildartekjur ríkissjóðs af álagningu sérstaks eignarskatts gjaldárin 2001 og 2002?

Sérstakur eignarskattar einstaklinga og lögaðila 2001 og 2002, í millj. kr.


2001 2002
Einstaklingar 356 353
Lögaðilar 416 389

     3.      Hvert var tekjutap ríkissjóðs gjaldárið 2003 vegna lækkunar álagningarhlutfalls eignarskatts úr 1,2% í 0,6%?

    Bein tekjulækkun ríkissjóðs vegna lækkunar álagningarhlutfalls eignarskatts úr 1,2% í 0,6% er áætluð um 1.900 millj. kr.

     4.      Hverjar voru heildartekjur ríkissjóðs af álagningu sérstaks tekjuskatts gjaldárin 2001, 2002 og 2003?


Heildartekjur ríkissjóðs af sérstökum tekjuskatti


álagningarárin 2001, 2002 og 2003 í millj. kr.

2001 2002 2003
1.272 1.644 1.077

     5.      Hvert er áætlað tekjutap ríkissjóðs vegna lækkunar sérstaks tekjuskatts úr 7% gjaldárið 2003 í 5% gjaldárið 2004, í 4% gjaldárið 2005 og í 2% gjaldárið 2006 miðað við óbreytt tekjumörk?
    Bein tekjulækkun ríkissjóðs vegna lækkunar sérstaks tekjuskatts úr 7% í 5% á álagningarárinu 2004 er áætluð um 200 millj. kr. Sambærileg tala vegna lækkunar sérstaks tekjuskatts úr 5% í 4% álagningarárið 2005 er um 120 millj. kr. og um 250 millj. kr. vegna lækkunar sérstaks tekjuskatts úr 4% í 2% álagningarárið 2006. Gert er ráð fyrir að tekjumörk hækki um 2,5% á ári. Á móti vega tekjuáhrif aukinnar veltu og almennt aukinna umsvifa í efnahagslífinu.