Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 573. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 976 — 573. mál.
samgönguráðherra við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar um farsíma- og tölvusamband í dreifbýli.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margir GSM-sendar voru settir upp árlega í dreifbýli árin 1998–2002, sundurliðað eftir landshlutum?
2. Mun ráðherra beita sér fyrir því að þétta GSM-samband á vegum landsins?
3. Mun ráðherra beita sér fyrir því að bæta tölvusamband, t.d. með ADSL-tengingu, í dreifbýli þar sem búa færri en 500 íbúar?
Stjórnvöld hafa það að meginmarkmiði að tryggja hagkvæm, aðgengileg og örugg fjarskipti, fyrir alla Íslendinga.
Ráðherra hefur lagt ríka áherslu á uppbyggingu GSM-kerfa, m.a. með ákvörðun um reikisamninga í fjarskiptalögum. Með rúmum reikiheimildum ættu símafyrirtæki að geta byggt upp hagkvæmara dreifikerfi og jafnframt komið til móts við notendur. Þá má geta þess að á vegum Vegagerðarinnar er unnið að því að þróa hagkvæmari leiðir fyrir GSM-sambönd á fjallvegum.
Í fjarskiptalögunum er kveðið á um rétt notenda til alþjónustu, óháð staðsetningu en til hennar telst m.a. talsímaþjónusta og gagnaflutningsþjónusta með 128 Kb flutningsgetu sem er ISDN-lágmark. Auk þess var að undirlagi ráðuneytisins gerður samningur við Símann haustið 2001 um uppbyggingu á ADSL-þjónustu í stærri þéttbýliskjörnum, sem skilaði m.a. þeim áfanga að sú þjónusta er komin í alla þéttbýlisstaði með yfir 500 íbúa. Á sama tíma var samið um gagnaflutningsþjónustu um ATM-net Símans til að tryggja allt að 2Mb/s flutningsþjónustu til allra þéttbýliskjarna með yfir 150 íbúa eða fleiri og að helstu skólasetrum landsins.
Tryggja verður áframhaldandi uppbyggingu á GSM- og ADSL-þjónustu í dreifbýli og á fjölförnum ferðamannastöðum og verður unnið að gerð slíks samnings.
Ráðherra hefur jafnframt ákveðið að hafin skuli vinna við gerð sérstakrar fjarskiptaáætlunar sem lögð verði fyrir Alþingi næsta haust. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi háttur er hafður á, en fyrirmyndin er m.a. ný samgönguáætlun þar sem allir þræðir samgöngunetsins koma saman í einni heildaráætlun.
Fjarskiptaáætluninni er ætlað að ná til áranna 2005–2010 og hefur samgönguráðherra skipað sérstakan stýrihóp sem hafa mun yfirumsjón með gerð áætlunarinnar. Formaður stýrihópsins er Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar.
Í starfi sínu mun stýrihópurinn hafa til hliðsjónar nýja stefnumótun forsætisráðuneytisins um upplýsingasamfélagið, Auðlindir í allra þágu – Stefnan um upplýsingasamfélagið 2004– 2007.
Við það er miðað að áætlunin geri tillögur um aðgerðir á sem flestum sviðum fjarskipta- og upplýsingatækni ásamt tillögum um tímamörk og kostnað við áætlunina. Helstu þættir sem hópnum er ætlað að skoða við gerð áætlunarinnar eru eftirfarandi:
– Breiðbandsvæðing landsins.
– Stafrænt sjónvarp.
– Farsímasamband á þjóðvegum.
– Net- og upplýsingaöryggi.
– Upplýsingasamfélagið, þ.e. tengsl og samruni fjarskipta og rafræna samskipta.
– Öflug og fjölbreytt þjónusta.
– Að jafna aðgang allra notenda að fullnægjandi og hagkvæmri fjarskiptaþjónustu.
– Samkeppnishæf verðlagning á fjarskiptaþjónustu.
Stýrihópurinn mun hafa samráð við sérstakan vettvang hagsmunaaðila og leita m.a. þar sjónarmiða og tillagna um aðgerðir.
Stýrihópnum er ætlað að skila tillögu að nýrri fjarskiptaáætlun eigi síðar en 1. september 2004 og eins og áður sagði er stefnt að því að áætlunin verði lögð fyrir Alþingi næsta haust.
Af þessu má ráða að ætlunin sé að taka m.a. sérstaklega á GSM-sambandi á vegum landsins og háhraðatengingum í dreifbýli.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 976 — 573. mál.
Svar
samgönguráðherra við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar um farsíma- og tölvusamband í dreifbýli.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margir GSM-sendar voru settir upp árlega í dreifbýli árin 1998–2002, sundurliðað eftir landshlutum?
2. Mun ráðherra beita sér fyrir því að þétta GSM-samband á vegum landsins?
3. Mun ráðherra beita sér fyrir því að bæta tölvusamband, t.d. með ADSL-tengingu, í dreifbýli þar sem búa færri en 500 íbúar?
Stjórnvöld hafa það að meginmarkmiði að tryggja hagkvæm, aðgengileg og örugg fjarskipti, fyrir alla Íslendinga.
GSM-sendar settir upp í dreifbýli árin 1998–2002.
| Ár | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland vestra | Norðland eystra | Austurland | Suðurland | Reykjanes |
| 1998 | 7 | 6 | 5 | 2 | 3 | 6 | |
| 1999 | 9 | 8 | 18 | 6 | |||
| 2000 | 8 | 2 | 7 | 11 | 10 | 11 | 6 |
| 2001 | 11 | 1 | 3 | 10 | 2 | 6 | 9 |
| 2002 | 6 | 3 | 1 | 4 | 7 | 7 | 4 |
| Alls | 41 | 12 | 11 | 38 | 21 | 45 | 31 |