Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 266. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 977 — 266. mál.
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Péturs H. Blöndals um greiðslu bóta vegna örorku á grundvelli skaðabótalaga.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvað fengu margir eingreiðslur vegna varanlegrar örorku á árinu 2002 á grundvelli skaðabótalaga? Hversu mikið hefur þeim fjölgað ár frá ári sl. 10 ár?
2. Hver var heildargreiðsla vegna varanlegrar örorku á árinu 2002 á grundvelli skaðabótalaga? Hvernig hafa þessar greiðslur þróast sl. 10 ár með hliðsjón af verðlagi?
3. Hvernig var háttað dreifingu greiðslna á árinu 2002 eftir fjárhæðum bóta?
Þar sem engar upplýsingar lágu fyrir í ráðuneytinu um greiðslu bóta vegna varanlegrar örorku á grundvelli skaðabótalaga var leitað til iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis og þess óskað með bréfi dags. 11. nóvember að ráðuneytið hlutaðist til um öflun upplýsinga. Svar ráðuneytisins hefur nú borist ásamt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu.
Fram kemur að Fjármálaeftirlitið varð við því að afla upplýsinga þar sem slík upplýsingaöflun og úrvinnsla kæmi að gagni við eftirlit og félli að hlutverki þess. Fjármálaeftirlitið sendi 10. desember Sjóvá – Almennum tryggingum hf., Tryggingamiðstöðinni hf. og Vátryggingafélagi Íslands hf. beiðni um að fylla út eyðublað sem útbúið hafði verið í samráði við umrædd vátryggingafélög. Félögunum var gefinn frestur til 29. desember til að svara beiðninni. Eitt félaganna fékk viðbótarfrest til 31. desember en hin svöruðu innan tilskilins frests.
Við samræmingu kom í ljós að skilningur eins félagsins á hluta fyrirspurnarinnar var frábrugðinn skilningi hinna. Þá óskaði Fjármálaeftirlitið leiðréttingar en því miður dróst að fá hana.
Í upphafi var haft að markmiði af fá allar þær upplýsingar sem tilteknar voru á útsendu eyðublaði. Við vinnslu upplýsinganna hjá félögunum kom hins vegar í ljós að ekki var hægt að samræma upplýsingar um fjölda tjónþola með óuppgerð örorkutjón, sem átti að vera hluti af svari við fyrsta lið fyrirspurnarinnar. Ástæðan er að misjafnt er hversu nákvæmar upplýsingar eru skráðar um óuppgerð tjón. Einungis eitt félag reyndi að áætla fjölda tjónþola sem fengju örorkubætur, hjá öðru félagi fengust einungis upplýsingar um mat á heildarfjölda tjónþola í óuppgerðum tjónum. Einnig kom í ljós að eitt félag hafði ekki upplýsingar í tölvutæku formi um frádrátt frá eingreiðslu, sbr. 2. mgr. 2. gr. og 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga, nr. 50/1993.
Eftirfarandi eru þær upplýsingar sem Fjármálaeftirlitið vann úr svörum vátryggingafélaganna. Þrátt fyrir að þær upplýsingar sem getið er hér að framan vanti telur Fjármálaeftirlitið að fyrirspurninni sé svarað með þessu og gott betur þar sem auk umbeðinna upplýsinga koma fram upplýsingar um fjárhæðir bóta vegna tímabundins tekjutaps á grundvelli 2. gr. skaðabótalaga til þeirra sem fengu bætur vegna varanlegrar örorku.
Vert er að taka fram að allar fjárhæðir eru færðar á lokauppgjörsár tjóns, þó að uppgjörið hafi tekið lengri tíma. Töflur 1, 2a og 2b eru byggðar þannig upp að í dálkum eru uppgjörsár tjóna en í línum er árið þegar tjón varð.
Tafla 1. Fjöldi tjónþola sem fékk eingreiðslu vegna varanlegrar örorku á grundvelli skaðabótalaga.
Tafla 2a. Bætur í eingreiðslu vegna varanlegrar örorku á grundvelli skaðabótalaga. Verðlag ársins 2003, þús. kr.
Tafla 2b. Bætur vegna tímabundins tekjutaps þeirra sem fengu bætur vegna varanlegrar örorku á grundveili skaðabótalaga. Verðlag ársins 2003, þús. kr.
Tafla 3. Dreifing greiðslna árið 2002 eftir fjárhæðum bóta.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 977 — 266. mál.
Svar

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.