Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 675. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1004  —  675. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um eldisþorsk.

Frá Jóni Gunnarssyni.



     1.      Hverjir hafa eftirlit með því hvort eldisþorskur sleppur í einhverjum mæli úr kvíum?
     2.      Hefur verið metið hvort og þá hvaða hættur geti stafað af því ef kynbættur eldisþorskur sleppur í miklum mæli úr kví og blandast staðbundnum þorskstofnum?
     3.      Hefur ráðherra í hyggju að setja reglur um leyfilegar kynbætur á eldisþorski?