Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 590. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1026  —  590. mál.




Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Ögmundar Jónassonar um söfnunarkassa og happdrættisvélar.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hverju skiluðu söfnunarkassar og happdrættisvélar Háskóla Íslands og Íslenskum söfnunarkössum árið 2003
     a.      í heild,
     b.      að frádregnum vinningum og kostnaði?


    Dómsmálaráðuneytið leitaði eftir upplýsingum frá Íslandsspili (áður Íslenskir söfnunarkassar) og Happdrætti Háskóla Íslands vegna fyrirspurnarinnar. Byggjast meðfylgjandi tölur á þeim upplýsingum.
    Vakin er athygli á að þeir peningar sem spilað er fyrir í vélunum/kössunum og eru greiddir út á staðnum, þ.e. úr vélunum/kössunum, eru ekki innleystir sem tekjur í bókhaldi, né eru vinningar gjaldfærðir, nema hvað varðar greiðslu úr gullpottum Gullnámu Happdrættis Háskóla Íslands. Svar við a-lið fyrirspurnarinnar veitir því upplýsingar um fjárhæð sem söfnunarkassar skiluðu Íslandsspili (áður Íslenskir söfnunarkassar) að frádregnum vinningum og Háskóla Íslands að frádregnum öðrum vinningum en gullpottum.
    Í svari við b-lið fyrirspurnarinnar eru upplýsingar um fjárhæð sem kassarnir skiluðu Íslandsspili að frádregnum kostnaði og sem vélarnar skiluðu Háskóla Íslands að frádregnum kostnaði og vinningum í gullpottum. Að því er varðar Happdrætti Háskóla Íslands taka upplýsingarnar einungis til þess hluta starfsemi happdrættisins sem lýtur að rekstri happdrættisvéla.

Íslandsspil Happdrætti HHÍ
a. Tekjur árið 2003 1.268.000.000 kr. 1.500.000.000 kr.
b. Að frádregnum vinningum og kostnaði 867.000.000 kr. 500.000.000 kr.