Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 642. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1028 — 642. mál.
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Gunnars Örlygssonar um efnistöku við Þingvallavatn.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Mun ráðherra samþykkja efnistöku úr móbergsfellum við Þingvallavatn til nota við áætlaða lagningu vegar frá Þingvallavatni yfir til Laugarvatns?
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er áætlað að umrædd efnistaka verði á eignarlandi úr Miðfelli í Þingvallasveit.
Um nýtingu jarðefna fer samkvæmt lögum nr. 57/1998, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Í 6. gr. þeirra segir m.a. að nýting auðlinda úr jörðu sé háð leyfi iðnaðarráðherra hvort sem það er til nýtingar auðlinda í eignarlöndum eða í þjóðlendum með þeim undantekningum sem greinir í lögunum. Veigamikil undantekning er gerð um nýtingu jarðefna á eignarlandi, sbr. 8. gr. Þar segir m.a. að heimilt sé án leyfis að rannsaka og hagnýta á eignarlandi berg, grjót, möl, leir, sand, vikur, gjall og önnur slík gos- og steinefni.
Samkvæmt framansögðu er umrædd efnistaka undanskilin leyfi iðnaðarráðherra
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1028 — 642. mál.
Svar