Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 692. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1030  —  692. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um könnun á stöðu og afkomu barnafjölskyldna.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hafa stjórnvöld kannað stöðu og afkomu barnafjölskyldna í samræmi við þingsályktun um mótun opinberrar fjölskyldustefnu og aðgerðir til að styrkja stöðu fjölskyldunnar sem samþykkt var á Alþingi 13. maí 1997?
     2.      Ef svo er, hverjar voru þá niðurstöðurnar og hafa stjórnvöld ráðist í aðgerðir á grundvelli könnunarinnar til að bæta stöðu barnafjölskyldna?