Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 693. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1031 — 693. mál.
til félagsmálaráðherra um fjölskylduráð og opinbera fjölskyldustefnu.
1. Hvenær var opinbert fjölskylduráð stofnað, sbr. III. kafla þingsályktunar um mótun opinberrar fjölskyldustefnu og aðgerðir til að styrkja stöðu fjölskyldunnar frá 13. maí 1997 og hvernig hefur það verið skipað?
2. Hafa stjórnvöld leitað eftir ráðgjöf frá fjölskylduráði vegna áforma um stjórnvaldsaðgerðir til að bæta stöðu fjölskyldunnar í samfélaginu og í hvaða tilfellum og hvernig hafa stjórnvöld brugðist við ábendingum fjölskylduráðs um úrbætur í fjölskyldumálum?
3. Hefur fjölskylduráð lagt fram tillögur um framkvæmdaáætlanir í málefnum fjölskyldunnar og hafa stjórnvöld brugðist við þeim tillögum?
4. Hefur fjölskylduráð átt frumkvæði að opinberri umræðu um málefni fjölskyldunnar og veitt leiðbeinandi upplýsingar til fjölskyldna um viðbrögð við nýjum og breyttum aðstæðum og hvernig hafa stjórnvöld stutt fjölskylduráð í þessum efnum?
5. Hefur fjölskylduráð stuðlað að rannsóknum á högum og aðstæðum íslenskra fjölskyldna og hvernig hafa stjórnvöld stutt fjölskylduráð í þessum efnum?
Skriflegt svar óskast.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1031 — 693. mál.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um fjölskylduráð og opinbera fjölskyldustefnu.
Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.