Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 696. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1034  —  696. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um stuðning við aukabúgreinar.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



     1.      Hvernig eru svokallaðar aukabúgreinar í landbúnaði skilgreindar?
     2.      Hvaða aukabúgreinar njóta fastra styrkja úr ríkissjóði og um hvaða fjárhæðir er að ræða?
     3.      Hefur ráðherra í hyggju að móta skýrar reglur um aukabúgreinar og efla stuðning við þær?